Morgunblaðið - 08.10.1992, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
að vinna stærri skúlptúra úr reka-
viði.
Sæmundur hélt fyrstu einkasýn-
ingu sína árið 1983, en þær eru nú
orðnar níu talsins, þar af ein í Osló
í október 1989. Auk þess hefur hann
tekið þátt í mokkrum samsýningum.
Sýning Sæmundar í Gallerí Sævars
Karls verður opin til 6. nóvember.
--------»-♦ ♦---
Sigurður
Örlygsson
sýnirí G15
SIGURÐUR Örlygsson myndlist-
armaður opnar málverkasýningu
í Gallerí G15, Skólavörðustíg 15,
Iaugardaginn 10. október. Á sýn-
ingunni sýnir Sigurður 15 verk,
öll unnin á þessu ári. Verkin eru
olíu- og akrýlmyndir unnar á
pappír.
Sigurður stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands á ár-
unum 1967-1971. Síðan lá leiðin í
Det Kongelige Danske Kunstaka-
demi í Kaupmannahöfn 1971-1972
og til New York í Art Students Le-
ague 1974-1975. Sigurður hefur
haldið fjölda einkasýninga bæði hér
heima og erlendis, þar af fjórar á
Kjarvalsstöðum, tvær í Norræna
húsinu, í Ósló, Stokkhólmi, Helsinki
og Haag. Hann hefur einnig tekið
þátt í fyölda samsýninga þeirri síð-
ustu í Barcelona í maí á þessu ári
ásamt myndlistarmönnunum Jóni
Axel og Tolla. Sigurður hlaut Menn-
ingarverðlaun DV fyrir myndlist árið
1988.
Sýningin í Gallerí G15 er opin
alla virka daga frá kl. 10-18 og kl.
11-14 á laugardögum og iýkur eins
og fyrr segir 31. október.
skói
með loðfóðri.
Stærðir: 35-46.
Verö 2.490
Stefán Arngrímsson stundaði
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík 1983-1988 og lauk þaðan 8. stigs
prófi vorið 1988. Helstu kennarar
hans voru Guðmundur Jónsson, Þur-
íður Pálsdóttir, Kristinn Halisson og
Eiður Gunnarsson. Aðalundirleikari
var Jórunn Viðar.
Stefán hélt til Mílanó á Ítalíu að
loknu námi hér heima og var þar
við framhaldsnám í óperusöng hjá
Pier Miranda Ferraro. Stefán hefur
víða komið fram sem einsöngvari,
bæði með kórum og við ýmis önnur
tækifæri. Hann hefur einnig sungið
í útvarpi og sjónvarpi.
Framundan hjá Stefáni er meðal
annars hlutverk Baltazars konungs
í Amahl og næturgestimir eftir
Sæmundur Valdimarsson opnar
sýningu á verkum sínum í Gallerí
Sævars Karls, Bankastræti 9, 9.
október kl. 16.00.
Sæmundur fæddist að Krossi á
Barðaströnd árið 1918 og var bú-
settur þar til fullorðinsára. Jafn-
framt sveitastörfum stundaði h_ann
ýmis störf til sjós og lands. Árið
1948 fluttist hann til Reykjavíkur
og vann við vaktavinnu í Áburðar-
verksmiðjunni á Gufunesi. Síðustu
árin hefur Sæmundur eingöngu unn-
ið við listsköpun.
Um 1970 fór Sæmundur að setja
saman myndir úr steinum og reka-
viði. Þessar myndir voru fyrst sýnd-
ar á alþýðulistsýningu í Gallerí SÚM
árið 1974. Um sama leyti fór hann
Edda Jónsdóttir með
sýningn í Nýhöfn
Verð 3.990
úr svörtu
og brúnu leðri.
Stæróir,- 36-41.
EDDA Jónsdóttir opnar sýningu
í Nýhöfn, Hafnarstræti 18,
fimmtudaginn 8. október kl. 17.
