Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 1

Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 1
88 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 23. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bandaríkjaforseta vel fagnað á fundi í Illinois Clinton tjáir sig ekki frekar um ásakanir Washington. Reuters. MEIRA en 10.000 manns fögnuðu Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, þegar hann kom til Illinois í Miðvesturríkjunum í gær en hann hefur ákveðið að leggja land undir fót til að fylgja eftir stefnuræðu sinni í fyrrakvöld. Eiginkona hans, Hillary Rodham Clinton, fullyrti í viðtali í morgunþætti ABC-sjón- varpsstöðvarinnar í gær að maður sinn myndi ekki tjá sig neitt fi'ekar um ásakanir um framhjáhald og meinsæri á næstunni enda væri honum það ómögulegt vegna mála- rekstursins gegn honum. A ellefta þúsund manns fagnaði Clinton þegar hann kom til há- skólabæjarins Champaign í Illinois í gær og varð hann margsinnis að gera hlé á ræðu, sem hann flutti, vegna lófataks og hvatningar- hrópa. Þegar fólk var spurt um ásakanirnar á hendur honum svör- uðu flestir því til að þeir hefðu áhyggjur af þeim en vonuðu að þær væru ósannar. Stefnuræða mælist vel fyrir Clinton flutti stefnuræðu sína á bandaríska þinginu í fyrrinótt og hvatti til þess að væntanlegur af- gangur af fjárlögum næstu ára yrði notaður til að efla almanna- tryggingakerfíð. Trent Lott, leið- togi repúblikana í öldungadeild- inni, lagðist gegn þessari hugmynd og kvaðst vilja, að afgangurinn yrði notaður að hluta til að minnka skuldir ríkisins og lækka skatta. Ræðan mæltist þó vel fyrir með- al almennings ef marka má skyndikannanir sjónvarpsstöðva. I könnun ABC-sjónvarpsins sögðust 79% aðspurðra vera ánægð með ræðuna og 56% töldu að forsetinn væri nógu heiðarlegur og heil- steyptur til að gegna embættinu. Þreytt en afslöppuð Hillary Clinton þótti afslöppuð en þreytuleg í viðtalinu í Good Morning America. „Vegna rann- sóknarinnar, sem nú stendur yfir, geta menn ekki vænst þess að for- setinn segi eitthvað frekar opin- berlega," sagði forsetafrúin. Sagði hún, að forsetanum hefði þótt það „mjög erfítt og ankannalegt" að svara spurningum um hneykslis- málið í síðustu viku þar sem hann hefði þá verið með tvo leiðtoga í heimsókn, þá Yasser Arafat, leiðtoga Palestinumanna, og Reuters CLINTON flutti í gær ræðu í Illinois og varð hann oft að gera hlé á máli sínu vegna fagnaðarláta meira en 10.000 áheyrenda. Benjamin Netanyahu, forsæt- isráðherra Israels. Með kynlífsþráhyggju Andy Bleiler, 32 ára gamall kennari, hélt í gær blaðamanna- fund og skýrði frá því að hann hefði haldið framhjá konu sinni í fimm ár með Monicu Lewinsky, sem segist hafa átt í ástarsam- bandi við Clinton. Sagði lögfræð- ingur Bleilers að Lewinsky væri haldin kynlífsþráhyggju og hikaði ekki við að hagræða sannleikanum þegar svo bæri undir. ■ Sjá umfjöllun á bls. 24, 25, 26 og 33. Viðræður um N-Ir- land taldar árangurs- ríkar London. Reuters. ÞEGAR nýjustu umferð viðræðna um frið á Norður-írlandi lauk í London í gær sögðu breskh og írskir ráðherrar að deiluaðilar, sambands- sinnai- og lýðveldissinnar, hefðu loksins farið að ræða um raunveru- leg ágreiningsefni. Liz O’Donnell, aðstoðarutanríkisráðhen-a írlands, sagðist teija að viðræður undanfar- inna tveggja daga hefðu verið árang- ursríkar. Mo Mowlam, N-írlandsmálaráð- herra bresku stjórnarinnar, sagði að ef hægt yrði að koma á fundi Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, stjórn- málaarms írska lýðveldishersins (IRA), og Davids Trimbles, leiðtoga Sambandsflokks Ulsters (UUP), myndi það auka friðarlíkur. Adams hefur skorað á leiðtoga UUP að koma til beinna viðræðna, en Trimble hafnaði því boði. „Til hvers væri það?