Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
35
í góðra vina hópi, eins og í skák-
klúbbnum okkar, var Ásgeir oftast
glaðvær og kátur. Hann var allra
manna orðhagastur og hnyttiyrði
lágu honum á vörum. Hann gat
þá verið glettinn og fyndinn og
snjall í tilsvörum. Það segir nokk-
uð, að í okkar hópi í skákklúbbnum
var hann oft kjörinn vinsælasti
skákmaðurinn.
Auðvitað sáum við oft að hann
var þreyttur, þegar hann kom til
okkar í klúbbinn. Við vinir hans
vissum að hann vann langan vinnu-
dag í erilsömu og erfíðu starfí. En
Ásgeir var dulur.
Margir opinberir starfsmenn
vinna starf sitt frá 9 til 5 og eiga
sér þess utan annan heim. Ásgeir
var ekki þannig. Erfið úrlausnar-
efni starfsins leituðu stöðugt á
hann.
Starf hans sem fíkniefnadómari
var auðvitað návígi við heim lágra
hvata og mannlegs vanmáttar.
Ásgeir var mjög réttsýnn maður.
Það var honum mikilvægt að fara
rétt að og að réttlætið næði fram
að ganga.
En hann bar ekki áhyggjur sínar
á torg.
Með Ásgeiri er genginn góður
félagi, góður maður.
Hann var gæfumaður í einkalífí
sínu, átti góða konu sem stóð fast
við hlið hans, fallegt heimili og
mannvænleg börn sem honum þótti
mjög vænt um.
Þegar ég rita þessar línur fínnst
mér eins og ég sjái hann fyrir
mér, glettinn á svip með snjallar
athugasemdir og innskot á vörum.
Þannig mun ég varðveita minningu
hans í huga mér.
Konu hans, Kolfinnu, börnum
þeirra, öldruðum foreldrum hans
sem og öðrum ættingjum sendi ég
mínar inniiegustu samúðarkveðjur.
Guðmundur G. Þórarinsson,
forsetí Skáksambands íslands.
Mig langar að minnst míns
ágæta vinar Ásgeirs Friðjónssonar
dómara. Ég kynntist honum þegar
hann var fulltrúi lögreglustjórans
í Reykjavík 1970. Þá vann ég að
fíkniefnarannsókn á Stór-Reykja-
víkursvæðinu ásamt dugmiklum
lögreglumönnum. Oft ræddum við
Ásgeir þá langtímum saman um
fyrirbyggjandi aðgerðir gegn út-
breiðslu fíkniefna. Ég fann strax
að þar var á ferð maður sem gæti
öðrum fremur skilgreint og skipu-
lagt aðgerðir, afburða glöggur og
nákvæmur og hafði kjark og ein-
beitni að koma verkefnum í fram-
kvæmd. Okkur var báðum ljóst að
fljótt yrði að bregðast við þessum
vágesti og gerðum tillögur um
skjótvirkar aðgerðir til viðkomandi
stjómvalda. A þessum tíma vissi
þjóðin lítið sem ekkert um fíkni-
efni, áhrif þeirra og afleiðingar og
sama gilti um þingmenn og ráðu-
neyti. Okkur fannst róðurinn sækj-
ast seint og brim og boðar torvelda
landgöngu. Við ræddum þessi
vandamál við þáverandi lögreglu-
stjóra í Reykjavík, Siguijón Sig-
urðsson, sem strax sýndi mikinn
áhuga og skilning á málinu og
bauð fram alla þá aðstoð, sem
embætti hans gæti í té látið. Við
ákváðum að hefja skipulegar rann-
sóknir á innflutningi og dreifingu
fíkniefna, jafnframt reyndum við
eftir fremsta megni að upplýsa og
fræða þjóðina í gegnum fjölmiðla
og með fundarhöldum um hinar
geigvænlegu hættúr sem æskufólki
stafaði af slíkri neyslu.
Aldrei hef ég unnið að neinu
verkefni á mínum starfsferli með
jafn samstilltum hópi löggæslu-
manna; sá brennandi áhugi og
dugnaður sem einkenndu störf
þeirra var með ólíkindum, aldrei
var spurt hvað klukkan væri þó
áliðið væri nætur. Verkefnin sátu
ávallt í fyrirrúmi. Verkefnin voru
hugsjón ofar öllu daglegu þrasi og
þar fór Ásgeir fyrir sveitinni. Hon-
um var einkar lagið að nýta hæfí-
leika hvers og eins og gera verkefn-
in lifandi og áhugaverð. Hans góða
greind, víðsýni, heiðarleiki og vin-
semd við samverkamenn sína verð-
ur okkur öllum ógleymanleg og
reyndar rík sálarbót sem nutum.
