Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991 Orðið vinsælla að fjárfesta á Kjalamesi - segir Pétur F. Þórðarson sveitarsljóri ÍBÚÐARHÚ3NÆÐI á Kjalarnesi hækkar nú um mánaðamótin um 15% eins og fram kom í frétt í blaðinu sl. föstudag. Að sögn Péturs F. Þórðarsonar, sveitarstjóra Kjalarnesshrepps, er þetta þriðja árið sem hækkunin er meiri þar en annars staðar. Telur hann ástæðuna auknar vinsældir íbúðarhúsnæðis þar. „Fyrir þremur árum óskuðum við eftir því við Fasteignamat ríkisins að það skoðaði sérstaklega sölu- samninga íbúðarhúsnæðis á Kjalar- nesi vegna lágs fasteignamats,” sagði. „Þá kom fram að fasteigna- mat þyrfti að hækka um a.m.k. 20% umfram verðlagshækkun íbúðarhús- næðis í landinu til þess að jafnvægi yrði náð milli fasteignamats og þess verðs sem’ sölusamningar bentu til að væri eðlilegt.” Mikil aðsókn að sýningn Karólínu MIKIL aðsókn hefur verið að málverkasýningu Karólínu Lár- usdóttur í Gallerí Borg og vel á annað þúsund manns sóttu sýn- inguna um helgina. Aðeins örfáar myndir eru enn óseldar af sýningunni en hún stend- ur til 3. desember næstkomandi og er opin daglega frá kl. 14.00-18.00. Pétur sagði að ákveðið hafi verið að þessi hækkun kæmi á þremur árum, en nú væri sá tími liðinn. „Allan þennan tíma hefur Kjalarnes verið með mesta hækkun fasteigna- mats íbúðarhúsnæðis á landinu. Á þessu þriggja ára tímabili hefur enn orðið hækkun, þannig að þrátt fyrir þessa miklu hækkun fasteignamats nú er enn um ójafnvægi að ræða, sem bendir til að á næsta ári eða árum hækki fasteignamatið meira á Kjalarnesi en almenn verðlagshækk- un fasteigna í landinu. Þetta þýðir í raun að það er að verða vinsælla að fjárfesta á Kjalar- nesinu. Margir sækja út fyrir Reykja- vík en vilja þó ekki búa of langt úti í sveit. Auk þess hefur Hitaveita Reykjavíkur selt vatn til húshitunar hér frá árinu 1989 á sama verði og í Reykjavík,” sagði Pétur. Hann segir Kjalarneshrepp vera um 500 manna sveitarfélag og eitt þeirra þar sem fólksfjölgun hafi orð- ið hvað mest undanfarin ár. Leikfélag Reykjavíkur: Sýning á Þéttingu í þágn Krabbameinsrannsókna EFNT verður til sérstakrar Styrktarsýningar á leikriti Sveinbjörns I. Baldvinssonar Þéttingu í litla sal Borgarleikhússins fimmtudaginn 5. desember. Leikfélag Reykjavíkur hefur ákveðið að allar tekjur af sýningunni skuli renna til Rannsóknarstofu Krabbameinsfélags íslands í sameinda- og frumulíffræði. Leikarar og starfsmenn sýning- arinnar gefa vinnu sína á þessari sýningu. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, keypti fyrstu mið- ana á sýninguna, en hún er vernd- ari Krabbameinsfélagsins. Þétting fjallar m.a. um krabba- mein. Hlaut sýningin á sínum tíma lof gagnrýnenda fyrir nærfærin tök höfundar á þessu viðkvæma efni. Hallmar Sigurðsson er leikstjóri, Jón Þórisson gerði leikmynd, og Ögmundur Jóhannesson sá um lýs- ingu. Með helstu hlutverk fara Kristján Franklín Magnússon, Sig- rún Edda Björnsdóttir, Soffía Jak- obsdóttir, Pétur Einarsson og Sig- rún Waage. Sýningin er kl. 20 þann 5. des- ember og er sala hafin á þessa styrktarsýningu. Sigurður Hróarsson leikhússljóri afhendir Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands fyrstu miðana á hátíðarsýningu á Þéttingu. Almar Grímsson formaður Krabbameinsfélags íslands var viðstaddur. Lokatónleikar orgel- árs í Bústaðakirkju HÓPUR tónlistarfólks, undir forystu Guðna Þ. Guðmunds- sonar, organista Bústaða- kirkju, flytur kirkjulega sveiflu með léttum lögum í kvöld, fimmtudag kl. 20.30. Flytjendur verða söngkvartett Bústaðakirkju, þau Ingibjörg Marteinsdóttir, Stefanía Valgeirs- dóttir, Einar Örn Einarsson og Eiríkur Hreinn Helgason og bjöllu- og barnakór Bústaða- kirkju. Nýráðinn aðstoðarprestur Bústaðakirkju, Sigurjón Árni Ey- jólfsson, mun leika á saxófón. Haukur Morteins söngvari kemur fram og einnig hljóðfæraleik- aranir Eyþór Þorláksson, Guðmundur Steingrímsson og Sveinn Eyþórs- „ , „ _ . son. Með þéss- um tonleikum lýkur orgelári Bústaðakirkju, sem haldið var í tilefni kaupa kirkjunn- ar á nýju orgeli. Chalumeaux tríóið, ásamt söngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og John A. Speight Mozart í Kristskirkju CHALUMEAUX tnoið heldur tónleika í Kristskirkju í kvöld, klukk- an 20.30, ásamt söngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og John A. Speight. Chalumeaux tríóið er skipað þremur blásurum, þeim Óskari Ingólfssyni, Sigurði Snorrasyni og Kjartani Óskarssyni og á tónleikunum í kvöld leika þeir félag- arnir á Bassetthorn. Tónleikarnir eru helgaðir Wolf- gang Amadeus Mozart og hefjast á því að flutt verða stutt