Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 17 ATVIN WnMAUGL YSINGAR -bakar brauðiðþitt! VERKSMIÐJUSTJÓRI Samsölubakarí hf óskar eftir að róða tœknimenntaðan stjórnanda í starf verksmiðjustjóra. STARFSSVIÐ VERKSMIÐJUSTJÓRA: □ □ □ □ □ □ Verksmiðjusijóri er ábyrgur fyrir ölium verksmiðjurekstri og framleiðslustarfsemi Samsölubakarís hf. Verksmiðjustjóri annast yfirstjórn og skipu- lagningu framleiðslumála og ber ábyrgð á daglegri stjórnun verksmiðjunnar. Verksmiðjustjóri ber ábyrgð á innkaupum aðfanga til framleiðslu og lagerstjómun aðfanga og fullunninna vara. Verksmiðjustjóri ber ábyrgð á stjórnun vöruflœðis framleiðslunnar, hagnýtingu upplýsingatœkni og skipulagningu vinnuferla. Verksmlðjustjóri tekur virkan þátt í vöruþróun og gceðastjórnun fyrirtœklsins. Verksmiðjustjóri heyrir þelnt undlr framkvœmdastjóra Samsölubakarís hf. RAÐNINGARSKILMÁLAR: Við leitum að starfsmanni með háskólapróf í iðnaðar-, rekstrar- eða vélaverkfrœði eða með sambœrilega menntun í þetta mikilvœga starf. Vlðkomandi þarf að hafa góða starfsreynslu í framleiðslu- og starfsmannastjómun, samskipta og sklpulagshœfileika, frumkvœðl, þjónustulund og mikla fagþekkingu. Góð tungumálakunnátta og haldgóð þekking I tölvu- og upplýslngatcekni nauðsynleg. Nánari upplýsingar veltir Benjamín Axel Ámason ráðningastjóri Ábendls. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Vlnsamlegast scekið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar fyrir 9. feb.1995 rjDenc RÁÐGJÖF 0G RÁÐNINGAR Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími (91) 68 90 99 Tæknifræðingur - rafeindavirki Stórt sölu- og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni óskar að ráða rafeinda- virkja eða tæknifræðing til starfa á þjónustu- sviði. Um er að ræða framtíðarstarf. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfið felst í þjónustu og viðgerðum á vél- búnaði og stýrikerfum einmenningstölva til öflugra fjölörgjörva netþjóna. Gerð er krafa um starfsreynslu á PC sam- hæfðum einmenningstölvum og góða ensku- kunnáttu. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. CUÐNT ÍÓNSSON RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA HÁTEIGSVEGI7,105 REYKjAVÍK, SÍMI62 13 22 Sölufólk Ert þú drífandi og sjálfstæð(ur) og ert tilbú- in(n) til að takast á við spennandi sölustarf hvar sem er á landinu. Leggðu þá inn nafn og símanúmer á afgreiðslu Mbl. merkt: „S - 3971". Kerfisfræðingur Stór þjónustustofnun í borginni óskar að ráða kerfisfræðing til starfa í tölvudeild til að annast þróun, uppsetningu og rekstur upplýsingakerfa. Æskilegt er að viðkomandi sé kunnugur rekstri staðarneta og algengustu gagna- grunnskerfum. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál. Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Kerfisfræðingur - þjón- ustustofnun" fyrir 8. febrúar nk. RÁÐGARÐUR hf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688 Starf safnaðarprests við Óháða söfnuðinn er laust til umsóknar. Um er að ræða 1/2 starf. Umsóknarfrestur er til 30. mars nk. Umsóknir sendist til Óháða safnaðarins, pósthólf 248, 121 Reykjavík. Safnaðarstjórn. m BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Svæfingahjúkrunarfræðinga vantar nú þegar til starfa á svæfingadeild E-5. Um er að ræða bæði fjölbreytt og krefjandi starf. Gert er ráð fyrir aðlögunartíma fyrstu 6 vikurnar. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga í fullt starf á „vöknun barna". Vinnutími er frá kl. 8.00-16.00 virka daga. Nánari upplýsingar veitir Ágerður Tryggva- dóttir, deildarstjóri, í síma 696345 eða Mar- grét Tómasdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri, í síma 696364. 