Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HERDIS BIRNA ARNARDÓTTIR + Herdís Birna Arnardóttir fæddist í Reykjavík hinn 15. apríl 1963. Hún lést á heimili sínu 3. mars sl. For- eldrar hennar eru Áslaug Guðbrands- dóttir húsmóðir og Orn Bjarnason yfir- læknir. Herdís Birna eignaðist eina dóttur, Örnu Ösp Magnúsardótt- ur, 25. ágúst 1984, með Magnúsi Guð- mundssyni bókaút- gefanda, sambýliskona hans er Þóra Ólafsdóttir. Systkini Her- dísar eru: 1) Edda Björk kenn- ari, gift Guðmundi Jóhanni 01- geirssyni heimilislækni, þeirra börn eru íris Huld, Bjarni Dav- íð og Jóhann Birkir. 2) Guð- brandur Örn markaðsstjóri, í sambúð með Björk Gísladóttur hjúkrunarnema, þeirra börn eru Gísli Örn og Birnir. Ástvinur Herdísar Birnu var Haukur Holm fréttamaður. Herdís Birna lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólan- um í Reykjavík árið 1983 og síðar BA- prófi í ensku frá Háskóla Islands. Einnig lagði hún stund á nám í stjórnmálafræðum. Herdís hóf störf á fréttastofu Stöðvar 2 1989 og vann þar við þýðing- ar á erlendum fréttum. Seinna tók hún við starfi sem frétta- maður á Bylgjunni og 1992 hóf hún störf sem fréttamaður í erlendum fréttum á fréttastofu Stöðvar 2. Utför Herdísar Birnu fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Kveðja frá foreldrum „Langt í burtu ljúf og blíð líkt og bam hún sefur. Yndisþokka ár og síð ástin henni gefur. - Ekur hún svo æskufrið út um draumalöndin víð og um háls mér handleggjunum vefur. Englar guðs með augu blá yfir henni vaka, svo að höfug húmsins brá hana skuli ei saka. Fegurð hennar horfa á, heillaðir af ljúfri þrá, * - lokk úr hennar ljósa hári taka.“ (Jóhannes úr Kötlum) Kveðja frá systkinum Með þessum fallegu orðum frænda okkar viljum við minnast þín, kæra systir. „Gott er ein með guði að vaka, gráta hljótt og minnast þín, þegar annar ylur dvín, - seiða liðið líf til baka, og láta huggast, systir mín! Við skulum leiðast eilífð alla, - aldrei sigur lífsins dvín. Ég sé þig, elsku systir mín. > Gott er þreyttu höfði að halla, að hjarta guðs - og minnast þín.“ (Jóhannes úr Kötlum) Edda Björk og Guðbrandur Örn. að þú kvelst ekki lengur. Ég sakna þín. Þótt þú sért farin, finnst mér þegar ég hugsa um þig eins og þú sért hjá mér. Þú hverfur aldrei úr huga mér. Þakka þér fyrir allt. Haukur. Elsku Dísa. Þú ert best. Við elsk- um þig ofsa mikið. Gísli Örn Guðbrandsson, (4ra ára). Þegar ég kynntist Dísu bjuggu hún og Ama Ösp í lftilli íbúð á Stúdentagörðunum. Ég dáðist að því hversu fallegt og hlýlegt heim- ili hennar var og hversu auðvelt hún átti með að verða glæsilegust allra með „einhveiju sem hún kippti úr fataskápnum". Dísa hafði einstakt lag á því að láta öllum sem við hana töluðu líða sem jafningjum sínum og hvar sem hún kom við einkenndust verk hennar af natni og fagmennsku. Það var Dísu langþráður draumur að hætta baslinu á leigumarkaðnum og komast í sitt eigið húsnæði, sér- staklega til að veita Örnu öruggt skjól. Með þrautseigju tókst henni að öngla saman nægu fé tii að kaupa íbúð en þegar hún hafði búið einung- is fáa mánuði í nýju íbúðinni sinni greindist hún með krabbamein sem varð