Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 33
32 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FLUTNIN GS J ÖFNUN ER ÚRELT KERFI flutningsjöfnunar á olíu er úrelt fyrirbæri. Olíufé- lögunum er nú gert að greiða háar fjárhæðir í svokallaðan flutningsjöfnunarsjóð, sem á að tryggja að nokkurn veginn sama verð sé á olíu um allt land. Petta kerfi hvetur olíufélögin ekki til að ná sem mestri hagræðingu í dreifingarkerfi sínu, heldur hafa þau þvert á móti hag af því að flytja olíuna sem lengst! Rökin fyrir því, að annað skuli gilda um olíuverzlun en aðra verzlun í landinu, eru vandfundin. Hvers vegna mega neyt- endur ekki njóta ávaxtanna af frjálsri samkeppni í olíuvið- skiptum eins og öðrum viðskiptum? Eins og Morgunblaðið hefur margoft áður bent á, er það ekki stjórnmálamanna að tryggja með ríkisafskiptum að verð á olíu sé það sama um allt land. Það er olíufélaganna, sem keppa sín á milli um viðskipti einstaklinga og fyrirtækja, að haga rekstri sínum þannig að verðið sé svipað um allt land. Með núverandi kerfi eru lagðar hömlur á þessa samkeppni. Nú er liðið á þriðja ár frá því Samkeppnisráð komst að þeirri niðurstöðu að sú flokkaskipting, sem nú gildir við jöfn- un á flutningskostnaði olíu, torveldaði frjálsa samkeppni. Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra hefur haft álit ráðsins „til skoðunar" allan þennan tíma, en ekki bólar á niðurstöðu. A sínum tíma hvatti Morgunblaðið ráðherrann til að flækja málið ekki frekar með endurskoðun á flutningsjöfnunarflokk- um. Hann ætti að leggja til við AJþingi að síðustu hömlurnar á olíuverzlun yrðu afnumdar með því að leggja flutningsjöfnun- arsjóðinn niður. SAMÚEL íSELÁRDAL ÞAÐ VÆRI mikill skaði ef ekki yrði komið í veg fyrir eyði- leggingu þeirra menningarverðmæta sem nú liggja undir skemmdum í Selárdal við utanverðan Arnarfjörð. Samúel Jónsson reisti á jörðinni Brautarholti í Selárdal hús og lista- verk sem eiga sér sennilega enga hliðstæðu hér á landi og því er mikilvægt að varðveita þau sem best. Samúel var sérstæð- ur en merkilegur alþýðulistamaður. Hann var bóndi allt sitt líf og hóf ekki að sinna list sinni fyrr en hann var kominn á ellilíf- eyi'isaldur. Listaverkin eru einkum málverk og höggmyndir mótaðar í steinsteypu, en Samúel reisti einnig listasafn yfir verk sín og íbúðarhús í afar sérstökum stíl. Síðan listamaðurinn lést fyrir réttum 29 árum hefur Braut- arholt staðið opið fyrir vatni og vindum. Skemmdir hafa orðið miklar, en nú stendur til að reyna að bjarga því sem bjargað verður með samstilltu átaki nokkurra listamanna sem halda söfnunarsýningu í Galleríi Horninu. Verður þetta vonandi til þess að verk Samúels verði endurreist og þeim sýndur sá sómi sem þau eiga skilið. MIKILVÆG MENNIN G ARUMRÆÐ A UNDANFARNA mánuði hefur mjög lífleg umræða farið fram um menningu og heimspeki hér á landi. Greina- flokkur Kristjáns Kristjánssonar, prófessors í heimspeki við Háskólann á Akureyri, um tíðarandann í aldarlok sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins, hefur hrundið af stað töluverðum deilum um hinn svokallaða póstmódernisma. Kristján, sem að- hyllist hina bresk-bandarísku hefð rökgreiningarheimspek- innar, hefur ráðist harkalega að póstmódernismanum í grein- um sínum, kallað hann poppheimspeki sem lítið mark sé á tak- andi. Margir íslenskir fræðimenn, sem telja sig hafa haft gagn af kenningum helstu forkólfa póstmódernismans, hafa snúist til varnar og sakað Kristján um að hafa ekki kynnt sér umfjöll- unarefni sitt nógu vel og