Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 26
74 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 ■BH Elín J. Jónsdóttir Richter skrifar frá Vestur-Þýskalandi Straumhvörf eða dægurflugur? Helmut Schmidt (Lv.) fyrrverandi kanzlari og Hans Jochen Vogel (t.h.) kanzlaraefni sósíaldemókrata. Eftir stjórnarskiptin umdeildu fyrir nokkrum vikum skyldi maður ætla, að kyrrð færi að færast yfir í stjórnmálunum, en það er nú síður en svo. Mestur styrr stendur enn sem fyrr um flokk frjálslyndra (FDP) og rísa öldurnar hátt. Fyrir nokkru var flokksþing þeirra haldið í Berlín og fór það ekki með öllu hávaða- laust fram. Enji sem áður deila flokksmenn mjög um „vista- skiptin"; töluvert stór hópur er algerlega mótfallinn samstarf- inu við kristilega demókrata (CDU/CSU); aðrir telja, að skilnaðurinn við sósíaldemó- krata hafi verið óumflýjanlegur, en gagnrýna harðlega, hvernig hann fór fram. Aðalbitbeinið er Hans-Dietrich Genscher, for- maður flokksins og fyrr- og nú- verandi utanríkisráðherra, sem virðist hafa verið potturinn og pannan í öllum þeim umbrotum, sem á undan gengu. Það kom þó fram, að Genscher nýtur enn stuðnings meirihluta flokks síns, því að hann var endurkjörinn formaður hans, þótt hann hlyti mun færri atkvæði en undanfar- in tímabil. Andstæðingar Genschers höfðu lagt hart að Gerhart Baum, fyrrum innan- ríkisráðherra, sem þykir hallast töluvert til vinstri, að bjóða sig fram til formennskunnar, en hann færðist undan. Þá var Uwe Ronneburger, formaður flokks- deildarinnar í Schleswig-Hol- stein, fenginn til framboðsins, en fylgi hans var ekki nægilegt til sigurs. Samt sem áður sýndu atkvæðatölur greinilega, hversu mjög stuðningur við Genscher hefur rýrnað, því að hann hlaut aðeins 222 atkvæði af 400 mögu- legum, sem þykir ekki til að státa sig af. Ronneburger fékk 169 atkvæði. Tilfinningahiti var mikill á flokks- þinginu; það var ekkert eins- dæmi, að ræðumenn gerðu grein fyrir afstöðu sinni með tárin í augunum, geðshræring skein úr svip margs þátttakandans, og þeir voru ófáir, sem viknuðu undir ræðum flokksfélaga sinna. Einn sjónvarpsmaður sagðist aldrei hafa séð aðra eins geðs- hræringu á flokksþingi, og hefði hann þó fylgzt með þeim mörg- um undanfarin 25 ár. Það var alveg augljóst, hversu mjög menn tóku þetta „uppgjör" nærri sér. Kosið var í stjórn flokksins á fyrsta degi þingsins. Þegar séð varð að Genscher héldi for- mannssætinu, gengu margir flokksmenn samstundis úr flokknum. Þekktastur þeirra er Ingrid Mattháus-Maier, sem hef- ur getið sér góðan orðstír sem sérfræðingur í efnahagsmálum, og er flokknum mikill missir að henni. Aðalritari flokksins, Gunter Verheugen, hafði sagt sig úr flokknum nokkrum dögum áður, en hann var mjög fylgjandi þeirri hugmynd að stofna nýjan stjórnmálaflokk ásamt Ingrid Mattháus-Maier og öðrum sam- sinna félögum. En stuttu síðar tilkynnti Mattháus-Maier, að hún myndi ganga í flokk sósíal- demókrata (SPD), jafnskjótt og hún hefði afsalað sér þingsæti sínu. Hún virðist ekki ætla að tapa á skiptunum, því að fréttin var enn glóðvolg, er formaður sósíaldemókrata, Willy Brandt, bauð henni sigurstranglegt sæti á framboðslista flokks síns í kosningunum til sambands- þingsins, sem eigi að fara fram 6. marz nk. Þrátt fyrir að nokkuð sé um liðið síðan flokksþingið var haldið, berast svo til daglega fregnir um úrsagnir úr flokki frjálslyndra. Margir þeirra, sem nú snúa baki við FDP, höfðu ver- ið í fremstu röð í flokksstarfinu í mörg ár, og ákvörðunin um að segja sig úr flokknum hefur ef- laust ekki verið auðveld fyrir alla. Þrátt fyrir það, að ýmsir fyrr- verandi FDP-flokksfélagar hafi tilkynnt inngöngu sína í SPD (flokk sósíaldemókrata), eru fjöldamargir, sem hafa stofnað með sér svokölluð frjálslynd fé- lög (liberale Vereinigungen). Þess verður að öllum líkindum langt að bíða, að flokkur frjáls- lyndra nái sér eftir öll þau áföll, sem á honum hafa dunið síðan í september sl., og það verður ör- ugglega ekki fyrir fyrirhugaðar þingkosningar 6. marz nk. Það verður því