Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÖBER 1992
37
gleði og hamingju í 22 ár þegar kall-
ið til hans kom og hlutverk hans
breyttist. Nú eru það æðri máttar-
völd sem fá að njóta hæfíleika hans.
Elsku Hrafnhildur og fjölskyldan,
Fríða, Guðjón og Magnús, ég og fjöl-
skylda mín vottum ykkur okkar
dýpstu samúð og biðjum guð að varð-
veita ykkur og veita ykkur styrk á
þessari sorgarstundu. Með okkur öll-
um vakir ávallt minning um góðan
dreng.
María Skaftadóttir.
í dag er kvaddur hinstu kveðju
kær frændi okkar og vinur, Kristján
M. 'Guðjónsson. Okkur langar að
minnast hans með fáeinum orðum.
Kristján var fæddur 22. september
1970 í Reykjavík. Foreldrar hans eru
Hólmfríður Benediktsdóttir, ættuð
frá Garði í Aðaldal og Guðjón M.
Jónsson, ættaður úr Njarðvíkum.
Bróðir Kristjáns er Magnús Benedikt
og eiginkona Kristjáns er Hrafnhild-
ur V. Garðarsdóttir.
Kristján ólst upp á Seltjamames-
inu þar sem foreldrar hans reistu hús
á sjöunda áratugnum. Þar undi fjöl-
skyldan sér vel og bræðumir uxu
úr grasi í skjóli öryggis og hlýju
heimilisins.
Hólmfríður og Guðjón em bæði
sérlega gestrisin og eru ófá boðin
og veislumar sem við fjölskyldan
höfum setið hjá þeim og móttökumar
ávallt sem verið væri að taka á móti
þjóðhöfðingjum.
Bræðumir sýndu snemma að
sjaldan fellur eplið langt frá eikinni,
hlýlegt og jafnframt glaðlegt viðmót
þeirra lét okkur finna að við vomm
alltaf innilega velkomin á heimilið.
Kristján sýndi snemma dugnað
bæði við vinnu og í námi. Hann lauk
stúdentsprófi frá FB um jólin 1990
og hugðist síðan taka sér frí frá
námi um skeið.
Ýmislegt fer öðmvísi en við menn-
imir ætlum, því í janúar síðastliðnum
gekkst Kristján undir mikla aðgerð,
eftir undanfarandi veikindi sem
höfðu hijáð hann meira og minna
um nokkurt skeið og talin vom ann-
ars eðlis en síðar kom í ljós.
Síðustu mánuðir hafa verið Krist-
jáni erfiður tími, tíðar ferðir á sjúkra-
hús þar sem leitast var við að draga
úr útbreiðslu sjúkdómsins og lina
þjáningar sem honum fylgdu.
Við hlið Kristjáns í veikindum
hans stóðu alla tímann Hrafnhildur,
eiginkona hans, foreldrar og tengda-
foreldrar sem öll reyndust honum
frábærlega í veikindum hans. Sein-
ustu vikur, daga og nætur viku þau
naumast frá sjúkrabeði hans.
Kristján fékk hægt andlát að
kvöldi 27. september.
Eins og áður kom fram þá vom
síðustu mánuðir erfiður tími hjá
Kristjáni, en inn á milli komu góðar
stundir þar sem hann gat notið tilver-
unnar að vissu marki og verið sam-
vistum við ástvini sína.
Sem drengur var Kristján í sum-
ardvöl í Garði þar sem móðir hans
er fædd og uppalin og átti hann því
sterkar rætur fyrir norðan. Um síð-
astliðna verslunarmannahelgi dvöldu
Kristján og Hrafnhildur í sumarhúsi
sem foreldrar hans hafa reist í landi
Garðs.
Þegar helginni lauk ákvað Kristján
að vera lengur sér til hressingar og
flutti sig um set yfír í Garð, en þar
býr Guðný móðursystir hans og
frændur, en kært hefur verið alla tíð
með Kristjáni og frændfólkinu í
Garði.
Á sama tíma dvöldum við undirrit-
uð í sumarleyfí í Garði og var
ánægjulegt að sjá Kristján taka þátt
í heyskapnum ásamt hinu fólkinu,
hressan og kátan að vanda, þrátt
fyrir þverrandi líkamskrafta og er
þessi tími sem við áttum með honum
í sveitinni eins og sólargeisli í hug-
skoti okkar á annars erfíðum tíma.
Að lokum viljum við þakka Krist-
jáni fyrir samfylgdina og minninguna
um góðan dreng munum við alla tíð
geyma.
Innilegar samúðarkveðjur.
