Morgunblaðið - 08.10.1992, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
38
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR SIGURGEIRSSON,
Droplaugarstöðum,
andaðist á Droplaugarstöðum þann 6. október sl.
Sigurgeir Þórðarson, Jóna Kristinsdóttir,
Theódóra Þórðardóttir, Þorleifur K. Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
GÚSTAFLÁRUSSON,
er látinn.
Kristjana Samúelsdóttir
og börn.
Bróðir okkar,
GUNNAR SIGURÐSSON,
Lftlahvammi,
Mýrdal,
lést í Landspítalanum 4. október.
Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 10. október
kl. 14.00.
Systkini hins látna.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNAS ÞÓRÓLFSSON,
Lynghaga,
Miklaholtshreppi,
andaðist 2. október.
Útförin fer fram frá Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 10. októ-
ber kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að láta líknarstofnanir
njóta þess.
Guðriður Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, bróðir og tengdasonur,
KRISTJÁN MATTHÍAS GUÐJÓNSSON,
Barðaströnd 8,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, fimmtudaginn 8. október,
kl. 13.30.
y Hrafnhildur V. Garðarsdóttir,
Hólmfríður Benediktsdóttir, Guðjón M. Jónsson,
Magnús Benedikt Guðjónsson,
Svanhvft Árnadóttir, Garðar Jóhannsson.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS EIRÍKSSON
fyrrum bóndi á Skúfslæk,
verður jarðsettur frá Villingaholtskirkju laugardaginn 10. október
kl. 14.00.
Blóm vinsamiegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, er bent á Orgelsjóð Villingaholtskirkju.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdasonur
og mágur,
KARLJ. BIRGISSON,
Hrauntúni 31,
Vestmannaeyjum,
lést af slysförum laugardaginn 26. september.
Minningarathöfn fer fram frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laug-
ardaginn 10. október kl. 14.00.
Sigrfður Bjarnadóttir,
Kolbrún Stella Karlsdóttir,
Kolbrún Karlsdóttir,
Esther Birgisdóttir,
Ólafía Birgisdóttir,
Lilja Birgisdóttir,
Kristín Haraldsdóttir,
Haraldur Bjarnason,
Ari Bjarnason,
Haraldur Ari Karlsson,
Birgir Jóhannsson,
Stefán Agnarsson,
Óskar Freyr Brynjarsson,
Marinó Traustason,
Bjarni Arason,
Katrfn R. Frímannsdóttir,
Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir.
Minning
Reynir M. Einarsson
Fæddur 27. mars 1956.
Dáinn 27. september 1992.
Það haustar að, trén fella lauf
sitt og þungbúin ský sigla um him-
inninn. Sumarið er búið. Það
haustaði líka snemma hjá vini
mínum og laufin féllu af lífstré
hans.
Reynir Már Einarsson, sem mig
langar að minnast með örfáum lín-
um, fæddist í Reykjavík þann 27.
mars 1956, sonur hjónanna Einars
Guðmundssonar leirkerasmiðs og
Jóhönnu Kristínar Oddsdóttur sem
lést þann 3. september síðastlið-
inn. Það er mikill harmur kveðinn
að fjölskyldunni í Eskihlíð 20 á
skömmum tíma; fyrst að sjá á bak
ástkærri eiginkonu og móður og
síðan í sama mánuði kærum synir
og bróður. Reynir Már var annað
barn þeirra hjóna Einars og Jó-
hönnu og eftir lifa þau Guðmund-
ur og Guðbjörg.
Reynir Már ólst upp í foreldra-
húsum en dvaldi lengi hjá ömmu
sinni, Guðbjörgu Eiríksdóttur, sem
enn lifir í hárri elli. Hann naut
þeirrar víðsýni og hlýju sem ávallt
hefur auðkennt bæði heimilin.
Reynir Már varð fljótt unnandi
fagurra lista og náttúrunnar enda
átti hann ekki langt að sækja list-
+
Elsku drengurinn okkar,
GUÐMUNDUR ÓLI HAUKSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 9. október kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Fræðslu- og minningarsjóð í hans
nafni, sem hefur það hlutverk að hjálpa
börnum, sem haldin eru ótta eða fælni.
Ávfsanareikningur sjóðsins er nr. 240 í
Búnaðarbanka íslands í Kópavogi.
Birna Bjarnadóttir, Haukur Ingibergsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GRÉTAR SVEINBERGSSON
bifreiðastjóri,
Skúlabraut 27,
Blönduósi,
lést 2. október síðastliðinn.
Jarðarförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 10. október
kl. 16.00.
Guðrún Steingrímsdóttir,
Steingrimur Albert Grétarsson, Esther Arnardóttir,
Guðlaug Grétarsdóttir,
Auður Sandra Grétarsdóttir,
Grétar Bragi Steingrímsson.
