Morgunblaðið - 12.06.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JtTNl 1985
Mikil eftirspurn
er eftir grálúðu
MIKIL eftirspurn er nú eftir grálúdu
víöa um heim. Talið er að ekki verði
unnt að anna eftirspurninni fyrr en
líða tekur á haustið.
Hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins fengust þær upplýsingar
að birgðir væru mjög litlar. 1 lok
apríl voru þær aðeins 40% af því
sem til var fyrir ári. Á sama tíma
voru birgðir í landinu samtals um
550 tonn á móti 1.330 tonnum í
fyrra.
Hjá Sambandinu hefur frysting
á grálúðu aukist um 30% á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs.
Ef litið er á Bandaríkjamarkað
sérstaklega framleiddi Sambandið
910 tonn af grálúðuflökum fyrir
þann markað árið 1984, en 640
tonn árið 1983.
Fyrstu fimm mánuði ársins
1985 var framleiðslan hinsvegar
þegar komin í 1.220 tonn.
Skákmótið í Eyjum:
Lein varð efstur
BANDARÍSKI stórmeistarinn Ana-
toly Lein bar sigur úr býtum á al-
þjóðlega skákmótinu í Vestmanna-
eyjum þrátt fyrir tap gegn Short frá
Englandi í síðustu umferð mótsins,
sem tefld var í gær. Lein hlaut 9'/i
vinning. Jón L Arnason og Jóhann
Hjartarsson gerðu jafntefli og missti
Jóhann þar með endanlega af stór-
meistaraáfanganum, jafnvel þótt
skák hans og Lombardys hefði verið
talin með.
Önnur úrslit í síðustu umferð
mótsins voru sem hér segir: Bragi
Kristjánsson og Ingvar Ásmunds-
son gerðu jafntefli, sömuleiðis
Helgi Ólafsson og Björn Karlsson.
Lombardy vann Ásgeir Þ. Ás-
geirsson. Guðmundur Sigurjóns-
son og Plaskett frá Englandi
gerðu jafntefli og Tisdall frá
Bandaríkjunum vann Karl Þor-
steins. Jóhann Hjartarson og
Helgi Ólafsson urðu í öðru og
þriðja sæti mótsins með 9 vinn-
inga, Nigel Short varð i fjórða
sæti með 8% vinning og Jón L.
Árnason og Guðmundur Sigur-
jónsson lentu í fimmta og sjötta
sæti með 8 vinninga.
Morgunblaðið/ Júlíus.
Fernt flutt á slysadeild
— eftir harðan árekstur í Ártúnsbrekku
HARÐUR árekstur varð í Ártúnsbrekku um klukkan
16.30 í gærdag er tveir fólksbflar rákust saman,
skammt neðan við Nesti. Slysið bar að með þeim
hætti að bifreið var ekið út frá Nesti og yfir óbrotna
línu á akbrautinni í veg fyrir bifreið sem var á leið úr
bænum. Við áreksturinn valt fyrrgreinda bifreiðin út
fyrir veg og kastaðist ökumaður út. Ökumaður, kona
og smábarn, sem voru í hinni bifreiðinni, voru flutt á
slysadeild svo og ökumaður bifreiðarinnar sem valt.
Að sögn lögreglunnar mun fólkið hafa meiðst talsvert
og bifreiðirnar eru stórskemmdar. Meðfylgjandi
mynd var tekin á slysstað í gær.
Laxalón:
Spurt og
svarad um
garðyrkjumál
MORGUNBLAÐIÐ býður les-
endum sínum í ár eins og und-
anfarin ár upp á lesendaþjón-
ustu um garðyrkjumál. Geta les-
endur komið spurningum sínum
á framfæri í síma 10100 á
morgnana milli klukkan 11 og
12 og munu svörin síðan birtast
í blaðinu nokkrum dögum síðar.
Fyrirspurnum þarf að fylgja
nafn og heimilisfang.
