Morgunblaðið - 14.08.1982, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
35
Ragnarnáði forystu fyrir síðasta daginn
• Ragnar Ólafsson, GR, lék mjög vel í ger á Landsmótinu I Grafarholtinu, og náöi forystunni af Sigurði Péturssyni.
Hér sést Ragnar slá úr erfiðri aðstöðu á fimmtudaginn. Eiginkona hans er til vinstri á myndinni, en hún er kylfuberi
Ragnars á mótinu. Mynd: Gudjón.
Nú er aöeins lokaspretturinn eftir
á Landsmótinu í golfi, en því lýkur í
dag. Fjórir flokkar eru eftir, báðir
meistaraflokkarnir, og 1. og 2. flokk-
ur kvenna. Ragnar Olafsson lék best
allra í gær, annan daginn í röð, og
fór hann 18 holurnar á 72 höggum.
Er það aðeins einu höggi yfir pari.
Hann náði forystunni af Sigurði Pét-
urssyni, sem notaði þremur höggum
meira en Ragnar í gær, og er nú í
öðru sæti. Forysta Ragnars er að
vísu aðeins eitt högg, þannig að
spennan er enn í hámarki.
Björgvin Þorsteinsson, GA, er
enn í þriðja sætinu, en hann verð-
ur að leika mjög vel í dag ef hann
ætlar að blanda sér í baráttuna
um efsta sætið. Björgvin er nú
átta höggum á eftir Ragnari, en
hann á auðvitað von ef Ragnar
dettur úr stuði.
Staðan í meistaraflokki karla
fyrir síðasta daginn er sem hér
Blikadagurinn
HINN árlegi Blikadagur verður
haldinn í dag, og hefst dagskrá kl.
11.00 við Blikastaði. Þar verður
kaffi- og veitingasala, hljómsveit
treður upp o.fl.
Knattspyrnukeppni hefst síðan
á Smárahvammsvelli kl. 11.30.
Fyrst leika 5. fl. UBK og Grótta,
þá 6. fl. UBK og Fram, og síðan
verður eldri flokki UBK, og meist-
araflokki kvenna og karla blandað
saman og skipt í tvö lið.
Kl. 12.20 spila 4. fl. UBK og ÍK
og eftir það leika 2. fl. UBK og
Augnabliks og yngri flokkur
stúlkna UBK—KR. Frá 11.30 til
14.30 fer fram vítaspyrnukeppni
sem öllum er heimil þátttaka í, en
þátttökugjald er kr. 30.00.
Síðan verður ntikið um að vera á
aðalleikvanginum kl. 15.00, og inn
í þeirri dagskrá er leikur Breiða-
bliks og Víkings í 1. deild.
Um kvöldið er síðan dansleikur í
Félagsheimili Kópavogs frá
21.00-02.00.
Annað opna
tennismótið
Tvær næstu helgar, 20., 21. og 28.
og 29. ágúst verður haldið annað
opna tennismót sumarsins. Leikið
verður á tveimur völlum er tennis-
deild ÍK ræöur yfir, en þeir eru við
Vallargerði í Kópavogi. Nefnist mót
þetta „Opið Slazenger" og standa
tennisdeild ÍK og John Nolan, golf-
kennari, að því. Nolan gefur Slaz-
enger tennisvörur í verðlaun allra
flokka, ásamt farandbikurum.
Keppt veröur í fjórum flokkum, ef
næg þátttaka fæst, karlaflokki,
kvennaflokki og unglingaflokkum
pilta og stúlkna.
Leikin verður útsláttarkeppni
og þarf keppandi að vinna tvö sett
til að sigra andstæðing sinn.
Þannig verður hver leikur í mesta
lagi þrjú sett. Hvert sett er upp í 6
lotur, þannig að sá sem er á undan
að sigra í 6 lotum vinnur settið. í
undanúrslitum og úrslitum verður
notað svokallað „Tiebreak".
Síðasti skráningardagur er
fimmtudagurinn 18. ágúst og fer
skráning fram hjá Ragnari Ar-
inbjarnarsyni milli kl. 18.00 og
20.00 alla daga. Þátttökugjald er
200 kr.
Bikarkeppni
16 ára og yngri
Fjórða bikarkeppni Frjáls-
íþróttasambands íslands 16 ára og
yngri verður um helgina í Borg-
arnesi. Níu lið mæta til keppni;
UMSS, USVH, UMSB, FH, Ár-
mann, ÍR, HSK, HHF og UBK.
Keppnin verður vafalaust spenn-
andi, þvi þarna mætist margt
framtíðar landsliðsfólk okkar.
Keppnin hefst í dag kl. 14.00 á
Borgarnesvelli.
segir. í sviganum er höggafjöldi
keppenda þrjá fyrstu dagana, aft-
asta talan gildir fyrir daginn í
gær.
1. Ragnar Ólafsaon QR 220 (75—73—72)
2. Sigurður Pétursson GR 221 (70—76—75)
3. Björgvin Þorsteins. GA 228 (73—77—78)
4. Jón H. Guölaugsson NK 231 (82—74—75)
5. Sveinn Sigurbergs. GK 234 (79—79—76)
6. Magnús Jónsson GS 235 (83—76—76)
7. Óskar Sœmundsson GR 238 (83—76—79)
Eins og á þessu sést hefur Ragn-
ar verið í stöðugri framför keppn-
isdagana. Árangur Sigurðar
fyrsta daginn er enn sá besti, en
þá fór hann á einu höggi undir
pari vallarins og setti vallarmet,
mjög glæsilegur árangur.