+
Hjartkær bróðir okkar og mágur,
EGGERTTHEODÓRJÓNSSON,
sem lést 28. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 9. október kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á kristniboð.
Kristin S. Jónsdóttir,
Kornelíus Jónsson, Sigríður Pétursdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir, Trausti Guðjónsson,
Kristrún S. Jónsdóttir,
Anna G. Jónsdóttir, Björgvin Eiriksson
og fjölskyldur.
+
Frænka okkar,
PÁLÍNA GUÐRÚN ÞORGILSDÓTTIR
frá Kleifárvöllum,
sfðast til heimilis í Hátúni 10b,
lést 1. október.
Minningarathöfn verður f Fossvogskapellu föstudaginn 9. október
kl. 13.30.
Jarðað verður frá Fáskrúðarbakkakirkju 10. október kl. 17.00.
Bílferð verður frá Fossvogskirkju kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hansina Þóra Gfsladóttir,
Hansfna Ósk Lárusdóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORVALDUR HALLGRÍMSSON,
Kaupvangsstræti 3,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn
8. október, kl. 13.30.
Sigrfður Þorvaldsdóttir, Ólafur Larsen,
Halla Þorvaldsdóttir, David Jakes,
Gunnar Þorvaldsson, Katrfn Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
gáfur og náttúruskoðun þar sem
afi hans, listamaðurinn Guðmund-
ur Einarsson, hefur verið honum
góð fýrirmynd.
Félagslyndur var Reynir Már
með afbrigðum og unnandi ljúfs
lífs. Greiðvikni hans var við brugð-
ið; hann var ávallt reiðubúinn að
leggja góðu máli lið eða rétta
hjálparhönd ef eitthvað þurfti að
mála eða laga hjá vinum og félög-
um.
Reynir Már stundaði almenna
skólagöngu og byrjaði í mennta-
skóla en hætti þar og hóf störf í
tölvudeild Skeljungs hf. Ungur
hleypti Reynir Már heimdraganum
og fluttist til Kaupmannahafnar
með vini sínum Veturliða Guðna-
syni. Þar starfaði Reynir Már í
tölvudeild Det Ostasiatiske
Kompagni í fjögur ár. Á Kaup-
mannahafnarárunum voru húsa-
kynni þeirra ætíð opin öllum vina-
og kunningjaskaranum, sem átti
leið um, og eru þeir ófáir félagam-
ir sem nutu gistivináttu þeirra í
lengri eða skemmri tíma.
Eftir heimkomuna sagði Reynir
Már skilið við tölvurnar og lét
þann draum sinn rætast að reka
leirkeijaverkstæði og stundaði
jafnframt framreiðslustörf.
Ég hafði þá ánægju að kynnast
Reyni Má fyrir um það bil tíu ámm
og allan þann tíma bar aldrei
skugga á vináttu okkar. Þær eru
ófáar ánægjustundirnar sem við
áttum á þessum árum, bæði við
störf að félagsmálum og öðrum
áhugamálum okkar. Um listir var
ávallt gaman að ræða við Reyni
Má. Hann var óþrótandi brannur
upplýsinga og fróðleiks um þessi
málefni enda víðlesinn í listasögu
og hafði kynnt sér listasöfn bæði
heima og erlendis. Einnig var oft
spjallað um ferðlög og útivist enda
málefni hugstætt báðum. Reynir
Már naut þess í ríkum mæli að
ferðast um landið og njóta fegurð-
ar þess.
Á síðasta ári þegar Reynir Már
sá að hveiju stefndi með þann
mannskæða sjúkdóm sem hann
var haldinn komu eiginleikar
Reynir Más best í ljós. Hann fyllt-
ist eldmóði til að njóta hvers dags
til fullnustu. Það var aðdáunarvert
að sjá hann nýta hvern dag sum-
arsins til að fegra heimili sitt og
prýða garðinn.
Nú er komið að leiðarlokum og
sjúkdómur sá, sem engum eirir,
hefur lagt Reyni Má að velli. Ég
bið góðan Guð að styrkja ástvini
hans í sorg þeirra og veita þeim
blessun sína. Reyni Má kveð ég
með söknuði og þakka ánægjulega
samferð. Minning um góðan dreng
lifir í bijóstum okkar allra.
K.S.
Reynir Már var jarðsunginn í
kyrrþey 1. október síðastliðinn.
Vinir Reynis Más koma saman
og minnast hans að kvöjdi laugar-
dagsins 10. október í Ásmundar-
salnum við Freyjugötu.
ERFIDRYKKJUR
Perlan á Öskjuhlíð
sími 620200