Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 13

Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 13 Tilraunir með hraðamyndavél eru á lokastigi Tvær vélar verða komnar í notkun í mars MYNDAVÉL sem notuð hefur ver- ið til hraðamælinga hjá lögreglunni hefur nú verið notuð til reynslu í nærri þrjá mánuði og í mars er ráð- gert að taka í notkun aðra slíka vél. Jón Bjartmarz, fulltrái hjá ríkislög- reglustjóra, segir að nú sé reynslu- tíma að ljúka og þegar síðari vélin verði komin í gagnið muni mark- vissar mælingar fara fram víða um landið. „Við höfum verið að reyna vélina tæknilega, fínna út hvaða filmur eru bestar og þar fram eftir götunum og höfum farið fremur rólega af stað,“ segir Jón. „Ákveðið var að kynna aðferðina vel í fjölmiðlum, m.a. með skjáauglýsingum og fara ekki mjög geyst af stað. Við höfum mest verið að á Reykjanesbraut í tengslum við umferðarátakið sem þar hófst nokkru fyrir áramót," seg- ir Jón ennfremur. Skilti voru sett upp á Reykjanes- braut þegar hraðamælingamar hófust þar sem vakin er athygli á rad- armælingum og segir Jón hugmynd- ina að setja slík skilti upp víðar á landinu, t.d. þar sem ökumenn yfír- gefa þéttbýli. Segir Jón ætlunina með þessu að minna almennt á hraðamæl- ingar. Ekki verði gefíð nákvæmlega til kynna hvar mælingamar fara fram hverju sinni, menn geti búist við radarmælingum hvar sem er. Verður að lækka ökuhraða á þjóðvegum Jón segir að ökumenn hafi verið sektaðir og um leið hafi verklagið í kringum þessa aðferð verið í mótun. Þegar bfll sé myndaður á óleyfileg- um hraða er eiganda sent sektar- boð. Vilji hann fara frekar ofan í málið verður hann að hafa samband við viðkomandi lögregluembætti sem hafi myndina, sem staðfestir brotið, undir höndum. Jón segir að ökumenn hafi tekið þessari aðferð vel og að reynslan erlendis hafi sýnt að hún auki umferðaröryggi. Fram til þessa hefur ein vél verið í notkun en önnur verður tekin í notkun í mars og að þá verði búið að móta endanlegan vinnuferil. Segir hann að þá muni notkun vélanna fara markvisst af stað. „Ég held að allir geti verið sam- mála um að við verðum að lækka umferðarhraðann á þjóðvegunum. Ef það tekst erum við að fækka al- varlegum slysum og það er tilgang- urinn með þessu öllu.“ Morgunblaðið/Kristinn MYNDAVELIN sem lögreglan hefur gert tilraunir með undanfarna mánuði. Frumvarp um innheimtukostnað Skiptar skoðanir meðal lögmanna SKIPTAR skoðanir hafa verið meðal lögmanna á nauðsyn þess að setja innheimtulög, að sögn Marteins Mássonar, fram- kvæmdastjóra Lögmannafélags Islands, en ríkisstjórnin hefur samþykkt að frumvarp þar að lút- andi verði kynnt í þingflokkum stjórnarflokkanna og síðan lagt fram á Alþingi. Marteinn sagði að sumir lög- menn teldu algeran óþarfa að setja lög í þessum efnum, en aðrir teldu að það væri bót að því að setja ákveðinn ramma um þessi málefni. Lögmenn væru þeir sem mest kæmu að innheimtumálum og menn hefðu talið að ekki væri þörf á lagasetningu, þar sem stjórn Lögmannafélagsins hefði lögboðið eftirlit með störfum lög- manna, innheimtu jafnt sem öðru og það væri í raun fullnægjandi umgjörð um þessa starfsemi. Lögmannafélagið hefur í tvígang gefið umsagnir um efni frumvarpsins, en einn fulltrúi í nefndinni sem undirbjó gerð þess var tilnefndur