fella um það palladóma. í tveimur nýjum greinum í Lesbókinni hefur Kristján svo aftur sagt slíkar ábendingar vera eins og hvað annað hanagal sem hænsnabóndi þurfi alltaf að þola. Deilur um póstmódernisma hafa komið upp í flestum ná- grannalöndum okkar og eru því ekki nýjar af nálinni. Þær gefa það til kynna að mikil gerjun eigi sér nú stað, að menn- ingarástandið, ef svo mætti kalla, einkennist af óvissu, leit og ólgu. Ef til vill er það spurningin um póstmódernismann - sem enn er ósvarað - sem liggur þessari gerjun til grundvallar. Að minnsta kosti má ljóst vera að það er mikilvægt að halda áfram þessari umræðu, láta hana ekki lognast út af í geðleysi hvunndagsins. Það er einnig mikilvægt að þessi umræða fari að einhverju leyti fram í fjölmiðlum, sem hingað til, en hverfi ekki algerlega inn á síður fagtímaritanna sem eru eins og innstu launhelgar í huga almennings. Að öðrum kosti verður erfitt að halda henni lifandi. Framboð á olíumörkuðum hefur áhrif í íslenskum sjávarútvegi Kjör sjó- manna ráð- ast að hluta af olíuverði Flókið sjóðakerfi sjávarútvegsins var lengi við lýði en var afnumið 1986. Ari síðar sömdu útgerðarmenn og sjómenn um að tengja skiptahlutfall heimsmarkaðsverði á olíu. Guðjón Guðmundsson kynnti sér hvernig staðið er að þessum málum og hvernig það kom til að framboð á olíu hafði áhrif á laun íslenskra sjómanna. kfaH|ÍF; ... ¥ i ?& tonn 300 250 200 150 Flóastríð i i Gasolíuverð 1988-97 meðaltal — hvers mánaðar | á Rotterdam-markaði, cif NWE ársmeðaltal 100 H----1----1----1----1----1----'---1----1----•----1--- '88 ’89 '90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 Skiptahlutfall til sjómanna 1988-98 jan.-feb. 76.5% ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 Dt°dmar 235$ Áhnf olíuverðs á skiptahlutfall 240 220 200 180 160 140 120 100 eða hærra Olíuverðs bil 77% 78% 79% 80% 70% 71% 72% 73% 74% 75% 76% Skiptahlutfall 109$ SKIPTAHLUTFALL sjó- manna á afla hefur verið tengt olíuverði allt frá því kjarasamningar voru undir- ritaðir milli LIÚ og sjómanna 15. janúar 1987. Fyrir þann tíma var sjóðakerfi sjávarútvegsins við lýði. í sjóðina rann það sem tekið var af áflaverðmæti framhjá skiptum. Þetta var margslungið kerfi sjóða og gjalda sem margir innan sjávarát- vegsins áttu í erfiðleikum með að átta sig á hvað þá þeir sem utan hans stóðu. Sjóðakerfið var lagt af með lögum árið 1986 en tilgangur þess var m.a. að verja útgerðina áföllum í olíukreppum. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LIÚ, segir að mörg- um aðferðum hafi verið beitt áður en olíutengingin var tekin upp, m.a. út- flutningsgjaldi og niðurgreiðslu á ol- íu. Itrekuð íhlutun stjórnvalda „Sjóðakerfið var stokkað upp 1986. Aflatryggingasjóður, sem borgaði bætur eftir því hvernig fiskaðist, var lagður niður, stofnfjár- sjóður fór til fiskveiðasjóðs. Sjóðun- um var slegið saman í einn frádrátt- arlið og samið um það við samtök sjómanna. Þá var jafnframt hnýtt við það að menn nytu þess ef olíu- verðið væri lágt en væru þátttak- endur með útgerðinni ef það væri hátt. Stjómvöld höfðu ítrekað gripið inn í hlutaskiptin þegar olíukrepp- urnar 1973 og 1979 gengu yfir. Olían er það stór kostnaðarþáttur hjá út- gerðinni. Gripið var inn í þetta með útflutningsgjaldi utan skipta. Það var ekki gert í samræmi við það hvað hver aflaði heldur var það sett í pott þannig að þeir fengu mest sem eyddu mestri olíu og fiskuðu minnst,“ segir Kristján. Kristján segir að reynsla útgerð- armanna af því fyiárkomulagi sem nú gildi sé góð. Þeir