Morgunblaðið - 11.03.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.03.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 23 VlÐSKIPTl Afkoma Marels hf. á síðasta ári lakari en stefnt var að 40 millj. hlutafjár- aukning heimiluð REKSTRARTEKJUR Marels hf. og dótturfyrirtækja voru 1.873 milljón- ir á síðasta ári sem er 68% aukning frá árinu 1995. Hagnaður af rekstri fyrirtækisins eftir skatta varð 62,5 milljónir króna sem er 12% aukning frá fyrra ári. í ræðu Geirs A. Gunn- laugssonar, forstjóra Marels, á að- alfundi félagsins á föstudag kom fram að hagnaðurinn hafi verið lægri en stefnt hafi verið að og hann hafi ekki verið í takt við veltu ársins. Að hans sögn er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti fyrirtæk- isins á árinu 1997 og að hagnaður verði af rekstri þess. Heimild til hlutafjáraukningar Á fundinum var samþykkt sam- hljóða að greiða hluthöfum 10% arð af nafnverði hlutafjár. Einnig var samþykkt að gefa út jöfnunarhluta- bréf að verðmæti 20% af nafnverði hlutafjár, eða 26,4 milljónir króna. Aðalfundur samþykkti að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta um allt að 40 milljónir króna að nafn- virði. Gengi og önnur atriði varð- andi sölu hlutafjárins verða nánar ákvörðuð af stjórn félagsins en hlut- afé fyrirtækisins, sem var um síð- ustu áramót 132 milljónir að nafn- verði, hefur ekki verið aukið frá því á árinu 1992. Hlutabréf Marels hf. eru skráð á Verðbréfaþingi íslands. Á árinu 1996 voru 255 viðskipti með hluta- bréf félagsins á Verðbréfaþingi fyr- ir samanlagt 307,6 milljónir króna að söluverði. Lægsta viðskiptaverð var 5,50 en hæsta viðskiptaverð var 14,50. Á föstudag var gengi hluta- bréfa Marel 18,0. í árslok var fjöldi hlutahafa 503, en tíu stærstu hluthafar voru þá: Burðarás hf, með 37,59% eignar- hlut eða 49,6 milljónir að nafn- verði. Sigurður Egilsson, 10,15% eða 13,4 milljónir. Hlutabréfasjóð- urinn Auðlind hf., 6,74% eða 8,9 milljónir. Gísli V. Einarsson, 3,18% eða 4,2 milljónir. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2,75% eða 3,6 millj- ónir. Þróunarfélag íslands hf., 1,63% eða 2,2 milljónir. Lífeyris- sjóður Tæknifræðingafélags ís- lands, 1,57% eða 2,1 milljónir. Al- menni hlutabréfasjóðurinn, 1,38% eða 1,8 milljónir. Lsj. Verkfræð- ingafélags íslands, 1,18% eða 1,6 milljónir og Lsj. Austurlands, 1,14% eða 1,5 milljónir króna að nafnverði. í stjórn voru kjörnir þeir Bene- dikt Sveinsson, Hreinn Jakobsson, Sigurður Egilsson, Þorkell Sigur- laugsson og Þórólfur Árnason, en hann kemur í stað Jóhanns G. Berg- þórssonar sem hverfur úr stjórn félagsins eftir 10 ára setu. Fiskmarkaður Suður Úr reikningum ársins 199 nesja hf. jj' Rekstrarreikningur Mttír króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 175,6 161,7 +8,6% Bskstrargjöld 141.6 131.6 +7.6% Rekstrarhagnaður 34,0 30,1 +12,9% Fjármunatekjur og (fjármagnsqjöld) 0.08 11.1) - Hagnaður fyrir skatta 34,1 29,0 +17,6% Hagnaður ársins 29,1 23,9 +22,1% Efnahag Sœikningur Milljónír króna 31/12 '96 31/12 '95 Breyting Eignir: Veltufjármunir 120,3 121,1 ■0,7% Fastafjármunir 106,0 59,1 +79,4% Eignir samtals 226,3 180,2 +25,6% Skuidir Skammtfmaskuldir 107,3 118,0 -9,1% og Langtímaskuldir 28,4 11,6 +145,5% eigið Eigið fé 89,2 49,7 +79,5% fé: Þar af hlutafé 30,7 25,7 +19,4% Skuldir og eigið fé samtals 226,3 180,2 +25,6% Sjóðstreymi Veitufé frá rekstri 42,9 36,4 +17,8% Furðuskjót umskipti hjá Benz Frankfurt. Reuter. DAIMLER-BENZ AG skilar verulegum hagnaði aðeins einu ári eftir mesta tap í sögu þýzkra fyrirtækja og þessi furðusnöggu umskipti koma fjárfestum á óvart. Að því er Eckard Cordes úr stjórn Daimler-Benz tjáði fréttamönnum á bílasýning- unni í Genf mun Daimler til- kynna rúmlega 2 milljarða marka nettóhagnað á síðasta reikningsári samanborið við 5,7 milljarða marka tap í fyrra. Hagnaður Fiskmarkaðs Suðurnesjajókst um 