Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 68

Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 56$ 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Þorsteinn GK fékk í skrúfuna skammt undan Krísuvíkurbergi og rak upp í kletta ÁSGEIR Magnússon, skipsljóri á Þorsteini GK, og Helgi Hrafnsson vélavörður hífðir upp í Gæsluþyrluna á meðan skipið rekur í áttina að Krísuvíkurbergi. Á mynd Ragn- ars Axelssonar sést Hjálmar Jónsson sigmaður standa einn á skut skipsins. Þorstein rak upp í klettana og valt á hliðina eins og sést á mynd Kristins Benediktssonar hér að neðan. Tíu manna áhöfn bjargað með þyrlu ÁHÖFN björgunarþyrlu Landhelg- isgæslunnar bjargaði tíu manna áhöfn netabátsins Þorsteins GK áður en skipið strandaði, fylltist af sjó og valt á hliðina undir Krísu- víkurbergi í slæmu veðri um miðjan dag í gær. Fyrstu skip komu á staðinn um það bil sem síðustu mennirnir voru hífðir frá borði og horfðu áhafnir þeirra á skipið reka upp í klettana. Þorsteinn GK-16, 179 brúttó- lesta stálbátur frá Grindavík, var á netaveiðum 0,8 sjómílur undan Krísuvíkurbergi þegar hann fékk net í skrúfuna. Rak hann skáhallt í áttina að berginu. Ásgeir Magn- ússon skipstjóri segir að ekki hafi Báturinn tal- inn ónýtur tekist að koma vélinni aftur í gang. Rekið stöðvaðist þegar akkerin voru sett út en þau slitnuðu frá þegar hvessti. Þyrluáhöfnin í gallana „Ég ákvað í ljósi atburða síðustu daga að öll áhöfnin færi í galla, við gerðum okkur klára og færum út í vél. Við vorum varla komnir í gallana þegar við vorum beðnir að fara af stað,“ segir Páll Halldórs- son, flugstjóri þyrlunnar. Þyrlan var komin á staðinn þegar akkerisfest- arnar byijuðu að losna og voru sex skipveijar þá hífðir frá borði og síðan þeir fjórir sem eftir voru þeg- ar akkerisfestarnar losnuðu alveg og skipið tók að reka hratt að landi. Hjálmar Jónsson sigmaður segir að erfitt hafi verið að athafna sig í lokin vegna þess hvað skipið lét illa. Skipstjórinn vildi verða eftir til að reyna að bjarga skipinu en ákvað svo að yfirgefa það. „Skipið rak mjög hratt og þetta mátti engu muna,“ sagði hann eftir á. ■ Nokkrar bátslengdir/6 ■ Mannbjörg/34-35 Sljóniin boðar skattalækkun Boðaðar aðgerðir ríkisstj órnarinnar kosta ríkissjóð um 4,5 milljarða króna TEKJUSKATTUR lækkar á næstu fjórum árum um 4% samkvæmt ákvörðun ríkis- stjórnarinnar og dregið verður úr jaðar- áhrifum barnabóta og vaxtabóta. Þessar ráðstafanir voru kynntar í gær eftir að Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Iðja og Rafiðnaðarsambandið gengu frá kjara- samningi við vinnuveitendur í gærmorgun. Skattprósenta í staðgreiðslu lækkar í áföngum úr 41,98% í 37,98% frá 1. janúar sl. til 1. janúar 2000. Þá hækka skattleysis- mörk um 2,5% á ári, í samræmi við verð- bólguforsendur sem samningsaðilar gáfu sér í samningunum í gærmorgun. Þá verða gerðar breytingar á barnabótum og vaxta- bótum sem eiga að koma fólki með meðal- tekjur og lægri til góða. Að auki verður hátekjuskattur hækkaður úr 5% í 7% en tekjumörk hans jafnframt hækkuð. Á ystu nöf Þessar aðgerðir kosta ríkissjóð um 4,5 milljarða þegar þær verða að fuilu komnar til framkvæmda. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sagði ríkisstjórnina telja þessa ákvörðun á ystu nöf og reyna á þanþol ríkisbúskaparins. Hins vegar treystu menn því að þær forsendur sem gengið væri út frá í nýju kjarasamningunum yrðu lagðar til grundvallar frekari samningum. Samið um 12-14% hækkun launa Kjarasamningarnir sem samkomulag náðist um í fyrrinótt og í gærmorgun fela að jafnaði í sér rúmlega 12-14% almenna hækkun launa á samningstímanum, ásamt sérstökum krónutöluhækkunum lægstu taxta, auk áherslu sem lögð er á að færa launataxta nær greiddu kaupi. Sú breyting á þó ekki að leiða til hækkunar á launum sem eru hærri en nýju taxtarnir. Álags- og yfirgreiðslur vega þannig minna í heild- arlaunum en áður. Samningstíminn er rúmlega tvö og hálft til þrjú ár. Að mati samningsaðila er heildarkostnaður samn- inganna 13-15% á samningstímanum. ■ Kjarasamningar/2, 4, 10, 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.