verk, Adagio, úr Divertimentis, nr. 4 KV 439.b. og Adagio, KV 356 fyrir glerhörpu. Þá verða fluttir tveir sálmar, „0 Gottes lam,” KV 343 og „Als aus Ágypten,” fyrir mezzosópran og þijú bassethorn. „Mikið af frímúraramúsík Mozarts var skrifuð fyrir bassetthorn, sem er afbrigði af klarinetti,” segir Óskar Ingólfsson, einn af meðlim- um tríósins, „og flest þessara verka eru skrifuð á árunum 1783 til 1785. Það má eiginlega segja að á þeim tíma hafi verið klarinett- hirð í kringum hann. Stadler bræð- urnir voru þó þeirra frægastir og Mozartkonsertinn og klarinettk- vintettinn eru skrifaðir fyrir þessa tvo bræður. Það er mjög sérkenni- legt að það hefur aldrei verið skrif- að eins mikið af klarinettverkum og um miðbik 18. aldar, en þá er skyndilega hætt að skrifa fyrir þetta hljóðfæri. Það datt eiginlega út úr tónlistarsögunni. Það er leið- inlegt því klarinettið hefur mjög sérstaka eiginleika. Það fer upp á hæstu tóna og niður á þá lægstu. Það hefur því stórt raddsvið sem er þar að auki mjög jafnt. Það er dálítið gaman að því að á íslandi, ekki stærra landi, eru til fjögur bassethorn, þannig að það er hægt að flytja alla þessa tónlist eins og hún er upphaflega samin.” Síðasta verkið sem flutt verður fyrir hlé er Divertimento nr. 3, KV 396. Þetta verk er fyrir þrjú bassethorn, en hefur verið leikið á önnur hljóðfæri. „Þetta er einn af smellum Mozarts, _ef svo má að orði komast,” segir Óskar. „Um leið og hann hafði skrifað verk sem féllu fólki í geð, virðist eins og aðrir hafi tekið þau um leið og umskrifað fyrir önnur hljóðfæri og þau voru spiluð út um allt.” Eftir hlé verður meginverk kvöldsins flutt, Næturljóð Moz- arts, annarsvegar fyrir sópran, mezzosópran og bariton, hinsveg- ar fyrir þijú bassetthorn. „Nætur- Ijóðin sex eru tækifæristónsmíðar sem Mozart samdi til flutnings á heimili Gottfrieds Jaquin, vinar síns og velgjörðarmanns,” segir Óskar. „Texti fjögurra þeirra eru eftir Pietro Metastasio, en tveir textanna eru eftir óþekkta höf- unda. Ljóðin eru full af gáska og glaðværð en þó með álvarlegum undirtóni. Þau fjalla öll á glettinn hátt um ást og kærleika.” Nú kallið þið ykkur Chalume- aux tríóið. Hvaðan kemur það? „Chalumeaux er dregið af hljóð- færum sem eru forverar klari- nettsins. Fram að þessum tíma, hefur allur sá peningur sem við þremenningarnir höfum aflað okk- ur með tónleikum, farið í að kaupa þessi hljóðfæri. Chalumeaux er eins og blokkflauta með klari- nettmunnstykki. Við eigum nú þegar orðið þijú hljóðfæri og eftir áramót eignumst við tvö í viðbót. Þá opnast okkur alveg nýtt verk- efnaval. Það sárasta við að leika á klarinett, er að maður á ekki aðgang að nema takmörkuðu tímabili tónlistarsögunnar, til dæmis getum við ekki leikið bar- okktónlist. En það breytist með Chalumeaux, því það er til haugur af nótum fyrir það hljóðfæri á söfnum um allan heim. Okkur opnast því alveg nýr heimur, því þetta eru verk sem ekki er hægt að leika á önnur hljóðfæri.” ssv Innkaupaferðir erlendis: Viljum að tollleit verði efld með ákveðnu átaki - segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra „OKKAR óskir eru þær að unn- ið sé að þessu máli með kerfis- bundnum hætti og að tollleit sé efld með ákveðnu átaki,” segir Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra. Fjármálaráðuneytið hef- ur sent utanríkisráðuneytinu bréf um að tolleftirlit á Kefla- víkurflugvelli verði gert virk- ara. Ástæða bréfsins er hin mikla aukning í innkaupaferð- um almennings til útlanda, Söngvartett Bústaðakirkju ásamt Sigurjóni Árna Eyjólfssyni og Guðni Þ. Guðmundsson organisti. einkum Skotlands, á síðustu vikum. Friðrik Sophusson segir að það sé í verkahring fjármálaráðuneyt- isins að annast tolla- og skattamál. En þar sem Keflavíkurflugvöllur heyri undir lögsögu utanríkisráðun- eytisins hafi þeir sent fyrrgreint bréf þangað og geti að öðru leyti lítið annað gert en að koma á fram- færi upplýsingum um hve mikil verðmæti ferðafólki er heimilt að taka með sér til landsins án þess að þurfa að borga af þeim tolla. Áðspurður um hvort ekki hafí komið til tals að hækka þá lág- marksupphæð sem í gildi er, 24.000 krónur, segir Friðrik að það sé markmið fjármálaráðneytisins að hafa þær reglur sem í gildi eru sem eðlilegastar og í sem mestu sam- ræmi við það sem gildir I nágranna- löndum okkar. Samkvæmt upplýs- ingum frá Varnarmálaráðuneytinu var þessi upphæð, 24.000 krónur, ákveðin í ágúst 1989 en hafði fram að þeim tíma verið 20.000 krónur frá júlí 1988. Tekið skal fram að áfengi og tóbak er utan við þessar upphæðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.