Það var því sjálfgefið þegar dóm-
stóll í ávana- og fíkniefnum var
stofnaður að Ásgeir Friðjónsson
yrði skipaður sakadómari. Hann
gegndi því starfí frá 1973-92 eða
í hartnær tvo áratugi. Hann mót-
aði störf og stefnu þessa mála-
flokks og ég leyfí mér að fullyrða
að engin hefur lagt meira af mörk-
um en hann á þeim vettvangi.
Dómarastörfum fylgir mikil
ábyrgð, framkvæmd laga og skil-
virk málsmeðferð er vandmeðfarin.
Þó lögin afmarki verksvið dómara,
þarf réttsýni og aðrir mannkostir
að koma til við dómsgerðir. Ásgeiri
tókst að samræma þessi grundvall-
aratriði.
Nú er þessi hæfileikaríki félagi
og vinur okkar horfínn. Ég veit að
lögreglumenn sakna hans sárt, til
hans var alltaf hægt að leita um
aðstoð og úrlausnir. Ásgeir var
skákmaður góður og var 'varafor-
seti Skáksambands íslands frá
1969-1974 og átti sem slíkur þátt
í undirbúningi og framkvæmd
heimsmeistaraeinvígisins í skák
1972. Skákin þjálfar rökrétta og
hugræna einbeitingu sagði hann
stundum þegar við vorum að kljást
við erfið og margslungin mál. Hann
var einkar orðhagur maður með
góða kímnigáfu. Það er með mikl-
um söknuði sem ég kveð þennan
ágæta vin. Kveðjustundin er óum-
flýjanleg en áfram lifír minningin
um góðan félaga.
Eiginkonu og bömum sendi ég
hugheilar samúðarkveðjur. Guð
veiti ykkur styrk á þessari sorgar-
stund.
Kristján Pétursson.
Ég vil í fáum línum minnast
þessa mæta manns.
Við hittumst fyrst við skákborðið
og tókum eina létta í matartíman-
um en sjðan er liðið vel á annan
áratug. Ég hékk í jafntefli því and-
stæðingurinn stýrði liði sínu skipu-
lega og sótti grimmt.
Tíminn er fljótur að líða, sé litið
til baka.
En margar urðu skákirnar sem
við tefldum og oftar en ekki þurfti
ég að leggja kónginn á hliðina því
Asgeir lék fallegar skákir bæði í
sókn og vörn sem báru honum vitni
um fijóa hugmyndaauðgi.
Það gerði hann að eftirsóknar-
verðum mótheija, en Ásgeir var
mjög góður hraðskákmaður sem
lögreglumenn kunna vel að meta.
Þetta eru nú liðnar stundir sem
ég þakka og sakna. En þó fyrst
og fremst minnist ég Ásgeirs sem
heilsteyptrar persónu er naut virð-
ingar og trausts í vandasömu og
erilsömu starfi sem dómari í ávana-
og fíkniefnamálum.
Alltaf var gott að koma í smiðju
til hans og leita ráða og hlusta
eftir hvað hann hefði til málanna
að leggja. Leiðir okkar lágu oft
saman, því störf okkar áttu þó
nokkra samleið.
Já, ég sakna þessa hógværa og
ágæta manns, hvort sem er í leik
eða starfí.
Hann var fyrirvaralaust brott-
kallaður úr okkar jarðríki á fund
feðra sinna, en eftir stöndum við
hljóð og söknum vinar í stað.
Þorsteinn Alfreðsson.
Kveðja frá samstarfsfólki í
Héraðsdómi Reykjavíkur
Ásgeir Friðjónsson héraðsdóm-
ari í Reykjavík verður jarðsunginn
í dag. Hann var um langt skeið
dómari í Sakadómi í ávana- og
fíkniefnamálum. Við breytingu á
dómstólaskipaninni um mitt þetta
ár var sá dómstóll lagður niður
ásamt öðrum dómstólum í Reykja-
vík. Héraðsdómi Reykjavíkur voru
fengin öll gögn þessara dómstóla.
