Morgunblaðið - 12.06.1985, Blaðsíða 56
\
KEILUSALUWINN
OPINN 10.00-00.30
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Hreyfing á vióræóum ASÍ og VSÍ:
Rætt um skammtíma-
samning á nýjan leik
— nýr fundur boðaöur í dag
MEIRI líkur eru nú til þess en iður að Alþýðusamband íslands og
Vinnuveitendasamband Islands komist að samkomulagi um kjara-
samning til skemmri tíma, jafnvel aðeins til næstu áramóta. Þessi
nýju viðhorf komu upp í viðræðum forystumanna Alþýðusambands
íslands og Vinnuveitendasambands íslands um nýjan kjarasamning á
tveimur fundum, sem haldnir voru í gær.
Samkvæmt þeim hugmynd-
um, sem ræddar voru á fundun-
um í gær og gærkvöldi, yrðu
kauphækkanir þær sömu eða
svipaðar, og gert var ráð fyrir í
► tillögum VSI um nýjan kjara-
samning 23. maí sl. Þar var gert
ráð fyrir að laun hækkuðu um
5% 1. júní sl., og heldur meira
fyrir hina lægst iaunuðu. Síðan
var gert ráð fyrir 3% hækkun 1.
september og 5% hækkun 1.
janúar næstkomandi. Enn á eft-
ir að útfæra þessar hugmyndir
nánar og þá ekki síður að taka
til endurskoðunar ákvæði um
tryggingu kaupmáttar, sem ASl
hefur sett fram.
Engar formlegar tillögur voru
lagðar fram á fundunum i gær
en ljóst var af ummælum for-
ystumannanna, að þeir voru
bjartsýnni í gærkvöld en þeir
hafa verið undanfarna daga.
Enginn þeirra vildi þó láta hafa
nokkuð eftir sér um efni fund-
anna.
Forystumenn ASÍ og VSÍ
hittust fyrst kl. 16 í gær og
ræddu þá málin í tvo tíma. Þá
var gert fundarhlé til kl. 21 og
stóð sá fundur í aðra tvo tíma.
Nýr fundur hefst kl. 17 í dag.
Sjómaimaverkfallið í Reykjavík:
Biðja um samúðarvinnustöðvun
A öllum fiskiskipaflotanum
Sambandsstjórn Sjómannasam-
bands Islands (SÍ) mun á morgun
taka afstöðu til beiðni Sjómanna-
félags Reykjavíkur um að boðað
verði til samúðarvinnustöðvunar á
öllum fiskiskipaflotanum þar til
samningar hafa tekist milli félags-
ins og útvegsmanna. SÍ barst bréf
þar að lútandi frá Sjómannafélagi
Keykjavíkur í gær. Verkfall báta-
sjómanna ( Reykjavík hefur nú
staðið ( fjórar vikur og samúðar-
verkfall undirmanna á togurum frá
mánaðamótum. Engin hreyfing
hefur orðið i samkomulagsátt síð-
an verkfallið hófst og nýr sátta-
Flugleiðir gera
samning við Alsír
— flytja allt að sjötíu þúsund farþega
í pílagrímaflugi í sumar
FLUGLEIÐIR hafa gert stóran
samning við Alsírbúa um píla-
grímaflug fyrir þá nú í sumar.
Samkvæmt upplýsingum Sigfúsar
Erlingssonar framkvæmdastjóra
markaðssviðs Flugleiða er hér
um talsverða aukningu að ræða
frá því í fyrra, og bendir allt til
þess að 65 til 70 þúsund manns
verði fluttir í þessu flugi.
„Við munum leigja þrjár til
fjórar vélar í þetta verkefni,
með áhöfnum. Við höfum ekki
gengið frá leigusamningum, en
það munum við gera þegar end-
anlegir samningar hafa verið
gerðir við Alsírmenn," sagði
Sigfús. Hann sagði að ein eða
tvær vélar frá Canadian
Worldways í Kanada yrðu
leigðar til verkefnisins. Það
yrðu DC-8 og hugsaniega Lock-
heed 1011. Auk þess myndu
♦ Flugleiðir væntanlega leigja
tvær DC-8-vélar af Arnarflugi.
Sigfús sagði að samningurinn
tæki til tveggja 19 daga tíma-
bila. Það fyrra yrði 1. til 19.
ágúst nk. og það síðara frá 29.
ágúst til 17. september. Flogið
--^yrði frá fjórum eða fimm borg-
um í Alsír til Jedda. „Við reikn-
um með að flytja 32 til 35 þús-
und pílagríma, þannig að heild-
arfarþegafjöldi gæti orðið á bil-
inu 65 til 70 þúsund," sagði Sig-
fús.
fundur hafði ekki verið boðaður í
gær.
