Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1979
LJÓSIN í BÆNUM:
ÞURSAFLOKKURINN:
Ólafsson, yfirþurs, er við ókum vestur Suðurlandsbrautina. Esjuberg
reyndist vera búið að loka, en í Múlakaffi var enn þá opið og fyrir náð
og miskunn starfsfólksins var okkur leyft að setjast þar niður og
sötra te. Inni voru aðeins þrjár hræður, tveir menn reyndu að auðgast
á Rauða kross kassa, eina fjárhættuspilinu, sem leyft er á íslandi, en
einn hinna mörgu bifreiðarstjóra, sem svo mjög setja svip á staðinn,
var að drekka kvöldkaffið sitt. Eftir að hafa komið okkur þægilega
fyrir við borð eitt úti í horni, gat samtalið loks hafizt og fyrsta
spurningin var, hvaða lög kemur Þursaflokkurinn til með flytja á
hljómleikunum?
Níuþús-
undasti
gesturinn
fær
frítt inn
FRÁ litlu bakhúsi rétt innan við
Hlemm mátti heyra torkennileg
hljóð. Annað veifið var sem hrað-
lest færi þar um, en inn á milli
komu hljóð er minntu óneitanlega
á hnegg í hrossi, en síðan breytt-
ust hljóðin í byssuhvelli. Er að var
gáð reyndist aðeins um æfingu hjá
Ljósunum í bænum vera að ræða,
en auk þeirra var á æfingu
Magnús Sigmundsson, en liðs-
menn Ljósanna koma til með að
leika undir hjá Magnúsi og Jó-
hanni á hljómleikunum. Eftir
skamma veru inni við, var afráðið
að halda út undir bert loft og sjá,
sólin hafði brotið sér leið gegnum
þykkan þokubakkan, sem grúfði
yfir Reykjavík og nú böðuðu
geislar hennar grænan grasflöt-
inn. Friðrik fór og náði í teppi og
þá var okkur ekkert að vanbúnaði
að hef ja skrafið.
Hvernig finnst ykkur að koma
fram á hljómleikum?
„Við kveljumst náttúrulega af
ótta alveg fram að hljómleikunum
og eflaust einnig á meðan við erum
að spila. Þetta er okkur alveg nýtt
og við hljótum að vera mjög
spenntir. En við kvíðum þeirri
taugaspennu, sem eflaust á eftir að
hrjá okkur uppi á sviðinu. Þetta er
búið að vera gífurlegt álag að
undanförnu, við höfum æft á hverj-
um degi, mun lengur en nokkurn
gæti órað, því að mörg laganna sem
við komum til með að flytja eru af
nýju plötu okkar, þannig að raun-
verulega má segja að við höfum
hafið æfingar í marz.
sem minnst hljóðflutningskerfi,
t.d. þegar Cleo Lane lék í Laugar-
dalshöllinni á listahátíð þá var hún
ekki með mjög kraftmikið kerfi, en
það skilaði samt fyrsta flokks
hljómi. Galdurinn er sá að geta
gizkað rétt á fjölda áhorfenda. Ef
miðað er við að margir komi, en
fáir láta síðan sjá sig, þá verður
hljóðið mun verra, en efni stóðu til,
og öfugt. Við verðum með nokkuð
stórt kerfi miðað við íslenzkar
hljómsveitir og höfum fengið ein-
staka hluti þess lánaða víðs vegar
um bæinn."
Hinu má ekki gleyma að eina
helzta hindrunin í vegi eðlilegs
hljómleikahalds, eru hin fáranlegu
lög, sem í gildi eru um þetta efni.
Þar segir að til að hægt sé að fá
felldan niður söluskatt verði að
minnsta kosti 16 hljóðfæraleikarar
Sinfóníuhljómsveitarinnar að
koma fram. Það hefði svo sem verið
nógu gaman að fá þá til að koma og
vera „gó-gó-stúlkur“, en þetta sýnir
bara hvað lögin eru óraunhæf. Inn
í þetta atriði kemur einnig per-
sónulegur smekkur viðkomandi
ráðamanna um hvað sé sígild
tónlist og hvað ekki.“
Hvaða meginmunur er á hljóm-
leikunum og á þeim böllum, sem
þið ætlið að leika á úti á landi?