0 Norræna ráðherranefndin Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjómanna á Norðurlöndum. Skrifstofa nefndarinnai; sem staðsett er í Kaupmannahöfn, auglýsir nú eftirf arandi stöður lausar til umsóknar Tvær stöður skrifstofustjóra Skrifstofustjóramir vinna í nánu sambandi við framkvæmdastjórann og sitja í framkvæmdastjóm stofnunarinnar. Einn af alls fimm skrifstofustjórum er staðgengill framkvæmdastjórans. Starfið krefst breiðrar faglegar þekkingar, forystueiginleika og hæfileika til að vinna þverfaglega. Þekkingá málefnum Norðurlandanna telst til tekna. - Annar skrifstofustjórinn er yfirmaður menningar-, mennta- og rannsóknaskrifstofu í samvinnu við 24 starfsmenn ber skrif stofustjórinn ábyrgð á undir- búningi og framkvæmd á samstarfi ráðherranefndar og embættismanna á ofannefndum sviðum. Þar á meðal telst starf 22 norrænna stofnana og fjöldi samstarfsverkefna. Fjárlög geirans nema rúmlega 340 miÚjónum d.kr., þar af fer 2/3 til menntamála og rannsóknastarfa, en sú deild lýtur stjóm deildarstjóra. Stærsta eining menningarsamstarfs- ins er Norræni menningarsjóðurinn, en yfir honum situr framkvæmda- stjóri. Skrifstofustjórinn ber ábyigð á starfinu í heild með sérstaka áherslu á menningarmál. Ráðning frá 1. september 1995. - Hinn skrifstofustjórinn er yfirmaður umhverf ismála-, við- skipta- og iðnaðarmálaskrifstofu í samvinnu við 15 starfsmenn ber skrifstofustjórinn ábyrgð á undir- búningi og framkvæmd á samstarfi ráðherranefndar og embættismanna á ofannefndum sviðum. Þ.á.m. telst starf nokkurra norrænna stofhana. Deildin ber ábyrgð á norrænu samstarfi sem varðar: Umhverfis- mál, orkumál, viðskipta- og iðnaðarmál, landbúnað, sjávar- útveg, byggðastefnu, samgöngur, efnahagsmál og húsnæðismál. Skrifstofustjórinn ber ábyrgð á skipulagningu og stjómun starfsins. Ráðningartími hefst eftir nánara samkomulagi. Staða deildarstjóra Alþjóðleg samskipti Deildarstjórinn stjómar og skipu- leggur starfsemi ráðherranefndar- innar á grannsvæðum Norðurlanda (Eystrasaltsríkjum og Rússlandi), og nema fjárlög þeirrar starfsemi 50 milljónum d.kr. Þá sér deildarstjóri um að kynna norræna samvinnu á meginlandi Evrópu. Starfið krefst sérlega góðrar málakunnáttu í sem flestum Norðurlandatungum, ensku, frönsku og helst rússnesku. Umsækjandi þarf að hafa reynslu af stjómunarstörfum í stærri sam- tökum eða stofnunum. Deildar- stjórinn vinnur í nánu sambandi við framkvæmdastjórann. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Tvær deildarsérfræðingastöður - Jafnréttismál Starfið felst m.a. í því að imdirbúa og fylgja eftir ákvörðunum ráðherranefndar og annarra norrænna nefnda, sjá um undir- búning funda samstarfsnefnda auk þess að annast upplýsingastarf og önnur samskipti við samstarfsaðila í aðildarríkjunum og á alþjóða- vettvangi. Staðan er á skrifstofu 3, en hún annast m.a. atvinnumarkað, félags- og heilbrigðismál. Umsækj- andi þarf að geta hafið störf sem fyrst. - Menningarsvið Starfið er unnið í nánu samstarfi við aðra deildarsérfræðinga og felst í því að fjalla um mál sem snerta menningarsamstarfið og samræma mál sem snerta bæði menningar- og menntasvið. Deildarsérfræðingur- inn aðstoðar skrifstofustjórann við undirbúning og framkvæmd á samstarfi ráðherra og embættis- manna. Starfið krefst langrar reynslu af menningarstörfum eða stjómsýslu þar að lútandi. Staðan er á mennta-, menningar- og rannsóknarskrifstofu. Ráðningartími hefst eftir nánara samkomulagi. Þijár fulltrúastöður Fulltrúastöðumar felast allar í tilfallandi skrifstofustörfum hver á sínu sviði. - fulltrúi á mennta-, menningar- og rannsóknaskrifstofu með áherslu á fjölmiðla- og kvik- myndasamstarf. Ráðningartími hefct eftir nánari samkomulagi. - fulltrúi á umhverfismála-, viðskipta- og iðnaðarmálaskrifstofu með áherslu á orku-, viðskipta- og iðnaðarmál. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. - fulltrúi á fjármála- og rekstrar- skrifstofu með áherslu á bókfærslu og greiðslur á reikningum. Ráðningartími hefst eftir nánari samkomulagi. Upplýsingar um allar stöðun Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára. Opinberir starfsmenn eiga rétt á orlofi sem ráðningartímabilinu nemur. Umsækjandi þarf að hafa góða fræðilega menntun og maigra ára starfsreynslu hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Skrifleg og munnleg fæmi í dönsku, norsku eða sænsku er forsenda fyrir ráðningu. Þekking á öðrum tungumálum er æskileg. Skrifstofa norrænu ráðherranefndar- innar vill stuðla að jafnri skiptingu starfcfólks eftir þjóðemum og kynskiptingu. Nánari skriflegar upplýsingar um ofannefndar stöður og umsóknar- eyðublöð má panta hjá: Nordisk Ministerrád, Box 3035, DK-1021 Kabenhavn K eða í bréfasíma +45- 33 % 02 02 eða +45-33 96 02 16. Þar eru gefin upp nöfn á fólki sem getur sagt nánar frá hverju starfi fyrir sig. Umsóknarfrestur um allar stöðumar rennur út 17. febrúar 1995.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.