Sólveig langfyrst
Islandsmeistarinn í meistara-
flokki kvenna, Sólveig Þorsteins-
dóttir, byrjaði ekki vel fyrsta dag-
inn, og var þá í fjórða sæti. Annan
daginn skaust hún síðan upp að
hlið Ásgerðar Sverrisdóttur í 1.
sætið, og í gær lék hún mun betur
en keppinautar hennar og hefur
nú nánast sagt skilið við þá. Má
eitthvað mikið gerast á loka-
sprettinum í dag ef hún á ekki að
verja titilinn. Hún á núna hvorki
meira né minna en 13 högg á
næstu manneskju, Þórdísi Geirs-
dóttur.
Annars er staða efstu keppenda
þessi fyrir siðustu 18 holurnar, og
þar erum við einnig með högga-
fjöldann alla dagana eins og hjá
körlunum:
1. Sólveig Þortfeinsd. GR 259 (92—93—84)
2. Þórdis Geirsdóttir GK 272 (86—92—94)
3. Ásgeróur Sverrisd. GR 275 (85—90—100)
Jónína komin á toppinn
Jónína Pálsdóttir, Golfklúbbi
Akureyrar, er nú komin upp í
fyrsta sætið í 1. flokki kvenna,
þær sem enn eru þrjár efstar í
flokknum hafa skipst á að hafa
forystuna keppnisdagana. Jónína
lék á 95 höggum í gær, og hefur nú
tveggja högga forystu. Þrjár efstu
eru þessar:
1. Jónína Pálsdóttir, GA 274
2. Ágústa Guðmundsdóttir, GR276
3. Ágústa Dúa Jónsdóttir, GR 285
Keppnin hlýtur óneitanlega að
koma til með að standa milli Jón-
ínu og Ágústu Guðmundsdóttur í
dag, og er ekki gott að spá um
hvernig viðureign þeirra lyktar.
Ágústa Dúa virðist vera að missa
af lestinni, en þó skyldi enginn
útiloka hana. Hún hafði forystuna
eftir fyrsta daginn.
Þá er það 2. flokkur kvenna.
Hann hóf keppni í gær, og leikur
þannig aðeins 36 holur. Forystuna
þar hefur Kristine Eude,
Nesklúbbnum. Listi þriggja efstu
er annars þannig:
1. Kristine Eude NK 100
2. Hrafnhildur Þórarinsd. GK 102
3. Sigríður B. Ólafsdóttir GH 105
Keppni hefst snemma í dag að
venju, og það er 2. flokkur kvenna
sem ríður á vaðið. Fyrstu kepp-
endur í honum fara út kl. 8.30,
fyrstu keppendur í 1. flokki
kvenna fara út kl. 9.00 og þær
fyrstu í meistaraflokki kvenna
fara af stað kl. 9.40.
Þeir sem hafa lakastan árangur
í meistaraflokki karla fara fyrstir
af stað kl. 10.20, en hjá besta
„hollinu", þeim Ragnari, Sigurði
og Björgvin, hefst baráttan kl.
11.50. Ef allt gengur að óskum
ættu þeir kumpánar að hafa lokið
keppni á bilinu 16.00—16.30, og úr-
slit því að liggja fyrir um það
leyti. Þá er bara að vona að veð-
urguðirnir verði keppendum hlið-
hollir í dag, því óneitanlega er
skemmtilegra að elta hvíta bolt-
ann í góðviðri, en láta kuldabola
narta í sig meðan á keppni stend-
ur.
- SH.
ARATUNGU i
í KVÖLD |
Tætumöll KL* Q j
á sveitaball j
sumarsins
Ómar — Bessi — Magnús — Þor- J
geir og hljómsv. Ragga Bjarna í 0
meiriháttar stuöi. S
Uppselt 27 skemmtanir í röð.
Sumargleðistuðið landsfræga
heldur áfram á fullu í kvöld.
Ath.:
Glæsilegasta gjafahapp-
drætti, sem um getur
• Samba-bifreiö frá Vökli — tvímælalaust bíll ársins.
FRÁ SJÓNVARPSBÚÐINNI LÁGMÚLA 7:
• Fisher myndsegulband — það bezta.
• — 3 Samsung-tæki — sjónvarpstæki
hljómtæki og örbylgjuofn.
Samsung fer sigurför um heiminn.
Hjónarúm af fullkomnustu gerö frá Ingvari og
Gylfa — sannkölluð völundarsmíö.
Pési planki
tekur nokkrar léttar sveiflur.
Tökum lífið létt
með sumargleðísprett.
Léttlynda Lína — prima-
donnan í óperu sumarsins — er
þegar mætt á svæðið — skjálfandi af
tilhlökkun.
Jónas og fjölskylda veröa
að sjálfsögöu til staöar — það er á
hreinu.
SÆTAFERÐIR FRÁ:
Þorlákshöfn,
Hveragerði,
Selfossi og Laugarvatni
i
a
|
I
^Sumargleðin Hótel Sögu
annað kvöld — sunnudagskvöld kl. 9.
Miðasala í anddyri Súlnasalar
kl. 2—4 í dag — eftir kl. 4 sunnudag.
Borð tekin frá um leið. Húsið opnar kl. 8.