Morgunblaðið - 12.06.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1985
33
Kór Flensborgarskóla.
Tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju
KÓR Flensborgarskóla heldur
tónleika í Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudagskvöldið 13. júní kl.
20.30, en kórinn er nýkominn úr
söngferðalagi um austur- og norð-
urland, þar sem hann hlaut hinar
bestu móttökur.
Á efnisskrá tónleikanna eru
innlend og erlend lög frá ýmsum
tímum, og auk þess leika þrír
kórfélagar tvö verk saman á gít-
ar.
Stjórnandi kórsins er Hrafn-
hildur Blomsterberg.
Fréttatilkynning
Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda:
Þensla vegna erlends láns-
fjár ógnar sjávarútyeginum
KFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á aðalfundi Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda:
„Aðalfundur Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda vekur
athygli á því, í hve alvarlega stöðu
sjávarútvegurinn er kominn.
Taprekstur flestra fyrirtækja í
öllum greinum sjávarútvegs und-
anfarin ár hefur leitt til stöðnun-
ar í greininni. Þegar fyrir nokkr-
um misserum viðurkenndi sjávar-
útvegurinn í reynd, að um offjár-
festingu hefði þegar verið að ræða,
með því að stöðva smíði og inn-
flutning fiskiskipa og setja á
kvótakerfi til að reyna að draga úr
kostnaði við veiðarnar.
Á sama tíma hefur verið stór-
kostleg þensla á flestum öðrum
sviðum atvinnulífsins. Þessi
þensla hefur verið fjármögnuð
með erlendu lánsfé að miklum
hluta og þar hafa opinberir aðilar
oft gengið á undan með ótímabær-
ar og óarðbærar fjárfestingar.
Það skapast ekki skilningur á
mikilvægu hlutverki sjávarútvegs
til öflunar gjaldeyris á meðan
fjármagns til fjárfestinga og
rekstrar er aflað með erlendu
lánsfé, sem engin verðmæti
standa á bak við.
Sjávarútvegurinn í heild gengur
nú í gegnum mjög erfitt tímabil,
en er reiðubúinn að axla þær byrð-
ar, sem því fylgja að skapa hér
heilbrigt atvinnulíf. Þessi viðleitni
verður þó þýðingarlaus, nema
annar hluti atvinnulífsins og
opinber rekstur þurfi að fylgja
sömu stefnu.
Óhugsandi er, að haldið verði
uppi góðum lífskjörum í þessu
landi nema með öflugum, fram-
sæknum sjávarútvegi. Það verða
landsmenn að skilja. Þrátt fyrir
margyfirlýst markmið um að
skjóta fleiri stoðum undir at-
vinnulífið, ber sjávarútvegurinn
enn hitann og þungann af gjald-
eyrisöfluninni.
Sjávarútvegurinn lendir í því
sem frumvinnslugrein, að vinnu-
aflið sogast þaðan yfir í þjónustu-
greinarnar sem afleiðing af
gagnslausum bráðabirgðaráðstöf-
unum, sem halda uppi fölskum
lífskjörum og rangri gengisskrán-
ingu.
Eina krafa sjávarútvegsins er
sú, að hann fái að búa við þau
rekstrarskilyrði, að vel rekin
fyrirtæki skili eðlilegum hagnaði.
Það markmið næst þó ekki nema
dregið verði úr þessari tilbúnu
þenslu og þá mun sjávarútvegur-
inn aftur öðlast sinn fyrri sess
sem burðarás íslensks efnahags-
lífs.
Fundurinn felur stjórn og fram-
kvæmdastjóm samtakanna að
fylgja þessari samþykkt eftir með
öllum tiltækum ráðum."
Líf ad færast
í Laxá á Asum
Siðustu fregnir herma, að lax-
inn sé farinn að ganga í Laxá á
Ásum og í gær voru nokkuð á
annan tug laxa komnir á land,
laxinn byrjaði að veiðast um
helgina og hefur verið reytings-
afli siðan. Er þetta vænn lax svo
sem endranær svona í byrjun
veiðitíma. Mest hefur veiðst að
sögn í „Dulsum" og Klettakvörn.
Hörkuveiöi í Mývatns-
sveitinni og Laxárdal
„Veiðin hefur gengið mjög vel,
það hafa komið eitthvað yfir 600
urriðar á land sem náð hafa lág-
marksstærðini, 35 sentimetra
langir. Veiðin hófst 1. júní og
það hefur verið yfirleitt fullbók-
að á þær 18 stangir sem veitt er
á í Laxánni á þessu svæði,“ sagði
Hólmfríður Jónsdóttir veiðivörð-
ur á Arnarvatni í Þingeyjarsýslu
í samtali við Mbl. í gærdag.
Kvótinn í Laxá efra er 10 fisk-
ar, 35 sentimetrar eða stærri,
margir hafa fyllt kvótann og
einn þeirra, Gunnar Rafn Jóns-
son frá Húsavík hefur fengið 50
fiska á 5 dögum. Meðalþunginn
er 2—3 pund og fiskurinn mjög
feitur og góður, „bitmýslirfan
kom snemma í ána og þess vegna
er fiskurinn í góðum hoidum og
feitur miðað við lengd,“ bætti
Hólmfríður við. Hún sagði að
mest væri veitt á straumfluguna
Black Ghost sem þvkir minna á
hornsíli, en Þingeyingur og
Hólmfríður koma þar á eftir,
alltaf drjúgar flugur. „Það hefur
svolítið veiðst einnig á Frances
og Akureyringar sem hér voru
fyrir skömmu veiddu mikið á
flugu sem þeir nefndu „Wizard“,
sagði Hólmfríður.
