Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 75 Genscher: „Nei sko, hvad ég var stór einu sinnit“ umhverfismálum. í þeim efnum eru þeir á móti flestu, sem gert hefur verið og gera á, og yfirleitt virðast þeir vera á móti öllu kerfinu eins og það leggur sig. Þetta gerir þá ekki vel hæfa til samstarfs við neinn hinna rót- grónu stjórnmálaflokka, sem hafa nú einu sinni myndað þetta þjóðfélagskerfi, sem við búum við, hvort sem þeir hafa verið við stjórnvölinn eða í andstöðu, og það er ólíklegt, að þeir vilji meiri háttar röskun á því. Reyndar er ekkert við því að segja, að ný öfl og nýir straumar líti dagsins ljós; það er m.a.s. æskilegt og óhjákvæmilegt í lifandi þjóðfé- lagi, en samt sem áður hef ég skelfing litla trú á hæfni græn- ingjanna. Það væri aðeins gleði- legt, ef ég hefði rangt fyrir mér í því efni. Ilér að ofan minntist ég á stofnun tveggja stjórnmálaflokka. Hinn flokkurinn nefnist „lýðveldis- sinnaðir sósíalistar" (demokrat- ische Sozialisten) og mætti skipa þeim á bekk vinstra megin við sósíaldemókrata. Finnst mér þeir koma allnærri kommúnist- um, þótt þeir séu sennilega ekki eins róttækir í skoðunum. Ekki er víst, að þessir nýflokkar verði lífseigir; það fer sjálfsagt líka eftir því, hvernig núverandi stjórn tekst til við lausn allra þeirra vandamála, sem þjóðin berst við. En eitt veit ég: það er varla nokkur maður, sem áttar sig almennilega á öllu því, sem er að gerast innan hinna ýmsu hreyfinga, sem skjóta upp koll- inum hver af annarri. Nú, er ég hef gert mér far um að skýra frá sem flestu, sem er upp á teningnum hér um þessar mundir, get ég varla verið þekkt fyrir að ljúka orðum mínum án þess að minnast einu orði á stærsta stjórnmálaflokk lands- ins og jafnframt því mikilvægari stjórnarflokkinn: kristilega demókrata. Það heyrist reyndar fátt af þeim vettvangi sem stendur; allt virðist fara fram í sátt og samlyndi á þeim bæ. Þeir mega heldur ekki vera að því að rífast, af því að þeir eru svo önnum kafnir við að stjórna og knýja fram umbætur, þar sem þeirra er þörf (hvort það eru allt umbætur, skal samt látið liggja á milli hluta). Helmut Kohl kanzlari þeytist á milli landa, eins og hann haldi, að hann hafi ekki mikinn tíma til stefnu — kannski bara til 6. marz. Franz- Josef Strauss, „ljónið frá Bay- ern“, hnýtir öðru hverju óþyrmi- lega í samstjórnarflokkinn, FDP, en fær ekki tiltakanlegar ádrepur fyrir, enda lætur hann ekki stinga upp t sig. Það er haft á orði, að hann eigi sér enga ósk heitari en þá að komast í stól utanríkisráðherra eftir næstu kosningar, en það er því aðeins hægt, ef FDP verður undir í kapphlaupinu um 5%-in og Hans Dietrich Genscher neyðist þar með til að rýma sætið. En eng- inn — jafnvel ekki beztu spá- menn — getur sagt, hvernig úr- slitin verða 6. marz. Maður bara bíður og sér til. Iserlohn, 1. desember 1982, Elín J. Jónsdóttir Richter. ♦ ♦ MOÐSOQUR SIGFIÍSAR SlGFÚSSOmR Út eru komin 4 bindi nýrrar úgtáfu af hinu mikla og merka safni Sigfúsar Sigfússonar: íslensk^r þjódsögur og sagnir. Flestar sögurnar skráði Sigfús eftir íólki á Austur- landi kringum síðustu aldamót. Ymsar þeirra hafa ekki birst áður, en flestar hinna eru hér í eldri gerð og upphaf- legri en i fyrri útgáfu. Óskar Halldórsson dósent býr þjóðsögurnar til prentun- ar og skrifar formála. Hér er komið stærsta safn íslenskra þjóðsagna sem skráð hefur verið. Þessi fjögur bindi eru kringum 1600 blaðsíður. Fyrri útgáfa þessara þjóðsagna er löngu uppseld. ÞJÓÐSAGA ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.