Morgunblaðið - 21.11.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997 B 7
DAGLEGT LÍF
1. TENGSL þyngdarafls, tíma og rafsegulskrafta verða könnuð betur.
m... æ jipud
i/Wv v v v vA/V^
2. KASÍMÍR hrif og tómaflökt verða í brennidepli rannsókna.
3. ORMAGÖNG til að stytta sér leið um geiminn gefa von.
4. VARPDRIF til að moka rúminu aftur fyrir geimfarið.
ÞUN GL AMALEGT geimskot,
skortir léttleika framtíðarinnar.
MAÐURINN er ferðalangur
og bætir við farskjóta sína.
FRAMTÍÐARFAR jarðarbúa
milli áfangastaða á jörðinni.
Flytur farþega og vörur.
HELSTU HUGTÖK
HÉR skilgreinir Bergþór Hauksson eðlisfræðing-
ur helstu hugtökin sem gott er að kunna skii á til
að öðlast innsýn í sljarnfræðilegar fcrðir út fyrir
sólkerfið sem lesa má um í greininni.
DRIFEFNI (e. propellant): Efni sem blásið er út
um annan enda eldilauga til að fá flaugina sjálfa til
að fara í hina áttina.
TÓMAFLÖKT (e. vacuum íluctuations): Skammta-
fræðilegur eiginleiki sem lýsir tilviljanakenndum
orkusveiflum í tómarúmi þegar öll orka hefur verið
fjarlægð.
KASÍMÍR HRIF (e. Casimb' effect): Hrif sem sum-
ir telja að færi sönnur fyrir tilyist tómaflöktsins.
Þau lýsa sér í því að ef tvær leiðandi plötur eru
lagðar saman fara þær að þrýstast saman vegna
meiri tómaflökLs fyrir utan en á milli platnanna.
OFURLEIÐARAR SEM SNÚAST (e. supercond-
uctor): Vitnar til tilrauna sem níssneskur eðlis-
fræðingur gerði í Finnlandi 1991-1992 þar sem
massi hluta sem voru nálægt ofurleiðurum sem
snerust virtist minnka. Ekki hefur tekist að
staðfesta eða luifna þessum rannsóknum enn.
ORMAGÖNG (í:. wormholes): E.k. gat í tíma-
rúminu sem gerir vegalendir milli fjarlægari staða
styttri (líkt og göng í gengum jörðina myndu gera
vegalengdina frá íslandi til Kína styttri).
VARPDRIF (e. vvai'pdrive): Tæki sem teygir eða
strekkir á tínrarúminu fyrir framan geimfar og
hrúgar því fyrir aftan það og gerir því farinu kleift
að ferðast hraðar en ella.
TVINNTÖLUÞÁTTUR (Imaginary - complex
part): I sumum kenningum hafa hraðeindir hraða
með tvinntöluþætti (þ.e. hraði sem ekki er einungis
með rauntöluþátt heldur einnig tvinntöluþátt, en
tvinntölur eru notaðar í ýmsum tilgangi í eðlis-
fræði). Ekki hefur fundist nein túlkun á því hvað
tvinntölugildur hraði þýðir eðlisfræðilega.
SKAMMTASMUG (e. quantum tunneling). Sá eig-
inleiki agna að geta ferðast í gengum svæði sem
krefst meiri orku en svo að þær gætu það sam-
kvæmt sígildri eðlisfræði.
HRAÐEINDIR (e. tachyons): Eindir sem fara
hraðar en ljósið. Enn hefur engin slík fundist og
ekki er víst hvort nokkur slík eind sé til.
ANDEFNI (e. antimatter): Sérhver ögn hefur sína
andögn, sem hefur sama massa en gagnstæða
hleðslu. Sem dæmi er andeind rafeindarinnar s.k.
jáeind. Andeindir eru til og hafa fundist í geim-
geislum og í stórum öreindahröðlum s.s CERN.
SKAMMTAFRÆÐI (e. quantum mechanics): Grein
innan eðlisfræði sem mótaðist á öðrum fjórðungi
þessaræ- aldar, Fjallai' aðallega um smásæ kerfi og
er nákvæmasta eðlisfræðikenning sem þekkt er.