hennar banamein. Fram á síðasta dag var Dísu umhugað um velferð ættingja sinna og vina og hvatti hún mig óspart í mínu námi. Ég er henni þakklát fyrir hvatninguna og þennan alltof stutta tfma sem við þekktumst. Björk mágkona. Kveðja frá mági Með fáeinum orðum vil ég minn- ast mágkonu minnar sem nú hefur lokið stríði sínu við illvígan sjúk- dóm. Allir sem fylgdust með bar- áttu hennar dáðust að kjarki henn- ar og æðruleysi þennan stutta tíma sem sjúkdómurinn heijaði. Annað var ekki hægt. Kynni mín af Dísu hófust 1974 þegar ég kynntist Eddu systur hennar. Ég minnist hversu róleg og fullorðinsleg Dísa var þótt skammt væri í lífsgleðina og fjörið. Frá þessum árum minnist ég líka vinahópsins sem alltaf var nálægur og stór. Það sýndi sig best þessa síðustu mánuði hve marga góða og trygga vini hún laðaði að sér. Dísa var mjög góður námsmað- ur. Sjaldan sá maður hana yfir skruddunum enda hafði hún lítið fyrir náminu og naut lífsins vel meðan aðrir reyttu hár sitt og skegg. Helst man ég eftir henni við þá iðju liggjandi uppi í sófa með bókina á gólfinu og óminn frá sjón- varpinu í bakgrunninn. Ég minnist hennar sem dulrar en mjög kím- innar konu sem mjög gaman var Elsku Dísa. Það er skrýtið að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að tala við þig aftur, að eiga aldrei eftir að sjá þig aftur. Mér finnst eins og þú hafir aðeins brugðið þér frá og hljótir að koma aftur rétt strax. En svo er ekki. Það verður erfítt að venjast þess- ari hugsun. Það er búið að koma fyrir mig oft þessa síðustu daga að þegar ég hef heyrt eitthvað eða séð sem mé_r þótti merkilegt, hef ég hugsað: Ég þarf að segja Dísu frá þessu, en ... þá man ég ... Hver á núna að segja mér til? Hver á núna að benda mér á ýmis- legt sem ég ætti að laga? Hvar leita ég ráða núna, ráða sem ég get treyst? Það er svo margt sem mig langar að segja við þig, svo margt, en ég geri það bara smátt og smátt í hljóði. Mig langar samt að biðja þig að fyrirgefa mér það sem ég hef gert ' rangt, þakka þér fyrir það sem ég hef gert rétt, en þó aðallega þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér. Ég veit að aðrir munu lýsa hér hversu falleg, heil og gáfuð mann- eskja þú varst og hetjulundinni sem var langt umfram það sem nokkur hefði getað ætlast til. Ég treysti V, mér ekki til þess. Mig skortir orð. Það er huggun að hugsa til þess að hlusta á þegar hún sagði frá því sem hún hafði upplifað. Mjög gam- an var að hiusta á frásagnir hennar af samferðafólki sínu. Við Edda höfðum oft á orði að hún Dísa hefði orðið frábær leikari. En að sama skapi var hún ekkert gefin fyrir að flíka sínum tilfinningum. Áslaug móðir hennar sagði oft að hún Dísa talaði út um hlutina einu sinni á ári. Þá gat hún setið með mömmu sinni langt fram á morgun og létt á sér. Betri hlust- anda og skilningsríkari en Áslaugu gat hún líka vart fengið. Dísa og Arna dóttir hennar komu oft í heim- sókn til okkar þar sem við bjuggum í lengri tíma fjarri Reykjavík. Það var ávallt tilhlökkunarefni að fá þá heimsókn. Fyrir tæpum tveimur árum flutt- um við Edda aftur til Reykjavíkur og hlökkuðum til að vera aftur nærri fjölskyldum