Morgunblaðið - 08.10.1992, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
39
Halldóra E. Ingólfs-
dóttír — Minning
Ég kynntist Halldóru í febrúar
sl. á New-Bromton Hospital, þegar
faðir minn gekkst undir hjartaað-
gerð þar. Nú er hún látin og þó
kynni okkar hafí verið stutt er ég
svo þakklát fyrir þau. Ég dvaldi
aðeins í tíu daga þarna ytra og
var það nóg til að sjá hvílíkur
dugnaðarforkur hún var.
Því miður veit ég lítið um ættir
Halldóru, en eitt veit ég þó að hún
átti sex yndisleg böm sem hún
var svo stolt af. Hún sagði mér
margt um þau og sýndi mér mynd-
band oftar en einu sinni af henni
með börnum sínum frá jólum, síð-
ustu jólunum hennar á Islandi.
Halldóra átti marga að og þá helst
Guðmund Kjartansson, Gumma,
sem var henni svo góður og traust-
ur. Hann gerði allt sem í hans
valdi stóð til að létta henni erfiðið
og á hann mikið þakklæti skilið
fyrir þann sérstaka dugnað.
Herbergi Halldóru var við hlið
herbergis föður míns. Urðu því
samskiptin mikil og góð okkar á
milli. Oft sat ég inni hjá henni og
Gumma. Hún fertug og ég tuttugu
og tveggja, en við urðum eins og
jafnaldrar þegar við sögðum hvor
annarri kjaftasögur og brandara.
Dóra var svo hlý kona, hún var
svo lífsglöð og góð manneskja.
Hún átti svo auðvelt með að láta
mann brosa og líða vel. Þannig
mun ég minnast hennar.
Sá styrkur sem hún sýndi ásamt
Gumma var því fólki ómetanlegt
sem kom á New-Bromton Hospit-
al. Voru þau bæði tilbúin til að
aðstoða sjúklinga og aðstandendur
með glöðu geði.
Ég veit að Dóra mat séra Jón
Baldvinsson mikils fyrir alla þá
hjálp sem þessi sérstaki maður
sýndi henni og öðrum sem þurftu
á að halda. Við ég senda Jóni
þakklæti okkar allra.
Að lokum viljum við, ég og fjöl-
skylda mín, senda okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur til barna
Halldóru og vonum að minningin
um góða móður hjálpi þeim yfir
erfiðar stundir.
Gummi, við viljum einnig senda
þér samúðarkveðjur óg þökkum
fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur.
Guð gefi ykkur styrk og varð-
veiti minningu Halldóru.
M.G.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Kynningar-
fundur um
Erasmus
ALMENNUR kynningarfundur
um Erasmus-áætlunina verður
haldinn í Borgartúni 6, föstudag-
inn 9. október kl. 14. Fundurinn
er opinn öllum sem áhuga hafa
á málefninu.
Fjallað verður um þá möguleika
sem áætlunin felur í sér fyrir ís-
lenska skóla á háskólastigi og
reynslu annarra landa af þátttöku
í Erasmus. Sérstakur gestur fund-
arins verður Inge Knudsen, sér-
fræðingur frá Erasmus-skrifstof-
unni í Brussel.
Laugardaginn 10. október kl.
10-12 verður haldinn sérstakur
vinnufundur í Norræna húsinu þar
sem farið verður í saumana á gerð
umsókna o.fl. Þeir sem hafa hug á
þátttöku í samstarfsnetum eru
hvattir til þess að láta skrá sig á
Alþjóðaskrifstofu sem fyrst. Um-
sóknarfrestur um styrki til undir-
búnings og rekstur samstarfsneta
vegna háskólaársins 1993-1994 er
til 31. október nk.
t
Innilegar þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ÁRNA GUÐBJARTAR GUÐJÓNSSONAR
frá Austmannsdal,
Vik, Skagaströnd.
Sigurjón Guðbjartsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir,
Árni Guðbjartsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Eygló Guðbjartsdóttir, Sœvar Bjarnason,
Hjörtur Guðbjartsson, Ingibjörg Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við útför eigin-
manns míns, sonar, föður, afa og langafa,
ÓLAFS EMILS GESTSSONAR
pípulagningamanns,
Unufelli 50,
Reykjavik.
Elisabet Ólafsdóttir,
Axel Ólafsson,
Guðrún Ósk Ólafsdóttir,
Birgir Ólafsson,
Ólafur Ólafsson,
Sigriður Ólafsdóttir,
Ingibjörg Axelsdóttir,
Gestur Hannesson,
Steinar Gíslason,
Unnur Gísladóttir,
GunnarJónsson,
Einar Vignir Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LI'NA GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Stigahlíð 2,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 8. októ-
ber, kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Dagvistun Sjálfsbjargar.
Vilhelm Kristinsson,
Kristinn Vilhelmsson, Ólöf Vilhelmsdóttir,
Björn Vilhelmsson, Gunnar Vilhelmsson,
Hafliði Vilhelmsson, Sverrir Vilhelmsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir,
BRYNHILDUR SIGÞÓRSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 34,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 9. október
kl. 13.30.
Haraldur Sigurðsson,
Anna Snjólaug Haraldsdóttir, Þorgeir Pálsson,
Gunnar Haraldsson, Ásta Benný Hjaltadóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
JÓHANNS EIRIKSSONAR
frá Felli.
Þór Jóhannsson og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU ÞORLEIFSDÓTTUR,
Suðurgötu 17,
Akranesi.
Helgi K. Haraldsson, Ásthildur Einarsdóttir,
Þorgeir Haraldsson, Guðríður H. Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar ÁSGEIRS FRIÐJÓNSSONAR,
héraðsdómara, verður Dómhúsið við Lækjartorg
lokað í dag, fimmtudag, frá kl. 13.00-15.30.
fgjgfpaleo
Paleo gæða sturtuklefi,
með horn eða framopnun,
blöndunartækjum,
vatnslás og öðru lilheyrandi.
Einstakt tilboðsverð
■ á lieilum klefum,
kr. 4;l»000#"stgr.
Fjölbreytt úrval sturtuklefa,
sturtuhurða og hornklefa.
Steypibað vekur að morgni.
Hleypir nýju lífi í að kvöldi.
I
SMIÐJUVEGI 4a • SÍMI 681885
(Gatan merkt með grænu ).
Ráðþrota
ríkisstjórn
- breytinga
erþörf
Framsóknarfélag Reykjavíkur efnir til fund-
ar í Súlnasal Hótels Sögu í kvöld kl. 20.30.
Frummælandi:
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
Fundurinn er
öllum opinn
Framsóknarfélag Reykjavíkur.