Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 27 Skoðanakönnun meðal skrifstofufólks í Kína Bylting í verðmætamati Peking. The Daily Telegraph. KÖNNUN sem gerð var á meðal sístækkandi hóps þeirra sem vinna skrifstofuvinnu af ýmsum toga í Kína bendir til byltingar í verð- mætamati sem gæti orðið til að gjörbreyta kínverska þjóðfélaginu á næstu áratugum. Niðurstöðurn- ar koma á óvart, í ljós kom m.a. að þeir sem rætt var við, töldu að fjölskyldu- og ættartengsl hefðu minni áhrif á starfsframa en eigin dugnaður og menntun. I könnuninni kom í ljós að hinir nýríku borgarbúar reykja fæstir, eiga nána vini af hinu kyninu, eru mótfallnir því að búa hjá foreldrum sínum og vilja frekar horfa á er- lendar en innlendar fréttir. Þá telja þeir skilnað lausnina fyrir óham- ingjusöm hjón og virðast vera fylgjandi hugmyndinni um það að eiga sér elskhuga. Könnunin var birt í dagblaðinu Ungdómur og var gerð á meðal fólks sem vinnur ýmiss konar skrifstofustörf í Shanghai en það eru um 40% vinnuafls í borginni. Segir blaðið þennan þjóðfélagshóp vera nauðsynlegt afl í iðnvæðingu um heim allan en þeir sem fram- kvæmdu könnunina skilgreina þátttakendur sem tekjuháa, vel menntaða og hátt setta. Þeir fimmtíu kennarar sem þátt tóku í könnuninni telja sig ekki eiga heima í þessum hóp vegna þess hversu lág laun þeirra eru. Yfir tveir þriðju hlutar þátttak- enda eru með sem svarar frá 6.600 til 12.500 ísl. kr. á mánuði. Þeir hafa áhyggjur af stjórn landsins, efnahagsmálum og lífskjörum. Yfir 60% reykja ekki þar sem þeir telja reykingar hættulegar heils- unni og 70% sögðust eiga einn eða fleiri góða vini af hinu kyninu. sér elskhuga" sem þýðir einfald- Segir í blaðinu að „yfir 20% að- lega að mikill meirihluti þeirra spurðra fannst ekki rétt að eiga hefur ekkert á móti því. Det INIodvendige Seminarium I" |>on•nnrln ■ GETUR ENN TEKIÐ INN 3 ÍSLENSKA 1/alllIIUnvU NEMENDUR HINN 1. SEPT. 1995 4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörgum skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum. Námið er: • 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu. • 1 ár námsefni innanlands, innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi. • 2ja ára fagnám, innifalið er 2x6 mánaða starfsnám i grunnskóla og öðrum skólum innanlands og utan. Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku. Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verður haldinn í Reykjavíklaugard. 1 l.febrúar kl. 16á Hótel íslandi, Ármúla9,108 Reykjavík. Ef þú hefur áhuga, hringdu þá eða sendu símbréf og fáðu bækling áður en kynningarfundurinn er haldinn. Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg Sími 00 45 43 99 55 44, símbréf 00 45 43 99 59 82. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Qssl Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð? QQ Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð? QQ Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrarnámskeið sem hefst miðvikudaginn 8. febrúar. Skráning í símum 564-2100 og 564-1091. HRAÐLESTRARSKÓLINN Internet Upplýsingahraðbrautm Verið þátttakendur í þeim þjóðfélagsbreytingum sem Intemetið orsakar með því að tengjast Upplýsingahraðbraut Margmiðlunar. Einföld uppsetning, enginn stofnkostnaður. Fast mánaðar- gjald 1.000 kr. á mánuði (allt að 5 tengitímar) auk mínútna- gjalds, 2,5 kr. á mínútu, ef notkun er yfir 5 tímar á mánuði. Margmiðlun hf. býður upp á alhliða Internetþjónustu: Tengingu við Upplýsingahraðbrautina, ráðgjöf, rekstur vef- síðna (WWW) og gerð vefsíðna. Upplýsingahraðbrautinni er dreift án endurgjalds með kaupum á mótaldi hjá eftirtöldum söluaðilum: Boðeind og Tæknivali. Margmiðlun hf. Sími 551-3533 Netfang: uhh@mmedia.is. Félag járniðnaðarmanna Allsherjarathvæðagreiðsla Ákveðið er að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár. Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins á skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, Reykjavík, ásamt meðmælum a.m.k. 75 full- gildra félagsmanna. Tillögur skulu vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess um 21 mann í trúnaðarmannaráð félagsins og 7 varamenn þeirra. Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 17.00 fimmtudaginn 9. febrúar 1995. Stjórn félags járniðnaðarmanna. BENIDORM iBW8arowB»___________ 10. apríl - 2 vikur Gisting a TORPA. 4 í íbúð - 2 fullorðnir og 2 börn kr. 44.005 pr. mann. 2 í íbúð kr. 58.675 pr. mann. VORFERÐ 24. apríl - 4 vikur I Gistinga a TORPA. 2 í íbúð kr. 66.655 pr. mann. Gistingá TORPA/GEMELOSII. 2 í íbúð kr. 60.005 pr. mann. Staðgreiðsluverð. Innifalið: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. Höfum einnig til ráðstöfunar takmarkaðan Jjölda íbúða á LES DUNES SUITES við Levante ströndinga. Nánari upplýsingar hjá okkur. Pantaðu í síma 552-3200. FERÐASKRI FSTOFA REYKJAVÍKUR Aðalstræti 16, sími 552-3200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.