Morgunblaðið - 12.06.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. JÚNÍ 1985
Rokkrásin
■ ■
Orn Ingi, sá ágæti fjöllista-
maður þeirra Norðlendinga,
lagði til í sunnudagsþætti sínum
er hann nefnir: Milli fjalls og fjöru,
að menn tækju sig til á hinum
fögru vordögum er nú skína af
hverju þúfubarði og framkvæmdu
eitthvert verk er þeir hefðu aldrei
framkvæmt áður, gengju tii dæm-
is afturábak í vinnuna með spegil
í höndum. Ég hreifst svo af þess-
ari hugmynd Arnar Inga, að ég
settist vopnaður stílvopni við við-
tækið þá útsendingar hófust á rás
II á léttum músíkþætti, en venju-
lega læt ég nægja að hlusta með
öðru eyranu á slíka þætti. Hef þó
stundum sest niður með blað og
blýant þá slíkir þættir hljómuðu
en ætíð staðið upp með auða örk.
Hvað er annars hægt að segja um
slíka þætti, jafnvel þótt músíkin
sé rofin við og við af rabbi þáttar-
stjóra og jafnvel aðvífandi gesta?
Ekki treysti ég mér til að setjast á
stól poppskríbents að rífast við
sjálfan mig um hvort þessi eða hin
tónlistarstefnan eigi að tróna á
rás II. Ég lít svo á að hinir létt-
fleygu músíkþættir á rás II séu
fyrst og fremst ætlaðir til að lyfta
geði guma og örva vinnugleði og
athafnaþrá.
En eins og ég sagði hér fyrr í
texta hef ég nú ákveðið að kreista
blek úr penna eftir hlustun eins
slíks þáttar mest vegna áeggjunar
Arnar Inga og svo vegna þess að
ég hitti nýlega á förnum vegi einn
þáttarstjóra rásar II. Verða þau
orðaskipti ekki rakin frekar en
gjarnan vildi ég fá ábendingar frá
starfsmönnum rásar 2 og frá
hlustendum, sem kunna að vera
ósáttir við fyrrgreind viðhorf mín
til léttra músíkþátta. Ég óttast
ekki hvassyrta og málefnalega
gagnrýni, lognmollan er hættu-
legust því hún svæfir dómgreind-
ina.
Rokkrásin
Músíkþáttur sá er ég vel til um-
fjöllunar nefnist Rokkrásin og var
á dagskrá rásar II síðastliðinn
mánudag. Stjórnendur: Snorri
Már Skúlason og Skúli Helgason.
Þætti þessum er ætlað að kynna
þekkta hljómsveit eða tónlistar-
mann. í þetta sinn varð fyrir val-
inu hljómsveitin Roxy Music. Ég
verð að segja þeim Snorra og
Skúla til hóls að þeir fluttu vel
mál sitt og höfðu greinilega lagt
umtalsverða vinnu í aö kynna sér
feril þessarar ágætu hljómsveitar.
Hafði ég á tilfinningunni að pilt-
arnir hefðu mikla ánægju af verki
sínu og smitaöi sú vinnugleði þann
er hér stýrir penna. Þó get ég ekki
að því gert að þáttur þessi vakti
mér nokkurn ugg í brjósti, því
hann leiddi huga minn að fjölda
svipaðra þátta, er ég hef hlýtt á
bæði í kanaútvarpinu og í erlend-
um útvarpsstöðvum. Verða máski
örlög útvarpsins okkar þau að feta
svipaðan farveg og fjölmargar
bandarískar útvarpsstöðvar þar
sem léttir músíkþættir tróna,
þættir er segja einkum tíðindi af
súperstjörnum vitundariðnaðar-
ins? Slík þróun gæti hæglega átt
sér stað á löngum tíma í kjölfar
harðnandi samkeppni á auglýs-
ingamarkaði. Heyrði ég reyndar
nýíega leiklistarstjóra BBC lýsa
þungum áhyggjum yfir þessum
hiutum, taki hinar menningar-
skuldbundnu ríkisstöðvar að keppa
um auglýsingar við hinar frjálsu
útvarpsstöðvar.