Morgunblaðið hefur fengið
Hafliða Jónsson garðyrkju-
stjóra Reykjavíkurborgar til
að svara þeim spurningum
sem kunna að koma frá les-
endum.
Selur 1,5 milljón regnboga-
silungsseiða til Noregs
EIGENDUR fískeldisstöðvarinnar
Laxalóns við Reykjavík hafa gert
samning við norska fiskeldismenn
um sölu á 1,5 milljón sumaröldum
regnbogasilungsseiðum. Seiðin
verða flutt út til Noregs í haust,
væntanlega með flugi. Söluverðið er
7—10 milljónir kr. I næsta mánuði
koma tankskip til að sækja 365 þús-
und eins árs regnbogasilungsseiði
og 50 þúsund laxaseiði af sjógöngu-
stærð, sem Laxalón seldi sömu aðil-
um í vetur.
Ólafur Skúlason framkvæmda-
stjóri Laxalóns sagði að aðdrag-
andi þessarar sölu væri sá að í
apríl hefði stjórn Laxalóns skrifað
landbúnaðarráðherra og forsæt-
isráðherra bréf þar sem lýst væri
yfir vilja eigenda stöðvarinnar til
að stuðla að hagnýtingu regnboga-
silungsstofnsins í fiskeldisstöðv-
um hér innanlands. í stöðinni
væru 2 milljónir hrogna sem gætu
gefið af sér um 1.000 tonn af fiski
við slátrun á næsta ári. Þetta væri
þó háð því að stjórnvöld tryggðu
fjármagn til uppbyggingar að-
stöðu fyrir regnbogann. Svar hefði
enn ekki borist við þessari mála-
leitan.
Ólafur sagði að í vor hefðu þeir
boðið Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði regnbogahrognin, en
því boði hefði verið hafnað. Þá
hefði Norðmaður, sem hér var
staddur til að taka út seiðin sem
flutt verða út í sumar, falast eftir
þeim og samningar náðst um sölu
á 1,5 milljón seiðum. Ólafur sagði
að þeir hefðu haldið eftir rúmlega
500 þúsund seiðum til eigin nota
og til dreifingar hér innanlands.
Hann sagði að mikil eftirspurn
hefði verið eftir regnbogasilungs-
seiðum og væru þeir búnir að lofa
nokkrum stöðvum, sem fengið
hefðu til þess leyfi, seiðum.
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar:
Meirihluti fylgjandi til-
boði Hvaleyrar hf. í BÚH
FUNDUR Bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar um tilboð Hvaleyrar hf. í
eignir og togara Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar stóð enn á miðnætti
Erlend skuldasöfnun er
langstærsti vandinn
— sögðu forystumenn stjórnarflokkanna
FORYSTUMENN stjórnarflokkanna voru sammála um það í eldhúsdags-
umræðunum á Alþingi í gærkvöldi að brýnasta verkefnið nú væri að
stemma stigu við erlendum lántökum. Talsmenn stjórnarandstöðunnar
töldu ríkisstjórninni hafa mistekist stjórn efnahagsmála og hún bæri hag
launþega síst fyrir brjósti.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, sagði í ræðu
sinni, að erlend skuldasöfnun
væri langstærsta vandamál
þjóðarinnar um þessar mundir.
A síðasta ári hefði 5 milljörðum
króna verið varið til þess að
greiða vexti af erlendum lánum.
Nú væri svo komið, að varla væri
unnt að taka nokkrar ákvarðanir
í þjóðmálum án þess að taka mið
af erlendu skuldastöðunni.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að
fyrsta verkefnið í efnahagsmál-
um væri að hamla gegn óhófleg-
um erlendum lántökum til
rekstrar og neyslu. Vegna sjáv-
arútvegsins væri mikilvægast að
hefta skuldasöfnunina vildu
menn treysta rekstrarstöðu
hans. Sagði Þorsteinn, að stuðn-
ingur Sjálfstæðisflokksins við
núverandi ríkisstjórn hljóti að
vera við það bundinn að sá ár-
angur náist í þessum efnum, sem
að var stefnt með samkomulagi
stjórnarflokkanna síðastliðið
haust. Augunum yrði ekki lokað
fyrir því að víða hefði gengið á
eignir atvinnufyrirtækja í sjáv-
arútvegi enda hefði verðmæti út-
flutningsins rýrnað um 8 millj-
arða frá árinu 1980.
