Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 KNATTSPYRNA toém FOLX ■ SIGURÐUR Halldórsson, fyrrum landsliðsmaður frá Akra- nesi, hefur verið ráðinn þjálfari 3. deildarliðs Skallagríms í Borgar- nesi. ■ ÚLFAR Jónsson, kylfingur úr Hafnarfirði, tók þátt í golfmóti í Niceville í Flórida um síðustu helgi. Hann hafnaði í 7.-10. sæti, lék á 148 högumm, 78 og 70, en par vallarins er 72. Sigurvegarinn Jék á 141 höggi. Úlfar var aðeins einu höggi frá því að fá peninga- verðlaun. Hann tekur næst þátt í mót sem fram fer í Panama City í Flórída 3. - 4. nóvember. Leikur númer eitt á laugardagsseðlinum er: 1. Degerfors - Hássleholm - allir hinir eru enskir. ■ SELFYSSINGAR héldu utan áleiðis til Króatíu í gær en þeir leika fyrri leik sinn í Evrópukeppn- inni gegn RK „Itu“ Umag á laugar- dagskvöld. ■ SIGURÓLI Krisijánsson, „Moli“ eins og hann er kallaður, íhugar nú að ganga á ný til liðs við fyrrum félaga sína í 1. deildar- liði Þórs á Akureyri í knattspyrnu. Siguróli, sem er 27 ára, hætti vegna meiðsla fyrir nokkrum árum, 'evi þjálfaði SM í 4. deild í sumar. Þetta kemur fram í Degi. ■ LOU Macari hefur tekið við stjóminni hjá skoska liðinu Celtic, en hann stjómaði áður Þorvaldi Örlygssyni og félögum hjá Stoke í Englandi. Fyrsti leikur Celtic undir stjóm Macaris verður á morgun gegn erkifjendunum í Ran- gers á útivelli. Og í næstu viku stjómar hann félaginu gegn Sport- ing í Evrópuleik í Lissabon. I ARIE Haan, hollenski þjálfar- inn hjá Standard Liege í Belgíu, var rekinn frá félaginu á mánudag- inn eftir þriggja ára starf. Belginn Rene Vandereycken var ráðinn í hans stað. Haan, sem er 44 ára, er fyrrum landsliðsmaður Hollands og hafði áður þjálfað Stuttgart og Niirnberg í Þýskalandi og Antw- erpen og Anderlecht í Belgíu. Standard Liege hefur gengið illa það sem af er og er í 13. sæti af 18 í belgísku deildinni. ■ PAUL Gascoigne, sem leikur með Lazio á Italíu, er kominn til Englands þar sem hann fer í sér- staka meðferð vegna meiðsla á hásin sem hefur hijáð hann að und- anfömu. Gascoigne hefur aðeins leikið fjóra af níu leikjum Lazio það sem af er keppnistímabilinu. Reuter FögnuAur og sorg. Á myndinni fyrir ofan sjást leikmenn Saudi Arabíu fagna, en á litlu myndinni til hliðar gengur fyrirliði Japans grátandi af leikvelli. Geysilegur fögn- urður í S-Arabíu S-Kórea og Saudi Arabía í HM í Bandaríkjunum að verða landslið Saudi-Arabíu og Suður-Kóreu sem verða full- trúar Asíu í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkjunum næsta sumar. Þjóð- irnar tryggðu sér þátttökurétt í gær, en þá fóru fram síðustu leikirnir í Asíu-keppninni og má segja að spennan hafí verið geysileg allt fram á síðustu sek., en þrír leikir fóru fram á sama tíma í Qater. Þegar ein mín. var eftir af leik Japans og írak, voru það landslið Japans og Saudi-Arabíu, sem voru inni. Þá voru leikmenn S- Kóreu búnir að leggja N-Kóreumenn að velli, 3:0, og sátu á leikvellinum; vonsviknir. Þeir voru búinir að fá fréttimar, að Japan væri yfir gegn írak, 2:1. En eins og hendi var veifað, spruttu leikmenn S-Kóreu á fætur — þeir fréttu að írakar höfðu jafnað, 2:2, örfáum sek. fyrir leikslok, þann- ig að þeir komust áfram á betri markatölu en leikmenn Japans, sem sátu eftir með sárt ennið — gengu grátandi af leikvelli, enda ekki nema von — aðeins örfáum sek. frá að komast í lokakeppni HM, en því hafa Japanir aldrei náð. Þeir voru í efsta sæti riðilsins, en féllu niður í það þriðja. „Þannig er knattspyrnan — ekkert öruggt," sagði Marius Hans Ooft, vonsvikinn þjálfari Japans. Geysilegur fögnuður braust út í Saudi Arabíu, eftir að S-Arabía hafði tryggt sér Bandaríkjaferð með sigri á Iran 4:3. Fólk söng og dansaði á götum úti og það var eins og þjóðhá- tíð væri í höfuðborginni Riyadh. Landslið Saudi-Arabíu hefur aldrei áður náð því að komast í lokakeppni HM. Ekki var fögnuðurinn minni í Qatar, þar sem 20.000 S-Arabar voru mættir. Lokaastaðan í Asfuriðlinum, var þessi: Saudi Arabía...........5 2 3 0 8: 6 7 Suður-Kórea............5 2 2 1 9: 4 6 Japan..................5 2 2 1 7: 4 6 Irak...................5 1 3 1 9: 9 5 íran..................5 2 0 3 8:11 4 Norður-Kórea..........5 1 0 4 5:12 2 EM1998 í Búdapest Ungverska borgin Búdapest varð fyrir valinu er greidd voru atkvæði um hvar halda ætti Evr- ópumeistaramótið í fijálsíþróttum 1998 á fundi Frjálsíþróttasambands Evrópu í Venice á Ítalíu á sunnu- daginn. Búdapest hlaut 25 atkvæði á fundinum en Madrid á Spáni kom næst með 15 atkvæði. París og Aþena, sem sóttu einnig um að halda mótið 1998, drógu sig út áður en til úrslitaakvæðagreiðslu kom. AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 1988-3.fl.D 5 ár 01.11.93 - 01.05.94 12.11.93 - 12.05.94 10.11.93 kr. 61.289,80 kr. 71.329,10 kr. 21.117,70 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, október 1993. SEÐLAB ANKIÍSLANDS í kvöld Handknattleikur 1. deild kvenna: Strandg.: Haukar- Stjarnan... .18.30 2. deild karla: Strandgata: ÍH - ÍBK kl. 20 Digranes: HK-Fylkir kl. 20 Húsavík: Völsungur - Fram kl. 20 Körfuknattleikur 1. deild karla: Akureyri: Þór - Höttur ...kl. 20.30 Sandgerði: Reynir - Leiknir kl. 20 1. deild kvenna: Grindavfk: UMKG-UMFT kl. 20 FRJALSAR toémR FOLK ■ ANDREAS Brehme, fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, verður í sviðsljósinu er Kaiserslautern sækir gamla félagið hans, Bayern Miinchen, heim í þýsku deildar- keppninni í knattspyrnu á morgun. Orðrómur er á kreiki í Þýskalandi að Berti Vogts, landsliðsþjálfari, hafi jafnvel í hyggju að velja þenn- an 32 ára miðvallarleikmann aftur í landsliðshóp sinn fyrir HM í Bandaríkjunum næsta sumar. ■ CHRISTIAN Ziege, 21 árs og stórefnilegur leikmaður hjá Bay- ern, leikur á vinstri vængnum með félagi sínu og landsliðinu um þessar mundir, en þýska liðið var sterkara að margra mati er Brehme var í þeirri stöðu. Því bíða menn spennt- ir eftir „einvígi“ þeirra á morgun. ■ RUUD GuIIit og félagar í Sampdoria taka á móti fyrrum félögum Hollendingsins í AC Milan í ítölsku deildinni í knattspyrnu á sunnudaginn. Gullit hefur leikið frábærlega í vetur, en Berlusconi, forseti Milan, viðurkenndi á dögun- um forráðamenn Milan hefðu mis- reiknað sig og talið Gullit útbrunn- inn sem knattspyrnumann og þess vegna látið hann frá sér. ■ AC Milan, sem er nú í efsta sæti deildarinnar ásamt Parma, hefur verið í efsta sæti ítölsku deild- arinnar óslitið síðan 6. október 1991. Sampdoria er stigi á eftir efstu liðunum og Gullit og samherj- ar hans gætu því skotið meistarana af toppnum. M BULGARSKI framheijinn Hristo Stoichkov hjá Barcelona sakaði hollenska vamarmanninn Ronald Koeman, samheija sinn, um að hafa „grenjað" sig inn í liðið fyrir Evrópueik gegn Austria Vín í síðustu viku. ■ FJÓRIR útlendingar eru hjá Barcelona, en aðeins þrír mega leika hveiju sinni. Það kom nokkuð oft í-hlut Búlgarans að sitja á vara- mannabekknum framan af leiktíð- inni, og virðist það bitna á Koe- man, en þess má geta að hann er landi Cruyffs þjálfara. Romario, framheijinn brasilíski, hefur staðið sig mjög vel og danski landsliðs- maðurinn Michael Laudrup einnig, þó svo hann hafi þurft að sætta sig við að byija útaf um síðustu helgi. B HUGO Sanchez, mexíkanski markaskorarinn mikli, sem snéri á ný til Spánar frá heimalandinu fyr- ir þetta keppnistímabil, mætir gömlu félögunum í Real Madrid með Rayo Vallecano, sem einnig er höfuðborginni. Hann lék með Real í sjö ár með frábærum árangri. ■ EMILIO Butragueno, fram- heiji Real, sagði í vikunni um gamla samheijann: „Það er alveg í sama liði Hugo leikur, hann gæti haldið áfram að skora til sextugs.“ ■ BENITO Floro, þjálfari Real Madrid, var orðinn valtur í sessi eftir mjög slaka byijun liðsins í deildinni, en hagurinn vænkaðist eftir 5:0 sigur á botnliði Lerida á heimavelli, Santiago Bernabeu-leik- vangingum, um síðustu helgi. ■ FLORO stillti upp þremur mönnum í fremstu víglínu síðast, og heldur sig væntanlega við þá uppstillingu. Það voru gamla brýnið Butragueno, chileski landsliðs- maðurinn Ivan Zamorano og Al- fonso Perez, ungur og stórefnileg- ur strákur. ■ BRYAN Robson, leikmaður Manchester United og Ray Wilk- ins, sem nú leikur með QPR en var á árum áður annar aðalmanna á miðjunni hjá United ásamt Rob- son, verða líklega hvorugur með í viðureignum félaganna á Old Traf- ford. Robson fór í smávægilega aðgerð á höfði í gær og Wilkins er meiddur í hné. H ROMARIO, brasilíski leikmað- urinn hjá Barcelona, þarf að gang- ast undir aðgerð á vinstra auga. Hann fer í aðgerðina knattspyrnu- menn á Spáni fara í jólafrí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.