Morgunblaðið - 11.03.1997, Page 45

Morgunblaðið - 11.03.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 45 Þér var nú ekkert sérlega vel við að ég vildi fara til sjós og þannig feta í fótspor ykkar pabba. Eg veit líka að þú reyndir að fá pabba til að hætta við að fara til sjós en þegar ég ræddi þetta við þig varst þú fljótur að sjá að þetta myndi vera gott fyrir mig og það svo að þú hjálpaðir mér að fá pláss á skipi sem bar sama nafn og skipið sem þú varst síðast skipstjóri á og fyrir það er ég þér þakklátur. Um borð í Hofsjökli sigldi ég með mönnum sem höfðu verið með þér til sjós. Þarna kynntist ég lítil- lega skipstjóranum afa mínum, sem reyndar var kominn í land þegar ég fæddist, oft var stormur í kring- um þig og þú lentir í mörgu mis- jöfnu veðrinu. En þú komst í gegn- um allt farsællega. Þú varst mikill söngmaður og fóstbróðir, eins og pabbi, færri vita að þú settir saman lög og kórinn þinn flutti eitt þeirra, óveður við ljóð Hannesar Hafstein, fyrir nokkr- um árum. Steypir sér af naktri klettabrún, norian stormur þindarlaus, hvín með rokuhlátrum. Ryðst hann um við björgin og rekur svo upp org svo rymur við og stynur þungt í svörtum skútalátrum. Blístrar gjóstur í gjá og við grátennta rönd stendur stundum á önd strýkst svo hvínandi hjá. Þá heyrast raddabýsn svo að blöskrar öllum mönnum sem berjgtröll opni gin og láti þjóta í skögultönnum. Atvik höguðu því svo að ég gat ekki umgengist þig síðustu mánuð- ina en ég veit að þú fylgdist vel með mér og hafðir eins og alltaf mikinn háhuga á vellíðan minni eins og annarra bamabarna þinna. Hafðu þökk fyrir allt og allt. lngólfur Þórður. Elsku afí. Nú ertu farinn frá okkur. Við viljum þakka þér fyrir alla þá hlýju, hvatningu og þann stuðning sem þú hefur veitt okkur. Þin verður sárt saknað og það verður skrýtið að geta ekki heimsótt þig á Dal- brautina, en þó gleðjumst við yfír því að þú og hún amma eruð sam- einuð á ný. Við vitum að þið munuð vaka yfír okkur hinum. Minningin um þig mun fylgja okkur alla tíð. Setur sól hjá Ægi, sígur höfgi yfír brá, einu ljúflings lagi ljóðar fugi og aldan blá. Þögla nótt, í þínum örmum þar er rótt og hvíld í hörmum hvfldir öllum oss. (Sig. Sig. frá Amarholti.) Vertu blessaður, elsku afi. Fríða, Anna Sif og Þóra Margrét. Þegar Skúli Möller sonur Ingólfs hringdi í mig og tilkynnti mér lát föður síns, kom mér það ekki á óvart, þar sem ég hafði fylgst með heilsu hans, en í huga minn streymdu 75 ára gamlar æskuminn- ingar, eða allt frá því er vinátta okkar hófst, og haldist hefur fram á síðasta dag. Þetta byijaði sumarið 1922, að móðir hans andaðist frá fjórum son- um sínum og þrír bræðranna komu til sumardvalar til Húsavíkur, Gunnar og Ingólfur til Stefáns Guð- johnsen móðurbróður, og Baldur, sem dvaldi hjá Kirsten Guðjohnsen Blöndal móðursystur. Bræðurnir höfðu gælunefni, Dundi, Dúlli og Daddi, eins og alvanalegt var, og alla tíð síðan höfum við Ingólfur notað milli okkar gælunöfnin Dúlli og Venni. Þetta sumar verður mér alltaf minnisstætt. Ég var fímm ára en Ingólfur níu ára, og varð hann sjálf- kjörinn foringi enda kominn frá Reykjavík og með heimsborgara- legt fas. Einhvetjum árum áður hafði enskur togari farist fyrir norð- an, og komu skipveijar róandi til lands á stórum björgunarbát, sem faðir minn hafði keypt á uppboði. Þar sem báturinn var óþjáll, þá lét faðir minn hesta draga hann heim að húsinu handa okkur að leika í. Þessi bátur hafði verið nefndur Stundvís af Ásgeiri bróður mínum eftir skipi úr „Sjómannalífi" eftir Kipling, sem var mikið lesin, drengjabók og hetjusaga drengja. Ingólfur var fljótur að ákveða að breyta þessu í farþegaskip, og voru sóttir margir misstórir kassar og var þá komin kommandó-brú. I botninn var sett ýmislegt jámarusl, gömul skilvinda sem ég átti að snúa sem vélstjóri. Gunnar bróðir átti að berja saman einhveiju járnamsli til að gera vélarhávaða, en í efsta kassanum stóð Ingólfur skipstjóri í brúnni og kallaði hástöfum: Strák- ar, meira