okkar. Ekki gat nokkum grunað að svo stutt yrði í kveðjustund. Erfitt hefur verið að horfa á unga fallega konu beijast við ólæknandi sjúkdóm en á sama tíma dýrmæt reynsla fyrir okkur öll að hafa fengið að vera þátttak- endur í baráttu Dísu þótt hún hafi beðið lægri hlut. Ég þakka kærri mágkonu minni fyrir samveru- stundirnar og bið Guð að leiða hana framvegis. Guðmundur Jóhann Olgeirsson. Til Dísu frænku. Dísa var góð og glaðlynd, skemmtileg og fyndin og ég mun alltaf sakna hennar. Ég vona að henni líði vel, ég veit að henni mun líða vel hjá Guði og öli- um englunum. Nú getur hún fylgst vel með okkur ofan úr himnum. Bjarni Davíð Guðmundsson. Þegar náinn vinur er kvaddur hinstu kveðju getur ekki hjá því farið að strengur bresti og verði aldrei samur. Til þess fundum við glöggt þegar við vinir hennar og ættingjar vorum viðstödd húskveðju og bænastund á heimili foreldra hennar þar sem hún hafði þá um morguninn kvatt þetta líf. Fyrir þrettán árum kom Herdís fýrst á heimili okkar hjóna í fylgd Magnúsar sonar okkar, en þau voru þá heitbundin og bar Dísa síðar barn þeirra undir belti. Þessi fyrstu kynni eru okkur hjónum ennþá ljós- lifandi fyir hugskotssjónum því stúlkan var viðkynningargóð og innan tíðar var hún orðin ein af fjölskyldunni. Litla telpan þeirra var skírð Arna Ösp og ber nafn afa síns. Hún var augasteinn fjölskyld- unnar. Þau Magnús og Herdís hófu sambúð sem stóð í nokkur ár en slitu samvistir. Þrátt fyrir það hefur ávallt ríkt skilningur á báða bóga, enda Herdís þannig skapi farin að nærvera hennar hafði mannbætandi áhrif á alla þá sem hana umgeng- ust. Þó Herdís virtist nokkuð dul var hún sannur vinur þeirra sem henni kynntust. Oftsinnis ræddum við saman um margvísieg málefni, þá fundum við fljótt hvað hún var vel lesin og vel heima í mörgu af svo ungri stúlku að vera. Við urðum þess líka vör að hún nýtti tómstundir sínar vel við lestur og átti gott með erlend mál. Herdís var vel greind og átti létt með nám, en flíkaði lítt hæfileikum sínum eða kostum, en af þeim hafði hún vissulega nóg. Herdís lést á heimili foreldra sinna Arnar Bjama- sonar yfírlæknis og Áslaugar Guð- brandsdóttur konu hans, umvafín ástúð ijölskyldu sinnar og dóttur. Þá var einstakt hve vinir hennar sýndu henni mikla en verðskuldaða umhyggju í hennar erfíðu veikind- um. Fjölskylda okkar hefur fylgst með einstökum kjarki og þrótti þess- arar ungu konu sem tók öllu með jafnaðargeði. Kynnin voru ljúf og minningamar góðar sem eftir lifa. Að leiðarlokum kveðjum við Dísu og þökkum samfylgdina sem aldrei bar skugga á. Við vottum öllum ástvinum okkar dýpstu samúð. Guðmundur, Hervör og fjölskylda. í birtingu dags kvaddir þú þenn- an heim. Eilífðin tók þig í mjúkan faðm sinn og nú er þjáningum þín- um lokið. Við þökkum þér fyrir hlutdeildina í lífi okkar, samverustundirnar, hiáturinn, grátinn — gleðina, sorg- ina. Hlýja þelið, sem yljaði okkur svo mjög, þess verður sárt saknað. Ekkert vildum við frekar en að heyra góðu ráðin, skammirnar og fallegu orðin, þó ekki væri nema einu sinni enn. Við trúðum því að tíminn yrði nægur til að sejgja þér allt sem þyrfti að segja. I reynd voru