Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979 vtw \A0MGÚU kafp/nu Það sem við verðum að gera strax er að senda ferðaskrifstofunni alvarlegt skammarbréf! aí minnimáttarkennd! BRIDGE COSPER Er til einhver íslensk heimspeki? Í Morgunblaðinu 28. ágúst 1979 birtist samtal við Guðmund Heið- ar Frímannsson sem nýlega hefur lokið prófi í heimspeki. Segir þar frá námi heimspek- ingsins og hvaða heimspekirit og höfunda hann hefur einkum kynnt sér. Að lokum spyr blaðamaður: „Er til einhver íslensk heimspeki?" Og svarið er, að lítið fari fyrir henni. Nefnir hann þó fáeina íslenska heimspekinga og telur fremsta í þeim flokki standa þá Ágúst H. Bjarnason og Guðmund Finnbogason, en einnig nefnir hann Símon Jóh. Ágústsson og Brynjólf Bjarnason. Aðra íslend- inga nefnir hann ekki. Ekki vil ég draga úr gildi þess, sem þessir menn hafa haft fram að færa í heimspekilegum efnum. En allundarlegt finnst mér að geta að engu þess mannsins, sem brautryðjandi uppgötvanir hefur gert á þessum sviðum, og í raun- inni opnað mannlegum huga ný svið til mjög aukins skilnings á heimi og lífi. Þessi maður var dr. Helgi Pjeturs, brautryðjandi nýs skilnings í heimspeki og gerði framúrskarandi uppgötvanir í þeim fræðum. Má þar fyrst nefna uppgötvun hans á eðli drauma. Hann skildi fyrstur manna, að draumar eru sambandseðlis, að draumur verður ávalt vegna sam- bands sofandans við vakandi mann, sem stundum er íbúi ann- ars hnattar. Skilningurinn á eðli draumanna varð síðar undirstaðan að frekari ályktunum hans og uppgötvum á sambandseðli lífsins í alheimi. Allar síðari rannsóknir erlendra vísindamanna á þessum sviðum benda eindregið til þess, að hann hafi hér haft á réttu að standa. Ég ætla ekki að rekja hér kenningar dr. Helga Pjeturs held- ur aðeins að vekja athygli á því atriði í Morgunblaðsviðtalinu við nýútskrifaðan heimspeking, að þar er gengið fram hjá nafni dr. Helga Pjeturs og hinar stórmerku kenningar hans í heimspeki og heimsfræði þar með hunzaðar, eins og væru þær ekki til. En þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn, sém svo er gert af háskólamenntuðum mönnum. Ef öðruvísi væri farið að, gætu Umsjón: Páll Bergsson Skemmtileg spil, sem fyrir koma i fjölskyldu eða vinahópi gleymast venjulega fljótt. En á alþjóðamótum fylgjast frétta- menn vel með og sjá um, að ailt, sem áhugavert er birtist í blöðum og tímaritum um allan heim. Og þá er ekki eingöngu skrifað um glæsileg tilþrif spilaranna. Spilið í dag er frá leik Svía og Beigíumanna á Evrópumeistara- mótinu í Palermo 1959. Vestur gaf allir utan hættu. Norður S. Á7 H. ÁG9 T. ÁDG94 L. ÁD5 Vestur S. D65 H. K6 T. 8 L. G876432 Suður S. KG942 H. 43 T. K62 L. K109 Eins og sjá má eru 6 tíglar nokkuð góður samningur á spil norðurs og suðurs. Én í leik þessum varð lokasamningurinn sex spaðar, spilaðir í suður, á báðum borðum. Svíinn var svo heppinn, að vestur spilaði út tíugláttu. Eftir það hefði spilið átt að vinnast með því að svína ekki spaða. Enda er það rétt að farið með lit sem þennan. Þá vinnst spilið skiptist spaðarnir 3—3 og þegar aðeins eitt smáspil er mað drottningu eða tíu. Svíinn tók jú á spaðaásinn en þegar hann spilaði aftur spaða lét austur tíuna og freystingin varð of mikil. Vestur tók gosann, skipti í lauf, austur trompaði og síðan trompaði vestur tígul. Tveir niður. En þrátt fyrir þetta töpuðu Svíarnir ekki á spilinu. Á hinu borðinu doblaði austur lokasögn- ina og norður redoblaði, lét sig bara hafa það. Eðlilega spilaði vestur þá út laufi, sem austur trompaði og skipti í hjarta, kóng- ur og ás. Eftir þetta