Morgunblaðið - 14.08.1982, Side 36
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
Síminn á afgreióslunni er
83033
Jílorxjiinbttitiiíí
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10-100
Jttoruimfolíifrifo
Ríkisstjórnarfundur á þriðjudag:
BráÖabirgðalög um
skerðingu vísitölu?
NIÐURSTAÐNA í væntanlegum efnahagsaögerdum ríkis-
stjórnarinnar er vart að vænta fyrr en í fyrsta lagi á þriðju-
daginn, en þá kemur ríkisstjórnin saman til næsta reglulegs
fundar. Vænta stjórnarliðar Framsóknarflokks þess, að for-
sætisráðherra leggi þá fram drög að bráðabirgðalögum, sem
fela m.a. í sér skerðingarákvæði vísitölubóta á laun. I viðtöl-
um við stjórnarliða í gærkvöldi kom í Ijós að menn telja ekki
unnt að sjá fyrir um úrslit mála fyrr en á þeim hinum sama
fundi.
Ráðherranefndin um efna-
hagsmál kom saman á mjög stutt-
um fundi í gær og kom þar ein-
göngu fram að staða mála er svo
til óbreytt innan þingflokkanna,
og að ekki hefur náðst saman inn-
an þingflokks Alþýðubandalags-
ins. Þingflokkar Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalagsins
komu síðan saman til funda síð-
degis og samkvæmt heimildum
Mbl. hafa framsóknarmenn ákveð-
ið að bíða átekta þar til á ríkis-
stórnarfundinum á þriðjudag,
þrátt fyrir að þeir hafi áður lýst
því yfir að 15. ágúst væri loka-
dagur af þeirra hálfu hvað varðaði
ákvarðanatöku. Þingflokkur Al-
þýðubandalagsins kom saman síð-
degis og var ákveðið að halda
áfram umfjöllun um málin yfir
helgina, en eins og komið hefur
fram í fréttum eru ekki allir á eitt
sáttir innan þingflokksins um
hvernig staðið skuli að málum.
Framsóknarmenn þeir er Mbl.
ræddi við í gærkvöldi reikna með
að Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra leggi fram bráðabirgða-
lög um skerðingarákvæði og fleira
á fundinum á þriðjudag og einn
viðmælendanna lýsti þeim laga-
gjörningi svo, að þar væri um að
ræða bráðabirgðalög sem for-
sætisráðuneytinu bæri að leggja
fram og yrðu þau hliðstæð Ólafs-
lögum, sem sett voru í forsætis-
ráðherratíð Ólafs Jóhannessonar.
Ákvæði Ólafslaga, svonefnt skerð-
ingarákvæði, kemur eins og kunn-
ugt er af fréttum inn í útreikning
vísitölubóta á laun 1. september
nk.
Um 34% fjölgun farþega
í Atlantshafsfluginu
Farþegum á flugleiðinni Keflavík-Luxemborg hefur fjölgað um 75%
FARI’EGAFJÖLDI Flugleiða milli Bandaríkjanna og Evrópu
hefur verið mun meiri það sem af er árinu og kemur það heim
og saman við þær spár, sem sætaframboð Flugleiða var byggt
á, en það var aukið um nær 30% frá fyrra ári. Farþegar
félagsins á Norður-Atlantshafinu á tímabilinu janúar til loka
júlímánaðar voru liðlega 96.100 talsins, en til samanburðar
voru þeir liðlega 71.700 á sama tíma í fyrra, eða 24.400 fleiri.
Aukningin milli ára er um 34%.
I fréttabréfi Flugleiða segir
m.a.: „Eins og fram kom á fundi
Alþjóðasambands flugfélaga,
IATA, fyrir skömmu, eru fargjöld
hins vegar enn of lág á þessari
flugleið miðað við tilkostnað.
Heldur þokast þó í rétta átt í þeim
efnum. Yfir háannatímann fljúga
þotur Flugleiða 12 sinnum í viku
milli Evrópu og Bandaríkjanna."
Þá má geta þess, að farþega-
fjöldinn á flugteiðinni milli Kefla-
víkur og Luxemborgar hefur auk-
izt um 75% milli ára. Á þessu ári
hafa verið fluttir tæplega 14.000
farþegar á þessari flugleið, en á
sama tíma í fyrra voru farþegarn-
ir tæplega 8.000 talsins.
Almennt hafa flutningar milli
íslands og annarra Evrópulanda
hins vegar staðið í stað hvað varð-
ar farþegafjölda miðað við sama
tíma í fyrra.
Farþegum í innanlandsflugi
Flugleiða hefur ennfremur fjölgað
nokkuð frá fyrra ári, en sam-
kvæmt bráðabirgðatölum hefur
þeim fjölgað um liðlega 5,4%. Til
samanburðar má geta þcss, að á
árinu 1980 fækkaði farþegum í
innanlandsflugi
vegar um 2,5%.