Frá miðjum júlí er talsvert til
af veiðileyfum í Laxá í Mý-
vatnssveit, heill dagur kostar
1000 krónur, en hálfur dagur 550
krónur. Eins og frá var greint í
Mbl. í gær, hefur einnig aflast
afar vel í Laxárdalnum, sem er
neðri hluti urriðasvæðisins, hver
af öðrum fylla menn kvótann
þar þessa dagana og ekki er fisk-
urinn smærri nema síður sé. Hjá
Hólmfríði voru allmargir 5
punda fiskar komnir á þurrt og
voru þeir stærstir. Varla líður
það sumar þarna nyrðra að það
veiðist ekki 7—9 punda fiskar.
Hvert sæti skipað í Kjósinni, tveir þenja stangirnar í Laxfossi, annar úti
í ánni, hinn uppi á klettinum og kastar yfir félaga sinn. Myndin er frá
opnuninnL
Kristján Jónsson tek-
ur við Góðu fólki
í SÍÐUSTII viku tók Kristján Jóns-
son við starfi framkvæmdastjóra
auglýsingastofunnar Góðs fólks, á
Kristján Jónsson, hinn nýi forstjóri
auglýsingastofunnar Gott fólk.
Suðurlandsbraut 4, af Ólafi Inga
Olafssyni. Kristján starfaði áður hjá
Ólafi Stephensen við auglýsingar og
almannatengsl, en flytur nú til syst-
urfyrirtækis ÓSA.
Kristján Jónsson er stúdent frá
Verslunarskóla íslands. Hann
stundaði nám í viðskiptafræðum
við Háskóla íslands, en lauk BA-
námi i augiýsinga- og markaðs-
fræðum við University of South
Florida um síðastliðin áramót
með „Honours degree".
AugJýsingastofan Gott fólk er
ein af yngri auglýsingastofum
hérlendis. Stofan hefur starfað
fyrir Bú ’84, Blóm og ávexti, Glób-
us, Heilsuhúsið, Heimilistæki,
Kanaríklúbbinn, Nóa, Síríus,
SÁÁ, Samband sparisjóða, Skelj-
ung, Stéttarsamband bænda, Úr-
val og Völund, auk verkefna fyrir
ýmsa aðra.
(Fréttatilkynning)
Dómkórinn í Reykjavík
Dómkórinn syngur í Landakotskirkju
DÓMKÓRINN í Reykjavík heldur tónleika í Landakotskirkju fimmtudaginn 13.
júní og hefjast þeir klukkan 20.30. Dómkórinn hefur starfað í tveimur hópum frá
síðustu áramótum og undirbúið tvær tónleikaferðir, aðra til Kaupmannahafnar og
Lundar og hina til Færeyja.
í Kaupmannahöfn syngur kórinn í
Sanct Paulskirkju sunnudaginn 23.
júní og í Helligandskirkju mánudag-
inn 24. júní. Síðan fer kórinn til
Lundar og syngur í Dómkirkjunni
þar á þriðjudag, 25. júní. Á efnis-
skránni eru verk eftir Helmer Nör-
gaard, Knut Nysted, Mozart, von
Herzogenberg og Hugo Wolf. Af ís-
lenskum verkum flytur kórinn tvö
verk, sem samin voru fyrir Dómkór-
inn á síðustu árum, „Áminning" eft-
ir Þorkel Sigurbjörnsson og „Gloria"
eftir Hjálmar Ragnarsson.
Fjórir einsöngvarar syngja með
kómum, þau Sigrún V. Gestsdóttir,
Anna S. Helgadóttir, Sigursveinn K.
Magnússon og Ingólfur Heigason.
Stjórnandi kórsins er Marteinn H.
Friðriksson. Aðgangur að tónleikun-
um í Landakirkju er 100 krónur og
verður seldur við innganginn.
(Úr fréttatilkynningu.)
f
I
i
Hitt-leikhúsið:
Edith Piaf
keypt suður
HITT-leikhúsið hefur keypt sýningu
Leikfélags Akureyrar um söngkon-
una Edith Piaf og mun sýna hana í
Gamla Bíói í sumar. Allir helstu leik-
jarar í sýninguni nyðrra koma fram í
Reykjavík svo og þeir sem sáu um
sýninguna baksviðs á Akureyri. Sýn-
ingar á „Piaf“ hefjast þann 21. júní.
Hitt-leikhúsið hóf starfsemi
sína í janúar sl. með sýningu á
söngleiknum „Litla hryllingsbúð-
in“ sem sýnd var fyrir fullu húsi
fram í maí. Um 30.000 manns sáu
þá sýningu. Að sögn Páls Baldvins
Baldvinssonar annars stjórnenda
leikhússins hefur verið ákveðið að
sýna „Hryllingsbúðina" áfram
næsta haust. Fleira er einnig á
döfinni þó ekki hafi verið ákveðið
hvaða ný leikhúsverk verði tekin
til sýninga á næsta vetri. Þannig
standa nú yfir samningaviðræður
við aðila í Svíþjóð um sýningar-
rétt á kvikmyndinni „Ronja ræn-
ingadóttir" sem sýnd var í tvo
daga á kvikmyndahátíð Listahá-
tíðar. Ef þeir samningar takast er
í bígerð að sýna hana með íslensku
tali í einhverju kvikmyndahús-