stundirnar alltof fáar. Það er okkur minnisstætt hve létt þér veittist að vekja hlátur með frásögnum þínum, kímnígáfu og áhyggjulausri lífssýn. Litlar sögur blandaðar hárfínni kaldhæðni gátu umturnað hversdagsleikanum, gef- ið augnablikinu nýja og léttari ásýnd. Elsku stelpa, hvað þú varst stór án þess þó að vera há í loft- inu. Nærvera þín fyllti tómið. Engan þekkjum við sem hefði getað sýnt annan eins styrk og verið jafn gefandi í óréttlátu stríði við banvænan sjúkdóm. Það vakti aðdáun allra, en kom kannski ekki á óvart, að þú skyldir halda skarpri hugsun og geislandi fegurð allt fram til síðasta dags. Bjartsýni þín og lífsvilji gaf okkur hinum von um að sólrikir dagar tækju við með vorinu. Raunveruleikinn varð ann- ar, daprari og sárari. Missir okkar er mikiil, en missir þinna nánustu er meiri en nokkur orð fá lýst. Sárastur er söknuður Örnu Aspar, elskulegrar dóttur þinnar, yndislegra foreldra þinna, systkina og Hauks. Þeim sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ei vitkast sá, er verður aldrei hryggur, hvert vizku barn á sorgar bijóstum liggur. Á sorgarhafs botni sannleiks perlan skín, þann sjóinn máttu kafa ef hún skal verða þín. (Steingrimur Thorsteinsson.) Sorgin í hjörtum okkar rís og hnígur líkt og sjávarföllin. Með tím- anum kyrrast vötnin og dýrmætar minningar lifa um ókomna tíð. Hvíldu í friði, elsku Dísa. Unnur Ása, Arney og Telma. Með nokkrum orðum langar mig að minnast elskulegrar vinkonu minnar Herdísar Birnu Arnardótt- ur. Við kynntumst haustið 1989 er við hófum nám í stjórnmálafræði við Háskóla íslands. Ékki fór mikið fyrir Dísu, en ég tók strax eftir þessari fallegu og gáfulegu skóia- systur minni, með gullnu húðina og þykka ljósa hárið, sem^ ásamt tveimur vinkonum sínum, Ásthildi og Telmu, var sest á skólabekk á ný. Með okkur tókst ágætis vin- átta, sem óx og dafnaði eftir því sem frá leið. Það hafði mikið að segja að við vorum allar fjórar jafn- öldrur og áttum dætur á sama aldri. Dísa leyndi á sér, hún var ekkert að opna sig mikið fyrir ókunnugum, en þegar hún hafði ákveðið að sér líkaði við einhvern, þá hvikaði hún ekki frá honum í vináttu sinni. Nú, þegar ég sit og hugsa um örlög hennar, sem voru að öllu leyti ótímabær og öllum sem hana þekktu óskiljanleg, þá leita á hug- ann fallegar myndir af Dísu við ýmis tilefni. Hún var skemmtileg og orðheppin, bæði í skrifum og tali, hún var gáfuð með afbrigðum, snögg að hugsa og greina aðalatr- iði frá aukaatriðum. Hún var mjög smekkleg, ávallt fallega klædd og mikill stílisti. Henni fannst gaman að bjóða vinum sínum heim í matar- boð og gera sér glaðan dag, og var þá ávallt veitt af mikilli rausn. Hún var góður vinur vina sinna, lét sér annt um þá og þeirra velferð. Hún átti yndislega dóttur sem hún elsk- aði mikið og er það þyngra en tár- um taki að Arna Ösp fái ekki að njóta samvista við móður sína leng- ur. Mæðgurnar voru mjög nánar, enda höfðu þær gengið saman i gegnum þykkt og þunnt alla tíð. Það var okkur vinum hennar mikið áfall að heyra um sjúkdóm hennar sem uppgötvaðist í júní á sl. ári. Þetta gat ekki verið að ger- ast, þetta mátti ekki ske. Dísa tók