Morgunblaðið - 14.08.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982 2 3
Hugleiðingar um
ofdrykkjuvarnir
Eftir Steinar
Guðmundsson
Menn furðuðu sig á því þegar
hver endemis drykkjurúturinn á
fætur öðrum kom allsgáður
heim frá Bandaríkjunum eftir að
hafa skroppið þangað í þeim til-
gangi að vinna bug á drykkju-
skap sínum. Og enn flatara kom
það upp á menn þegar þessir
dátar héldu áfram að vera ófull-
ir.
I ljós kom, að hér var ekki um
neinn Hókus Pókus að ræða. Á
endurhæfingarstofnununum
hafði þeim verið stillt upp við
vegg án þess að nokkur vor-
kenndi þeim. Þeir urðu að
kyngja ábyrgðinni á drykkju-
skap sínum og melta hana sjálf-
ir. Þeim var bent á, að hrein-
skilnina hlytu þeir að hafa feng-
ið í vöggugjöf eins og hverjir
aðrir sakleysingjar og til hennar
gætu þeir gripið.
Að lokinni forverkun á Free-
port voru flestir þeirra sendir til
fullverkunar á stofnun, sem ber
hið táknræna nafn Veritas Villa,
sem útleggst „Hús sannleikans“.
En í nafni þessarar stofnunar
má finna lykilinn að leið þeirra
til bata. Og svo er Guði fyrir að
þakka, að nú hafa þessi sann-
leikans hús flust til íslands og
bera m.a. nöfnin Sogn og Stað-
arfell.
Bati felst í því, að ná tökum á
hreinskilninni, en týnist
hreinskilnin tapast stefnan.
Menn kalla þetta „að rúlla" eða
„detta“, þótt augljóst sé, að það
sem gerist er ekkert annað en
það, að blekkingin nær sínu
fyrra sæti, en hreinskilnin hop-
ar. Hreinskilnin hrynur af þeim,
og mætti því allt eins kalla þetta
„að hrynja" eins og að detta. Það
þarf kjark til að kalla þennan
loddaraleik sjúkdóm.
Vandræði drykkjumannsins
felast í því, að blekkingavanur
vínneytandi getur ekki fyllilega
sætt sig við að hafa misst stjórn
á drykkjuvenjum sínum og gerir
enn eina tilraun til að sýna og
sanna að þrátt fyrir allt geti
hann fengið sér einn lítinn án
þess að það dragi dilk á eftir sér.
Auðvelt er að flokka þetta
undir ævintýramennsku, en sé
hægt að flokka þessa þver-
móðsku til sjúkdóma má færa
rök að því að drykkjuskapur sé
sjúkdómur.
Fæðing er rakin til getnaðar
og er meðgöngutími vitaður. Hin
dásamlega bylting í ofdrykkju-
vörnum íslensku þjóðarinnar
beinist því miður nær eingöngu
að fullmótuðum alkóhólisma,
fósturstiginu er sleppt. Við vit-
um að fluga kviknar ekki á haug
þótt hún fyrst birtist augum
okkar þar. Meðgöngutíma alkó-
hólista er ekki gaumur gefinn.
Endurhæfingarstöðvarnar eru
góðar, en kinnroðalaust getum
við ekki sætt okkur við að í þeim
felist lausnin. Þær reyna að
bjarga því sem á fjörur þeirra
rekur — punktur.
Á þessu þarf að verða breyt-
ing. Við verðum að beina þekk-
ingu okkar á alkóhólisma inn á
hinn vitaða 10—15 ára með-
göngutíma karlmanns og hinn
áætlaða 3—5 ára meðgöngutíma
konunnar. Og við verðum að
hætta að hampa drykkjuskap
meðgöngutímans sem sjúk-
dómsstigi. Að vísu er meðgöngu-
tíminn ekki alltaf þessi, en með-
altalið er þetta.