Flugleiða hins
Ahrif 6 prósentustiga vaxtahækkunar:
Vextir af skulda-
bréfum myndu
hækka um 15%
Seðlabanki gerir ennfremur tillögu um, ad van-
skilavextir verði hækkaðir úr 4% í 5%, eða um 25%
SEÐLABANKI ÍSLANDS hefur gert tillögur um það til ríkis-
stjórnar, að almennir vextir, aðrir en af gengis- eða verð-
tryggðum lánum, verði hækkaðir um 6 prósentustig og að
vanskilavextir verði hækkaðir um eitt prósentustig, eða úr 4%
í 5%, sem er 25% hækkun.
Ef tillögur Seðlabankans verða
samþykktar þýðir það t.d., að
vextir af skuldabréfum hækka úr
40% í 46%, eða um 15%. Sem
dæmi um áhrif slíkrar hækkunar
mætti hugsa sér lífeyrissjóðslán
upp á 50.000 krónur til 25 ára. Af-
borgun af slíku láni væri 2.000
krónur, en vextir samkvæmt eldri
vaxtaákvörðun 20.000 krónur á
ári, en 23.000 krónur á ári ef um-
rædd 6 prósentustiga hækkun yrði
samþykkt.
Vextir af víxlum myndu hækka
úr 32% í 38%, eða um 18,75%.
Dæmi um áhrif þeirrar hækkunar
væri t.d. víxill upp á 30.000 krónur
HÆPIÐ er aó landsmenn fii
eins góða tíð til málningarvinnu
um helgina eins og er þessi
herramaður vann við að mila
ankeri skips sins í vikunni. Búizt
er við austan- og suðaustanátt
um allt land um helgina. Súld og
rigningu sunnan- og vestanlands,
en að veður verði að mestu úr-
komulaust norðanlands. Að sögn
Veðurstofunnar hlýnar lítillega í
veðri um allt land.
til eins árs. Ársvextir samkvæmt
gildandi vaxtaákvörðun væru
9.600 krónur, en yrðu ef umrædd
hækkun yrði samþykkt 11.400
krónur.
Eins og áður sagði er í tillögun-
um gert ráð fyrir, að vanskilavext-
ir hækki um eitt prósentustig, úr
4% í 5% á mánuði, sem er 25%
hækkun. Dæmi um áhrif þeirrar
hækkunar væri 20.000 króna lán,
sem væri í vanskilum í einn mán-
uð. Vanskilavextir af því eru 800
krónur samkvæmt gildandi vaxta-
ákvörðun, en yrðu miðað við um-
rædda hækkun 1.000 krónur.
ís 14 mílur
frá landi
TF-SÝN fór í ískönnunarflug
í gær. Skipherra var Hösk-
uldur Skarphéðinsson. ísjað-
arinn var skoðaður frá 65.
gráðu norður, og var þaðan
flogið í norðaustur að 69.
breiddargráðu. ísjaðarinn
reyndist fremur gisinn og
sundurlaus. Var hann yfir-
leitt um 40—50 sjómílur frá
landi. Styst var í hann 14 sjó-
mílur norður af Kögri og 22
mílur norðvestur af Straum-
nesi. Ekki reyndist vera mik-
ið um jaka nær landi, en eitt-
hvað var þó á strjálingi. Eng-
inn ís var á Húnaflóa.
Spáð er sunnan- og suðaustan-
átt á næstunni, þannig að búast
má við að ísjaðarinn fjarlægist
landið aftur. Á þessum árstíma
fer ísinn hraðminnkandi við
Grænland, þar sem sjórinn verður
heitastur á þessum árstíma. Getur
ástandið í þessum efnum því tekið
skjótum breytingum.
Með tvö tonn af hljóðfærum
í ferðalag um Sovétríkin
NÚ HEFllR því verið slegið Tóstu
að hljómsveit Björgvins Halldórs-
sonar fari í 30 daga hljóm-
leikaferðalag til Sovétríkjanna.
Verður lagt af stað 31. ágúst nk.,
en áætlað er að koma aftur tii ís-
lands 4. okt.
Að sögn Jóns Ólafssonar
framkvæmdastjóra ferðarinnar
verður farið með um tvö tonn af
hljóðfærum í ferðalagið.
Hljómsveit Björgvins Halldórs-
sonar skipa: Björgvin, Magnús
Kjartansson, hljómborð, Björn
Thoroddsen, gítar, Hjörtur
Howser, hljómborð, Hans Rolin
trommur, og Mikal Berglund á
bassa. Með þeim fara þrír að-
stoðármenn en fararstjórar
verða þeir Jón Ólafsson og Sig-
urður Garðarsson.
Hljómsveitin spilar í sjö borg-
um. Þær eru: Novokuznetsk og
Nocosibirsk, sem báðar eru í Síb-
eríu, Alma-Atar, sem er við
landamæri Sovétríkjanna og
Kína að sunnanverðu, Sochi á
strönd Svartahafsins, Yerevan í
Armeníu og loks Tbilisi, höfuð-
borg Georgíu.
Verða aðeins íslensk popplög á
dagskrá hljómleikaferðalagsins
en Jón Ólafsson sagði í samtali
við Mbl. að megintilgangurinn
með ferð þessari væri að komast
inn á plötumarkaðinn í Sovét-
ríkjunum með íslenska popptón-
list.
Sjá nánar á bls. 19.