Á sýningunni eru stór akrylmál-
verk og nokkur stór þrykk, unnin í
Sveaborg og á íslandi á síðastliðnum
tveimur árum. Nokkur verkanna
voru á sýningu í Haag í Hollandi
fyrr á árinu.
Þema sýningarinnar er VARÐAN.
í sýningarskrá segir Edda: „Ég hef
teiknað, málað og þrykkt vörður síð-
astliðin fjögur ár, og trúlega er ekki
allt sagt enn. Þegar veturinn verður
dimmastur verður þörfin á vegvísum
mest, huglægum sem og raunveru-
legum. Að þeim er ég að leita.“
Þetta er þrettánda einkasýning
Eddu. Undanfarin tólf ár hefur hún
tekið þátt í alþjóðlegum grafíksýn-
ingum víða um heim.
Sýningin, sem er sölusýning, er
Edda Jónsdóttir
opin virka daga kl. 12-18, um helg-
ar kl. 14-18. Lokað á mánudögum.
Henni lýkur 28. október.
Bokastefnan í Frankfurt
Mannleg reisn og
skilningur niilli þjóða
þýska Birgitte Kronauer með „Die
Frau in den Kissen" (1990).
í forsvari fyrir dómnefnd verð-
launanna var vísindamaðurinn og
skáldið Miroslav Holub frá Tékkó-
slóvakíu. Holub er með virtustu
skáldum og hafa nokkur ljóða hans
verið þýdd á íslensku af þeim Þor-
geiri Þorgeirssyni og-Matthíasi Jo-
hannessen. I samtali við Morgun-
blaðið sagðist Holub vita af þessu
og það hefði glatt sig. Hann hefði
á sínum tíma þýtt íslenskt ljóð úr
ensku og hefði það birst í tímariti,
en nú væri hann búinn að gleyma
nafni skáldsins. Hann kvaðst stoltur
af þýðingunni því að hún hefði tek-
ist vel að margra dómi. Holub tal-
aði mjög lofsamlega um íslenskar
bókmenntir sem hann kynntist í
þýðingum heima í Tékkóslóvakíu^
einkum sagnagerðinni.
„Ljóðið tjáir best mannlega
reisn,“ hafði Holub sagt í ávarpi
sínu á blaðamannafundinum. Hann
sagðist oft hafa verið í vanda og
liðið illa undir stjórn kommúnista í
Tékkóslóvakíu, en eftir frelsunina
1989 hefði margt snúist til betri
vegar. Áður hefði hann oft verið
fjarri landi sínu, ferðast mikið, en
Amos Oz
Birgitte Kronauer
nú væri hann búsettur í Prag og
hefði hugsað sér að vera þar til
æviloka.
- Hvernig eru tilfinningar þínar
nú þegar Tékkóslóvakía er fijáls?
„I fyrstu var allt svo gott og
dásamlegt, en síðan kom í ljós að
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
Tónleikar Stefáns Arngrímssonar
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
FRIÐARVERÐLAUN þýskra bó-
kaútgefenda og bóksala voru
afhent í tengslum við bókastefn-
una í Frankfurt. Verðlaunahaf-
inn frá 1988, þýski rithöfundur-
inn Siegfried Lenz, hafði orð
fyrir dómnefndinni og kynnti
hinn nýja verðlaunahafa, Israel-
ann Amos Oz.
Oz fæddist í Jerúsalem 1939 og
hefur í skáldsögum sínum og frá-
sögnum stuðlað að sáttum milli
ísraela og araba og sérstaklega
beitt sér fyrir að ísraelar og Palest-
ínumenn semji sín á milli í staðinn
fyrir síendurtekin vopnaviðskipti.
Tilgangur friðarverðlaunanna,
sem eru 25.000 þýsk mörk, er að
veita alþjóðlega viðurkenningu til
rithöfunda, vísindamanna og lista-
manna sem hafa lagt sitt af mörk-
um til friðar, mannúðar og skilnings
milli þjóða.