stím, meira stím og meiri ferð. Og ég sneri skilvindunni upp á líf og dauða. Þetta vom æskuárin, síðan komu fullorðinsárin, og sigldum við Ing- ólfur saman hásetar á Brúarfossi gamla á árunum 1932 og 1933, þegar Ingólfur fór í land í 2. bekk Stýrimannaskólans. ÖIl ár síðan hafa mörg og ólík viðskipti verið milli okkar. Mörg ár framleiddi ég físk og hafði með skipaafgreiðslu að gera á Húsavík. Ingólfur var þá skipstjóri og lestaði þá oft hjá mér, og alltaf verið sami vinskapur okk- ar í milli. Ingólfur var af einhveijum þekktustu ættum Reykjavíkur, af- komandi Knudsens-systra, Guð- johnsen og Möller, sem er þekkt í Reykjavíkursögu, tónmenningu og listum, og var Ingólfur söngvið glæsimenni, og engan þeirra mörgu ættingja tel ég líkjast eins mikið afa sínum og glæsimanninum Þórði Guðjohnsen sem Ingólf, en ég sá hann þegar hann kom síðast til Húsavíkur 1925 að mig minnir. Ég kveð þennan æskuvin minn með miklum kærleik, og veit að margir munu taka á móti honum handan móðunnar miklu, um leið og ég sendi öllum aðstandendum alúðarkveðjur. Vernharður Bjarnason. • Fleiri minningargreinar um Ingólf Möller bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. + Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSTA BRYNJÓLFSDÓTTIR frá Hrísey, Álfheimum 52, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 8. mars. Alfreð Kristjánsson, Sigurveig Alfreðsdóttir, Gunnar H. Hall, Ásta Herdís, Alfreð og Gunnsteinn Hall. + Bróðir okkar og mágur, GARÐAR SIGMUNDUR JÓNSSON, Höfðagrund 4, Akranesi, sem andaðist 6. mars sl., verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 13. mars nk. kl. 14.00. Kristfn H. Jónsdóttir, Hörður Sumarliðason, Ólafur Ingi Jónsson, Helga Guðmundsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, JÓNÍNA AUÐUNSDÓTTIR, Funafold 20, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum sunnudaginn 9. mars sl. Gunnbjöm Guðmundsson, Kolbrún Sævarsdóttir, Stefán Kristján Gunnbjörnsson, Eva Guðrún Gunnbjömsdóttir, Soffía Gísladóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, lést þann 1. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu. Hermann Daníelsson, Ragna Guðrún Hermannsdóttir, Guðsteinn Magnússon, Jón Haukur Hermannsson, Guðrún Þórarna Þórarinsdóttir, Ólína Fjóla Hermannsdóttir, Pétur Torfason, Díana Svala Hermannsdóttir, Þorleifur Kristján Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Kleifahrauni 2A, Vestmannaeyjum, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 9. mars. Haukur Kristjánsson, Ester Friðjónsdóttir, Jóna Sigríður Kristjánsdóttir, Birgir Sigurðsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Jóhann I. Guðmundsson, Edda Kristjánsdóttir, Ester Kristjánsdóttir, Sigurður Guðmundsson, barnabörn og barnabarnaböm. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNA SIGURJÓNSDÓTTIR fangavörður, Álfhólsvegi 92, Kópavogi, varð bráðkvödd á heimili sfnu laugardaginn 8. mars. Útförin verður auglýst síðar. Guðmundur Ásbjömsson, Jón Ásbjömsson, Pierina Ligander, Sigurjón Guðmundsson, Halldóra Gísladóttir, Danfel Guðmundsson, Elfn Finnbogadóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BJÖRG HARALDSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Mýri, Bárðardal, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 14. mars kl. 13.30. Sigrfður Karlsdóttir, Jón Karlsson, Hóimfrfður Friðriksdóttir, Hildur Svava Karlsdóttir, Aðalbjörg Karlsdóttir, Bjargmundur Ingólfsson og fjölskyldur. < + Okkar ástkæra, GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR kennari, Hraunflöt v/Álftanesveg, verður jarðsungin frá Víöistaðakirkju fimmtu- daginn 13. mars kl. 15.00. Magnús Hjörleifsson, Erla Magnúsdóttir, Sigurður Óli Sigurðsson, Ari Magnússon, Silja Magnúsdóttir, Magnús Óli Sigurðsson, Erla Guðmundsdóttir, Stefán V. Þorsteinsson. Inga Þóra Stefánsdóttir, Helga Björg Stefánsdóttir, Elfa Stefánsdóttir, Vfðir Stefánsson, Guðmundur Vigfússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.