Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 11
Gunnar Þórðar leikur á tölvuvæðinguna Hljóm- plotur Árni Johnsen Við nánari kynni óx skjótt tónlist Gunnars Þórðarsonar á nýjustu plötu hans, sem ber nafn hans og Pálma Gunnarssonar, sem syngur öll lögin, og er það í fyrsta skipti sem einn söngvari syngur öll lögin á plötu Gunnars, en það er Fjölnir sem gefur plöt- una út. Stundum er það svo með frétt- ir í blöðunum, að þær eru eins konar froðusnakk og menn stikla á þeim. Þannig er oft með dæg- urtónlist, hún fer inn um annað eyrað og út um hitt, en Gunnar Þórðarson hefur fyrir löngu sýnt að tónlist hans kallar á fulla hlustun og athygli, því hún er flókin og vex af sjálfri sér. Fyrst þegar ég hlustaði á þessa nýju plötu Gunnars og Pálma varð ég fyrir vonbrigðum, en við nánari kynni kom í ljós að hér er á ferðinni ein af þessum plötum sem vinna á og það er reyndar ekkert nýtt með plötur Gunna Þórðar. Má þar til dæmis nefna plötuna Himinn og jörð frá síðasta ári. Lögin eru þó mjög misjöfn, en meðal laga á þessari plötu eru nokkur lög sem ég tel með þeim beztu sem Gunnar hefur samið og má þar nefna Aftur heim, Gísli í Uppsölum og Kona, sem er gullfallegt lag með hlýlegum og viðkvæmum texta Toby Her- man. í öðrum lögum spreytir Gunn- ar sig á nýjum tón og til dæmis má nefna lagið Hleyptu mér inn, sem er mjög þungt lag, en skemmtilega útfært. Kveiktu ljós er einnig erfitt lag í við- kynningu, enda ríkir mikil spenna í því og gefur textinn þeirri stemmningu reyndar einnig undir fótinn. Af öðrum athyglisverðum lögum má nefna Velgengni og Á Uppsölum sem er sérkennilegt lag af hálfu Gunnars, spilað og raddað án orða, minnir nokkuð á gregorísk- an söng, en samt nýtur sín í því stemmning dalanna og fjallanna sem það á að höfða til. Ein af perlum Gunnars þar sem hann kemur sífellt á óvart. í nokkrum laganna þykir mér textinn vera of aftarlega í tón- listinni og er það galli, jafnvel þótt textarnir séu veikasti punktur plötunnar. Pálmi Gunnarsson skilar vel sínum hlut að vanda, enda löngu kunnur sem einn bezti og örugg- asti dægursöngvari landsins. Tölvutónlistin ræður ríkjum á þessari plötu og heldur finnst mér það út úr stíl Gunnars Þórð- arsonar, en einnig þar vex vegur plötunnar við nánari kynni þeg- ar maður fer að átta sig á leikn- um, en leikur Gunnars á gítar og Pálma á bassa auk saxófóns og hljómborðs, tengir saman gam- alt og nýtt í þessum efnum. Talvan kemur orðið víða við sögu, en ekki gefur hún enn sama blæ og manneskjan, hvorki í þessum efnum né öðrum. Gunnar Örn og Guðbergur Auðunsson hafa hannað umslag- ið og er það smekklega gert, en þessir ágætu listamenn hafa ekki gert vel í því að vera að hringsóla með textann á plötu- umslaginu þar sem almennar upplýsingar eru. Fyrst og fremst ber þessi plata þess merki að Gunnar Þórðarson og Pálmi Gunnarsson bera hita og þunga verksins og vissulega er það traust einkunn. Hefur þú kynnst sígildum hljómburði Scala óperunnar í Mílanó, Boston Symphony Hall, Planetarium eða Royal Albert Hall í London? Vissir þú að á slíka staði eru E9 hátalarar valdir, auðvitað vegna hljómgæðanna? Það er því engin tilviljun, að heimsfrægt kunnáttufólk á borð við Herbert von Karajan, Miles Davis og strákana í hljómsveitinni Electric Light Orchestra (ELO) kjósa M hátalara til eigin nota, auðvitað vegna hljómgæðanna. EH hátalarar hafa einstakt tónsvið. Það sem skiptir þó öllu máli í reynd er hinn hárnákvæmi tónblær þeirra, hvernig þeir endurhljóma nákvæmlega hin ólíkustu hljóð- færi, einmitt þannig sem kunnáttufólk kýs og kann að meta. HÚN? dáö hana' varö Þ'tl Y\atta* AdÞ'ola ve$na s'^dst öún fs\\taf ð' s h\ó"aÞa "“eim 'aW' t\d- nTeðutstU • eX lS^u KV\W a\\títa i3ESKw 83.58

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.