TAKMARKAÐA AFSTÆÐISKENNINGIN (e.
special theory of relativity): Sett fram af Albert
Einstein 1905 og fjallar um tengsl rúms og tíma án
þess að taka þyngd þar inn í.
ALMENNA AFSTÆÐISKENNINGIN (e. general
theory of relativity): Sett fram af Einstein 1915
sem alhæfing á takmökuðu afstæðiskenningunni
og innilieldur hana sem jaðartilvik. Fjallar um
tengsl þyngdar og tímarúmsins.
MEÐ AUGUM LANDANS
Kosningar
Arna Garðarsdóttir býr ásamt
eiginmanni sínum, Jónasi Tryggvasyni,
og tveimur ungum börnum í Seattle í
Bandaríkjunum.
NYLEGA voru kosn-
ingar hér í Was-
hington fylki. Fyrir
. ykkur sem ekki eruð
hér á staðnum er það
kannski ekki neitt sér-
staklega áhugavert.
HFerlið er töluvert
öðruvísi en á íslandi
og margt sem kemur á
óvart.
? ' Kosningadaginn, 4.
y M J nóvember, var annars
vegar kosið um fólk í
opinber embætti og hins vegar
um ákveðin málefni, átta talsins.
Það sem einkenndi kosningarnar
öðru fremur var léleg þátttaka,
innan við 40%, sem er allt of lítið
miðað við mikilvægi málefna sem
verið var að kjósa um, og svo sú
staðreynd að næstum engin al-
menn umræða fór fram í útvarpi
eða sjónvarpi.
Tveimur vikum fyrir kosning-
ar var sendur bæklingur á hvert
heimili með kynningu á því fólki
sem kjósa átti um og málefnum
sem kjósendur þurftu að taka
afstöðu til. Þau embætti sem var
verið að kjósa um í hverri sýslu
fylkisins voru; borgar- og bæjar-
stjóraembætti, hafnarstjóra-
embætti (þar sem við á), fræðslu-
stjóraembætti og borgar- og
bæjarlögfræðingar auk fram-
kvæmdastjóra sýslunnar.
Málefnin sem kjósendur þurftu
að taka afstöðu til voru í fyrsta
lagi hvort skammbyssur ættu að
hafa öryggislása og allir þeir sem
ættu skammbyssur þyrftu að
hafa skírteini fyrir þeim og
sækja að auki námskeið um
meðferð skotvopna. Þá var spurt
hvort það ætti að vera leyfilegt
að segja starfsmönnum upp og
hafna þeim sem meðlimum
verkalýðshreyfinga vegna kyn-
hneigðar þeirra. Ennfremur
hvort tannfræðingar ættu að fá
leyfi til að starfa sjálfstætt eða
hvort þeir ættu áfram að vera
undirmenn tannlækna. Spurt var
hvort lögleiða ætti maríjúana
samkvæmt læknisráði og hvort
breyta ætti ákvæðum í stjórnar-
skránni þannig að fræðslustjórar
sætu til fjögurra ára í stað
tveggja eins og nú er.
I bæklingnum sem kjósendur
fengu voru færð rök með og á
móti hverju málefni. Rök-
semdafærslan var unnin af
nokkrum aðilum sem voru fengn-
ir sérstaklega til þeirrar vinnu.
Frambjóðendur fengu líka pláss
í bæklingnum til þess að
sannfæra kjósendur um að þeir
væru besti kosturinn.
Borgarstjóraefni voru tvö eftir
forkosningar, þeir Charlie
Chong, 71 árs, og Paul Schell, 60
ára. Sá síðarnefndi var kjörinn
borgarstjóri með 56% atkvæða.
Önnur embætti ætla ég ekkert
að vera að nefna hér. Mér fannst
hvorugt borgarstjóraefnanna
vænlegur kostur og spurði fólk
héðan úr borginni hvernig stæði
á því að frambjóðendur væru
báðir eldri menn. Svörin voru á
þá leið að þetta væri hið opin-
bera og ungar og frambærilegar
manneskjur væru ekki í opin-
bera geiranum heldur í einka-
geiranum þar sem launin eru
hærri.