“ sagði Trimble þeg- ar fréttamaður spurði hann hvers vegna hann vildi ekki eiga fund með Adams. Trimble sagði að Sinn Fein hefði vht fulltrúa UUP að vettugi í viðræðunum á þriðjudag. Ólíkt mat Talsmenn UUP, sem beitir sér fyrh áframhaldandi breskum yfír- ráðum á N-írlandi, voru ekki já- kvæðh um viðræðulotuna sem lauk í gær. Heimildamaður úr þehra röð- um sagði að viðræðurnar í London hefðu „ekki aukið líkurnar á sam- komulagi að neinu ráði“. Ráðherrar gáfu í skyn að svarnir andstæðingar, UUP og Sinn Fein, hefðu þokast nær hvor öðrum, þótt ofsagt væri að þeh hefðu beinlínis ræðst við. Mowlam sagði að þó væri tekið að grilla í að þessh fjendur tækjust á um tiltekin deiluefni. Reuters IRAKAR á öllum aldri hafa orðið við áskorun Saddam Husseins, forseta Iraks, um að skrá sig til heræfinga. Sagt er, að um milljón karla og kvenna muni taka þátt í æfingunum, sem hafa það að markmiði að berjast gegn „yfirgangi Bandaríkjamanna" og hrinda viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna. Morðið á Gandhi 26 dæmdir til dauða Madras. Reuters. INDVERSKUR dómstóll dæmdi í gær til dauða 10 Ind- verja og 16 Sri Lankabúa fyr- ir morðið á Rajiv Gandhi, fyiTverandi forsætisráðherra, 1991. Gandhi, sem þá var leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Ind- landi, var myrtur á kosninga- fundi í borginni Sriperumbud- ur. Gekk kona með sprengju innan klæða að honum og svipti sjálfa sig, Gandhi og fleiri lífí með því að sprengja sprengjuna. Talið er að hún hafi verið liðsmaður tamílsku tígranna á Sri Lanka. Aðeins tveh mannanna voru sakaðir um morð enhinir um samsæri. Þeir voru samt allir dæmdir til dauða. Þeir hlýddu þegjandi á dómsorðið en dóm- inum verður áfrýjað. Frakkar og Riissar telja rétt að fara samning’aleiðina að Saddam Hussein Albright vill „öflug viðbrögð“ París, Washington, London. Reuters. STJÓRNVÖLD í Frakklandi og Rússlandi hvöttu í gær til, að deil- urnar við Iraksstjórn yrðu settar niður með samningum og Frakkar gagnrýndu einnig þau ummæli Ric- hard Butlers, formanns vopnaefth- litsnefndar Sameinuðu þjóðanna, að Irakar ættu nóg af sýklavopnum til að „tortíma öllum íbúum Tel Avivs“. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og B01 Ric- hai'dson, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, munu fara til ýmissa ríkja í Evrópu, Miðausturlöndum, Afriku og Suður-Ameríku á næstu dögum til að afla stuðnings við „öflug við- brögð“ við aðgerðum íraksstjórnar gegn vopnaefthlitsnefnd SÞ. Jevgení Prímakov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði á frétta- mannafundi í París í gær, að Rússar og Frakkar væru sammála um, að árás á írak væri engin lausn, deiluna yrði að leysa með samningum. Lagði hann þó áherslu á, að Irakar yrðu að hlíta skilmálum SÞ. Talsmaður Jacques Chhacs, forseta Frakk- lands, tók undh ummæli Prímakovs og talsmaður franska utanríkisráðu- neytisins gagnrýndi harðlega þau ummæli Richard Butlers, að Irakar ættu nóg af sýklavopnum til að „tor- tíma öllum íbúum Tel Avivs“. Franskh sendimenn segja, að yfir- lýsing Butlers sé óheppileg, hann hefði betur geymt hana fyrh örygg- isráðið, en Israelar brugðust við henni með því að lýsa yfír, að árás á ísrael yrði Irökum dýrkeypt. Úrslitatilraun Albright, utanríkisráðherra Bandai'íkjanna, ætlaði í gær að leggja upp í ferð til Evrópu og Mið- austurlanda í þeim tilgangi að afla stuðnings við „öflug, alþjóðleg við- brögð“ við aðgerðum Iraksstjórnar og er ferðin talin síðasta tihaun Bandaríkjastjómar til að finna frið- samlega lausn á deilunni. Snýr hún ekki aftur úr ferðinni fyrr en um miðja næstu viku. Bill Richardson, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, mun einnig fara síðar í vikunni til höfuðborga ýmissa ríkja, sem aðild eiga að öryggisráðinu. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á þingi í gær, að koma yrði í veg fyrir, að Saddam Hussein, forseta Iraks, tækist að koma sér upp gjöreyðingarvopnum og því fyrr, því betra. Að öðrum kosti gætu afleiðingarnar orðið skelfílegar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.