Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 59 fyrir háan aldur og nokkur veik- indi. Eiga þau öll miklar þakkir skildar fyrir. Þegar ég nú kveð þig, elsku afí minn, þá veit ég að ég kem til með að sakna hlýja faðmlagsins þíns og notalegra samverustunda í Nesi. Guð blessi þig og varðveiti um alla eilífð. Eftirlifandi konu, Guðrúnu Jóns- dóttur, og sonum þeirra, votta ég mína dýpstu samúð. Sigurður R. Guðjónsson. Kynslóðir koma kynslóðir fara allar sömu ævigöng. (Þýð. Matthías Jochumsson) Einn af öðrum hverfa þeir af sjónarsviðinu samferðamennimir af kynslóð foreldra minna og í dag kveðjum við Gunnar í Nesi. Nes stendur á bökkum Rangár og voru þau Guðrún og Gunnar meðal frumbyggja Helluþorpsins. Það er hvorki hátt til lofts né vítt til veggja í Nesi en engan stað veit ég um sem það á betur við, að þar sem er hjartarúm þar er húsrými. Ég man aldrei eftir að það væri þröngt í Nesi, þó stundum væri márgt um manninn. Þetta var mið- stöð fjölskyldunnar. Þama vom amma og afí, tengdaforeldrar Gunnars og öll eigum við frænd- systkinin ljúfar minningar frá Nesi, fyrr og síðar. Allir vom svo innilega velkomnir og það var alltaf pláss fyrir einn í viðbót við eldhúsborðið. Frá Nesi fór enginn svangur. Gestrisni þeirra hjóna var einstök. Gunnar var mik- ill fjölskyldumaður, hann lét sér annt um sitt fólk og fylgdist vel með öllum. Andlegri reisn hélt hann til síðasta dags þó sjón og heyrn væru farin að daprast. Gunnar var félagslyndur og ein- staklega hlýr maður. Starfíð hjá Rafmagnsveitum ríkisins átti vel við hann. Þá kom hann á nánast alla bæi í Rangárþingi, hitti marga og var aufúsugestur hvar sem hann kom. Það var mannbætandi að hitta Gunnar og spjalla við hann. Ég hef engum kynnst sem var jafn jákvæð- ur og bjartsýnn. Nú verður tómlegra að koma að Nesi þegar enginn Gunnar kemur brosandi til dyra og býður gesti velkomna. En allt hefur sinn tíma, líka að kveðjast. Gunnu frænku, sonum hennar og fjölskyldum þeirra sendi ég og fjölskykda mín okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við munum minn- ast Gunnars þegar við heyrum góðs manns getið. Guð blessi minningu Gunnars í Nesi. Anna Jóna. Gunnar Jónsson, fyrnim bóndi í Nesi, Rangárvallahreppi, rétt norð- an Hellukauptúns, lézt hinn 6. des- ember síðastliðinn á 92. aldursári í Lundi á Hellu. Fæddur var hann 12. marz 1904. Með Gunnari Jónssyni í Nesi er horfinn af sviðinu einkar merkur maður er ávann sér hvarvetna vin- sældir samferða- og samstarfs- manna, sakir heiðarleika, trausts og góðvildar. Kynni okkar Gunnars í Nesi hóf- ust fyrir röskum þijátíu árum, þá er undirritaður kom sem sóknar- prestur í Oddaprestakall í Rangár- vallaprófastsdæmi. En þá var Gunn- ar einmitt formaður sóknarnefndar í Oddasókn. Með honum í sóknar- nefndinni voru þá þau hjónin Þórður PCIlímogfuguefiii T: :i,= i Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 Loptsson frá Bakka í Landeyjum og Matthildur Jóhannesdóttir. Það er næsta mikilvægt, já reyndar ómetanlegt fyrir sóknar- prest sem er að hefja starf á nýjum stað, ósjaldan flestum lítt kunnur, að eiga aðgang að sóknarnefnd sem er jákvæð og hjálpfús og ætíð til reiðu að styðja við bakið á prestin- um sínum. Svo mátti vissulega segja um Gunnar í Nesi og reyndar lika þau Þórð og Matthildi, en eðli málsins samkvæmt var Gunnar í forsvari nefndarinnar og því komu hin beinu afskipti af safnaðarmálum oftar í hans hlut. Þama nutu sín og vel hinir góðu eðliskostir Gunnars, fórnfýsi og góðvild og vissulega bar hann hag sóknarkirkju sinnar í Odda og safn- aðarfólks næsta mjög fyrir bijósti. Samstarf hans og sóknarprests- ins varð og einkar náið og farsælt því hann var einnig meðhjálpari við Oddakirkju allt til ársins 1985, eða í tuttugu og eitt ár af þjónustutíma undirritaðs í Oddaprestakalli, en alls gegndi hann meðhjálparastarf- inu í fjörutíu og fimm ár. En um rösklega þriggja áratuga skeið frá 1945-1979 var hann í sóknarnefnd Oddasafnaðar og þá lengst af for- maður hennar. Enn má og nefna einn þátt í fari Gunnars í Nesi, er mjög svo ein kenndi hann, en það var gestrisni hans. Það hlaut hver sá að fínna er sótti hann og hans ágætu konu, Guðrúnu Jónsdóttur, heim. í því efni voru þau bæði mjög svo samhent. Þessarar gestrisni nutum við hjónin ósjaldan á árunum okkar í Odda. Gunnar í Nesi var hagleiksmaður og smiður góður. Ósjaldan gaukaði hann að vinum sínum fögmm og haglega gerðum hlutum er gjarna höfðu og hagnýtt gildi. Það eru því einkar hugþekkar minningar sem geymast um Gunnar í Nesi nú þegar hann er allur og efalaust ófáir er kenna þess að eiga honum þakkarskuld að gjalda. Und- irritaður telur sig tvímælalaust vera í þeim hópi. Ég vil svo að lyktum votta Guð- rúnu og sonunum þremur, Jóhanni, Braga og Kristni, eiginkonum þeirra og öðrum ástvinum hins látna öllum samhug okkar hjóna. Guð blessi minningu Gunnars í Nesi. Stefán Lárusson. r A öllum metsölulistum! íslendingur sem engin kynslóð má gleyma . . .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.