Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR V- ■ . ■: ' ■■ : ■ ■■ Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson Selurinn Kobbi SELURINN Kobbi lét ekki athygli barnanna í Húsdýra- garðinum á sig fá og hélt áfram að fylgjast með leikj- um þriggja félaga sinna þeg- ar ljósmyndara bar að garði fyrir skömmu. Eins og sjá má er Kobbi ekki illa haldinn enda verða selir að halda ákveðnu spiklagi til að koma í veg fyrir að þeim verði kalt í sjónum. I Húsdýragarðinum eru þeir hins vegar í fersk- vatni og eru fóðraðir á loðnu í síld kl. 11 og 16 á hveijum degi. Gauti Gunnarsson, yfir- dýrahirðir, segir að matar- tími selanna sé ein eftirlætis skemmtun gestanna. Fjórir selir eru í Húsdýra- garðinum og eru þeir allir um fimm ára eða frekar ung- ir ef miðað er við ævi sela. Elsta rannsóknastofuhúsið að Keldum Endurnýjað fyrir 50milljónir ELSTA rannsóknastofuhúsið á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum var tekið formlega í notk- un á ný eftir gagngerar endurbæt- ur fyrir skömmu. Kostnaður við þessar endurbætur á húsa- og tækjakosti stofnunarinnar, sem hrundið var af stað 1992, nemur um 50 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá Tilraunastöðinni er stefnt að því að ráðast næst í viðgerðir á Rann- sóknahúsi II og endurbætur á krufningsstofu. Aðstaða til útflutnings Rannsóknastofuhúsið var reist árið 1948 og verður þar m.a. til húsa stjórnunarsvið, afgreiðsla og aðstaða fyrir starfsfólk, auk þess sem mikil umskipti verða á að- stöðu fyrir eitt meginsvið þjón- usturannsókna Tilraunastöðvar- innar, þ.e. bakteríufræði, og einn- ig nátengdu starfsviði sem er framleiðsla og þróun á bóluefni. Með endurbótunum skapast einnig aðstaða til að vinna að breytingum á þeim bóluefnum sem framleidd eru fyrir innan- landsmarkað, jafnframt sem vænta má að hægt verði að taka upp útflutning á mótefnasermi sem hófst fyrir nokkrum árum en hefur legið niðri meðan á end- urbótum stóð. Umboðsmaður Alþingis um staðfestingu Atvinnuleysis- tryggingasjóðs á synjun um atvinnuleysisbætur Grundvöllur akvörðun- ar ekki fullnægjandi UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að stjóm Atvinnuleysistryggingarsjóðs hafi staðið með ófullnægjandi hætti að því að staðfesta synjun úthlutunar- nefndar Iðju, félags verksmiðjufólks, á greiðslu atvinnuleysisbóta til manns vegna þess að hann hafnaði atvinnu- tilboði. Er því jafnframt beint til stjómar sjóðsins að taka málið til meðferðar á ný komi fram ósk þar um. Málsatvik eru þau að kærandi var tekinn út af skrá um atvinnulausa og synjað um atvinnuleysisbætur eft- ir að hann ásamt fleirum hafði fengið ábendingu um laust starf hjá kexverk- smiðju. Viðkomandi skaut málinu til stjómar Atvinnuleysistryggingarsjóðs og kom þar fram að hann hefði haft samband við verksmiðjuna út af starf- inu, en talið að annar hefði fengið starfíð, þar sem fleiri en hann sóttu um það. Fékk ekki að koma að andmælum í áliti umboðsmanns kemur fram að manninum hafi ekki verið gefinn kostur á að koma að andmælum sín- um við greinargerð úthlutunamefnd- ar Iðju eða koma að frekari upplýsing- um um málsatvik er stjórn Atvinnu- leysistryggingarsjóðs hefði lagt grein- argerðina til grundvallar því að við- komandi hefði hafnað vinnu og ætti þar af leiðandi ekki rétt á atvinnuleys- isbótum. „Er ástæða til að gagnrýna þessa málsmeðferð, þar sem greinargerðin byggði að stórum hluta á frásögn eins starfsmanns úthlutunamefnd- arinnar," ségir í áliti umboðsmanns. Jafnframt segir að stjóm sjóðsins hafí láðst að sjá til þess, að aflað yrði vottorðs frá vinnumiðlun Reykja- víkur um atvinnuleysi viðkomandi og síðan segir í úrskurði umboðsmanns: „Það er því skoðun mín, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hafi ekki vandað meðferð málsins sem skyldi og ekki lagt fullnægjandi grundvöll að þeirri ákvörðun, að staðfesta synj- un úthlutunarnefndar Iðju, félags verksmiðjufólks, um greiðslu atvinnu- leysisbóta." Verkfræðistofnun HÍ með umfangsmiklar