Meðgöngutíminn — of-
drykkjustigið, hefst á leik, sem
smám saman þróast í baráttu og
puð. Tækifærisdrykkja villist frá
eðli sínu vegna sí-endurtekinna
sjálfsblekkinga. Til stuðnings
sjálfsblekkingum er svo gripið
til smáskreytni, sem eflist stig
af stigi og færist yfir á víðara
svið uns óhreinskilni og mála-
tilbúningur verður ríkjandi þátt-
ur í öllu er snertir dijkkjuskap
viðkomandi manns. Án óhrein-
skilni væri enginn alkóhólismi
til.
Við verðum að notfæra okkur
þá miklu reynslu sem við höfum
aflað okkur á innlendum vett-
vangi og freista þess að koma
þeim til hjálpar, sem vitað er um
að vilja ekki tileinka sér fræðslu
um alkóhólisma af þeirri ein-
földu ástæðu að þeim finnst frá-
leitt að sjálfir þurfi þeir nokk-
urn tímann á þeirri þekkingu að
halda. Hér á ég við obbann af
ungu fólki, spriklandi af til-
hlökkun til aö takast á við lífið,
fólki á aldrinum 20—30 ára,
fólki, sem er svo barmafullt af
lífsþrótti og lífslöngun að það
getur alls ekki hugsað sjálft sig í
sæti alkóhólistans.
Þeir úr þessum aldursflokki,
sem orðið hafa undir, gefist upp
og þegið leiðsögn, vita, að ef þeir
hefðu borið gæfu til að tileinka
sér fyrr það sem nú hefir opnast
þeim, þá hefðu þeir ekki þurft að
leggja á sig það ok sem nær
hafði sligað þá.
Með markvissri, stöðugri og
breytilegri fræðslu hlýtur að
vera hægt að ná til fjölda manns
á þessu mikilvæga aldursskeiði,
V. grein
einmitt því skeiði þegar maður-
inn þarf mest á öllu sínu
óbrengluðu að halda til að
vernda jafnvægi í huga og
pyngju.
Við, sem reynsluna höfum, vit-
um, að þetta aldursskeið er und-
irbúningsskeið hins klístruga
alkóhólisma. En unga fólkið veit,
að það er hægt að losna við
streitu og gera sér glaðan dag
með því að fá sér einn lítinn.
Þess vegna verður að draga fram
í dagsljósið eðli þeirrar áhættu
sem fylgir hinu svokallaða „sak-
lausa og sjálfsagða“ uppátæki
sem meirihlutinn tileinkar sér.
Að segja fullfrísku og sjálfstæðu
fólki hvað það megi og hvað ekki
stóð í Guði forðum, þegar Adam
og Eva átu eplið, og í þeim efn-
um hefir mannskepnan senni-
lega lítið breyst síðan.
Okkur ber skylda til að benda
á mistök okkar og í hverju þau
voru fólgin og láta svo hin um að
álykta. Við verðum að forðast að
berja okkur á brjóst og leika
Tarsan. Og við megum aldrei
ætla okkur að hnoða dómgreind
annarra.
Ofdrykkja er felukvilli. Berkl-
ar voru það líka. Og þótt hér sé
ólíku saman jafnað byggist bati í
báðum tilvikum á því, að meinið
sé ekki falið. Það er búið að fela
ofdrykkju og alkóhólisma allt of
lengi. Ofdrykkjuvarnarstarfsemi
undanfarinna ára er það að
þakka að nú þykir það ekki leng-
ur neitt tiltökumál þótt maður
fari í afvötnun eða endurhæf-
ingu. En enn er tiplað í kringum
fylleríið á heimilinu og það falið.
Enn er tengdamamma login veik
og enn er tengdasonurinn sagður
í fríi þegar hann er á fylleríi.
Fólk heldur áfram að stuðla að
áframhaldandi drykkjuskap með
því að ljúga fyllibyttunni til frið-
ar.
