Morgunblaðið - 08.10.1992, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
NEYTEND’AMAL
Bæta þarf meðferð á kartöflum
GÆÐI kartaflna sem eru á markaði hér á höfuðborgarsvæðinu þessa
haustdaga eru slík að ekki verður lengur orða bundist. Kartöflumar
era seldar í plastpokum, óflokkaðar, rakar og stundum jafnvel súr-
ar. Oft reynist stór hluti kartaflnanna vera smælki. Sem sagt, ekki
fyrsta flokks vara. Jafnvel þó að neytendur kvarti árlega yfir léleg-
um gæðum kartaflna, virðist það engin áhrif hafa og sagan endurtek-
ur sig eins og um óumbreytanlegt náttúrulögmál sé að ræða. En
fyrir neytendur er mikið í húfí og þeir eiga kröfu á að fá óskemmda
vöra. Það snertir kaupandann ekki aðeins fjárhagslega, óheilnæmar
kartöflur geta haft bein áhrif á heilsu hans og fjölskyldu. Gæði
nýju kartaflnanna hafa verið í lágmarki í haust og afföll of mikil.
Það er raunar ólíðandi, þar sem um er að ræða matvöru sem keypt
er á fullu verði.
Smælki og skaddaðar kart-
öflur á markaði
Þegar kartöflupoki hefur verið
opnaður má fínna þar nokkrar kart-
öflur í þokkalegri útsæðisstærð en
aðrar eru minni, allt niður í smátt
smælki sem til þessa hefur ekki
verið talið söluhæft. Neytendum
hefur sjaldan verið boðið upp á
skaddaðri kartöflur en einmitt nú í
haust. Það kemur einnig ósjaldan
fyrir að kartöflumar eru komnar
með grænan lit eða eru jafnvel
orðnar grænar þegar komið er með
þær heim úr versluninni.
Grænar kartöflur og sólanín
Grænar kartöflur eru að verða
árvisst vandamál hér og virðist
sama þó að bomar séu fram kvart-
anir, breyting verður Iítil til batnað-
ar. Græni liturinn á kartöflunum
er ekki skaðlaus, hann er merki
þess að í kartöflunum hafí myndast
SÓLANÍN (glykoalkalióðar) en það
er efnasamband sem í miklu magni
getur valdið eitmnum hjá neytand-
anum (beiska bragðið leynir sér
ekki). Það er mjög slæmt að með-
ferðin á kartöflum skuli ekki vera
betri, eins næringarríkar og kartöfl-
ur að jafnaði em.
Meðhöndlun á kartöflum
betri áður fyrr
Við sem komum frá gömlu kart-
öfluræktarsvæðunum fengum
snemma kennslu í að meðhöndla
kartöflur með varúð. Reynslan
hafði kennt ræktendum að með-
höndla kartöfluuppskemna af mik-
illi nákvæmni til að viðhalda gæð-
um. Kartöflur mátti ekki láta liggja
í birtu eftir að þær höfðu verið tekn-
ar upp, nema rétt á meðan verið
var að þurrka þær. Það var gert
til að fyrirbyggja að í þeim myndað-
ist þetta græna eiturefni (sólanín).
Kartöflurnar vom teknar vettlinga-
tökum og handleiknar með mjúkum
hönskum svo hýðið yrði fyrir sem
minnstu hnjaski. Þess var einnig
Kartöflur má aldrei geyma í birtu.
gætt að það loftaði vel um þær og
þær geymdar á dimmum svölum
stað.
Sennilega er meðhöndlun á kart-
öflum fyrr og nú eitt gleggsta dæm-
ið um það hversu illa dýrmæt þekk-
ing sem byggð er á reynslu, nær
að flytjast frá einni kynslóð til ann-
arrar.
Sólanín í kartöflum
En hvers konar efni er sólanm
og hvaða áhrif getur það haft á
neytendur?
WtAOAUGL YSINGAR
Markaðsstjóri
- aukavinna
Kolaportið óskar eftir að ráða „markaðs-
stjóra" í aukastarf. Vinnutími aðra hvora
helgi, laugardag kl. 7.00-18.00 og sunnudag
kl. 9.00-18.00. Æskilegt er að viðkomandi
geti einnig setið fundi á miðvikudögum
kl. 8.30-10.00.
Viðkomandi verður þjálfaður til að annast
stjórn markaðstorgs Kolaportsins og felst
' starfið í að annast móttöku seljenda, annast
innheimtu, leysa úr vandamálum, sem upp
kunna að koma á markaðsdögum, og hafa
yfirumsjón með fjölmennu starfsliði Kola-
portsins í samvinnu við verkstjóra.
