Morgunblaðið - 12.06.1985, Blaðsíða 19
valkostur fyrir þá alla, sem svipuð
viðhorf aðhyllast í þjóðfélagsmál-
um og sammála eru um meginlín-
urnar í þjóðfélagsskipaninni, en
leggja höfuðáherslu á, að kristin
viðhorf nái að móta löggjöf og
þjóðlíf. Markmið kristilega þjóð-
arflokksins er að vera hentugt
pólitískt verkfæri kristinni hugs-
un og starfi í þjóðfélaginu.
Orðið þjóðarflokkur felur það í
sér, að flokkurinn á ekki að vera
hagsmunavörður handa sérstök-
um hópum þjóðarinnar. Kristilegi
þjóðarflokkurinn er hugsjóna-
hreyfing, er gengur þvert á hefð-
bundnar markalínur. Hann hefir
þá líka hlotið stuðning frá mjög
breiðu litrófi þjóðfélagshópa. A
engan hátt skal gert lítið úr þeim
andstæðum, sem fyrir hendi eru í
þjóðfélaginu, en út frá því gengið,
að unnt sé að sameina fólk úr hin-
um ýmsu þjóðfélagsstéttum til
þess að vinna að pólitískum lausn-
um, er megi verða þjóðfélaginu í
heild til góðs.
Skynsemi og lífsviðhorf
I pólitísku starfi varðar mestu,
að unnið sé með vilja skaparans í
huga. Mannleg skynsemi og mat
hlýtur auðvitað að koma mjög til,
varðandi það, hvað þetta í einstök-
um atriðum felur í sér á hinum
pólitíska vettvangi. En skynsemin
verður ekki einangruð frá lífsvið-
horfinu. Hún mótast af baráttu
góðs og ills, er bundin grundvall-
argiidum, eigi hún að leiða það af
sér, sem er gott. Kristilegi þjóðar-
flokkurinn vill stuðla að þvf, að
andleg, menningarleg og efnisleg
gæði séu notuð í samræmi við
grundvallarreglur kristinnar sið-
fræði. Hann vill og vinna 'að því,
að þessar grundvallarreglur móti
löggjöfina.
Hið andlega svið
Kristinn mannskilningur bygg-
ist á því viðhorfi, að allir menn
séu skapaðir til samfélags við
Guð. Kristilegi þjóðarflokkurinn
vill skapa þær aðstæður, að allir
eigi sem greiðastan aðgang að
kristinni boðun og starfi. Söfnuðir
og kristileg félög innan þjóðkirkj-
unnar ásamt fríkrikjusamfélögum
og söfnuðum verða að fá góð
starfsskilyrði út frá eigin forsend-
um. í þeim mæli sem það er mögu-
legt eftir pólitískum leiðum, vill
flokkurinn vinna markvisst að því
að vernda og styrkja kristinn
menningararf á heimilum, í skól-
um og þjóðfélaginu í heild.
Lokaorð
í því sem rakið hefir verið hér
að framan hefir einkum verið
stuðst við bókina: „Kristelig Folke-
partis historie 1933—1983“, er út
kom um síðustu áramót, og
„Grunnsyn KrF“. Það hefir verið
farið fljótt yfir sögu og skal eigi
orðlengt frekar að sinni, aðeins
áréttuð upphafsspurningin: Mundi
ekki, einnig á íslandi, þörf á slík-
um flokki, flokki sem byggði á
þeim viðhorfum, sem hér var að
vikið?
Höfundur er sóknarprestur í Digra-
ncsprestakalli í Kópavogi.
andi farmaður, sem vann við
styrkingu varnargarðanna við
höfnina. Sam Boskum, blámaður
sem vann fyrir sér sem leigubíl-
stjóri. Ena býr í gömlum aflögðum
vita og er vinur allra. Vere-hjónin
eru ekki sem hamingjusömust, en
skrimta að því er virðist á engu.
Pryke sjóliðsforingi lifir á eftir-
launum.
Páll Ramsay er kennari, sem
býr með Greg bróður sínum. Allt
þetta fólk er góðkunningjar
Harrys.
„Ófreskjan í Tornwich" er
morðinginn kallaður í blöðunum.
Sumir álíta að hann hljóti að vera
brjálaður, áhrifin verða tor-
tryggni og grunur sem eitrar líf
kunningjanna og lamar þorpið. Og
tortryggnin eykst eftir því sem á
líður. Sagan er spennandi og per-
sónurnar gæddar holdi og blóði og
eftir því sem líður á söguna kemur
margt í ljós sem hefði betur legið í
þagnargildi.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNl 1985
19
Hópferð forn-
bílaklúbbsins
FÉLAGAR í fornbflaklúbbnum fóru
í hópferð á bflum sínum á laugardag.
Farið var í Hveragerði og bíl-
arnir hafðir til sýnis á því svæði
þar sem Hvergerðingar hafa sett
upp tívolí nú í sumar.
Að sögn Rúdolfs Kristinssonar,
formanns fornbílaklúbbsins, tókst
ferðin vel, enda veður gott og fé-
lagsmenn í besta skapi. Tívolígest-
ir sýndu bílunum mikinn áhuga og
voru þeir grannt skoðaðir, en Rúd-
olf segir að áhugi almennings á
fornbílum fari ört vaxandi og sé
mikill nú þegar.
Síðla dags var haldið heim á
leið, en áður en hópurinn ieystist
upp var farið á rútubílasýninguna
sem nú stendur yfir og bílarnir
sýndir þar nokkra stund. Með-
fylgjandi eru nokkrar myndir sem
ljósmyndari blaðsins tók af bílun-
um áður en lagt var af stað.
Morgunbladid/ölafur K. Mannússon
GAP
BÍIASÍMINN
VEITAÍ
SAMEININGU
FRÁBÆRA UÓNUSTU
Allir þeir sem notað hafa bílasíma á undan-
förnum árum hafa kynnst hinni frábæru
þjónustu sem veitt er á afgreiðslunni hjá 002.
Stúlkurnar þar taka starfið alvarlega,
— þeirra hlutverk er umfram allt
að koma á sambandi milli akandi símnotenda
og annarra næstum hvar
sem er á landinu
— og það gera þær svo sannarlega.
Þær koma skilaboðum, sjá um
að reyna aftur þegar viðkomandi bíll eða númer
svara ekki og eru að auki ein allsherjar
símaskrá fyrir bílasímanotendur.
AP bílasíminn kostar aðeins
56.900,- krónur.
ÞAÐ FÆST ALDREI AFTUR BÍLASÍMI Á ÞESSU VERÐI!
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistækí hf
Tæknideild — Sætúni 8. Sími 27500.