Gögn frá Sakadómi í ávana- og
fíkniefnamálum báru þess vott að
embættisfærsla Ásgeirs var ná-
kvæm og örugg og unnin af sam-
viskusemi. Á sama tíma tók Ásgeir
við embætti héraðsdómara í
Reykjavík og gegndi því starfí er
hann féll til foldar langt um aldur
fram. Kynnin í héraðsdómnum voru
því ekki löng en engum duldist að
þar fór íhugull, glöggskyggn og
varkár dómari, sem virtist ekki
unna sér hvfldar nema gjörskoða
öll mál sem hann hafði með hönd-
um. Með sama hætti kynnti hann
sér rækilega nýja löggjöf um með-
ferð opinberra mála og hafði í
umræðum um hana sitthvað til
málanna að leggja, oft það sem
öðrum hafði yfírsést. Ásgeir var
mikið prúðmenni með hógværa
kímnigáfu og öll umgengni við
hann einkar þægileg. Okkur er öll-
um djúp sorg í huga þegar örlögin
hafa gripið til slíkra heljartaka að
Ásgeir er ekki lengur á meðal okk-
ar.
Eiginkonu hans og bömum og
fjölskyldu allri, sem sár harmur er
kveðinn að, sendum við ríkar sam-
úðarkveðjur.
Friðgeir Björnsson dómstjóri.
Ótrúlegt
afmælisverð!!!
Síðustu tækin á þessu einstaka verði
20" litsjónvarp + myndbandstæki.........49.900 stgr. Aðeins 35 sett eftir
5132 Adyson 20“ listjónvarp m/fjarst....27.900 stgr.
2800 ELTA myndbandstæki m/fjarst........24.900 stgr.
2032 ELTA 20" litsjónvarp m/fjarst.....29.900 stgr. Aðeins 15 stk. eftir
2013 ELTA14" litsjónvarp m/fjarst......22.900 stgr. Aðeins 10 stk. eftir
2616 ELTA hljómflutningstæki
(útv. pl.sp. geislaspilari, tvöf. kasettut., tónjafnari og tveir hát.)
CD-25 Starlite bíltæki með CD- spilara ...26.900 stgr. Aðeins 12 stk. eftir
7660 ELTA bíltæki með stöðvaminnum......9.900 stgr.
Sjónvörp ■ myndbandstæki ■ hljómtæki ■ ferdaútvörp ■ útvarpsklukkur
vasadiskó ■ ferdatæki ■ heyrnartól ■ hljómbord - biltæki ■ bilhátalarar
TONVER
Garðastræti 2, Reykjavík, símj 91-627799.
Sendum hvert á land sem er
Þýskt gæðamerki — Munalán — Ábyrgð.
Kr 1,500,- á mcmiuði og t>iö fctiö
8TBSAE.Í3 SŒ> TEPPALAGT
Já, það er ódýrara en margir halda að teppaleggja
stigaganginn eins og dœmin sanna.
Við bjóðum viðurkennd teppi sem þola mikinn umgang og álag.
Dœmi fyrir 8 íbúða stigahús. Dœmi fyrir 14 íbúða stigahús.
Staðgr. kr 24,670,- pr íbúð. Staðgr. kr 22,995,- pr íbúð.
M/aíb. kr 25,670,- pr íbúð. M/afb. kr 23,986,- pr íbúð.
Mánaðargr. kr 1,500,- pr íbúð. Mánaðargr. kr 1,400,- pr íbúð.
* Algengt er að útborgun nemi 1/3 af kaupverði og eftirstöðvar greiðist
á 6 mánuðum. Sumir kjósa að greiða með greiðslukorti og dreifa
afborgimum á 11 til 18 mánaða greiðslutímabil. Með þeim hœtti getur
mánaðargreiðsla á hverja íbúð farið niður í kr 1,500,- pr íbúð.
Gerum einnig góð staðgreiðslutilboð.
Út októbermánuð bjóðum við sérstakt tilboðsverð á teppum
fyrir stigahús. Við fjarlœgjum gömul teppi, mœlum upp,
sníðum og leggjum ný teppi íljótt og vel. Við lánum stórar
prufur og sendum ráðgjafa á húsfund ef óskað er.
yT
teppi á S
1 lG
ABÚSIÐ fvrir jó
fi
TEPPABUÐIN
GOLFEFNAMARKAÐUR ■ SUÐURLANDSBRAUT 26 ■ SÍMI 91-681950