Sesselja, Benedikt og dætur.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifír
í þjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Baráttunni er lokið, hinn illvígi
sjúkdómur hafði betur. Það var okk-
ur mikið áfall þegar okkur var til-
kynnt að hann Kristján vinur okkar
hefði greinst með krabbamein. Við
spyijum okkur hver sé tilgangurinn
að leggja svona erfiði á ungan og
lífsglaðan mann sem átti allt lífíð
framundan. Við spytjum en lítið er
um svör. Þó að við vissum að hveiju
stefndi allt frá byijun báðum við og
vonuðum að Kristján myndi sigrast
á sjúkdómnum.
Þrátt fyrir að þetta hafi verið mjög
erfiður tími fyrir Kristján lét hann
ekki deigan síga. Hann fór út á
meðal vina og reyndi eftir bestu getu
að taka þátt í því sem hann gat.
Eftirminnilegt er ferðalag sem hann
fór í með vinum og kunningjum.
Hann skemmti sér jafn vel og aðrir
og kvartaði ekki þrátt fyrír að hann
væri mjög veikur.
í kringum Kristján var ávallt mik-
ið um að vera og þannig munum við
minnast hans. Hrafnhildur hefur
staðið eins og klettur við hlið Krist-
jáns og undrumst við styrk hennar.
Þau giftu sig 19. september síðastlið-
inn og voru það gleðileg tíðindi, en
aðeins viku seinna var baráttunni
lokið.
Elsku Hrafnhildur, Maggi Benni,
foreldrar Kristjáns, Hólmfríður og
Guðjón, og aðrir aðstandendur, við
sendum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Megi Guð gefa ykkur styrk.
Signý og Valdi.
Okkur langar til þess að minnast
vinar okkar í nokkrum orðum. Krist-
ján, eða Stjáni eins og við vorum
vanar að kalla hann, lést eftir langa
og harða baráttu við illvígan sjúkdóm
þann 27. september sl. Stjáni lét
engan bilbug á sér fínna þrátt fyrir
veikindi sín og átti Hrafnhildur, eig-
inkona hans, mikinn þátt í því þar
sem hún stóð við hlið hans eins og
klettur.
Alltaf máttum við eiga von á að
hitta Stjána með bros á vör, og reyndi
hann allt til þess að uppörva okkur
ef á þurfti að halda og var hann
góður vinur að leita til.
Það er erfítt að skilja hvers vegna
ungt fólk er hrifíð í burtu í blóma
lífsins og að sætta sig við það að
geta ekki hitt Stjána aftur, að hann
sé alfarinn.
Elsku Hrafnhildur, Maggi Benni
og aðrir aðstandendur, Guð styrki
ykkur í sorg ykkar. Minningin lifír
ávallt um góðan dreng.
Stella og Sigga.
Tíminn er undrafljótur að líða.
Þótt tæpir tveir áratugir séu síðan
fjölskylda mín fluttist vestur á Sel-
tjarnames fínnst mér sem það hafí
næstum gerst í gær. Hverfíð sem
við fluttumst í var að byggjast upp,
veikburða gróður byijaður að teygja
sig upp úr görðunum og börnin fundu
sér leikvang i Valhúsahæðinni.
Yngsti sonur okkar, sex ára gam-
all, bast strax sterkum vináttubönd-
um við tvo bræður, jafnaldra sína, í
næstu götu. Við hjónin fundum fljót-
lega að þetta var syni okkar hollur
félagsskapur og tókum þessum vin-
áttuböndum fagnandi. Þetta voru
þeir Kristján og Magnús, synir Hólm-
fríðar Benediktsdóttur og Guðjóns
M. Jónssonar, Barðaströnd 8. Með
okkur hjónunum og foreldrum
bræðranna tókst einnig mikil vinátta
sem engan skugga hefur borið á.
Fyrir góða granna og einlæga vin-
áttu getur maður verið þakklátur.
Margt hefur breyst á þessum
ámm. Trén sem við gróðursettum
við komuna em fyrir löngu vaxin
okkur yfír höfuð og drengirnir litlu
orðnir fullorðnir menn. Nú haustar
að og lauf tijánna farin að fölna og
falla og einn úr drengjahópnum,
Kristján M. Guðjónsson, erTallinn í
valinn. Kristján skar sig úr hópnum
fyrir einbeitni, áræði og dugnað. Það
var öllum ljóst að þar fór mikið
mannsefni. Ifyrir nokkmm mánuðum
kenndi hann sér meins og í ljós kom
að þar var á ferðinni ólæknandi
krabbamein. Kristján sýndi mikla
karlmennsku þegar honum var kveð-
inn hinn þungi dómur og bar örlög
sín af slíku æðmleysi að til fádæma
hlýtur að teljast.
Þegar dró að leiðarlokum gekk
Kristján að eiga unnustu sína, Hrafn-
hildi V. Garðarsdóttur, 19. þessa
mánaðar og þannig innsigluðu þau
ævarandi ást sína við dauðans dyr.
