Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979 39 að framan, þá eru frelsishugtökin mörg og margvísleg. Hafi lesandi þessarar greinar gengið eftir Austurstræti á sólbjörtum sumar- degi, þá fer hann vart í grafgötur með það hvað við er átt, því að á leiðinni milli Lækjartorgs og Von- arstrætis hefur hann eflaust feng- ið upp í hendurnar fleiri en eina og fleiri en tvær uppskriftir um það, frá velviljuðum samborgur- um sínum, hvernig „frelsið" verði fengið. Kannski er nú réttast að geta þess, að orðið frelsi og merkingar þess koma fleirum við en þeim einum sem um stjórnmál fjalla. Ein grundvallarspurning nýald- arheimspekinnar, allt til okkar daga, er sú, hvernig í ósköpunum það megi vera að einstaklingar hafi frjálsan vilja, í löggengum heimi. Svo til öll trúar- og lífsspeki, hvaða nafni sem hún nefnist, telur það sér til ágætis, að höndli menn spekina, þá höndli þeir frelsið. Því má svo síðan bæta við, að sálfræðingar og siðferðis- postular hafa einnig sitt að segja um frelsið, allt eftir innblæstri og áróðursgildi. Af þessu má sjá, að frelsið kemur víða við. Það er ekki einungis notað í stjórnmálaum- ræðum, heldur er það aðalsmerki allflestra sértrúarsafnaða. Frelsið og marxistar Einn er sá söfnuður, sem öðrum fremur er athyglisverður þegar fjallað er um frelsishugtök. En það eru marxistar. Ég man því miður ekki eftir einu einasta tilfelli í gegnum árin í umræðum mínum við marxista, eða við lestur á skrifum þeirra, að þeir hafi haft áhuga á því að nota orðið frelsi í einni og óbreyttri merkingu. Né þá heldur, að þeir geri sér far um að skýra slíka merkingu. Né þá heldur að þeir rökræði á skipulagðan hátt um hugsanlegar skilgreiningar orðs- ins. Tilfelli af þessu tagi yrðu mér þó eftirminnileg. Taki þeir sér orðið í munn er alveg undir hælinn lagt, hvar þá ber niður. Oftast fer það algjörlega eftir því um hvað umræðan snýst. Sé verði að ræða um neysluþjóðfélög á Vesturlöndum, þá hafa þeir áhuga á frelsi undan sefjunarmætti sjón- varpsauglýsinga. Snúist umræðan hins vegar um markaðskerfið, þá tala þeir um frelsi auðvaldsins til að kúga og arðræna öreigana. Á framboðsfundi stúdenta nú fyrir skömmu vegna kosninga til há- tíðarnefndar fullveldisdagsins, kom sú afstaða fram hjá hverjum vinstri manninum á fætur öðrum, að orðið „frelsi" mætti fyrir alla muni ekki skilgreina, þessi afstaða þótti mjög furðuleg, en furðulegri voru þó „rökin“ sem fyrir henni voru færð, orðið frelsi má ekki skilgreina sögðu þeir, því með skilgreiningu væru menn að þrengja merkingu orðsins og þar með að draga úr sjálfu frelsinu... Nú vill svo til, að hér er einhver misskilningur á ferðinni, því orð eru ekki sama og sá veruleiki sem þau reyna að túlka. En slíka smámuni setja marxistar ekki fyrir sig. Hitt er svo ekki síður athyglisvert að hafi nú marxistar rétt fyrir sér í því, að ekki megi skilgreina orðið frelsi (sem þeir hafa auðvitað ekki) — þá leiðir af því, að ekki er hægt að ræða um frelsið af neinu viti. Það var nú samt það sem þeir ætluðu sér, og um frelsið ræddu þeir í gærdag. Samkvæmt þeirra eigin kenning- um hefur það ekki verið viturleg umræða. Það er út af fyrir sig íhugunar- efni hvers vegna marxistar forð- ast það eins og heitan eldinn að nota orðið frelsi á skýran hátt. Ég held að hér komi einkum tvennt til álita. í fyrsta lagi er þess að geta að marxisminn er kerfisbundin heildarafstaða. Hann er altækt og lokað kennikerfi, og sem slíkur er hann kennivald sem hefur áhrif á marxista í allt öðrum skilningi en t.d. vísindakenning hefur áhrif á vísindamenn. Allir heimspekitextar eru í eðli sínu tilmæli til lesandans um það, hvaða skoðun hann eigi að aðhyll- ast á eðli þeirra hluta sem textinn fjallar um. En marxísk fræði segja lesandanum ekki einungis til um eðli hlutanna. Þau segja hon- um til um það hvernig hann eigi að hugsa. Af þessum sökum gerir franski nýheimspekingurinn Andre Gluckmann greinarmun á venjulegum heimspekingum, sem segja fólki til um það hvernig þeir telji að hlutirnir séu, og herra- hugsuðum eins og Karli Marx, sem segja fólki til um það, hvernig það eigi að hugsa. Ég held að Gluckmann hafi rétt fyrir sér, og að sú staðreynd sé ein ástæðan fyrir því að marxistar ræði aldrei af viti um frelsið því frelsið er andstætt marxismanum. Eins og fram hefur komið, halda frjálshyggjumenn fram kenningu um mikilvægi frelsisins. En þeir halda líka fram kenningu um forsendu frelsisins. Þeir telja m.