telji kerfið skynsamlegt og séu sáttir við það að deila ávinningnum þegar hann er einhver. Vandiað ná Iækkununum aftur til baka Hólmgeir Jónsson, framkvæmda- stjóri Sjómannasambandsins, segir að það hafi ekki síst verið sá vandi að ná lækkunum á skiptahlutfallinu til baka sem ýtti undir vilja sjó- manna til að taka þetta kerfi upp. Samið var um það í kjarasamning- um 1987 að skiptaverð tæki breyt- ingum eftir ákveðnum reglum miðað við breytingar á heimsmarkaðsverði á olíu (sjá töflu). Nánar um þetta segh- í kjarasamningi LIÚ og Sjó- mannasambandsins að viðmiðunar- verð sem hafi áhrif á skiptaverð til sjómanna skuli miðast við meðaltal á skráðu gasolíuverði á Rotterdam- markaði. Olíuverðsviðmiðunin er reiknuð mánaðarlega miðað við skráð verð frá og með 21. hvers mánaðar til og með 20. næsta mán- aðar og skal skiptaverð ákvarðast um hver mánaðamót í samræmi við það. Breytingin var gerð til þess að koma í veg fyrir að hlutaskiptum yrði jafnan breytt með lögum. Kostnaðarhlutdeild var breytt úr 71% í 75%, þegar óunninn afli var seldur innanlands, og hækkaði í 76% 1. júní 1987. Skiptahlutur um þriðjungur heildaraflaverðmætis Þegar afli er seldur innanlands fæst ákveðið verð fyrir hann sem er heildarverð. Skiptahlutur í janúar 1998 er 76% af heildarverðinu. Sé aflinn seldur á markaði er þó fyrst dreginn frá uppboðskostnaður sem er nálægt 5%. Skiptahlutur sjó- manna reiknast síðan af skiptaverð- inu. Skiptaprósentan er mismunandi eftir veiðigi'einum og stærð skipa. Hólmgeir segir að hún sé að meðal- tali um 30%. Samkvæmt því væri hlutur sjómanna af aflanum í janúar 1998 því að meðaltali 30% af 76% heildaraflaverðsins. Kristján segir að grunnskiptahlut- ur sjómanna sé á bilinu 29-32%, síð- an komi aukahlutir og orlof til við- bótar. Nær að miða við 100% Þegar lög um kostnaðarhlutdeild utan skipta voru sett 1983 var ákveðið með lögum að skiptaverð yrði 70% af heildaraflaverði. I samn- ingunum 1987 var samið um að skiptaverðið færi í 75% og síðar um vorið í 76% og sveiflaðist út frá því hlutfalli í takt við breytingar á heimsmarkaðsverði á olíu. Kristján segir að það hafi verið vitlaust að standa svo að málum. Miklu nær hefði verið að skiptaverð- ið hefði verið miðað við 100% og skiptahluturinn verið lækkaður í samræmi við það. „Þá væri komið kerfi sem venjulegur maður gæti skilið. En þetta er í þessum búningi svo torveldara sé að skilja það en það er ekki okkar vilji,“ segir Krist- ján. Það sem eftir stendur af heildar- aflaverðmætinu eftir að skiptaverð hefur verið dregið frá fer til útgerð- arinnar. „Þessi 23% fara ekki til neinna tiltekinna þarfa. Þetta eru umsamin hlutaskipti," sagði Krist- ján. Hólmgeir segir að Sjómannasam- bandið telji að gera þurfi ýmsar lag- færingar á þessu kerfi. Slagurinn núna standi þó ekki um það. Hann viðurkennir að það hljóti að teljast sérstakt að heimsviðburðir sem hafi áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu ráði að hluta til kjörum sjómannastéttar- innar á Islandi. ______________________FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 33 _ Ræðst framtíð forset- ans af lagaklækjum? Það var ekki síst Watergate-málið sem stuðl- aði að því að rjúfa friðhelgina um forseta- embættið í bandarískri stjórnskipun, segir Páll Þórhallsson. Forseti sem sýnir á sér höggstað getur þurft að verjast harðskeyttri sókn frá einstaklingum og sjálfstæðum rann- sóknaraðilum sem hafa geysivíðtækar heim- ildir til að leiða hið sanna í ljós. FYRIR þá sem fylgjast með úlfakreppu forsetans úr fjarlægð