af félaginu. í fyrra sinnið gaf félagið umsögn í ágúst 1996 og taldi laganefnd félagsins þá svo veigamikla annmarka á frumvarpinu að hún lagðist gegn því í þáverandi mynd. Athugasemdir við gjaldskrá um kostnað í síðara sinnið þótti ekki ástæða til að gera jafn miklar athugasemd- ir við frumvarpið, enda hafði í mörgum atriðum verið tekið tillit til athugasemda sem gerðar höfðu verið. Marteinn sagði að það hefði þó einkum verið eitt atriði sem gerðar hefðu verið athugasemdir við og það varðaði heimildarákvæði til handa ráðherra til að setja ein- hvers konar gjaldskrá um þann kostnað sem heimilt væri að rukka skuldara um. Um það segi meðal annars að þetta ákvæði sé í and- stöðu við þá meginstefnu sem nú ríki í íslensku viðskiptalífi að draga skuli eins og kostur er úr afskipt- um ríkisvaldsins af verðlagningu vöru og þjónustu. Benti laganefnd- in á að færa mætti gild rök fyrir því að staða skuldara gagnvart inn- heimtuaðilum væri sambærileg stöðu kaupanda vöru eða þjónustu, sem væri gert að greiða reikning sem hann teldi óréttmætan. Innritunargjald á Ríkisspítala Lagabreyt- ingu þarf til LAGABREYTING þyrfti að koma til ef taka ætti upp greiðslu innrit- unargjalds á Ríkisspítölunum. Hins vegar gæti gegnt öðru máli um inn- heimtu svonefnds fæðisgjalds, sam- kvæmt upplýsingum heilbrigðis- ráðuneytisins. Ein þeirra aðgerða sem stjómar- nefnd Ríkisspítala hefur til athug- unar að gn'pa til til að mæta niður- skurði í ár er að taka upp innritun- argjald fyrir sjúklinga, samkvæmt þeim upplýsingum sem komið hafa fram í fjölmiðlum. Heilbrigðisráðuneytinu hafa hins vegar ekki borist fonnlega erindi þessa efnis. Samkvæmt upplýsing- um Guðríðar Þorsteinsdóttur, skrif- stofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu, er nokkuð ljóst að ekki verður tekið upp innritunargjald fyrir sjúklinga að óbreyttum lögum, enda segir í al- mannatryggingalögunum að öllum þeim sem sjúkratryggðir eru skuli tryggð ókeypis vist að ráði læknis í sjúkrahúsum. Guðríður sagði að ef það væri hins vegar fæðisgjald sem ætlunin væri að innheimta væri óljósara hvort lagabreytingu þyrfti til. Þetta mál hefði ekki verið til sérstakrar skoðunar í ráðuneytinu, en það kynni að koma til þess kæmi um það beiðni frá Ríkisspítölum. Síoustu DAGAR - enn meiri verblœkkun! A90) 2 Mjúkir herraskór í brúnu og gráu leðri. SOFT FLEX-sóli. St. 41-44 ( /.990) Skór með góðum botni frá Andiamo Hvitir leðursandalar með SOFT FLEX Inwood-tískuskór, st. 36-41 Bómullarpeysa (100%), st.M-XXL Vind- og vatnsheldar úlpur með öndun, nú aðeins 3.990- Herraúlpur, enn meiri lækkun, stærðir S-M-L, nú aðeins 2.490- (990) (1.990) Gönguskór, 25% afsláttur Herraskyrtur frá 500-, Fóðr. vindjakkar, barna, 1.490-, Dömupeysur, bómull, frá 960-, Barnaúlpur í úrvali frá 1.490-, Skíðahanskar frá 645-, inniskór herra á 295- Riflásaskór á 995- Barnaleggings á 890- Herrapeysur í úrvali frá 1.730- (einnig í yfirstærðum) Flauelsskyrtur (fínrifflaðar) á 1.143- íþróttasokkar 3/pk á 218- Fóðr. leður öklaskór á dömur, 1.495- Regatta Thermal-nærföt á 1.795- Útsölunni lýkur laugardaginn 31. janúar kl. 16 Grandagarði 2, Rvfk, sími 552-8855 og 800-6288 IVlunið að leið 2 (SVR) stoppar við dyrnar. NÆG BÍLASTÆÐI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.