22% REKSTUR Fiskmarkaðs Suður- nesja hf. (FMS) og dótturfélagsins Reiknistofu fiskmarkaða hf. gekk vel á síðasta ári. Hagnaður FMS að teknu tilliti til hlutdeildar í hagn- aði Reikistofunnar var 29 milljónir króna eða um 22% meiri en árið á undan. Rekstrartekjur samstæð- unnar námu 176 milljónum og juk- ust um 8,6% frá árinu á undan, en nánari upplýsingar um afkomuna á síðasta ári er að finna á meðfylgj- andi töflu. Alls voru seld 32.500 tonn á Fisk- markaði Suðurnesja hf. á síðasta ári fyrir 2.250 milljónir króna, en þar af voru 4.800 tonn af loðnu. Opnuð var ný starfsstöð á ísafirði og eru starfsstöðvar FMS þá í fjór- um höfnum. Reiknistofa fiskmarkaða hf. gerði á árinu samning við aðila í Bandaríkjunum um notkunar og dreifingarrétt á fiskmarkaðskerfinu Tengli. Samningurinn víkkar út starfsemi RSF sem ásamt því að selja innlendum mörkuðum þjón- ustu sína þjónar nú bandarískum mörkuðum og mun auka sókn á aðra markaði, segir í frétt. Hlutafé FMS var aukið um 5 milljónir og var forkaupsréttarhöf- um boðið það á gengi 2,2 og nýttu rúm 80% hlutahafa sér forkaups- réttinn. FMS er skráð á Opna til- boðsmarkaðnum og seldust hluta- bréfin þar á gengi 3,6 síðari hluta ársins og í árslok seldust þau á 3,8. Aðalfundur Fiskmarkaðs Suður- nesja hf. verður haldinn föstudag- inn á Flughóteli Reykjanesbæ 14. mars nk. kl. 18.30. BSkyB og Kirch hætta við þýzkt stafrænt sjónvarp London. Reuter. BREZKA gervihnattasjónvarpið BSkyB og þýzka fjölmiðlafyrirtækið Kirch Gruppe hafa orðið ásátt um að hætta við fyrirhugað samkomu- lag um að DFl fyrirtæki bæverska fjölmiðlajöfursins Leo Kirchs komi á fót stafrænu sjónvarpi. Samkomulagið var gefið upp á bátinn „vegna þess að ekki tókst að semja um nokkur undirstöðuatriði“ að því er fyrirtækin segja í sameigin- legri yfirlýsingu. í júlí kvaðst BSkyB mundu kaupa 49% hlut í DFl, hinu stafræna sjón- varpi Kirchs í Þýzkalandi, en viðræð- ur drógust á langinn. Það flækti viðræðurnar að BSkyB’s hefur áhuga á hiut í öðru þýzku sameign- arfyrirtæki, Premiere, sem Kirch á 25% í. Viðræðuslitin eru meiriháttar áfall fyrir Kirch, sem hefur átt í útistöðum við samstarfsaðilana Bertelsmann AG í Þýzkalandi og franska áskriftarsjónvarpið Canal Plus. Bæði þessi fyrirtæki vilja að Premiere verði helzta stafræna sjón- varpið í Þýzkalandi, en ekki DFl. Áskrifendur að DFI stöð Kirchs eru aðeins 30.000 og nýlega beið hann ósigur í dómsmáli gegn Premi- ere. BSkyB virtist reiðubúið að kaupa 25% í Premiere í fyrra áður en fyrirtækið einbeitti sér að DFl. Ástralska fjölmiðlafyrirtækið News Corp á 40% í BSkyB. | Morgunveröarfundur á Akureyri miðvikudaginn 12. mars 1997 kl. 8.00 - 9.30 á Hótel KEA EINKAVÆÐING A F JÁRMAGN SMARKAÐI - veröur atvinnulífmu betur þjónaö? Stuðlar stofnun Fjárfestingabankans hf. að hagræðingu á fjármagnsmarkaðnum? Hver verður lánastefna Nýsköpunarsjóðs hf.? Verða nýju hlutafélögin samkeppnisfær við skilyrði frjáls markaðar? Hvemig munu stjómvöld standa að sölu hlutabréfa? FRAM S Ö GUMENN: Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON Björgólfur Jóhannsson, ffamkvæmdastjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs Samheija V__________________________________ Umræður og fyrirspurnir Fundargjald er kr. 1.200,- (morgunverður innifalinn). Fundurinn er öllum opinn. Hann verður sem fyrr segir haldinn á Hótel KEA, frá kl. 8.00 - 9.30, miðvikudaginn 12. mars nk. VERSLUNARRAÐ ISLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 1997 á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3, og hefst fundurinn kl. 14.00 Dagskrá t. Venjuleg aðalfundarstörf skv.12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga urn útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18, 4. hæð, frá og með 17. mars, fram að hádegi fundardags. Stjóm Olíufélagsins hf. Olíufélagsð hf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.