Menn skammast sín fyrir
fylliríið á meðan alkóhólismi er í
mótun, en ljós í myrkri verður
það að teljast, að menn eru
hættir að skammast sín þegar
fullmótaður alkóhólismi er orð-
inn staðreynd. Menn gorta jafn-
vel af opinberum alkóhólista
fjölskyldunnar. Það er ágætt.
Fyrsta skrefið til að vinna bug
á þessari villu er það, að að-
standendur kynni sér eðli alkó-
hólisma og muninn á drykkju-
skap og alkóhólisma. Sá sem
ekki drekkur sér til vansa er lík-
legri til að geta tekið þátt í að
koma fræðslu um ofdrykkju-
varnir út í þjóðlífið heldur en
hinn, sem kominn er í feluleik-
inn.
Þótt maður bjargi ekki bytt-
unni sinn „á nóinu“ getur maður
stuðlað að björgun „á tíma“.
Maður verður bara að gera
eitthvað til að bjarga einhverju
einhvern veginn.
I næsta pistli verður reynt að
kíkja á sjálfsábyrgðina.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilboö — útboö______________j
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í
eftirfarandi:
RARIK — 82036. Distribution Transformers
100—800 kVA. Opnunardagur: Þriöjudagur
14. september 1982 kl. 14.00.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík
fyrir opnunartíma, og veröa þau opnuð aö
viöstöddum þeim bjóöendum er þess óska.
Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og meö mánudeginum 16.
ágúst 1982 og kosta kr. 50.- hvert eintak.
Reykjavík 12. ágúst 1982.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Til sölu glæsilegt raðhús
ásamt tvöföldum bílskúr, (endaraöhús). Verð
550 þús. Uppl. í síma 92-8294.
Bændur og hestamenn
Til sölu 800—1000 hestar af vélbundnu heyi.
Upplýsingar gefur Gísli Ingólfsson, Litla-Dal,
Lýtingsstaöahreppi, sími um Sauöárkrók.
Húsavík
Til sölu nýleg 3ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi á
Húsavík. Getur veriö laus nú þegar. Selst
gegn vægri útborgun.
Upplýsingar gefur Þorkell í síma 96-41743
eftir kl. 16 á daginn.
einkamál
Mjög traustur maður
sem er aö taka viö ábyrgðarstöðu úti á landi
óskar að kynnast konu á aldrinum 32—40
ára. Eitt barn væri ekkert vandamál. Mennt-
un eöa reynsla í verslunar- og skrifstofustörf-
um væri kostur, en ekki skilyröi.
Óskaö er eftir bréflegum kynnum fyrst. Öll
svör eru fyllsta trúnaöarmál.
Svar sendist Morgunblaðinu merkt: „Traust
samband — 1593.“
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
tP
Þll AUGLÝSIR L'M ALLT
LAND ÞEGAR Þl Al'G-
LÝSIR I MORGl'NBLAÐINL
tilkynningar
Allir Senatorar
á íslandi, þeir sem hafa staöfest framlög,
vinsamlega geriö skil vegna söfnunarinnar
fyrir 20. ágúst. Greiðslur má senda í banka-
gíró til Ásgeirs Gunnarssonar, sími 35200,
Arnar Johnson, sími 86810 eöa Hauks
Hjaltasonar sími 23388.
Námsfólk
erlendis
Sambsnd ungra ajálfatæöiamanna efnir
til fundar meö íslendingum sem eru vlö
nám eöa störf erlendis og styöja vilja
Sjálfstæöisflokkinn, mánudaginn 16. ágúst
kl. 20 30 í Valhöll. kjallarasal.
A fundinn koma m.a. Daviö Oddsson borg-
arstjóri og Friörik Sophusson alþm. Allir
stuöningsmenn Sjáltstæðisflokksins er-
lendis, sem kynnu aö vera heima í trii, vel-
komnir
SUS