Ein smáleg málfarsleg athuga-
semd undir lokin: í fyrrgreindum
músíkþætti hraut eftirfarandi
setningarhluti af vörum annars
þáttarstjórnenda ... feitasti
smeilur Roxy Music til þessa. Já
þeir verða vafalaust margir
„smeilirnir“ í framtíðinni.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Nýr þáttur á rás 1
Staður og stund
■ „Staður og
15 stund“ nefnist
“ nýr þáttur á
dagskrá hljóðvarps. Hann
hefst í dag klukkan 15.15
og kemur frá RÚVAK.
Þórður Kárason sér um
þáttinn og sagði hann að
hér væri um að ræða al-
hliða þætti, með spjalli og
góðri tónlist. í hverjum
þætti verður eitt viðtal,
jafnt við unga sem aldna.
Fyrsti gesturinn verður
Albert Karlsson kennari
við Verkmenntaskólann á
Akureyri. Hann er mikiil
áhugamaður um skotvopn
og í safninu hans er á
fjórða tug skotvopna. Al-
bert er einnig mikill
áhugamaður um sögu og
stundaði hann nám í
Bandaríkjunum í mann-
kynssögu og ensku. Einnig
hefur Albert mikið dálæti
á tónskáldinu Richard
Wagner og verður leikin
tónlist eftir hann í þætt-
inum.
Þórður sagðist vilja
reyna að brúa bilið milli
unglingaþáttanna og dag-
skrárliða fyrir eldri hlust-
endur. Þannig væru gestir
hans bæði ungir og aldnir
og tónlistin verður fjöl-
breytt, ekki topplögin í
dag, heldur sígildar
lummur sem valdar yrðu í
samráði við viðmælanda
hverju sinni.
Allt fram streymir...
Aftanstund
■■■■ Aftanstund er
| Q 25 á dagskrá sjón-
varps klukkan
19.25 í kvöld, en það er
barnaþáttur með inn-
lendu og erlendu efni.
f aftanstundinni í kvöld
er Söguhornið. Lovísa
Einarsdóttir les „Sagan
hennar systu“ eftir Braga
Magnússon. Einnig verður
í stundinni „Kanínan með
köflóttu eyrun", dæmisög-
ur, Högni Hinriks og Mar-
ít íitla.
ísland—Spánn
— bein lýsing
iM Bein lýsing frá
45 seinni hálfleik í
“ undankeppni
heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu verður á báð-
um rásum útvarps klukk-
an 20.45 frá Laugardals-
velli í kvöld. Liðin sem
eigast við eru ísland og
Spánn. Ingólfur Hannes-
son og Samúel Örn Erl-
ingsson, íþróttafrétta-
menn hljóðvarps, lýsa
leiknum.
■i Sjötti þáttur
45 ástralska
““ framhalds-
myndaflokksins, „Allt
fram streymir ..." er á
dagskrá sjónvarpsins
klukkan 21.45 í kvöld, en
alls eru þættirnir átta.
Þættirnir eru gerðir
eftir samnefndri skáld-
sögu eftir Nancy Cato. í
aðalhlutverkum eru Sig-
rid Thornton og John
Waters.
Þýðandi er Jóhanna
Þráinsdóttir.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
12. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Baen. „Morgunútvarpið".
7.20 Leiktimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Arndls Hjart-
ardóttir, Bolungarvlk, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Börn eru besta fólk" eftir t
Stefán Jónsson. Þórunn
Hjartardóttir les (16).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(Utdr ). Tónleikar.
10.45 „Systur".
Smásaga eftir Sólveigu von
Schuftz i þýðingu Sigurjóns
Guðjónssonar. Herdls Þor-
valdsdóttir les.
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Inn og Ut um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
13.40 Tónleikar.
14.00 „Hákarlarnir"
eftir Jens Björnebo. Dagný
Kristjánsdóttir þýddi. Kristján
Jóhann Jónsson les (8).
14.30 Miðdegistónleikar.
íslensk tónlist.
a. Tilbrigði um Islenskt þjóð-
lag eftir Þórunni Viðar. Einar
VigfUsson og höfundur leika
á selló og pianó.
b. íslensk þjóðlög I Utsetn-
ingu Þorkels Sigurbjörnsson-
ar. Ingvar Jónasson, GuðrUn
Kristinsdöttir, Óskar Ing-
ólfsson og Snorri SigfUs
Birgisson leika á tiðlu, Karin-
ettu og planó.
c. Klarinettusónata eftir Jón
Þórarinsson. Óskar Ingólfs-
son og Snorri Sigfús Birgis-
son leika.
