Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 67

Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 67 f I 3 I 1 I I ð i I I ð ð i i i ( ( í ( ( í ( ( Opið fram á kvöld í Kringlunni AFGREIÐSLUTÍMI Kringlunnar hefur verið lengdur fyrir jólin og verða verslanir í Kringlunni opnar í dag, laugardag, frá kl. 10 til 22 og á morgun, sunnudag, frá kl. 12 til 18. Alla næstu viku verða versl- anir og veitingastaðir í Kringlunni opin til kl. 22. Það verður mikið um að vera í Kringluni um helgina. í dag, laugar- dag, kl. 13 og 14 skemmtir B2 börnunum fyrir framan Hagkaup á 2. hæð. Geirmundur Valtýsson árit- ar nýútkominn geisladisk sinn fyrir framan Skífuna og Sigríður Bein- teinsdóttir áritar geisladisk sinn fyrir framan Japis. Þá ætlar Bubbi Morthens að taka lagið og Tamla- sveitin spilar lög af nýútkomnum geisladiski sínum sem liðsmenn sveitarinnar svo árita. Einnig mun Halli Reynis taka lagið og hljóm- sveitin Sixties spilar og áritar geisladisk sinn. Á morgun, sunnudag, verður flokkur jólasveina í Kringlunni og munu þeir skemmta kl. 14 og 17 fyrir framan Hagkaup á 2. hæð. Kl. 13 syngur karlakórinn Stefnir nokkur hátíðleg jólalög. Viðskiptavinir Kringlunnar geta um helgina nýtt 600 viðbótarbíla- stæði í nágrenni Kringlunnar, sem eru á starfsmannastæðum austan við Kringluna, við Morgunblaðshús- ið, bak við Sjóvá-Almennar, við Hús verslunarinnar og Verslunarskól- ann. Brúðar- kjólaleiga Dóru flytur BRÚÐARKJÓLALEIGA Dóru, sem var á Suðurlandsbraut 46, flutti 1. desember sl. í Faxafen 9,1. hæð og hefur opnað þar verslun og leigu. Þar er hægt að fá leigðan og keyptan brú- kaups- og samkvæmisfatnað. Á myndinni er eigandi verslun- arinnar, Dóra Skúladóttir, og Halíma Zogu afgreiðslustúlka. ■ SÚFISTINN mun gangast fyr- ir kaffibrennslu og kaffikynningu á morgun, laugardag milli kl. 14-16, í húsakynnum sínum á Strandgötu 9, Hafnarfirði. Kl. 15 mun kaffi- brennslumeistari og eigandi Súfist- ans sýna brennsluofn fyrirtækisins og brenna hrákaffi fyrir viðstadda. Kaffibaunirnar sem brenndar verða að þessu sinni eru frá eyjunni Sulawesi sem er vestur af Borneo og var áður nefnd Celebes. Við- stöddum verður boðið að smakka þetta kffi auk tveggja annarra teg- unda: HaWai Kona Extra Fancy frá Hawaii og Yauco Selecto frá eyj- unni Puerto Rico í Karabíska haf- inu. Nýjung í starfsemi Súfistans er framleiðsla á bragðbættu kaffi. Ávaxtate Súfistans frá Vínarborg verður á boðstólum fyrir gesti og að lokum mun jóla- og hátíðakaffi- blanda Súfistans 1995 verða kynnt. Jólahjólaball Sniglanna BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins, Sniglar, halda árlegt Jólahjólaball á veitingahúsinu Tveir vinir og annar í fríi. Agóða af Jólahjólaballinu hefur verið varið til styrktar bágstöddum börnum og mun stjórn sniglanna taka ákvörðun um hverjir hljóta styrkinn að þessu sinni. ----♦ ♦ ♦-- Göngubrú opnuð BORGARSTJÓRINN í Reykjavík og