getur það ekki annað en vakið aðdáun hve skilvirkt bandarískt réttarkerfi er þegar til kastanna kemur. Einstak- lingar með snjalla lögmenn sér við hlið og sjálfstæðir saksóknarar hafa öll tök á að berjast við sjálfan valda- mesta mann heimsins á jafnréttis- grundvelli. Handhafar opinbers valds eni hver öðrum óháðir sem er liður í gagnsæju stjórnkerfi sem er fært um að vinna bug á spillingu sem gerir vart við sig. Málshöfðun Paulu Jones, konunn- ar sem sakar Bill Clinton um að hafa áreitt sig kynferðislega á meðan hann var enn ríkisstjóri í Arkansas þótti í fyrstu ekki líkleg til að velgja forsetanum undir uggum. En hvort sem Jones mun hafa erindi sem erf- iði eður ei er ljóst að málatilbúnaður hennar mun draga dilk á eftir sér. Lögmenn Jones hafa nefnilega kappkostað að leiða fyrir réttinn aðrar konur sem segja forsetann hafa leitað á þær. Er það gert í þeim tilgangi að sýna fram á að meint hegðun Clintons gagnvart Paulu Jones inni á hótelherbergi í Little Rock hafi ekki verið neitt einsdæmi. Komust þeir á snoðir um að Clinton kynni að hafa átt vingott við lærling í Hvíta húsinu, stúlku sem þá var lið- lega tvítug, Monicu Lewinsky að nafni. Var henni send vitnastefna skömmu fyrir jól. Sú sending hefur heldur betur komið róti á hug stúlkunnar því hún tráði vinkonu sinni, sem starfað hafði með henni í varnarmálaráðuneytinu, Lindu R. Tripp, fyrir því að henni væri vandi á höndum. Hún hefði átt vingott við Clinton en forsetinn og lögmaður hans Vernon E. Jordan yngii hefðu lagt að sér að segja ekki frá því. Hvað sem réð gerðum stúlkunnar þá gaf hún að því er næst verður kom- ist eiðsvarna yfirlýsingu 7. janúar síðastliðinn ætlaða dóminum í Little Rock þar sem hún neitaði því að hafa átt kynmök við forsetann. Horn í síðu forsetans Tripp þessi hefur lengi haft hom í síðu forsetans en hún starfaði áður í Hvíta húsinu. Ákvað hún að láta Kenneth W. Starr, sérlegan sak- sóknara í Whitewater-málinu svo- kallaða, vita af málinu. Hann hefur áram saman rannsakað meint fjár- málamisferli Clinton-hjónanna er þau ráku lögmannsstofu í Arkansas. Starr fékk þá Tripp hinn 13. janúar síðastliðinn til að taka upp samtal við Lewinsky og naut við það tækni- legrar aðstoðar alríkislögrelunnar FBI, sem útbjó Tripp með falda hljóðnema. í kjölfarið leitaði Starr heimildar dómsmálaráðherrans Ja- net Reno og dómara til að víkka rannsókn sína út með þessum hætti. Að sögn Washington Post sendi Starr beiðni þar að lútandi til dóms- málaráðuneytisins hinn 15. janúar síðastliðinn. Beiðnin til dómsmála- ráðuneytisins var rökstudd með því að granur léki á að Vemon E. Jord- an yngri, lögmaður Clintons, hefði lagt að Lewinsky að bera ljúgvitni. Þetta gæti talist tengjast White- water rannsókninni sem snýst meðal annars um það hvort Jordan og fleiri vinir forsetans hafi borið fé á Webst- er L. Hubbell, fyrrverandi aðstoðar- dómsmálaráðherra og aldavin for- setans, til þess að hann ljóstraði ekki því upp sem hann vissi um fortíð for- setans. Stam lét afrit af upptökun- um af samtölum Tripps og Lewinsky fylgja með beiðninni og kvaðst jafn- framt verða að fá heimildina strax því fréttatímaritið Newsweek væri komið á sporið og myndi verða fyrst með fréttína af Lewinsky. Þá væri allt unnið fyrir gýg. Dómsmálaráðherrann undir pressu Dómsmálaráðherrann taldi sér ekki fært að hafna beiðninni meðal annars vegna þess að hún kynni þá að vera sökuð um að leggja stein í götu rannsóknar Starrs. Embættismenn í dóms- málaráðuneytinu gættu þess hins vegar að tengja rannsóknarheim- ildina