æsispennandi að fylgjast með gangi mála riæstu mánuðina, því að ef flokkurinn nær ekki innbyrðis samstöðu aftur, er með ólíkindum, að hann fái þau 5% atkvæða, sem nauð- synleg eru til að vera áfram á þingi. Sunnudagurinn 28. nóvember varð sögulegur dagur á sviði stjórn- mála hér. Þann dag voru hvorki meira né minna en tveir nýir stjórnmálaflokkar stofnaðir. Annan þeirra, flokk frjálslyndra demókrata (liberale Demokrat- en), stofnuðu nokkur hinna áð- urnefndu frjálslyndu félaga, en stofnendur eru frekar vinstri- sinnaðir og hallast að samstarfi við sósíaldemókrata. Á stofn- fundinum voru mestar umræður um það, hvort flokkurinn ætti að leggja fram framboðslista til áð- urnefndra þingkosninga, en ákvörðun um það var frestað til fyrsta flokksþingsins, sem á að halda í janúar nk. — Daginn fyrir þessa flokksstofnun hafði Samband ungra frjálshyggju- sinna sagt skilið við aðalflokkinn (þ.e. FDP), án þess þó að kunn- gera, hvaða braut þeir hygðust ganga í framtiðinni. Eins og sjá má, er upplausn frjálslyndra al- ger, og enginn veit, hvað koma skal. Það er mér því mikið efa- mál, hvort þessum hópum tekst að yfirvinna 5%-tálmann við næstu þingkosningar. Allra augu beinast nú að 6. marz, eftir að núverandi stjórnhafar sverja og sárt við leggja, að þá verði kosið, en efasemdum hefur samt ekki endanlega verið rutt úr vegi. Kosningabaráttan verð- ur vafalaust mjög hörð, og segja má, að hún sé þegar byrjuð. Sósíaldemókratar útnefndu Hans Jochen Vogel sem kanzl- araefni sitt eftir að Helmut Schmidt, fyrrum kanzlari, var ófáanlegur til að gefa kost á sér í það embætti aftur. Munu heilsu- farslegar ástæður hafa ráðið þar mestu um, en Helmut Schmidt mun verða i framboði sem þing- maður. — Hans Jochen Vogel er þekktur og virtur stjórnmála- maður. Hann var lengi vel yfir- borgarstjóri í Milnchen við góð- an orðstír. Þegar sem mest gekk á í fylkisþinginu í Berlín um ár- ið, var hann kvaddur þangað sem yfirborgarstjóraefni flokks síns þar. Eins og kunnugt er, urðu kristilegir demókratar ofan á í kosningunum í Berlín, og gegnir Richard von Weizsácker embætti yfirborgarstjóra þetta kjörtímabil. Hans Jochen Vogel varð samt um kyrrt í Berlín sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann þykir mjög áreiðanlegur maður, en sá eiginleiki þykir ekki prýða alla stjórnmálamenn; og hann þykir hófsamur í orði og æði. Ég held, að sósíaldemókrat- ar hefðu ekki getað valið betra kanzlaraefni, úr því að Helmut Schmidt gefur ekki kost á sér. Kins og ég hef vikið að í fyrri pistl- um, er tiltölulega nýtt afl í stjórnmálaheiminum, sem lætur að sér kveða og nýtur vaxandi fylgis, einkum á meðal ungs fólks, en hér á ég við „græningj- ana“. Að sjálfsögðu sækjast þeir líka eftir að ná sætum á sam- bandsþinginu, og verður að gera ráð fyrir, að það takist. Ég veit ekki, hvort það er æskilegt, að græningjar komist á þing og hafi þar með áhrif á gang mála. Þeir virðast ekki hafa neina af- markaða stefnu nema þá helzt í Pízza rtalíana framleidd hérá landi Útsölustaðir: KJORVAL VOGAVER KJÖTHÖLLIN Mosfellssveit Gnoðavogi 44 Háaleitisbraut 58-60 FJARÐARKAUP STRAUMNES HAMRAKJÖR Trönuhrauni 8 Vesturbergi 76 Stigahlíð 45-47 S.S. HÓLAGARÐUR MÚLAKJÖR Laugavegi 116 Lóuhólum Síðumúla 8 ÁSGEIR KRON SUNDAVAL Tindaseli 3 Norðurfelli Kleppsvegi 150 BREIÐHOLTSKJÖR S.S. HAGABÚD Arnarbakka 4-6 Iðufelli Hjarðarhaga 47 BORGARKJÖR Dalver HVAMMSEL Grensásvegi 26 Dalbraut 3 Smárabarði 2 KÓPAVOGUR Ásgeir ÁLFASKEIÐ Hamraborg 8 Efstalandi 26 Álfaskeiði 115 KAUPGARÐUR KJÖT OG FISKUR KAUPF. HAFNF Engihjalla 4 Seljabraut Miðvangi 41 BREKKUVAL VÖRUMARKAÐURINN NESVAL Hjallabrekku2 Ármúla Melabraut 57 SUNNUKJÖR S.S. LAUGARÁS Skaftahlið 24 Glæsibæ Norðurbrún 2 NÓATÚN S.S. KAUPF'. HAFNF Nóatúni 17 Austurveri Garðaflöt 16-18 VÍÐIR KJÖTMIDSTÖÐIN KRON Starmýri 2 Laugalæk 2 Álfhólsvegi 32 VÍÐIR VALGARDUR GRENSÁSKJÖR Austurstræti 17 Leirubakka 36 Grensásvegi 46 AuöbrekKa 36 200 Kópavogi. Island. m inirnti rrrtl r t tm n 11 m ■TtTff-t—■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.