Umræðurnar snerust einkum
um efnahags- og kjaramál.
Stjórnarandstæðingar töldu rík-
isstjórnina hugsa meira um hag
hinna efnameiri en þeirra sem
minna mega sín. Svavar Gests-
son, formaður Alþýðubandalags-
ins, sagði að kaupmáttartrygg-
ing væri úrslitaatriði í baráttu
launafólks og óhjákvæmilegt
væri að koma ríkisstjórn ríka
fólksins frá völdum. Jóhanna
Sigurðardóttir, varaformaður
Alþýðuflokksins, sagði ríkis-
stjórnina hafa misboðið launa-
fólki en á sama tíma lifði annar
hluti þjóðarinnar lúxuslífi.
Ræðumenn Bandalags jafnað-
armanna ítrekuðu þau stefnu-
mál sín að kjósa bæri
forsætisráðherra beinni kosn-
ingu, afnema þingræði og gera
landið að einu kjördæmi auk
þess sem fylkjum yrði komið á
fót með mikilli sjálfsstjórn.
Kristín Ástgeirsdóttir, einn
ræðumanna Kvennalistans,
fagnaði sérstaklega samstöðu á
Alþingi um tillögu um
afvopnunarmál og taldi hana og
ávarp kvenna um friðarmál boða
stefnubreytingu í utanríkismál-
um.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði með-
al annars um ályktun Alþingis
um friðar- og afvopnunarmál:
„Þar er sú stefna áréttuð að hér
eru ekki kjarnorkuvopn án sam-
þykkis íslenskra stjórnvalda.
Ennfremur eru hugmyndir um
kjarnorkuvopnalaus svæði
tengdar aðild Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna að gagnkvæmum
samningum um útrýmingu
kjarnorkuvopna. Sjálfstæð-
isflokkurinn stóð að þessari yfir-
lýsingu á þessum forsendum og
mun ekki láta rangtúlkanir for-
ystumanna Alþýðubandalagsins
breyta utanríkisstefnu íslands."
í nótt. Meirihluti bæjarfulltrúa
hafði þegar lýst sig fylgjandi kaup-
unum.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks, Félags óháðra borgara og
Framsóknarflokksins, átta að
tölu, voru fylgjandi því að tilboð-
inu yrði tekið. Fulltrúar Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags, þrír
að tölu, voru andvígir því að til-
boðinu yrði tekið og lögðu fram
frestunartillögur.
Kaupandi BÚH, Hvaleyri hf., er
nýtt hlutafélag í eigu Samherja á
Akureyri sem á 40%, hlutafélags
fjögurra eigenda Hagvirkis sem
eiga 10% hver, og Jóns Friðjóns-
sonar sem á 20%. Hlutafé Hval-
eyrar er 50 milljónir. Heildar-
kaupverð BÚH er 280 milljónir
sem greiðist þannig að Hvaleyri
yfirtekur skuldir fyrirtækisins
upp á 208 milljónir og greiðir eft-
irstöðvarnar á 10 árum. Lögð er
fram 30 milljóna króna trygging
og auk þess hinar seldu eigur.
Hvaleyri hf. ætlar hið fyrsta að
senda togarann Apríl á veiðar og
hefja starfrækslu fiskiðjuversins.
Apríl verður síðar breytt í frysti-
skip. Áætlað er að afhending
fyrirtækisins fari fram nk. föstu-
dag 14. júní.
'O
INNLENT