Forystumenn Sjómannafélags
Reykjavíkur hafa að undanförnu
rætt ýmsar leiðir, sem hægt
væri að fara til að knýja á um
samninga, að sögn Tómasar
Ölafssonar, skrifstofustjóra fé-
lagsins. Er meðal annars verið
að athuga hvernig bregðast eigi
við veiðiferð Keilis RE 37, sem
lagði upp frá Hafnarfirði á
sunnudaginn með yfirmenn eina
um borð — tveir hásetar urðu
eftir í landi. Tómas sagði að til
greina kæmi að hindra löndun
úr togaranum að aflokinni veiði-
ferð eða jafnvel að freista þess
að fá lögbann sett á veiðiferðina
og þá yrði togarinn sóttur á haf
út. „Við teljum það skýlaust brot
af hálfu útgerðarfélagsins, ís-
lensku umboðssölunnar hf., að
hafa flutt skráningu skipsins frá
Reykjavík til Hafnarfjarðar eft-
ir að verkfallið hófst," sagði
Tómas.
Vinnuheimilið á Reykjalundi:
Morgunblaðit/ FriAþjAfur
Götin eftir riffilkúlurnar á vegg trésmlðaverkatæðisins.
Þrjú riffilskot í
gegnum vegginn
„MANNI bregður auðvitað viA svona lagað,“ sagði trésmiðurinn, sem
varð fyrir þeírrí óvenjulegu reynslu að þremur riffilkúlum var skotið (
gegnum vegg verkstæðisins þar sem hann var við vinnu s(na ( gær-
kvöldi. Kúlunum var skotið úr bifreiðaverkstæði hinum megin við
vegginn, en trésmiðurinn kvaðst ekki hafa orðið neinna mannaferða
var áður en skotin kváðu við né heldur á eftir.
Atburðurinn átti sér stað um
10 leytið f gærkvöldi i verk-
smiðjuhúsnæði við Vagnhöfða i
Reykjavík, þar sem bílaverk-
stæðið og trésmíðaverkstæðið
eru til húsa. Trésmiðurinn var
einn við vinnu sína þegar byssu-
kúlurnar þrjár þeyttust í gegn-
um vegginn i nokkurri hæð fyrir
ofan höfuð hans. Hann gerði
lögreglunni þegar aðvart og var
rannsóknarlögreglan kvödd á
vettvang. Ekki hafði tekist að ná
í eiganda bifreiðaverkstæðisins
er síðast fréttist, en að sögn
rannsóknarlögreglunnar voru
engin vegsummerki um innbrot
á staðnum né vísbendingar um
tilganginn með skothrið þessari.
Nýtt starfsfólk skuldbindi sig
til að reykja ekki á vinnustað
— Reykjalundur verður reyklaus staður,
segir Björn Ástmundsson forstjóri
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á fundi í stjórn
vinnuheimilisins á Reykja-
lundi nýlega: „Stjórnin áréttar
fyrri tilmæli um, að ákvæði
laga um tóbaksvarnir verði
virt í hvívetna og felur daglegri
stjórn stofnunarinnar að vinna
aö því áfram, að ekki verði
reykt á Reykjalundi, m.a. með
því að gangast fyrir reykinga-
varnanámskeiðum fyrir
starfsmenn og vistmenn.
Ennfremur mælir stjórnin svo
fyrir, að framvegis skuli þeir
einir ráðnir til starfa, sem
skuldbinda sig til að reykja
ekki á vinnustaö.“
„Þessi ákvörðun var tekin um
áramótin og byggist'meðal ann-
ars á könnun á reykingavenjum
fólks hér á Reykjalundi, sem
fram fór fyrir áramót. Um leið
og farið var fram á að reykingar
færu einungis fram á tveimur
stöðum varð mikil breyting á
stofnuninni. Þetta er ekki bann
heldur tilmæli til þeirra, sem
reykja að virða lögin,“ sagði
Björn Ástmundsson, forstjóri
heimilisins. „Margir starfsmenn
notuðu tækifærið og hættu al-
veg að reykja bæði hér í vinn-
unni og heima. Við höfum reynt
að hafa ekki boð eða bönn held-
ur samstarf við þá sem reykja
og allar ákvarðanir hafa verið
teknar í samráði við starfs-
mannaráð og starfsfólk. Við
stefnum hinsvegar að því að i
náinni framtíð verði Reykja-
lundur reyklaus staður.“
í niðurstöðu könnunarinnar
sem ályktunin byggir á var
kannað hversu margir reyktu og
kom fram að af 85% starfs-
manna eða 221 og 84,21% vist-
manna eða 128, samtals 349,
reyktu 40,4% eða 141. Þeir sem
ekki reyktu voru 57% eða 199.
Auðir og ógildir seðlar voru
2,6% eða 9. í könnuninni var
einnig spurt um álit á reyking-
um á vinnustað og sögðust
32,1% eða 112 vilja leyfa þær en
60,7% eða 212 voru á móti. Auð-
ir og ógildir seðlar voru 7,2%
eða 25.