þessu með æðruleysi og ailt að því kæruleysi, hún ætlaði að klára þetta verkefni, ja bara eins og frétt sem hún þyrfti að vinna fyrir ákveðinn tíma. Hún var vön að takast á við erfið verkefni, og þetta átti ekki að vera neitt mál! Meðferðin tók rhikið á vinkonu mína og má segja'að hún hafí ekki átt einn góðan dag frá því að mein- ið var uppgötvað. Stöðugir verkir fylgdu í kjölfarið, ógleði og lystar- leysi, og þessi fínlega unga kona léttist mikið. Hægt og hægt gerði maður sér grein fyrir því að enda- lokin yrðu ekki umflúin, en hvern hefði órað fyrir því að þau bæri svona brátt að. Eftir sit ég og hugsa um það hvað ég sé rík að hafa kynnst svona góðri manneskju. Hún var ávallt að hvetja mann til dáða, ráðleggja manni og skamma þegar með þurfti. Sakna þín einsog sakni sólar hver dagur og tungl vötn sinna vorbjörtu daga og sól sakni himins við haf Úr Vötn eru augu þín eftir Matt- hías Johannessen. Ég mun aldrei gleyma Dísu minni. Ég mun minnast hennar, glaðrar og brosandi sínu hlýja og glettnislega brosi. Hennar yndis- legu fjölskyldu sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Steinunn Halldórsdóttir. Mín ástkæra vinkona, Herdís Birna, er látin eftir hetjulega bar- áttu við krabbamein. Það er erfítt að sætta sig við þessa staðreynd því Dísa er búin að vera svo stór hluti af lífi mínu svo lengi. Reyndar mun það ekki breytast því minning- arnar getur enginn tekið frá mér. Ég mun alltaf eiga minningarnar um fallega brosið, hlýju röddina og hennar yndislegu nærveru sem allt- af lét mér líða vel. Minningin um Dísu mun einnig lifa í Örnu, dótturinni sem hún elsk- aði svo heitt og okkur þykir öllum svo vænt um. Ég er stolt af því og þakklát fyrir að hafa átt svo góðan vin í þessari fallegu, gáfuðu og hugrökku manneskju sem tókst á við sjúkdóm sinn af æðruleysi. Ég kveð nú mína ástkæru vinkonu með tárum, en ég veit það að minn- ingarnar um hana munu hjálpa okk- ur sem elskuðu Dísu við að takast á við sársaukann og söknuðinn. Ásthildur. Traust og einlæg vinkona hefur kvatt þennan heim eftir ramma og hetjulega baráttu við illvígan óvin. Baráttan var ójöfn. Óvinurinn lá í leyni og gerði árásir sem ekki var hægt að veijast eða segja fyrir um. Á liðnum mánuðum lærðist okkur sem þekktum þessa blíðlyndu og góðu manneskju að hún var líka kjarkmikil og djörf. Hún tók því sem að höndum bar með því jafnaðar- geði og hugrekki sem einkenndi hana umfram aðra. Dísa var sannur vinur, hrein- skiptin, jarðbundin og ráðagóð. Þegar lífsins iitlu vandamál lituðu hversdaginn og ollu hugarangri var óhætt að leita lausna í hennar smiðju. Þar urðu til heilsteyptar og varanlegar lausnir þar sem skyn- semi og hyggjuvit voru höfð að leið- arljósi. Eitthvað sem í fyrstu virtist flókið og erfitt viðureignar varð einfalt og auðvelt þegar búið var að bijóta það til mergjar með góðri vinkonu. Er við hófum saman störf á fréttastofunni á Lynghálsi árið 1989 þróaðist með okkur vinátta sem varð óijúfanleg. Saman áttum við yndislegar stundir og lítil minn- ingarbrot, orð og smávægileg atvik verða nú sem dýrmætustu eðal- steinar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.