Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 27

Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 27 Reuter SLÖKKVILIÐSMENN skoða flök bifreiða sem lentu í fjöldaá- rekstri skammt frá Birmingham í gær. Eins og sjá má hafa bílflökin verið tölusett til að auðveldara verði að greiða úr þeirri flækju sem fjörtíu bíla árekstur er. Fjöldaárekstur í þoku FJÓRIR létu lífið og að minnsta kosti sextíu slösuðust í geysistór- um árekstri sem rekja má til dimmrar þoku, skammt frá Birm- ingham á Englandi. Að sögn lög- reglu lentu um fjörtíu bílar í árekstrinum á M42-hraðbrautinni en litlu mátti muna að olíuflutn- ingabíll yrði einn þeirra. Þá bætti ekki úr skák að tuttugu mínútum eftir að fyrri áreksturinn varð, gerðist hið sama á hinum vegar- helmingi hraðbrautarinnar. Eldur kviknaði í mörgum bifreiðanna eftir að þær höfðu skollið hver á annarri á um 100 km hraða á klukkustund. Var óttast að eitt allshetjar eldhaf myndaðist þar sem mikið bensín lak úr eldsneyt- istönkum bifreiðanna. Þá lentu yfir 100 bílar í árekstri á vesturströnd Frakklands. Eng- inn lét lífið í þeim en tveir slösuð- ust. Önnur uppstokkun boðuð á einni viku Ihaldsmenn ætla að einkavæða elliheimilin London. Daily Telegraph. BRESKA stjómin hyggst stíga nýtt skref í þessari viku í átt til þess að umbylta félagslegri þjónustu er kynnt verða áform um einkavæðingu öldr- unarþjónustunnar. Sveitarfélög verða samkvæmt því neydd til að selja elli- heimili og kaupa í staðinn þjónustu af einkareknum hjúkmnarheimilum. Tilgangurinn er að draga úr opinber- um umsvifum og útgjöldum. Aðgerðirnar eru liður í uppstokkun bresku stjórnarinnar á heilbrigð- iskerfinu. Verða áformin kynnt í hvítbók í vikunni og er ætlunin með þeim að sýna annars vegar, að stjórn Ihaldsflokksins er ekki hugmynda- snauð eftir 18 ára setu við völd og hins vegar að freista þess að vinna fleiri kjósendur á band flokksins fyr- ir þingkosningarnar í vor, en hann nýtur mun minna fylgis en Verka- mannaflokkurinn, samkvæmt skoð- anakönnunum. Þessi áform koma í kjölfar annarr- ar stórbreytingar á umsvifum hins opinbera, en sl. miðvikudag kynnti stjórn Johns Majors forsætisráðherra algjöra byltingu á eftirlaunakerfinu. Byggjast breytingarnar einkum á því, að fólk fær sjálft frelsi til þess að byggja upp sína lífeyrissjóði og sparnað til eftirlaunaáranna. Breska stjórnin hefur ákveðið að ráðast í einkavæðingu öldrunarþjón- ustunnar þar sem rannsóknir sýna, að elliheimili í eigu hins opinbera, sveitarstjórnanna, eru mun dýrari í rekstri en einkarekin heimili. Aform- in hafa það í för með sér, að almenn- ing^ur neyðist ekki lengur til þess að selja húsin sín og aðrar eigur til að fjármagna umönnun sína. „Sam- kvæmt núgildandi reglum verða breskir þegnar, sem þurfa á langtíma umönnun að halda, að fjármagna hana sjálfir nemi skuldlaus eign þeirra 16.000 pundum, jafnvirði 17,4 milljóna króna. Með breytingunum þurfa hinir sömu ekki að losa sig við eigur sínar, selja húsin sín, heldur geta þeir tryggt sig gegn slíkum kostnaði. Ríkið mun umbuna fólki tryggingarkaup af þessu tagi en Stephen Dorrel heilbrigðisráðherra sagði í gær, að gert væri ráð fyrir að útgjöld ríkisins vegna þess myndu aðeins nema um 200 milljónum punda, rúmum 20 milljörðum ísl. kr. Snýr baki við íhaldsflokknum Um helgina sagði Sir George Gard- iner, þingmaður Ihaldsflokksins í Rei- gate í Suður-Englandi, sig úr lögum við þingflokkinn og sagðist genginn til liðs við Þjóðaratkvæðisflokk Sir James Goldsmiths. Er hann fjórði þingmaður íhaldsflokksins sem gerist liðhlaupi á tveimur árum, en flokksfé- lagið í kjördæmi Sir George hefur fyrir nokkru snúið baki við honum og ákveðið að stilla öðrum manni fram við þingkosningamar í vor. Frétt um einræktun borin til baka Brussel. Reuter FRÉTT í breska blaðinu The Sunday Times um að belgískur læknir gæti fyrir slysni hafa orðið fyrstur til að einrækta mann er algjör tilbúningur og tómur hugarburður, að sögn yfirmanns frjóvgunardeildar sjúkrahússins þar sem sagt var að einræktunin hefði átt sér stað. Robert Schoysman, yfirmað- ur deildarinnar, sagði að fjög- urra ára tvíburadrengur, sem átti að hafa verið búinn til með einræktun, tengdist ekki klónun á nokkurn hátt. „Þessar upplýs- ingar eru algjör tilbúningur. Þetta er firra,“ sagði Shoysman. Drengurinn var búinn til með aðferð, sem beitt er til að auka líkurnar á því að glasafrjóvgun takist. Frosinn fósturvísir er þá þíddur og himnan nudduð til að auka líkurnar á því að eggið losni og festist í legi móðurinn- ar. „Síðar getur það skipt sér og eineggja tvíburar orðið til,“ sagði Schoysman. „Þetta tengist engan veginn einrækun.“ Nýju ostasneiðaumbúðirnar eru byltingfyrir neytendur! Þœr hvíla á plastbakka og eru í loftskiptum umbúðum, sem gerir þœr léttari í meðfórum oggeymslu. Klippið endann afpokanum ogtakið bakkann út. (mynd 1) Ostabakkinn er tilbúinn á borðið. Að lokinni máltíð setjið bakkann aftur í pokann. Lokið honum meðþví að brjóta saman endann. (mynd 2) Skoðiðgaumgtefilega mynd 3 og4. Veitið sérstaka athygli bakkanum sem ostasneiðarnar liggja á. I nýju umbtíðunum eru Gouda 26%, Gouda 17%, Óðalsostur og Maribó. mynd 1 ÍSLENSKIR W OSTAR, Sft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.