Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 28
28 B SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ h-rfá & SÁ «um1ú«a i Któ<fcé»j»ri ÍÉiÁaiikdS. <£*" K^nt & aÁ tAfejA AV úiA r'Cnf'rlj,1 WriT cinuyo rlarð1 ct dU uUytyaCf F pwvwwTfr E/PðUfltfTVay “r liurir Cr cfv/ Kfivfvj W Vlv/ áiinlócir^iárifíntiiin^rH M. 4'f /5lS máríiúljinính <U5. feHKk#. CTuyiyoitivjcijjv/iiivftiv#rH tff ivr.* ri.w frictiivivfciynif i vW. yðPniNfP/ Mánárí tipplýsírigár vörtír Raköí SvöinSdóttír, SöltrfuÍKrú? í áOplýsiWcjadöild, í áttfnS 5€& -H 71 §ð» tæð SíPifcráli £6$ ff i§. JltrgBuMaMlí - kjarní inálte! Afdrifarík bilun í japanskri eldflaug Gervihnötturinn steyptist í hafið Tokyo, Canberra. Reuter. BILUN í japanskri geimflaug varð til þess að 750 kílógramma þung- ur gervihnöttur þýskra vísinda- manna komst ekki á sporbraut og hrapaði í Kyrrahafið. Flauginni var skotið upp frá tilraunastöðinni Kagoshima á eyjunni Kyushu fyrir skömmu og átti að lenda fimm dögum síðar í Woomera-eyðimörk- inni í Ástralíu. Gervihnötturinn var smíðaður í Rússlandi en síðan komið fyrir í honum tækjum og tólum fyrir- tækisins Daimler Benz Aerospace. Átti að nota hann til tilrauna í sambandi við þyngdarafl, ofurhita og þrýsting sem myndast er hlutir koma inn í gufuhvolfið. Stjórnir Japana og Þjóðveija skiptu jafnt með sér kostnaði af allri tilraun- inni sem kostaði um 5.200 milljón- ir króna. Ástralskir vísindamenn töldu að bilun hefði orðið í öðru þrepi eld- flaugarinnar, í 110-200 kílómetra hæð. Þjóðverjarnir hefðu átt í erfiðleikum með ijarskiptasam- band við hnöttinn þegar einni stundu eftir geimskotið. Talið er að hnötturinn hafi splundrast og brotin fallið í hafið. Áfall fyrir Japani „Því miður er engin leið að neita því að það var japanska flaugin sem olli því að hnötturinn hélt ekki stefnunni", sagði talsmaður japönsku vísindamannanna. Þetta er talið mikið áfall fyrir Japani sem hafa gert metnaðarfulla áætlun um geimrannsóknir. Tvær stofnanir í Japan annast geimrannsóknir og bítast um fjár- veitingar. Önnur þeirra fær sex sinnum meira fé en hin, sem reyndar bar ábyrgð á tilrauninni, en hefur lagt ofurkapp á að Jap- anar framleiði sjálfir allt sem til þarf og er sú stefna mjög gagn- rýnd. Eldlaug sem stofnunin er með í smíðum, H2, verður nær tvöfalt dýrari en Ariane-flaugin evrópska og þar að auki eru öflug- ir keppinautar á þessu sviði í Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína. Hætta á eldgosum nærri Goma Genf. Reuter. BÚIST er við að eldgos geti orðið í næsta mánuði í tveimur eldf jöll- um nærri Goma í Zaire og stefnt lífí um 800.000 flóttamanna frá Rúanda í hættu. Hefur flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna óskað eftir fjárframlögum til þess að hægt verði að flytja að minnsta kosti 200.000 manns úr flótta- mannabúðunum í Goma. Um er að ræða eldfjöllin Nya- muragira og Nyiragongo en Sam- einuðu þjóðirnar starfrækja sex flóttamannabúðir þar nærri. Búist er við að hraunstraumurinn muni fyrst og fremst renna í suður í átt að Mugunga-búðunum sem 200.000 manns eru í. Hafa jap- anskir jarðskjálftafræðingar vakið athygli á því að skjálftavirkni hef- ur aukist mjög á svæðinu. Flóttamannahjálpin hefur beðið þjóðir heims um fjárframlög sem nema um 710 milljónum dala til að aðstoða íbúa Rúanda en um tvær milljónir þeirra eru nú í flóttamannabúðum { nágranna- löndum. ÚTSALAN ER HAFIN... AXIS HÚSGÖGN HF.» SMIÐJUVEGI 9» 200 KÓPAVOGUR* SÍMI 554 3500 ) Breska kóngafólkið Leikritíð jafnast ekki á við hneykslin Lundúnum. Reuter. FRÉTTIR um einkalíf bresku kon- ungsfjölskyldunnar hafa aukið sölu breskra æsifréttablaða, en háðsádeila um fjölskylduna sem leikhús í Lundúnum hefur sett á svið hefur hins vegar fallið í skuggann. Leikritið „Drottningin og ég“ var frumsýnt í einu af leikhúsum Lundúna fyrir fjórum mánuðum en ákveðið hefur verið að sýning- unum verði hætt 4. febrúar vegna dræmrar aðsóknar, að sögn fram- leiðandans, Karls Sydows. „Hneykslismál konungsfjöl- skyldunnar eru orðin svo mörg að enginn skáldskapur kemst í hálf- kvisti við þau. Það er ógjörningur að setja upp háðsádeilur um hana, hún sér um það sjálf,“ sagði Sydow. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.