var eðlilegt að svína spaðanum og þá spilaði vestur hjarta. Og þegar austur spilaði þriðja hjartanu bætti sagnhafi gráu ofan á svart og trompaði með lágu. Vestur fékk því fjórða slag varnarinnar á trompsexið og í allt fengu Svíarnir 900 fyrir spilið. Austur S. 1083 H. D108752 T. 10753 L. - i-—-———————-- -w- • "■ T > > Kftir Evelyn Anthor Lausnargjald 1 Persiu 131 — Hann hefur ekki drepizt, sagði hún. — Bjálfinn þinn — þú hefðir átt að ganga úr skugga um það. — Þau geta ekki verið kom- in langt, sagði Resnais. — Ahmed er ekki einu sinni orð- inn kaldur. Og þau geta ekki hafa tekið bílinn — þú hlytir að hafa heyrt það. Ef þau eru á strandveginum náum við þeim. Komdu i hvelli. Peters var nú kominn til sjálfs síns. Þegar hann heyrði rödd Resnais þá hafði hvötin til að gefast upp horfið. Hann hvíslaði að Eileen að vera kyrr, meira að segja þegar Madeleine og Resnais voru farin upp aftur. — Það er alit í lagi með mig núna, hvíslaði hann. — Guð minn góður. sagði Peters. — Þau sjá að hliðið er læst og þá álykta þau að við séum einhvers staðar á lóðinni. Þegar þau finna okkur ekki þar koma þau aftur og leita í húsinu. 7 — Hvað eigum við að gera? sagði Eileen. — Við verðum að skjóta okk- ur héðan, sagbði Peters. — Það er engin önnur leið. Kannt þú að fara með skotvopn? — Nei, sagði hún. — Nei, ég hef aldrei snert á byssu á ævinni. — Við útvegum okkur vopn, sagði hann. — Ef þessar sprengingar i höfðinu á mér gætu hætt. Við verðum að fara upp og vera snör í snúningum. Þú verður að hjálpa mér. Þau fóru upp þrepin, hann hrasaði og féll við. Sársaukinn í höfðinu var svo hræðilegur að hann hafði aldrei getað gert sér í hugariund að hægt væri að afbera slíka þjáningu. Þegar þau komu að eldhúsinu benti hann henni að ýta á hnappinn inn í vopnageymsluna. Peters fór inn og rétti henni litla byssu. Sjálfur gat hann ekki lyft stóru Browning-38 vopninu og skotfærin svo að hann tók það. Hann setti handsprengju í vasa sinn. — Ýttu aftur á hnappinn sagði hann og leynidyrnar lok- uðust. Hann hallaði sér aftur upp að veggnum, úttaugaður af áreynslunni, sem hver hreyfing var. — Hvers vegna í íjáranum fórstu ekki? — Vegna þess ég fer ekki frá þér, sagði Eileen. — Svo að þér er eins gott að hætta að tala um það. — Þessi írska þrjózka, sagði Peters. — Þú sérð að við getum aldrei komist undan gangandi. Svo að við verðum að sitja fyrir þeim. Ég krefst þess að þú gerir nákvæmlega eins og ég segi þér. Ekkert þras. Við verðum að fara niður í bílskúrinn. Við skulum reyna að komast þang- að meðan þau eru að leita í kringum húsið. Það tók óratíma, tvívegis urðu þau að stoppa meðan hann reyndi að harka af sér og forðast að líða i yfirlið. Hún horfði á hann í ólýsanlegri angist og bað til guðs að hann héldi meðvitund. Inni í bilskúrnum var hvíti Rolls Royce billinn. Resnais hafði ekki skeytt um að setja Jaguar- inn inn í skúrinn. Peters hallað- ist upp að bilnum og tók handsprengjuna úr vasa sinum. Hann lét Eileen haía hring með tveimur lyklum á. — Stóri lykillinn er að aðal- hliðinu, sagði hann. — Ég vil að þú hlaupir þangað og Ijúkir því upp þegar ég segi þér að gera það. Okey? — Meðan þú ert hér kyrr? Og hvað ef þú líður út af, sagði hún. — Ég geri J)að ekki, sagði Peters. — Mér líður skár. Eg ætla mér að hafa þetta af. Þau koma að bilskúrnum þegar þau ganga aftur að húsinu. Þá ætla ég að ráðast til atlögu. Vertu afar gætin. Gefðu mér merki þegar þú sérð til þeirra. Eileen haliaði sér upp að dyrunum. Hún hlustaði og i fyrstu heyrði hún ekkert. Svo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.