Við leitum að starfsmanni, sem er a.m.k. 25
ára gamall, hefur ánægju af að vinna sjálf-
stætt og hefur mikla ábyrgðartilfinningu, er
reglusamur og heiðarlegur og hefur ánægju
af og hæfileika til að umgangast fólk.
Viðkomandi verður að hafa þægilega fram-
komu en jafnframt að vera duglegur og
ákveðinn í starfi.
Áhugasamir aðilar eru beðnir að senda
umsóknir með ítarlegum upplýsingum til
skrifstofu Kolaportsins, Garðastræti 6,
101 Reykjavík, fyrir 20. otkóber.
Fyrirspurnum um starfið verður ekki svarað
í síma.
Öllum umsóknum verður svarað.
KOLA PORTIO
MtfR/Ca-Ð-fíO&r
Sýningarsalurtil leigu
Aðalsýningarsalur Listhússins í Laugardal
verður til leigu í vetur.
Hér er um 240 fermetra sal að ræða sem
• hentar mjög vel til ýmissa sýninga á sviði
myndlistar og vörukynninga, er tengjast list-
um.
Umsækjendur sendi skriflegar upplýsingar
um sýningarhald sitt og feril til Listgallerís,
Listhúsinu í Laugardal, Engjateigi 19, fyrir
12. október nk.
Veitingastaður óskast
Tveir matreiðslumeistarar óska eftir að taka
á leigu eða kaupa veitinga- eða skyndibita-
stað.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. októbert merkt: „T - 8227“.
íbúð m/húsgögnum óskast
3ja-4ra herbergja íbúð með húsgögnum og
öllu innbúi óskast frá og með 1. desember
nk. í 1-2 mánuði, helst í Vesturbænum.
Upplýsingar í síma 685387.
3ja-4ra herb. við Ráðhúsið
3ja-4ra herb. íbúð óskast til leigu frá
1. nóvember til skemmri eða lengri tíma.
Tilboð óskast send til auglýsingadeildar
Mbl. merkt: „Ráðhúsið - 971“.
Hvað er lýðræði?
Þorsteinn Gylfason, heimspekiprófessor
veltir fyrir sér eðli lýðræðis, vestrænum
samfélagsgrunni og tengslum stjórnmála
við heimspeki á opnum Birtingarfundi um
heimspeki og stjórnmál:
* Eru stjórnmálaflokkar ólýðræðislegir?
Ræður meirihlutinn í íslenskri stjórnskipun?
Er til lýðræðisleg ákvörðun?
Meirihlutinn - oftast í minnihluta?
Fundarstjóri er Guðrún Helgadóttir, alþing-
ismaður.
Fundurinn er haldinn á Kornhlöðuloftinu á
Bernhöftstorfu á fimmtudagskvöld 8. októ-
ber og hefst kl. 20.30.
Allir áhugamenn velkomnir.
Ráðstefna um kostnað í
heilbrigðiskerfi íslendinga
í Domus Medica í dag, fimmtudaginn 8. októ-
ber 1992, kl. 16.15-18.30.
Dagskrá:
Starfsandi og starfshvatning á tíma flats
niðurskurðar. Sigríður Snæbjörnsdóttir,
hjúkrunarforstjóri.
Hafa föst fjárlög f heilbrigðisrekstri gengið
sér til húðar? Þorkell Helgason, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra.
Er hægt að auka kostnaðarvitund heilbrigð-
isstarfsfólks; hefur það eitthvað að segja?
Kristján Erlendsson, varaformaður Lækna-
félags íslands.
Eiga kenningar hins „frjálsa markaðar"
heima í íslensku heilbrigðiskerfi? Árni Sig-
fússon, formaður stjórnar Sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar.
Stjórnkerfisbreytingar, sem geta stuðlað
að bættri þjónustu og rekstri. Högni Ósk-
arsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur.
Pallborðsumræður meðal fyrirlesara með
þátttöku áheyrenda. Ásmundur Brekkan,
prófessor, stýrir.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um
heilbrigðismál.
Læknafélag Reykjavíkur,
Læknafélag íslands.
Hafnarfjörður
Verkakvennafélagið
Framtfðin
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs
félagsins um stjórn og aðrar trúnaðarstöður
fyrir árið 1992, liggja frammi á skrifstofu
félagsins, Strandgötu 11, frá og með fimmtu-
deginum 8. októbertil og með þriðjudeginum
13. október og er þá framboðsfrestur útrunn-
inn.
Tillögum þarf að fylgja meðmæli 20 fullgildra
félagsmanna.
Verkakvennafélagið Framtíðin.
I
I
I
«
i
í
é
I