Eiginkona, foreldrar og bróðir
hafa misst mikið, en þau em rík af
minningunni um góðan dreng og ein-
stætt mannsefni sem kallaður hefur
verið yfir móðuna miklu. Slíks manns
hljóta að bíða mikilvæg verkefni á
öðmm tilvemstigum úr því hann var
kallaður svo ungur á braut. Guð
blessi minningu hans og styðji og
styrki eftirlifandi aðstandendur.
Örlygur Hálfdanarson.
Minning
Marta Jónsdóttir
...síóasta HRADLESTRARNAMSKEIDIÐ!
★ Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina?
★ Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
★ Vilt þú verða mikið betri námsmaður og auðvelda þér allt nám með
auknum lestrarhraða og bættri námstækni?
★ Vilt þú ná betri árangri á prófum og með bættri tækni?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á síðasta námskeið ársins sem
hefst miðvikudaginn 21. október. Skráning í síma 641091.
H RAÐLESTRARSKOLIN N
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
SZ 1978-1992 QE
SÝNING
á TOS rennibekkjum
Föstudaginn 9 okt. og laugardaginn 10 okt. Frá kl. 9 -18
Við sýnum um helgina rennibekk af gerðinni TOS SN 40 C og
mun erlendur sérfræðingur veita ráðgjöf á staðnum.
Bókhalds- og
rekstrarnám
72klst.
Fædd 11. júni 1907
Dáin 3. október 1992
Þegar hún Marta móðursystir mín
missti heilsuna skyndilega í byijun
júní í sumar, skömmu fyrir áttatíu
og fimm ára afmælisdaginn sinn,
fann ég vel hvað ég hafði þekkt
hana lengi og hvað þau kynni höfðu
verið góð. Nú er hún dáin.
Marta var dóttir hjónanna Jóns
Johnsen, bónda á Suðureyri við
Tálknafjörð og Gróu Indriðadóttur,
húsfreyju. Á Suðureyri ólst hún upp
í stórum systkinahópi unz hún
hleypti heimdraganum. Hún giftist
Helga Guðmundssyni frá Steinhús-
um í sömu sveit og flutti til Reykja-
víkur. Þar bjuggu þau æ síðan en
Helgi hafði umfangsmikinn rekstur
sem pípulagningameistari.
Ég var heimagangur á heimili
Mörtu og Helga þegar böm þeirra,
mín ágætu frændsystkini, Sigurður
Stefán og Margrét, voru enn í for-
eldrahúsum, fyrst á Snorrabraut-
inni, síðar í Eskihlíðinni. Þangað var
ávallt gott að koma. Hjartahlýjan
og glaðværðin einkenndi Mörtu og
hún lumaði gjaman á einhveiju góð-
gæti í eldhúsinu. Helgi var einstakur
heiðursmaður. Hann lézt í október
1973 og flutti Marta í snotra íbúð
við Safamýri.
Síðast átti hún heima í Skipa-
sundi 74, bjó sér fallegt heimili í
sama húsi og dóttir og tengdasonur,
Sigrún og Erik. Þar átti hún gott
skjól.
Þær Marta og móðir mín hittust
oft; milli þeirra var notalegt og
elskulegt samband, traust tengsl
Byrjar 2. nóvember
Námið er hnitmiðað og sérhannað með þarfir atvinnulífs-
ins f huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
víðtæka þekkingu á bókhaldi og færslu tölvubókhalds.
Aðalnámsgreinar:
• Hlutverk bókhalds, bókhaldslög
• Bókhaldsæfingar og reikningsskil
• Viðskiptamannabókhald
• Launabókhald
• Virðisaukaskattur
• Raunhæft verkefni - afstemmingar og uppgjör
• Tölvubókhald - Opus AHt
Ef þú vilt auka þekkingu þína á bókhaldi, styrkja stöðu þína á
vinnumarkaðinum, starfa sjálfstætt og/eða geta notað bók-
hald sem stýritæki í eigin fyrirtæki, þá er þetta nám fyrir þig.
eins og jafnan milli systkinanna frá
Suðureyri. Þau eru nú flest farin.
Öllum leið vel þegar Marta frænka
kom í heimsókn. Þannig var það
alla tíð.
Viðskiptaskólinn býður uppá litla hópa, einungis reynda leið-
beinendur, bæði dag- og kvöldskóla, sveigjanleg greiðslukjör.
Sérstakt grunnnámskeið haldið 26.-29. október.
Takmarkaður fjöldi á hvert námskeið.
Eins og vorið vekur mestan
vonararð úr dýpstu hjami,
sárust minning getur gefið
gróða mestan tregans bami.
(Matthias Jochumsson.
Nú þegar mín elskuleg móðursyst-
ir er fallin frá minnist ég þeirra
Helga með virðingu og söknuði.
William Thomas Möller.
Innritun þegar fiafin.
Viðskiptaskólinn
Skólavörðustíg 28, Reykjavík
Sími 62 41 62
M 9208P