jarðskjálftamælingar í Reykjavík Átta skjálftar mælst frá 1990 ALLS hafa mælst átta jarðskjálftar á mælakerfi Verkfræðistofnunar HÍ í Reykjavík á tímabilinu 1990 til 1995. Þrír þessara skjálfta voru yfir 4 stig á Richterkvarða og stærstur þeirra var 4,7 stig á Richter, með upptök sín nálægt Kleifarvatni. Auk ofangreindra skjálfta hafa mælst þrír skjálftar, 4 stig á Richter eða meira, með nemum á áttundu og fjórtándu hæð í Húsi verslunar- innar. í þessum skjálftum var hreyf- ing í undirstöðum byggingarinnar undir viðmiðunarmörkum mælanna þar. Mestur þessara skjálfta var 5,3 stig á Richter og voru upptök hans úti í sjó á skjálftasvæði Norður- lands. Vegna fjarlægðar voru áhrif hans hins vegar óveruleg að sögn Bjarna Bessasonar verkfræðings hjá Verkfræðistofnun HÍ, sem skráði þessa skjálfta. Eðli stórra skjálfta kannað Stofnunin hefur annast umfangs- miklar jarðskjálftamælingar á Suð- urlandi, Norðurlandi og í Reykjavík um talsvert skeið. Fyrstu mælarnir voru settir upp í Reykjavík árið 1982 og eru nú staðsettir á fjórum stöð- um; í Foldaskóla, húsi Verkfræði- deildar HÍ, Húsi verslunarinnar og einni af dælustöðvum Vatnsveitu Reykjavíkur. „Tilgangur mælinganna er að afla gagna um eðli stórra jarðskjálfta, kanna viðbrögð bygginga við skjálft- um og er markmiðið að kanna hönn- unarforsendur mannvirkja og skapa traustan grundvöll fyrir áhættu- greiningu og áhættustjórnun," segir Bjarni. „Það er ekkert launungarmál að menn búast við stórum skjálfta á Suðurlandi og þegar hann kemur er það skylda okkar að safna upp- lýsingum um hversu stór hann er og hversu mikil áhrif hans verða, sérstakiega með tilliti til mann- virkja. Síðan er hinn möguleikinn að nota minni skjálfta og heimiidir til að spá í hver hættan er og gera eins konar áhættumat fyrir Selfoss og aðra þéttbýliskjarna á Suður- landi, á sama hætt og gert er varð- andi snjóflóð. Fjármagn liggur hins Jarðskjálftamælanet Verkfræðistofnunar Mælir á jarðvegsstíflu ▼ Mælir í vatnsaflsstöð • Mællr í jörðu ♦ Mælirábrú ■ Mælir í skrifstalubyggingu vegar ekki laust fyrir til þessara rannsókna." Efling fyrirhuguð. Annars vegar er um að ræða mælanet sem ætlað er að skrá yfir- borðshröðun í stærri skjálftum og hins vegar fjölrása mælikerfi í nokkrum stærri mannvirkjum á svæðinu, sem ætlað er að skrá hreyf- ingar þeirra í skjálftum. Mæligögn frá þessum kerfum hafa verið notuð til að þróa verkfræðileg líkön af jarð- skjálftum og áhrifum þeirra á mann- virki. Landsvirkjun fjármagnar veruleg- an hluta jarðskjálftamælinga stofn- unarinnar, en einnig koma til framlög frá Reykjavíkurborg, Vegagerðinni og Verkfræðistofnun. Nú er fyrirhug- uð endurnýjun á samningi um jarð- skjálftamælingar á milli Reykjavíkur- borgar og Verkfræðistofnunar og mun stofnunin leggja áherslu á að efla mælingar í kjölfarið og auka sjálfvirkni í mælikerfi sinu. Taldi 18 undirí garðinum FUGLAVERNDARFÉLAG íslands gekkst fyrir garðfuglakönnun síðast- liðinn vetur og sáust alls 36 fuglateg- undir í könnuninni sem 23 félagsmenn tóku þátt í. Flestar tegundirnar sáust hjá athuganda í Reykjavík, alls 18. í garði á Húsavík sáust 16 tegund- ir og á tveimur stöðum sáust 15 fugla- tegundir. Fæstar tegundir sáust í garði við nýbyggt hús í Grafarvogi en aðeins snjótittilingur heimsótti þann garð. Snjótittlingur sást í görð- um allra þátttakenda og skógarþröst sáu allir nema einn. Þriðja algengasta tegundin var stari og auðnutittilingur kom þar næst á eftir. Margir flæking- ar sáust í görðunum, alls 13 tegundir. Ólafur Einarsson líffræðingur sem á sæti í stjóm Fuglavemdarfélagsins segir að fleiri tegundir hafi fundist en menn hefðu átt von á. Töluverður fjöldi vaðfugla hefði sést í görðum, þ.á m. heiðlóa, stelkur, tjaldur og hrossagaukur. Könnunin var gerð í október og fram að apríl. Samskonar könnun stendur nú yfir. Ólafur segir að þetta sé eina skipulagða könnunin á þessu sviði og þjóni hún bæði fræði- legum tilgangi og sé til skemmtunar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.