Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Réðumekki
* viðþaðsem
okkur langaði
aðgera
- sagði Arnór Guðjohnsen
ARNÓR Guðjohnsen lék sem
aftasti maður í vörn og komst
vel frá sínu nýja hlutverki. „Það
er töluverð breyting fyrir mig
að leika þessa stöðu. Ég átti
það til að fara ósjálfrátt fram í
stað þess að bíða. Þessi staða
á eftir að þróast hjá mér og
gæti komið vel út með tímanum.
Mig vantar enn meiri snerpu
vegna þess að ég er ekki í nægi-
legri leikæfingu."
'Þéhr
FOLK
Amór sagði að leikurinn hafi
ekki verið nægilega góður.
„Við sköpuðum okkur fá færi. Við
áttum að hugsa meira um að ná
jafntefli því hvert stig í keppninni
skiptir máli. Ég hugsa að það hafi
verið of mikill vilji í leikmönnum til
að vinna. Allir lögðu sig fram, en
þetta gekk ekki upp. Völlurinn var
erfiður og við réðum ekki við það
sem okkur langði að gera.
Ég hafði það á tilfinningunni að
það væri ekkert mál að halda hreinu
því þeir voru ekkert að gera. En
þeir fengu eitt færi og nýttu það
hundrað prósent. Það er eins og við
þolum illa þá pressu að þurfa að
vinna. Við erum sjálfsagt ekki nægi-
lega þroskaðir knattspymumenn til
þess að geta stjórnað leik. Það hent-
ar okkur best að leika skipulega
vöm og byggja á skyndisóknum,"
sagði Arnór.
Morgunblaðið/Bjami
Eyjólfur Sverrlsson átti góðan leik gegn Grikkjum og áttu þeir í miklum erfíðleikum með hann. Tveir Grikkir fengu
að sjá gula spjaldið eftir að hafa brotið á Eyjólfi.
■ FRIÐRIK Friðríksson mark-
vörður ÍBV var settur í viðbragðs-
stöðu í gær fyrir leikinn. Ólafur
Gottskálksson var kvefaður og eitt-
hvað slappur um mo'rguninn en
^kömmu fyrir kvöldmat var ákveðið
að hann gæti verið með þannig að
Friðrik þurfti ekki að hafa töskuna
með á völlinn.
■ EYJÓLFUR Ólafsson þurfti
hins vegar að taka með sér töskuna
sína — og hafði not fyrir hana.
Hann tók við sem aðstoðardómari
þegar King dómari varð að fara
meiddur af leikvelli í fyrri hálfleik.
■ STÖÐU hans tók Burge sem
hafði verið aðstoðardómari við hlið-
arlínuna og Eyjólfur tók sæti hans.
■ KING dómari tognaði á vinstri
fæti og varð að fara útaf. Sigurjón
Sigurðsson læknir íslenska liðsins
var beðinn um að líta á dómarann
í upphafi síðari hálfleiks og gerði
það. Hann sagði að meiðslin væru
ekki alvarleg en hann hefði líka
þurft að búa um baugfingur hægri
handar því hann hefði brotnað í síð-
ustu viku!
■ DÓMARINN sagði að opnunar-
hátíðin fyrir leikinn hefði verið of
löng. Hún tók átta mínútur og á
meðan kólnuðu bæði leikmenn og
dómari niður. Hann var því hálfkald-
ur þegar leikurinn hófst.
■ IOANNIS Kalitzakis, einn
vamarmaður Grikkja var rekinn af
leikvelli í gær. Hann er trúlega eini
leikmaðurinn sem hefur fengið að
líta gult spjald hjá einum dómara
og það gula og rauða hjá öðrum, í
einum og sama leiknum!
Atti ekki moguleika
á að verja skallann
Eg er vonsvikinn. Það var sárt að
tapa fyrir Grikkjum,“ sagði
Birkir Kristinsson, markvörður, sem
hafði haft lítið að gera í markinu þar
til að að Grikkir skoruðu eina mark
leiksins. „Mér fannst engin hætta
vera á ferðinni, en eins og byssukúla
skaust hinn hávaxni Tsalouchidis inn
í vítateiginn og gnæfði yfir vamar-
menn okkar - náði föstum skalla í
markhomið. Ég átti ekki möguleika
á að verja.“
„Það er svekkjandi að tapa þessum
leik eins og hann þróaðist. Við áttum
skilið að fá annað stigið. Grikkimir
náðu aldrei að skapa sér nein vemleg
marktækifæri og við réðum gangi
Ieiksins í fyrri hálfleik. Það var þó
eins með okkur - við náðum ekki
að skapa okkur hættuleg marktæki-
færi til að vinna úr.“
„Þrátt fyrir þennan ósigur er þetta
ekki búið. Við getum unnið þetta tap
upp eins og við gerðum eftir ósigur-
inn gegn Grikkjum í Aþenu. Eftir
það kom sigurleikur gegn Ungveq-
um í Búdapest," sagði Birkir, sem
sagði að staðan í riðlinum gæti hæg-
lega þróast þannig að Grikkir yrði í
forystuhlutverkinu, en íslendingar,
Rússar og Ungveijar fengju það hlut-
verk að keppast við að fylgja þeim
eftir og beijast um annað sætið.
„Með því hugarfari höldum við til
Moskvu", sagði Birkir.
„Urðum of æstir“
„Okkur var refsað fyrir hvað við
vomm orðnir æstir í seinni hálfleik,
en þá fóm leikmenn að fara út úr
stöðum sínum og það kostaði okkur
ódýrt mark. Við höfðum góð tök á
miðjunni í fyrri hálfleik, en náðum
þó ekki að vinna okkur vel upp kant-
ana til að koma knettinum fyrir
mark Grikkja. Við lékum þá yfirveg-
Blrkir Krlstinsson.
að og skynsamlega og þegar á leik-
inn leið áttum við að halda okkar
striki, heldur en æsa okkur upp. Við
vomm með eitt stig og Grikkir hefðu
hæglega getað gert mistök eins og
við gerðum, sem kostaði okkur mark-
Arnar Grétarsson.
ið. Það þýðir ekkert að gefast upp
heldur mæta ákveðnir í næsta verk-
efni,“ sagði Amar Grétarsson, leik-
maðurinn ungi úr Breiðablik, sem
átti mjög góðan leik á miðjunni.
NORSTAR símfl
Northern
símakerfi
Símakerfið er
og 16 innanhússlínur.
hagstæðu verði.
nörstar
emur þér strax í samband
ið (romtílinfl
Sannkallað
northom
tclccom
POSTUR OG SIMI
Söludeildir í Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og póst- og símstöðvar um land allt