ekki við Whitewa- ter-málið því annars gæti Starr í framtíðinni of auðveldlega beint rannsókn sinni að hverj- um sem er í skjóli heim- ilda sinna. Rannsóknar- heimildin nýja er því sjálfstæð og bundin við Lewinskj'-málið. Heim- ildarmenn Washington Post segja hins vegar að vegna þess að aðferðir Starrs era á mörkum þess að teljast eðlilegar þar sem hann í raun þving- aði dómsmálaráðuneytið til þess að rýmka rannsóknarheimildir sínar gætu þær fært verjendum í hugsan- legum dómsmálum sem rísa kynnu vopn upp i hendurnar. Áður en frásögn Lewinsky komst í hámæli, 17. janúar síðastliðinn, kom Clinton fyrir réttinn í Little Rock til að gefa aðilaskýi-slu sem kallað er í máli Paulu Jones á hend- ur honum. Var Clinton spurður um sambandið við Lewinsky og virðist hann ekki hafa haft hugmynd um það sem dómsmálráðherranum og Starr hafði farið á milli tveim dögum áður. Að minnsta kosti er gengið út frá því að Clinton hafi líkt og Lewin- sky tíu dögum áður svarið fyrir kyn- ferðislegt samband þótt ekkert sé um það vitað opinberlega því réttar- höldin era fyrir luktum dyram sam- kvæmt ákvörðun dómara. Spurning hefur því vaknað hvort Clinton hafi þar talað gegn betri vitund og hvort stúlkan hafi gert það fyrir hvatningu forsetans. Hraðar hendur Starr hefur haft hraðar hendur við að viða að sér mögulegum sönnunar- gögnum um samband forsetans við lærlinginn. Hefur hann tylft lög- fræðinga og álíka marga FBI-menn sér til fulltingis. Þannig var Lewin- sky fengin til að afhenda möguleg sönnunargögn. Þar á meðal era sagðar vera gjafir frá forsetanum og upptökur af skilaboðum sem forset- inn á að hafa lesið inn á símsvara stúlkunnar. Einnig hefur Starr kraf- ist endurrits af framburði Clintons fyrir réttinum í Jones-málinu 17. janúar síðastliðinn. Öðru vísi getur hann ekki lagt mat á hvort Clinton hafi gi-eint rétt frá fyrir dómi. Starr hefur einnig krafist þess að fá afrit af símtalaskrám Hvíta hússins, þar sem skráð era símtöl inn og út úr húsinu, og afrit af ör- yggismálaskrám þar sem fram kemur hverjir era í húsinu á hverjum tíma. Jafnframt krefst hans þess að fá mynd- bandsupptökur frá ör- yggismyndavélum húss- ins. Þessi gögn munu lögmenn forsetaemb- ættisins hafa afhent. Það er athyglisvert að ekki er reynt að bera við friðhelgi forsetaembætt- isins enda hafði Hæsti- réttur skorið úr því á sínum tíma að Richard Nixon væri ekki undanþeg- inn því að afhenda afrit af hljóðupp- tökum úr Hvíta húsinu en forsetinn hafði eins og kunnugt er látið hlera síma hússins og taka upp samtöl við ráðgjafa sína þar sem fram komu upplýsingar um ólögmætt ráða- brugg. Vitnaleiðslur era byrjaðar í Lewinsky-málinu fyrir kviðdómi í Washington sem skera mun úr um hvort ákæra verði heimiluð. Fyrst bar vitni Betty Curry, einkaritari Clintons, sem á að hafa yfirsýn yfir heimsóknir Lewinsky í Hvíta húsið en fregnir herma að ekki sé lengra frá síðustu heimsókn en nokkrar vikur. Lewinsky hefur ekki enn ver- ið yfirheyrð enda krefst hún þess að verða ekld ákærð fyrir meinsæri í Jones- málinu gegn því að segja sögu sína. Hafa samningaviðræður staðið um þetta undanfarna daga milli lögmanna hennar og starfs- manna Starrs og era sagðar á loka- stigi. Hafa þær einkum snúist um það hvort komi á undan, tilboð sak- sóknara um sakarappgöf eða skrif- leg yfirlýsing Lewinsky um að hún standi við það sem hún sagði í einka- samtölum við Tripp. Mikilvægt er fyrh’ Starr að fá Lewinsky til að staðfesta frásögn sína því óvíst er um sönnunargildi segulbandsupp- töku sem varð