15.15 Staður og stund.
— Þóröur Kárason. (RÚV-
AK).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Poppþáttur.
— Bryndís Jónsdóttir.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 BarnaUtvarpið.
Stjórnandi: Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir.
17Æ0 SíðdegisUtvarp.
— Sverrir Gauti Diego.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til-
kynningar. Málræktarþáttur.
Ólafur Oddsson flytur.
20.00 Sprotar.
19.25 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu etni. Söguhornið
— Sagan hennar Systu eftir
Braga MagnUsson, Lovlsa
Einarsdóttir les. Kanlnan
með köflóttu eyrun, Dæmi-
sögur, Högni Hinriks og Mar-
It litla.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið.)
Þættir af unglingum fyrr og
nU. Umsjón: Slmon Jón Jó-
hannsson og Þórdls Mós-
esdóttir.
20.45 island-Spánn.
Bein lýsing frá seinni hálfleik
I undankeppni heimsmeist-
aramótsins I knattspyrnu á
Laugardalsvelli. Ingólfur
Hannesson og SamUel Örn
Erlingsson lýsa. (Rásir eitt og
tvö verða samtengdar.)
21.30 „italluferð sumarið
1908"
eftir Guðmund Finnbogason.
Finnbogi Guömundsson og
Pétur Pétursson lesa (4).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Leikrit:
„Raddir sem drepa" eftir
Poul Hendrik Trampe. Annar
þáttur endurtekinn. Þýðandi:
Heimir Pálsson. Leikstjóri:
Haukur J. Gunnarsson.
Hljóölist: Lárus H. Grlmsson.
Leikendur: Jóhann Sigurðs-
son, Þóra Friðriksdóttir,
12. júní
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 NáttUra irlands
Bresk heimildarmynd um Ir-
land, jarðsögu landsins,
náttUrufegurð, gróður og
dýrallf.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
21.45 Allt fram streymir . . .
(All the Rivers Run)
Anna Kristln Arngrlmsdóttir,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Andrés Sigurvinsson, Þór-
unn Magnea MagnUsdóttir,
Arnór Benónýsson, Jón
Hjartarson, Borgar Garð-
arsson og Pétur Einarsson.
23.15 Kvöldtónleikar — Róm-
antisk tónlist:
a. Tveir þættir Ur „Sumar-
næturdraumi" eftir Felix
Mendelssohn. E. Marton og
M. Szirmay syngja meö
Ungverska Utvarpskórnum
og Fllharmonlusveitinni I
Budapest: Andras Korodi
stjórnar.
b. Milliþáttartónlist Ur „Rósa-
mundu" eftir Franz Schub-
ert. Hljómsveit ungversku
Rikisóperunnar leikur; Adam
Sischer syngur.
c. „Söngur til kvöldstjörn-
unnar" Ur óperunni „Tann-
háuser" eftir Richard Wagn-
er. Hermann Prey syngur
með Filharmonlusveitinni I
Bratislava; Kurt Wöss stjórn-
ar.
d. Ungverskur dans nr. 5 eft-
Sjötti þáttur
Astralskur framhaldsmynda-
flokkur i átta þáttum, gerður
eftir samnefndri skáldsögu
eftir Nancy Cato.
Aðalhlutverk: Sigrid Thorn-
ton og John Waters.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.40 Fréttir I dagskrárlok
ir Johannes Brahms. Sinfón-
luhljómsveit i Vlnarborg leik-
ur; Yuri Ahronovitsj stjórnar.
e. Hjarösöngvar Ur „Rósa-
mundu" eftir Franz Schu-
bert. Kór og hljómsveit ung-
versku rlkisóperunnar flytja;
Adam Fischer stjórnar.
f. „Andante con moto" Ur
Sinfónlu nr. 8 I h-moll eftir
Franz Schubert. Sinfónlu-
hljómsveit LundUna leikur;
Sir John Barbirolli stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
12. júní
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
kl. 15.00 NU er lag
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Bárujárn
Stjórnandi: Sigurður Sverr-
isson.
17.00—18.00 Ur kvennabUrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja minUtna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR