Morgunblaðið - 08.10.1992, Qupperneq 52
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉRLEIÐ
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Þýskar rafmagns-
veitur lýsaáhuga
á orku frá Islandi
Rafmagnsveitumar í Hamborg í Þýskalandi hafa sýnt áhuga á
verkefni um sæstreng frá íslandi. Að sögn Geirs Gunnlaugssonar
stjómarformanns Markaðsskrifstofu Landsvirkjunar og Iðnaðar-
ráðuneytisins felst áhugi þeirra í að kaupa héðan orku og hugsan-
lega taka þátt í að leggja sæstreng og reisa virkjanir. Engar endan-
legar ákvarðanir verða teknar að hálfu stjórnvalda um hugsanlega
samstarfsaðila um sæstrengsverkefni fyrr en niðurstöður þeirra
athugana sem nú er verið að vinna liggja fyrir, þ. e. annars vegar
á vegum Pirelli og Vattenfall og hins vegar á vegum Sumitomo bank
í London og Camus. Gert er ráð fyrir að þessar niðurstöður liggi
fyrir eftir um 2 mánuði. Á umráðasvæði rafmagnsveitnanna í Ham-
borg búa um 2 milljónir íbúa.
Að sögn Geirs Gunnlaugssonar
er nú verið að gera ýmsar frumat-
huganir vegna sæstrengs. Pirelli og
« -Wattenfall eru að vinna að athugun
á tæknilegri hagkvæmni þess að
leggja sæstreng frá íslandi og
kostnaðaráætlun í því sambandi á
vegum Markaðsskrifstofu Lands-
virkjunar og Iðnaðarráðuneytisins.
Þá eru Camus og Sumitomo bank
að kanna fyrir skrifstofuna hvaða
aðilar séu hugsanlegir fjárfestar í
verkefninu og þátttakendur í að
byggja virkjanir og kapal. Gert er
ráð fyrir því að Pirelli og Vatten-
fall skili sínum niðurstöðum eftir
-1-2 mánuði og Camus og Sumitomo
bank um svipað leyti.
Geir segir að það sé ekki fyrr
en niðurstöður þessara athugana
liggi fyrir að heildarmynd komist á
málið. Þá fyrst geti íslensk stjórn-
völd myndað sér skoðun á því hvort
þetta sé vænlegt verkefni og hvem-
ig heppilegast sé að vinna að því.
Að sögn Geirs eiga rafmagnsveit-
umar í Hamborg eigin orkuver, þ.
á m. hluta í kjamorkuveri til að
sinna verulegum hluta af eigin
notkun. Raforkunetið í Þýskalandi
tengir hinar svæðisbundnu raf-
magnsveitur og því geti þær selt
Borgarspítali
Deilan á
röntgen-
deild enn
ekki leyst
hver annarri orku eftir því hvernig
álagið er hveiju sinni.
Sjá umfjöllun um sæstreng í
viðskiptablaði bls. C8-9.
Mismargir
íbúar um
hvem lög-
regluþjón
Hlutfallslegur liðsstyrkur lög-
reglu er nýög mismunandi eftir
lögregluumdæmum. Þannig eru
295 íbúar um hvem lögregluþjón
á Siglufirði, í Reykjavík sinnir
hver lögreglumaður 412 íbúum
en í Vík í Mýrdal þarf lögreglu-
maður að hafa auga með 1.208
íbúum.
Þetta kemur fram í svari dóms-
málaráðherra við fyrirspum alþing-
ismannsins Kristins H. Gunnarss-
sonar. Þar segir einnig að yfirvinna
sé mjög mismunandi í lögregluum-
dæmum landsins. Mestar annir em
á Eskifirði, þar sem hver lögreglu-
þjónn vinnur að meðaltali 2.029
yfirvinnustundir á yfirstandandi
ári. í Reykjavík vinna lögreglumenn
806 yfirvinnutíma en lögreglumað-
urinn í Vík í Mýrdal vinnur 1.586
tíma í yfirvinnu.
Sjá þingsíðu, bls. 30.
Tap í ljósadýrðinni
Morgunblaoio/Knstmn
Hálft sjötta þúsund manna fylgdist með þegar íslenska landsliðið tapaði fyrir því gríska, 0:1, í undan-
keppni HM á Laugardalsvelli í gærkvöldi er nýju flóðljósin vora tekin í notkun. Sjá nánar á íþróttasíðum.
Neyðarvakt skipulögð á
Sogni er starfsfólk mætti
Algjör trúnaðarbrestur mili gæslufðlks og stofnunarinnar, segir heilbrigðisráðherra
Selfossi.