ö.o., að frjálst markaðskerfi sé forsenda þess, að frelsinu verði viðhaldið. Marxistar eru yfirleitt aldrei til umræðu um þessar grundvallarkenningar frjáls- hyggjunnar, enda eiga þeir ekki til svör við þeim. I nýútkomnu stúd- entablaði „vinstrimanna" setjast marxistar við fótskör meistarans og spyrja Brynjólf Bjarnason heimspeking eftirfarandi spurn- ingar: „Oft er því haldið fram að frelsisskerðing hljóti óhjákvæmi- lega að fylgja í kjölfar sameignar á framleiðslutækjunum. Hvert er sterkasta svar sósíalista við slíkum röksemdum gegn sósalism- anum?“ Var von þeir spyrðu blessaðir? Og hver ætti að geta svarað þeim betur en Brynjólfur Bjarnason, sem um áratuga skeið hefur borið höfuð og herðar yfir aðra marxíska fræðimenn á íslandi? Það er hins vegar athygl- isvert, að Brynjólfur svarar alls ekki spurningunni. Þess í stað fer hann að tala um það, „að í kjölfar sósíalískrar umbyltingar sé viss frelsisskerðing fámennra hópa óhjákvæmileg, og alveg tilgangs- laust að neita því“. Hann bætir síðan við síðar í svarinu: „þessir hópar verða fljótlega einskis megnugir og hverfa úr sögunni". Ekki er ólíklegt að menn verði „fljótlega einskis megnugir og hverfi úr sögunni", verði þeir grafnir lifandi í vinnubúðum valdhafana, eða sendir út á haf á ónýtum smábátum. Þess má svo líka geta, að í mörgum tilfellum, , þegar gerðar hafa verið sósíalísk- ar byltingar, þá hefur meirihluti þjóðarinnar alls ekki staðið með byltingarmönnum. Það má vera fámenn þjóð þar sem meirihluti hennar er aðeins „fámennur hóp- ur“. En þetta er þó ekki kjarni málsins, heldur hitt, að hvorki Brynjólfi Bjarnasyni né öðrum marxistum hefur tekist að hrekja þá kenningu frjálshyggjumanna, að frjálst markaðskerfi sé for- senda frelsis. Það, sem meira er, þeir hafa sárasjaldan gert heiðar- lega tilraun til þess. Marxistar tala um að „afhjúpa frelsishugtak valdastéttanna". Þeir geta sparað sér stóryrðin, því við frjálshyggjumenn höfum aldrei verið í feluleik með okkar frelsishugtak. Það eru marxistar sem eru í feluleiknum. I síðari greininni verður fjallað um frelsishugtak frjálshyggjunn- ar og dæmi tekin um annars konar merkingar orðsins. Marxistar eiga þá tveggja kosta völ. Þeir geta annars vegar reynt að hafna þeirri merkingu með rökum, sem við leggjum í orðið frelsi. Takist þeim það, verða þeir að svara þeim kenningum sem frjálshyggjumenn aðhyllast um mikilvægi frelsisins og forsendur þess. Takist þeim hins vegar ekki að svara þeim kenningum svo bragð sé að, sé ég ekki betur en að marxísk stjórn- speki sé í öllum meginatriðum alröng. Það er kominn tími til að marxistar stigi fram úr frumskógi hugtakaruglingsins og mæti til leiks í skynsamlegum rökræðum um stjórnmál. Við frjálshyggju- menn kvíðum ekki þeirri viður- eign. heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655 ita best, velja Philco. Því Philco samstæðan er ódýrari en samha'rilegar vélar. Þa>r eru sterkar og endi góðar. btíia Almenna bókafélagið Austurstrœti 18, sími19707 Skemmuvegur 36, sími 73055 og ...jafnvel á Lækjartorgi sem er iiiiii „Þeir vita það fyrir vestan“, fjallar um þau 23 ár sem umsvifamest hafa orðið í »vi Guðmundar G. Hagalíns. Fyrst dvaldist hann 3 ár í Noregi, lifði þar fjölbreytilegu lífi og ferðaðist víðsvegar um landiö til fyrirlestrahalds. Síðan var hann blaöamaður við Alþýðublaðið tæp 2 ár, unz hann fluttist til ísafjarðar 1929 og þar tók hann ríkulegan þátt í bæjarlífi og stjórnmálum þau 15 ár sem hann átti þar heima. Meginhluti bókarinnar er um ísafjarðarárin. ísafjörður var þá sterkt vígi Alþýöuflokksins og kallaður „rauði bærinn“. Hagalín var þar einn af framámönnum flokksins ásamt Vilmundi Jónssyni, Finni Jónssyni, Hannibal Valdimarssyni o.fl.. Á þessum árum skrifaði Hagalín auk þess ýmis af meiriháttar verkum sínum, svo sem Kristrúnu í Hamravík, Sturlu í Vogum, Virka daga og Sögu Eldeyjar-Hjalta. Bókin einkennist ööru fremur af lífsfjöri og kímni, og hvergi skortir á hreinskilni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.