Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979
Peugeot 305
og nýr 505
FYRIR um það bil einu ári komu
hingað til lands fyrstu bílarnir
af gerðinni Peugeot 305. Umboð
þeirra er Hafrafell og segjast
forráðamenn umboðsins vera
eftir atvikum ánægðir með við-
tökur hans. Peugeot 305 er
framdrifinn og er hann að stærð
nokkuð áþekkur Audi 80 og er
hann á milli bílanna 204 og 504 í
Peugeot-fjölskyldunni.
Franskir bílar hafa yfirleitt
verið fremur mjúkir og þægileg-
ir og er svo einnig um þennan. I
akstri er hann góður og gefur
lítið eftir stærri bílum, t.d.
504-gerðinni, og framhjóladrifið
hefur alltaf sína kosti. Á malar-
vegum virðist heldur ekki koma
fram neinn verulegur munur
vegna ólíkrar stærðar þessara
bíla, en helzti galli 305-gerðar-
innar er að vélin er nokkuð
hávær. Það kemur e.t.v. ekki svo
mjög að sök í bæjarakstri, en er
vafalaust þreytandi við
þjóðvegaakstur, og mætti senni-
lega vel bæta úr þessum ágalla
með því að einangra vélarlokið.
Vélin í 305-bílnum er 1290
kúbik í GL-gerðinni og 1472 í
SR-gerð og er hún í fyrra
tilvikinu 65 hestöfl en því síðara
Pcugeot 305
er framdrifinn
5 manna bfll.
Ljósm. Rax.
Stýrið í 305 er sérstakt, en að öðru leyti er
mælaborð mjög vcnjuiegt.
Mælaborð 505 svipar til 305.
74. Eyðslan er talin vera allt frá
7—10 lítrar eftir akstri.
Ný gerð: 505
Þá telst það til tíöinda frá
Peugeot-verksmiðjunum að um
þessar mundir er verið að kynna
nýja gerð, Peugeot 505. Er hann
nokkru meiri bíll en 504, en
heldur minni en 604. Verð
504-bílanna er kringum 6 millj-
ónir og er talið að 505-gerðin
geti kostað allt að 6,5, en ekki er
komið fast verö ennþá. Sögðu
umboðsmenn að ekki væri að
vænta fyrstu bílanna af þessari
gerð fyrr en með haustinu.
Bílnum svipar til 305 og að
nokkru leyti til 504 og á greini-
lega vel heima í Peugeot-
umsjón
JÖHANNES TÓMAS-
SON og SIGHVAT-
UR BLÖNDAHL
fjölskyldunni. Vélin er 110 hest-
öfl við 5.200 snúninga, hann er
fimm gíra og er sagður eyða frá
7—13 lítrum eftir vélarstærð.
Beðið verður betri tíma til að
fjalla nánar um þennan nýja
Peugeot.
Bílar
Aro-jeppinn er kannski ekki nýtízku-
legur útlits, en virðist traustvekjandi.
Ljósm. Kristinn.
Ohætt er að telja fjöðrunina mjúka og ætti hann einnig að
standa fyrir sfnu þegar að torfærunum kemur.
Fulltrúi verksmiðjanna, Ceonea, og Alli Rúts.
Aro-jeppinn rúmenski:
Brúar bilið milli
Lada og Land-Rover
UM ÞESSAR mundir er að
hefjast innflutningur á hinum
rúmensku Aro-jeppum. Er það
Aro umboðið, Bílasala Alla Rúts,
sem sér um innflutninginn og
hefur það haft til reynslu bíla
um eins árs skeið. Albert Rúts-
son sagði, er hann sýndi okkur
bílinn, að hann hefði ákveðið að
flytja inn nú í upphafi eins dags
framleiðslu verksmiðjanna, sem
er kringum 20 bílar. Eru það
bæði venjulegir 5 manna jeppar
með húsi eða blæju og pallbílar.
Aro-jeppinn er nokkuð stór
bíll, heldur stærri en Land-
Rover og er í verði mitt á milli
Lada Sport og Land-Rovers og
Bronco-jeppa eða um 6 milljónir.
Kannski mætti segja, að
akstursskilyrðin væru einnig
einhvers staðar þar á milli, en
jeppinn er allþýður og fer ágæt-
lega um ökumann undir stýri.
Ókostur er hversu þungur hann
er í stýri, en hann verður síðar
fáanlegur með vökvastýri og
ætti það að bæta þar um og
greinilega verður það öhjá-
kvæmilegt, nema menn óski þess
að beita afli við að taka beygjur.
En þó ætti þetta ekki heldur að
koma að sök í akstri úti á vegum.
Sem fyrr segir er dagsfram-
leiðsla verksmiðjanna um 20
bílar upplýsti fulltrúi frá
verksmiðjunum, sem hér var á
dögunum, og sagði hann að
jeppinn hefði komið á markað í
Rúmeníu fyrir um 15 árum, en
nýlega hefði hafist útflutningur
að einhverju marki og væri m.a.
flutt til Suður-Ameríku og
Afríkuríkja. Aro-jeppinn ætti að
vera vel liðtækur við hvers kyns
landbúnaðarstörf og sport-
mennsku og er hann t.d. all-
rúmgóður að innan fyrir þá sem
vilja fara í langferðir með til-
heyrandi búnað. Hjólbarðar eru
16 tommur, bíllinn er milli 1550
og 1660 kg að þyngd og vélin 80
hestöfl.
Ekki verður að þessu sinni
hægt að fjölyrða um aksturseig-
inleika þar sem bíllinn er um
það bil að komast á götuna og
ekki hefur gefist tækifæri til að
aka honum að ráði, en hér er
sennilega á ferðinni bíll, sem
brúar bil milli hinna dýrari og
ódýrari jeppa, sem nú eru fyrir
hendi.
Fyrir 5 árum var Aro-jeppinn
fluttur til Bretlands, en náði
ekki fótfestu á markaði þar. í ár
á að gera aðra tilraun og eru
innflytjendur bjartsýnir á að
hann muni nú ná vinsældum. Er
hann talinn keppa þar við
Land-Rover bílana.
Corvair-Willysinn sameinar kosti fólksbfls og jeppa.
Corvair ogWillys
einn og sami bíllinn
';ið rákumst á þennan
skendna bíl í Firðinum á dögun-
um, en hann er af Corvair-gerð,
en með Willys Station-hásing-
um. Eigandinn Oddur Ólafsson,
kvaðst hafa verið 1 og 'h ár að
breyta bílnum í núverandi horf
oý *aldi hann eina bíl sinnar
tegundar í heiminum.
-- Ég hefi átt marga jeppa og
langaði líka til að hafa fólksbíl
og því varð úr að ég réðst í þessa
smíði. Grindin er einnig úr
Willys og vegna þess hve
þyngdarpunkturinn er lágur þol-
ir hann vel hliðarhalla og má
segja að hann hafi alla kosti
jeppa, en cr þó eins og fólksbíll í
akstri. Vélin ev 327 Chevrolet,
sjálfskipt, og ég varð að skeyta
nhllíkassanum aftan við sjálf-
skiptinguna.
Oddur kvað bílinn ekki eyða
nema kringum 17 lítrum á
hundraðið og sagði hann reynsl-
una góða eftir rúmlega 2 mánaða
notkun.