Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
47.
Lög um forseta-
kosningar eru úrelt
Frá Þórði E. Halldórssyni:
SAGT er að kostur lýðræðis sé
réttarríkið, þar sem þegnamir hafi
sama rétt til frjálsrar skoðana-
myndunar, trúfrelsi, prentfrelsi,
full mannréttindi og þar með rétt-
inn til að gagnrýna. Til eru svo
þeir sem ekki hirða um að nota
þennan rétt sinn, þora ekki að
opinbera vantrú sína á kerfinu og
óttast að missa vinsældir, dansi
þeir ekki eftir hljóðpípum yfirstétt-
anna. Lög um forsetakostningar
eru fyrir löngu úrelt. Samtíðin
kennir okkur að þau þurfi hið bráð-
asta endurskoðunar við, ef ekki á
illa að fara.
Það er afar óheppilegt að for-
seti sitji lengur en tvö tímabil í
embætti, eða átta ár. Reynslan
sýnir að nauðsyn ber til að kosið
sé aftur á milli þeirra tveggja sem
flest atkvæði, séu fleiri en tveir í
framboði. Tæknilegur möguleiki
er fyrir því að 10 aðilar séu í fram-
boði og sá sem flest fengi atkvæði
gæti komist í embættið með 11%
atkvæða á bak við sig. Vill þjóðin
slíkan forseta á Bessastöðum?
Engu skiptir hver prósentutalan
er, hún verður ekki löggild nema
yfir 50% séu á bak við forsetann.
Sé litið á forsetaembættið sem ein-
hveija grínstofnun léti ég mér í
léttu rúmi liggja hvernig hann
kæmist til valda.
Þá kemur að þessari spurningu:
Þurfum við forseta? Hvert er verk-
svið hans? Þolir þjóðin hömlulausa
eyðslu forsetaembættisins, langt
umfram það sem Alþingi ákveður
í fjárlögum? Hvað kosta öll ferða-
lögin heimsálfanna á milli? Hvað
kosta veislurnar hver á fætur ann-
arri, sem boðið er í um 200 manns
í hvert skipti? Svona mætti lengi
telja, aðeins stiklað á stóru. Hvert
er svo valdsvið forsetans? Hann
staðfestir lög frá Alþingi með
undirskrift. Heimsækir þjóðhöfð-
ingja og býður þeim til dýrra
veisluhalda. Heldur innihaldslitlar
ijómaræður við áramót og aðra
tyllidaga. Ótrúlega lítið fer fyrir
kristilegum hugleiðingum við slík
tækifæri.
Þrír aðilar fara með forsetavald
í fjarveru forseta, forsætisráð-
herra, forseti Alþingis og forseti
Hæstaréttar. Nú er forseti það oft
og lengi fjarverandi að forsetavald-
ið, sem er í eðli sínu svo til ekki
neitt, er mikinn part úr árinu í
höndum ofangreindra aðila. Færi
þá ekki bara vel á því fyrir fátæka
smáþjóð að láta þessa aðila axla
störf forseta svona til skiptis í hjá-
verkum?
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 25, Reykjavík.
Pennavinir
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum og kvikmyndum:
Sawako Kamata,
14-505 Kawanakashinmachi,
Daitou-shi Osaka-fu,
574 Japan.
Sextán ára tékkneskur piltur
með áhuga á listmálun og tónlist
vill eignast 15-17 ára pennavin-
konu:
David Novak,
Zavodni 13,
785 01 Sternberk,
Czechoslovakia.
Frá Frakklandi skrifar ungur
maður á frönsku með margvísleg
áhugamál en getur ekki um aldur:
Philippe Schoen,
22 rue du Bain auz Plant.es,
67000 Strasbourg,
France.
LEIÐRÉTTING
Uppkast birt
ÞAU mistök urðu í birtingu fréttar
í Úr verinu í gær um að íslenzkur
ísfískur hefði slæmt orð á sér í
Hollandi, að endanleg gerð hennar
birtist ekki, heldur uppkast. Því
voru villur og rangar áherzlur í
þeirri frétt sem birtist. Morgunblað-
ið biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum um leið og þær eru leiðrétt-
ar. í inngangi fréttarinnar var sagt
að þorskurinn væri aðeins hæfur
til mjölvinnslu. Þar átti að standa
að hann væri aðeins hæfur til
vinnslu, en ekki hægt að selja hann
ferskan. I öðru tilfelli var sagt að
hollenska flugfélagið KLM vildi
engin viðskipti hafa við íslenzk fyr-
irtæki, en hið rétta er að dæmi
væru um, að KLM vildi ekki eiga
viðskipti við íslenzk fyrirtæki. Þá
var nafni íslensks-fransks eldhúss
snúið við og fyrirtækið Hugtök er
sf. en ekki hf.
VELVAKANDI
KÖTTUR
SVARTUR og hvítur fressköttur
hefur verið á flækingi í Skjólun-
um og við Nesveg síðan í vetur.
Upplýsingar í síma 21805 eða í
Kattholti.
FYRIRSPURN
TIL
LANDLÆKNIS
Þorsteinn Einarsson:
í hádegisfréttum útvarps þann
5. október var viðtal við Jón
Baldursson lækni á Borgarspít-
alanum þar sem hann sagði að
-hætta væri á að sjúklingar væru
sendir heim með beinbrot þar
sem ekki fengjust myndir. Herra
landlæknir. Er þetta vegna þess
að læknar kunna ekki á röntgen-
tæki þau sem eru á spítalanum?
Eða er það vegna þess að lækn-
ar taka ekki myndir til að sýna
einhvers konar faglega sam-
stöðu með röntgentæknum og
senda þar af leiðandi sjúklinga
með beinbrot heim? Ékki getur
það verið tímaskortur vegna
þess að samkvæmt viðtalinu eru
sjúklingamir látnir koma aftur
til að láta ganga úr skugga um
hvort um beinbrot er að ræða.
Mér finnst mjög þýðingarmik-
ið að fá úr því skorið hvort ein-
hver breyting hafi orðið á þeirri
stefnu að læknar láti hagsmuni
sjúklinga sem leita til þeirra
ganga fyrir.
ÚR
FERMINGARÚR tapaðist 15.
september, ef til vill á FB-ball-
inu, Orient-kvenúr úr gulli og
stáli. Skilvís finnandi hringi í
síma 74478.
HJÓL
REIÐHJÓL fannst í Fossvogi í
byijun september. Upplýsingar
í síma 37776.
Dans - Dans
\
Heilsuskór
Ég er 1 3 ára strákur, 164 sm á hæð, og hef
æft samkvæmisdansa í 4 ár. Nú bráðvantar mig
góðan og traustan dansfélaga.
Upplýsingarí síma91-532!9.
Stærðir: 36 - 46. Litir: ýmsir litir
Verð:
5% staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs
Ioppskórinn
VELTUSUNDI ■ SÍMI: 21212
DÚIUÚLPUR
300 gr. dúnn. Ytra byrði: 100% bómuil
Verðkr. 12.490,-
Stærðir: S-XXL. Litir: Blátt, grænt,
Ijósblátt, svart og hvítt.
5% staðgreiðslu afsláttur.
Sendum í póstkröfu.
»hummel^
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, SÍMAR 8 1 3 55 5, 8 1 3 655
§
Metsölublað á hverjum degi!