GÆSLUFÓLK á Sogni mætti ekki á fyrstu kvöldvaktina klukkan
átta í gærkvöldi eins og gert hafði verið ráð fyrir vegna þess að
ekki hafði verið samið við stéttarfélag þess, Starfsmannafélag ríkis-
stofnana, um röðun í launaflokka. Fólkið mætti svo síðar um kvöld-
ið en þá hafði verið skipulögð neyðarvakt fyrir nóttina og næstu
daga með hjúkrunarfólki og lögreglumönnum. Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðisráðherra sagði að um mjög alvarlegan trúnaðarbrest
væri að ræða milli starfsmanna og stofnunarinnar.
Röntgentæknar á Borgarspítal-
anum funduðu í gærkvöldi vegna
bréflegs tilboðs frá spítalanum um
að þeir fengju samsvarandi vinnu-
tíma og röntgentæknar í vinnu
hjá ríkinu hafa samið um. Að sögn
Guðrúnar Friðriksdóttur for-
manns Félags röntgentækna, er
deilan óleyst og munu röntgen-
tæknar starfandi á Borgarspít-
alanum ekki mæta til vinnu í dag,
þar sem erfitt hafi reynst að túlka
innihald bréfsins.
Guðrún sagði, að í bréfinu kæmi
ekki fram með óyggjandi hætti að
staðið yrði við kjarasamninga, það
er að segja fyrirkomulag vinnutíma.
•„Á meðan við ekki treystum okkur
til að túlka bréfið þannig þá förum
við ekki til vinnu á Borgarspítalan-
um,“ sagði hún. „Deilan er óleyst.
Við reyndum að fá framkvæmda-
stjóra spítalans, Jóhannes Pálmason,
til fundar við okkur í kvöld til að
túlka bréfið fyrir okkur í votta viður-
vist en hann gaf sér ekki tíma til
*þess.“
Gæslufólkið og forsvarsmenn
Starfsmannafélags ríkisstofnana
héldu fund á Selfossi um launamál
gæslumannanna. Niðurstaða hans
varð sú, að sögn Sigríðar Kristins-
dóttur formanns félagsins, að starfs-
menn ætluðu ekki að mæta vegna
þess að ekki fengust viðræður um
röðun í launaflokka áður en starf-
semi stofnunarinnar hófst. En skylt
væri að semja um það samkvæmt
25. grein laga um kjarasamninga.
Afstaða gæslufólksins breyttist
eftir að það fékk loforð frá fjármála-
ráðuneyti um að komið yrði til móts
við það á fundi í dag. Þetta gerðist
eftir að Ögmundur Jónasson for-
maður BSRB kom á fund hjá gæslu-
fólkinu og forystumönnum starfs-
mannafélags þess. Eftir þann fund
mætti gæslufólkið til starfa í fylgd
forsvarsmanna starfsmannafélags-
ins.
Tilkynning um að starfsmenn
ætluðu ekki að mæta barst Sogni
um það leyti sem vistmennirnir frá
Svíþjóð komu til landsins með flug-
vél Landhelgisgæslunnar síðdegis í
gær. Heilbrigðisráðherra óskaði eft-
ir aðstoð dómsmálaráðuneytis við
að skipuleggja neyðarvakt með
hjúkrunarfólki og lögreglumönnum
fyrir næstu daga. Að sögn heilbrigð-
isráðherra er gert ráð fyrir að neyð-
arvaktin starfi áfram þrátt fyrir að
starfsmennirnir mæti.
„Það segir sig sjálft að ef fólk
ekki mætir þá má líta á það sem
uppsögn,“ sagði Sighvatur Björg-
vinsson heilbrigðisráðherra. Hann
sagði þetta mál ekki eiga sér hlið-
stæðu í heilbrigðiskerfinu því að í
öllum deilum hefði þess verið gætt
af starfsfólki að viðhalda neyðar-
þjónustu. í þessu máli hefði orðið
algjör trúnaðarbrestur milli gæslu-
fólksins og stofnunarinnar. Starfs-
mennirnir hefðu starfað án athuga-
semda í rúman mánuð eftir að þeir
skrifuðu undir starfssamning.
„Mér finnst þetta vítaverð og for-
kastanleg vinnubrögð," sagði heil-
brigðisráðherra. Hann sagði enn-
fremur að málið ýrði rætt á fundi
með fulltrúum Starfsmannafélags
ríkisstofnana í dag.
Sig. Jóns.