samgönguráðherra opna göngubrú yfir Kringlumýrarbraut á morgun, sunnudag, kl. 16. Aðkoma frá Suður- hlíðum. ♦ ♦ ♦--- Fatasöfnun við Hall- grímskirkju FATASÖFNUN ÆSKR, Hjálpar- stofnunar kirkjunnar og fleiri aðila verður við Hallgiímskirkju á morgun, sunnudag, frá klukkan 12 til 20. Fötin verða send til ríkja fyrrum Júgóslavíu. Fötin verða flokkuð og þeim pakk- að jafnóðum ogþau berast. Fatasöfn- unin er í tengslum við uppákomu fyrir ungt fólk í Reykjavík sem ÆSKR stendur fyrir. ÁRIÐ 1994 er komið út Pantanasími 431 4111 og fax 431 4666. FRÉTTIR Jólin á Laugaveginum JAMES Bond í verðlaun í Sambíóunum. Safnleikur Sambíóanna SAMBÍÓIN bjóða gestum til sér- staks safnleiks í tilefni jólanna. I verðlaun eru fyrstu átta myndirn- ar um James Bond í nýrri safnút- gáfu á myndböndum. Leikurinn gengur þannig til að þeir sem fara á bíósýningar í Sam- bíóunum, Álfabakka, eiga kost á að svara nokkrum laufléttum spurningum um James Bond. Svari þeir öllum spurningunum rétt komast þeir í pott sem úr verður dregið á Þorláksmessu og munu þá einhveijir vinna allt safn- ið, sumir fjórar spólur og enn aðrir einhveija eina af fyrstu myndunum átta. JÓLADAGSKRÁ verður á Lauga- veginum og í Bankastræti í dag, laugardag, og á morgun, sunnu- dag sem hér segir: A laugardeginum frá kl. 14-19 verða jólasveinar á langri vakt. Félagar úr Harmonikkufélaginu og jólasveinarnir halda uppi fjöri í og við útibú Landsbankas á Laugavegi og Bankastræti. Kl. 15-17 syngur barnakór Mela- ÚTIBÚ Landsbankanns við Laugaveg, Bankastræti og Aust- urstræti kynna þjónustu sína í dag, Iaugardag, kl. 13-16. Boðið verður upp á heitt súkku- laði og smákökur jafnframt því sem komið verður upp föndurhorni ÁRLEG jólatrésala Flugbjörg- unarsveitarinnar í Reykjavík hófst í gær, föstudag. Að þessu sinni verða útsölustaðirnir þrír, þ.e. í húsi Flugbjörgunarsveitarinnar við Flugvallarveg, á Kringlutorgi milli Kringlunnar og Borgarkringl- unnar og við Byggingavöruversl- unina í Nethyl. Boðið verður upp skóla jólalög. Frændkórinn syngur jólalög kl. 15-17. Barnakór Æf- ingadeildar KHÍ syngur jólalög kl. 16-18. Jólakvintett leikur há- tíðleg jólalög kl. 19.30-21. Kl. 19.30-21 leikur Lúðrasveit verka- lýðsins í léttri jólasveiflu. Á sunnudeginum syngur Barnakór Æfingadeildar KHÍ jólalög kl. 14.30-16.30 og kl. 14-17 bregða jólasveinar á leik. fyrir yngri kynslóðina. Barnakór Grensáskirkju og kór Melaskóla heimsækja útibúin og syngja jólalög. Jólasveinar verða í útibúunum og Mókollur kemur í heimsókn. Heppnir krakkar fá jólapakka. á Norðmannsþin og íslensk greni- tré á sanngjörnu verði. Þá verða •einnig seldar greinar, jólatrésfæt- ur, kerti og aðrar hefðbundnar vörur er tilheyra jólahaldinu. Opið er til kl. 22 öll kvöld vikunnar og til kl. 23 föstudaginn 22. og laug- ardaginn 23. desember. Kynning á bankaútibúi Jólatrésala Flugbjörg- unarsveitarinnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.