að því er best er vitað til án vitundar Lewinsky. Slík upp- taka kann að brjóta í bága við lög og vera því gagnslaus fyrir rétti. Starr hefur þegar gefið Tripp sakarapp- gjöf í skiptum fyrir hennar frásögn. Lögmenn Clintons í Jones-málinu hafa einnig gripið til sinna ráða. Tripp á að koma fyrir réttinn í Little Rock á morgun og hafa lögmennirn- ir krafist þess að fá áður afrit af samtölum hennar við Lewinsky sem era í vörslu Starrs og öðrum gögn- um sem hana varða. Jafnframt hefur Clinton óskað eftir því að málflutn- ingi verði flýtt en hann er fyrirætl- aður 27. maí næstkomandi. Illu sé best aflokið enda sé málið á góðri leið með að leggja forsetaembættið í rást. Að baki kann einnig að búa sú hemaðartækni að auðveldara sé að kljást við ásakanirnar um samband við Lewinsky í einkamáli heldur en í opinbera máli sem Starr myndi höfða. Að minnsta kosti er hagsmun- um forsetans talið best borgið með því að hraða réttarhöldunum. Þess má geta að Clinton krafðist þess í upphafi málsóknarinnar að hann fengi að njóta friðhelgi á meðan hann gegndi forsetaembætti en Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði því einróma með dómi á síðasta ári. Öldungadeildin dæmir Eins og kunnugt er hafa vaknað spumingar um hvaða afleiðingar það hefði ef frásögn Lewinsky reynist rétt. Ekki leikur vafi á-því að það er brot á alríkislögum, sem getur varð- að allt að fimm ára fangelsi, að segja vísvitandi ósatt fyrir dómi jafnvel þótt í einkamáli sé eins og því sem Paula Jones hefur höfðað. Það er ekki minna brot að hvetja aðra til að ‘ segja ósatt fyrir dómi, sem kallast hlutdeild í meinsæri og að leggja stein í götu réttvísinnar. Hins vegar er ekki ljóst hvert framhaldið yrði ef ástæða þætti til að ákæra forsetann. Það er eitt af hinum stóra vafamál- um í bandarískum stjórnskipunar- rétti hvort megi höfða venjulegt refsimál á hendur starfandi forseta eða hvort eina leiðin sé sú sem ráð- gerð er í 4. mgr. 2. gr. stjórnarskrár- innar frá 1787. Þar segir að höfða skuli mál á hendur forsetanum til embættismissis vegna landráða, mútuþægni og annarra stórfelldra glæpa og afbrota. Það er öldunga- deild þingsins sem dæmir í slíku máli og þarf samþykki tveggja þriðju hluta til áfellisdóms. Ákvörð- un um málshöfðun er hins vegar tek- in af fulltráadeildinni. Stjómarskrá- in mælir fyiir um að dómur í slíku máli kveði einungis á um embættis- missi og bann við því að gegna opin- beram tránaðarstörfum. Hins vegar eigi almennir dómstólar síðar að dæma um aðra refsingu ef þurfa þykir. Aldrei hefur komið til þess að for- setinn sé dæmdur frá embætti en eins og menn minnast sagði Nixon af sér áður en til þess kæmi. Orð gegn orði Lögspekingar segja það vafalítiðJ að þau brot sem Clinton er sakaður um falli undir fyrmefnda stjómar- skrárgrein. Hins vegar hafa menn bent á að ákaflega sjaldgæft sé að opinbert mál sé höfðað á hendur fólki fyrir meinsæri, þetta er fremur gamaldags brot ef svo má að orði komast sem önnum kafnir saksókn- arar eltast lítt við. Það mætti því halda því fram að það væri lítið rétt- læti í því að ákæra forsetann fyrir það sem allur almenningur kemst upp með án þess að hljóta bágt fyrir. Réttarfarssérfræðingar hafa ' einnig bent á að það kunni að reyn- ast sérlega erfitt að sanna lögbrot á forsetann. Ef engin hlutlaus vitni eða áþreifanleg sönnunargögn finn- ast stendur auðvitað orð gegn orði. Þá myndi forsetínn eins og aðrir sakborningar í réttamki væntan- lega njóta vafans. Starr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.