Málefnin átta voru öll felld í
kosningunum. Það segir kannski
sína sögu að einn kjósandi af
hverjum fimm var ekki með
skýra mynd af þeim málefnum
sem átti að kjósa um. Mesta um-
fjöllun fékk skammbyssumálið
en það var fellt með 71% at-
kvæða. Þeir sem voru á móti
hömruðu á því að hver einstak-
lingur ætti að hafa rétt á því að
verja sig ef á hann yrði ráðist.
Mikið var einnig talað um það að
„National Rifle Association“
hefði eytt gríðarlegu fjármagni í
auglýsingaherferð fyrir kosning-
arnar. Skotvopnaiðnaður hér í
Bandaríkjunum er töluverður og
miklir fjármunir í húfi. Flestir
kjósendur vora þó á þeirri
skoðun að eigendur skammbyssa
ættu að þurfa skráningarvottorð.
Málefni homma og lesbía var
fellt með 67% atkvæða. Það sem
kjósendur höfðu helst á móti því
var að enn einn minni-
hlutahópurinn fengi einhver sér-
réttindi. Þarna væri hvort eð er
ekki um raunveralegt vandamál
að ræða. Þeir sem studdu málið
segja að kynhneigð sé einkamál
hvers og eins og eigi ekki að
skipta máli á vinnustað. Einstak-
lingur hafi rétt á að vinna. Þetta
sé jafnréttismál.
Málefnið varðandi lögleiðingu
á notkun maríjúana samkvæmt
læknisráði var fellt með 60% at-
kvæða. Þeir sem voru fylgjandi
sögðu helst að það ætti að leyfa
þetta samkvæmt læknisráði, það
mundi minnka misnotkun á eit-
urlyfjum, væri almennt góð hug-
mynd og mundi minnka afbrot.
Talsmenn gegn lögleiðingu á
maríjúana og fleiri eiturlyfjum
sögðu helst að þetta myndi opna
leiðina að öðrum eiturlyfjum.
Almennt séð finnst okkur
Islendingunum hér þetta hafa
verið nokkuð góð aðferð til að
koma mönnum og málefnum á
framfæri. Hér í landi sjónvarps-
ins fær það nefnilega lítinn
hljómgrann að hafa umræðu-
þætti eins og Islendingar þekkja
þar sem frambjóðendur setjast
fyrir framan sjónvarpsvélarnar
og skiptast á skoðunum.
Svona að lokum má nefna frétt
í „Seattle Times“ í gær sem er
kannski dæmigerð fyrir Banda-
íTkjamenn og afstöðu þeirra til
byssueignar. Tveir menn í tveim-
ur bflum voru á hraðbraut einni
hér í borg. 49 ára ökumaður bíls-
ins á undan hafði keyrt fram hjá
4 gatnamótum með vinstra
stefnuljósið á án þess að beygja
til vinstri. 19 ára ökumaður bfls á
eftir var orðinn ansi piiTaður á
þessu. Hann fór að blikka þann á
undan, færði sig síðan upp á
skaftið og keyrði nokki'um sinn-
um aftaná bílinn. Ökumaður þess
bfls stoppaði og var ekki
ánægður. Sá 19 ára snai'aði sér
útúr bflnum með hornabolta-
kylfu, ekki er vitað hvort hann
ætlaði að berja ökumann, bfl eða
hvað. Ökumaðurinn í fremri bíln-
um greip hins vegar skamm-
byssu sína úr bílnum og skaut
drenginn, en þó ekki til bana.
Það er eins gott að fara gætilega
í umferðinni og gera allt rétt.
Reyndar hafa ökumenn hér í
norðvestur fylkinu verið taldir
mjög kurteisir í umferðinni.
Hvernig ætli þeir séu þarna í
Suðurríkjunum, ef þeir eru
svona hér?