Amos Oz sagði á blaðamanna-
fundi á bókastefnunni í Frankfurt
að mörg hræðileg teikn væru á lofti
í heiminum, ekki síst kynþáttahat-
ur, trúarofstæki, hernaðarleg þjóð-
emishyggja og blint skrifræði, en
fall einræðislegrar hugmyndafræði
og lok kalda stríðsins kveiktu nýjar
vonir mannkyninu til handa. Hann
sagði að mannúðarstefna og fjölda-
hyggja. ættu ekki endilega að
merkja að ailir ættu að vera steypt-
ir í sama mót heldur að hver ein-
staklingur hefði rétt til að vera
hann sjálfur.
Oz er í forystusveit ísraelsku frið-
arsamtakanna Friður nú, en hefur
kynnst stríði af eigin raun, sex
daga stríðinu 1967, þar sem hann
var skriðdrekahermaður í Sinai, og
stríðinu um Gólanhæðir 1973. Hann
er nú prófessor í hebreskum bók-
menntum við Ben Gurion-háskól-
ann í Beer-Sheva.
Nýjasta skáldsaga Amos Oz,
Þriðja ástandið (á þýsku „Der dritte
Zustand", Insel Verlag, Frankfurt
am Main, 1992) er talin meðal há-
punkta á ritferli hans. Hann þykir
skrifa í anda dæmigerðra Evrópu-
höfunda á borð við Austurríkis-
manninn Robert Musil. í höfuðverki
sínu, Manninum án eiginleika,
minnist Musil á „annað ástandið“
sem speglar styijaldarviðhorf. Oz
er trúr raunsæisstefnu og frásagn-
argáfa hans er lofuð. Lítið þykir
fara fyrir framúrstefnu og fagur-
fræði póstmódernismans hjá honum
þótt hann þekki vel hvers kyns til-
raunastefnur í bókmenntum. Þriðja
ástandið gerist í Jerúsalem nokkra
vetrardaga 1989.
Meðal margra frægðarmanna
sem hlotið hafa Friðarverðlaun
þýskra bókaútgefenda frá stofnun
þeirra 1950 eru Albert Schweitzer,
Martin Buber, Max Frich og Vaclav
Havel.
Úthlutun Bókmenntaverðlauna
Evrópu sem Evrópuráðið veitir var
tilkynnt á bókastefnunni. Sex rit-
höfundar og sex þýðendur hljóta
verðlaun, en þau verða afhent í
Madrid, menningarborg Evrópu
1992, 26. nóvember næstkomandi.
Verðlaunafólkið er að mestu
óþekkt, að minnsta kosti á Norður-
löndum. Nefna má þó Hollendinginn
Willem Frederik Hermans, höfund
skáldsögunnar „Au pair“ (1989) og
írann William Trevor, höfund
„Reading Turgenev“ (1991). Þeir
eru báðir gamalgrónir. Yngri er hin
STEFÁN Arngrímsson bassa-
söngvari heldur tónleika í Safn-
aðarheimili Akureyrarkiiju
laugardaginn 10. október kl.
17.00. Undirleikari verður Jórunn
Viðar. Á efnisskrá eru meðal ann-
ars verk eftir Árna Thorsteins-
son, Sveinbjörn Sveinbjömsson,
Markús Kristjánsson, Schubert,
Schuman, Strauss, Kern, Clutsam,
Speaks, Bellini, Verdi og Rossini.
Menotti. Óperusmiðjan setur upp
óperuna sem verður flutt í desember.
Jórunn Viðar á að baki langan
feril sem píanóleikari og tónskáld.
Willem Frederik Hermans
William Trevor
öll vandamál höfðu ekki leyst í einni
andrá. Sumir eru enn þrúgaðir.
Maður verður engu að síður að vera
móttækilegur og ábyrgur og jafn-
framt bregðast við því sem gerist
af fullri einurð,“ sagði Miroslav
Holub.
Hún hefur undanfarin tólf ár verið
aðalundirleikari Söngskólans í
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Rekaviðarskúlptúr í
Gallerí Sævars Karls
Póstsendum samdægurs.
RR - SKÓR
Laugavegi 60 og Kringlunni