„Við komum til með að taka
samkomuhúsin úti á landi á leigu
og leika þar fyrir dansi. Við
verðum kannski með þriggja tíma
prógram og einn þriðji þess, verður
þá kannski eitthvað í anda þess,
sem við hyggjumst leika á hljóm-
leikunum. Hitt verður svo eingöngu
dansmúsík. En við vonum að ferðin
um landið verði skemmtileg og við
hlökkum til hennar. Maður verður
alltaf að vera bjartsýnn í upphafi.
Svo stefnum við náttúrulega að
dúndurfjöri á öllum stöðunum. Við
verðum einnig með gott diskótek
með í förinni og ljósasýningu undir
stjórn Eiríks Ingólfssonar.
Þess má einnig geta að Gísli
Sveinn Loftsson sér um ljósin á
hljómleikunum í Laugardalshöll-
inni og síðast en ekki sízt verður
einum aðstoðarmanni bætt í
hljómsveitina fyrir hljómleikana,
Birni Thorarensen, en hann var í
hljómsveitinni Sturlungar."
Hvað tekur svo við að lokinni
landreisunni?
„Við ætlum að taka okkur frí í
júlí, en byrja síðan aftur í ágúst.
Með haustinu er ætlunin að halda í
skólana og halda hljómleika þar.
Einnig má geta þess að plötu okkar
Disco-Frisco verður dreift til Band-
aríkjanna, Bretlands og Skandin-
avíu í gegnum CBS hljómplötufyr-
irtækið, en síðar er ætlunin að
senda til Bretlands og Bandaríkj-
anna prufuupptöku með nokkrum
lögum af Disco-Frisco, en sú verður
með enskum textum í stað þeirra
íslenzku."
Að svo mæltu lölluðu þeir aftur
inn í æíingaskúrinn, sem nötraði
og skalf þegar æfing hófst að nýju.
„Við ætlum að flytja bæði gam-
alt efni og nýtt. Við verðum með
lög af nýju plötu okkar, Þursabit,
en auk þess bæði önnur ný lög og
gömul. Fólk kemur á hljómleika
til að heyra lög, sem það þekkir og
þess vegna munum við leika þau
lög fyrir það. Alls gerum við ráð
fyrir að leika í 45 mínútur, eða þar
um bil.
Ástæðan fyrir því að hljómleik-
arnir verða í Höllinni er sú að það
er hagstætt peningalega séð, þótt
svo ég persónulega hefði frekar
viljað leika á minni stað. Það er
ódýrara að leigja Höllina frá
sunnudegi og fram á þriðjudag, en
að taka kvikmyndahús á leigu, því
þá þurfum við að kaupa upp
bíósýninguna. Draumurinn er
hins vegar að halda hljómleika í
litlu húsi, eins og t.d. íðnó, og hafa
þá hljómleikana ókeypis. Fólki
hættir til að miða hljómleika út
frá því hvað það fær mikið fyrir
peningana. Ef hljómleikarnir
væru ókeypis, eins og t.d. þeir sem
við héldum á Klambratúni í fyrra
og tókust mjög vel, myndi fólk
skemmta sér betur.
Auðvitað er mikill munur á því
að leika á sviði og að spila inn á
plötu. I stúdíóinu ertu einn á báti.
Þegar maður heldur hljómleika þá
stendur maður og fellur með
áheyrendunum. Ánnað hvort
bakka þeir þig upp eða taka þér
illa. Höllin er svo mikill geimur að
það er hætta á að þessi stuðningur
áhorfenda verði að engu og menn-
irnir uppi á sviðinu verði einangr-
aðir. Samt vona ég að það gerist
ekki.
Ég held að fólk erfi það ekkert
við okkur að við hættum við að
spila á hljómleikunum með
Stranglers í fyrra,“ segir Egill og
hlær við. „Við bættum það líka
upp með hljómleikunum á
Klambratúni.
Hvað allan hljómburð varðar í
Höllinni þá ættum við að geta
lofað öllu góðu. Við verðum með
sérstakan hljómblöndunarstjóra
og munum reyna að gera okkar
bezta í þessum efnum.“
Klukkan var farin að nálgast
hálf-tólf og stúlkurnar i Múlakaffi
voru farnar að hreinsa til og
undirbúa sig undir lokun. Bezt að
hafa hraðann á áður en okkur
verður hent út.
Hvað tekur við eftir hljómleik-
ana?
„Við förum til Los Angeles
daginn eftir hljómleikana og ætl-
um að leika þar í eitt skipti í
klúbb, sem heitir Trubador. Þetta
er frægur klúbbur, sem margir
þekktir menn hafa heiðrað með
veru sinni og leik. Nú þar á eftir
munum við koma fram á Lýð-
veldishátíð í Los Angeles, en
íslendingafélagið þar í borg á 35
ára afmæli á árinu. í það skipti
kemur fram með okkur fjallkona,
sem er Herdís Þorvaldsdóttir. Ég
held að það verði gaman af að
leika á lýðveldishátíðinni, en hún
verður haldin þann 16. Við ætlum
að hafa prógrammið dálítið öðru
vísi en venjulega, vera með ein-
hver ættjarðarlög og gömul
íslenzk lög á borð við vögguvísur,
sem allir þekkja alveg örugglega.
En inn á milli ætlum við að lauma
Hljómleikarnir eru náttúrulega
fyrst og fremst kynning á þessari
nýju plötu, Disco Frisco, en við
munum einnig leika önnur lög. Alls
komum við til með að leika í um
það bil 45 mínútur, og um það bil
þriðjungi þess tíma verður varið í
„instrumental" lög. Meðal annars
eru það tvö lög eftir þá Friðrik
Karlsson og Eyþór Gunnarsson.
„Tónlist okkar mótast svo af lífs-
gleði, lífsvilja og birtu".
Teljið þið grundvöll fyrir hljóm-
leikum sem þessum?
„Ja, hér um árið þegar rokkhá-
tíðin var haldin, en þar komu fram
Eik, Kabarett, Paradís, Celsíus og
Fresh, þá komu vel yfir tvö þúsund
manns í Höllina og það ævintýri
kom út með gróða. Það má benda á
það að sameiginleg plötusala
Þursaflokksins og Ljósanna er
eitthvað yfir 5.000 eintök, án þess
að það segi nokkuð tií um hve
margir komi á hljómleikana. En
það sýnir að grundvöllinn vantar
ekki. Við í Ljósunum hyggjumst
hins vegar verðlauna þann, sem
kaupir aðgöngumiða númer 9.000“.
Eruð þið ekkert hræddir við
hljóminn í Höllinni?
„Nei, það er engin ástæða til
þess. Við fáum nægan tíma til að
æfa í Höllinni, eða allt frá sunnu-
degi og fram á þriðjudag og við
getum þess vegna lofað góðu
„sándi". Það hefur sýnt sig að
stundum getur verið gott að hafa
Þursar, Magnús og
Jóhann og Ljósin a
Alltof sjaldan gerist þaö hérlendis aö innlend-
ar hljómsveitir halda hljómleika. Á þessu veröur
þó gerö nokkur bragarbót á þriöjudaginn, en þá
halda Ljósin í bænum, Magnús og Jóhann og
Þursaflokkurinn hljómleika í Laugardalshöllinni.
Já, þaö er skammt stórra högga á milli, því aö í
fyrri mánuöi var Laugardalshöllin vettvangur
hljómleika HLH-flokksins. Slagbrandi lék hugur
á aö heyra hljóöiö í þeim sem fram koma á
þriöjudag og leitaöi því til viökomandi tónlistar-
manna. Tekiö skal fram aö lokum aö margnefnd-
ir hljómleikar hefjast klukkan 21 en forsala
aögöngumiöa er í hljómplötudeildum Karnabæj-
ar, Fálkans, Skífunni og Faco.
„Við komum til með að flytja sex
lög á hljómleikunum og þar að hafa
fimm aldrei heyrzt opinberlega
áður,“ sagði Magnús Sigmundsson,
en hann kemur fram ásamt félaga
sfnum Jóhanni Helgasyni. „Eitt
þessara laga er á plötunni Keflavík
í popskurn, sem út kom nýlcga og
heitir það Meditation vobooze“.
Þessi sex lög skiptast í þrjá hluta,
en þau fjalla öll um ákveðið tema,
sem er byggt á okkar eigin lífs-
reynslu. í fyrsta hlutanum eru lögin
Born To Lose og Tarantuala. Bæði
þessi lög eru um lægstu tilfinningar
mannsins og þær verstu. Tarantula
er nafn á köngulló og í laginu er lýst
viðhorfum manns, sem vaknar dag
einn og finnst umhverfi sitt kulda-
Tema
byggtá
eigin
reynslu
;
I
a
;s;s
%