Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979
25
frænku Ingimars, Þórunni Björns-
dóttur.
Ingimar endurbætti mjög hús
fósturforeldra sinna, og þar
bjuggu þau hjónin viö mikla rausn
um nær 50 ára skeið eða þar til
þau fluttu í nýtt hús er þau
byggðu á Þórshöfn. Þar bjuggu
þau til æviloka.
Oddný og Ingimar eignuðust
fríðan barnahóp, fyrst átta dætur
og síðan þrjá syni, og eru níu
barna þeirra á lífi. Börnin eru
talin í aldurs röð: Soffía Arnþrúð-
ur póst- og símstöðvarstjóri gift
Helga Guðnasyni, Þórshöfn;
Hólmfríður Þórdís, ekkja Karls
Hjálmarssonar, kaupfélagsstjóra,
búsett í Reykjavík; Helga Aðal-
björg, dó af slysförum 1945. Hún
var gift Björgvin Sigurjónssyni,
vélstjóra; Steinunn Birna gift
Sigurði Sigurjónssyni, útgerðar-
manni Þórshöfn; Arnþrúður gift
Jóni Kristinssyni forstöðumanni
Elliheimilanna á Akureyri og í
Skjaldarvík; Halldóra gift
Jóhanni G. Benediktssyni, tann-
lækni Akureyri; Oddný Friðrikka
gift Ingimar Einarssyni, lögfræð-
ingi Reykjavík; Jóna Gunnlaug
búsett í Reykjavík; Jóhann
forstjóri á Akureyri kvæntur
Guðrúnu Helgadóttur; Ingimar
sóknarprestur í Vík í Mýrdal
kvæntur Sigríði Sigurgísladóttur
og Árni Sigfús Páll sem dó í æsku
1935.
Frá æskudögum mínum heyrði
ég talað um Oddnýju oglngimar,
því að sjaldan var minnzt á
Þórshöfn, án þess að nöfn þeirra
bæri á góma: Allir þekktu þau,
treystu þeim til góðra ráða, enda
brugðust þau aldrei því trausti. Þá
var ekki lítilsvirði að eiga góða að
norðan heiðar eftir ferðalag yfir
fjallveg, hvort sem farið var gang-
andi eða á hesti oft í misjöfnu
veðrum og kannski í ófærð. Eng-
inn þurfti að fara neðangarðs,
öllum var tekið opnum örmum.
Þar var alltaf á dimmu dögum ljós
í glugga, sem vísaði veginn.
Þegar séra Jón reiddi Oddnýju
litlu norður yfir Sandvíkurheiði
var móðir mín lítil stúlka á næsta
bæ við prestssetrið. Móðir mín var
skírð nafni fyrstu konu séra Jóns,
Oktavíu, en hún hafði dáið af
barnsförum aðeins 25 ára gömul.
Móðir mín var því á vissan hátt
tengd prestssetrinu, enda dvaldist
hún þar stundum og myndaðist þá
æskuvinátta milli hennar og
Oddnýjar, sem ekki rofnaði meðan
báðar lifðu. Prestssetrið var mið-
sveitis og skjöldur og skjól fólks-
ins á margan hátt — og er það
ennþá.
Fósturbörnin tvö fengu gott
veganesti, hún á prestssetrunum,
Skeggjastöðum og Sauðanesi og
hann á Þórshöfn. Sterkir ætt-
stofnar þeirra beggja voru uppi-
staöan, en gott uppeldi þeirra
ívafið. Þau fórnuðu kröftum sín-
um fyrir börn sína og byggðarlag
og þá um leið þjóðina alla.
Á gullbrúðkaupsdegi þeirra
1926 skrifar Gísli Guðmundsson
meðal annars: „Og nú í dag þegar
fósturdóttirin frá Sauðanesi held-
ur gullbrúðkaup sitt hvarflar
hugur okkar margra gamalla
Langnesinga í fjarlægð heim að
þessum forna stað, sem með reisn
sinni og helgi var í bernsku okkar
og æsku mikill í okkar augum og
er enn.“
_ ___Og__Oddný Guðmundsdóttir
skrifar í minningargrein um
Oddnýju meðal annars: „Það hlýt-
ur að hafa fylgt þeim mikil glað-
værð á þessum árum æsku og
bjartra vona, því að hálf níræð
gátu þau hlegið saman eins og þeir
einir geta sem hafa fengið létta
lund og græskulausa glettni í
vöggugj öf.“
Og nú er lokið löngu og farsælu
æfistarfi ungu fósturbarnanna,
sem barnung voru flutt úr
foreldrahúsum til þess að tryggja
þeim öruggari framtíð. Þau skil-
uðu miklu og gifturíku æfistarfi.
Hann var mikill framkvæmda-
maður og góður heimilisfaðir.
Hún glaðvær, söngelsk og góð
móðir og þau bæði sem afi og
amma i þeirra orða bezta skiln-
ingi, alltaf reiðubúin að leggja
börnum sínum lið og öllum barna-
börnunum, enda voru þau þar
mörg langtímum saman.
Auk þess báru þau gæfu til að
launa dvölina á Sauðanesi, því að
Séra Jón fluttist til þeirra er hann
lét af prestsskap á Sauðanesi og
dvaldi hjá þeim síðustu árin og dó
þar þrotinn að heilsu 1924. Oddný
var líka mjög tengd prestsstarfinu
þar, því að hún byrjaði að spila í
kirkjunni aðeins 14 ára gömul og
var þar um langt árabil organisti
og stjórnaði kirkjukór sóknarinn-
ar. Það var þeim einnig mikil
gleði, að Ingimar sonur þeirra var
í nokkur ár sóknarprestur á
Sauðanesi.
Þau dvöldu í húsi sínu, Ingi-
marsstöðum, til æfiloka. Oddný
andaðist þar 29. september 1977
og Ingimar 30. janúar 1979. Þau
fengu bæði hægt andlát, sofnuðu
vært inn í nýja tilveru. Og nú
hvíla þau í kirkjugarðinum á
Sauðanesi, á þeim stað, sem æsku-
ástin batt þeim æfikrans.
Vinir eru horfnir. Við Selma
þökkum þeim alla þeirra tryggð.
Við sendum öllum börnum þeirra
og öðrum ástvinum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minnign þeirra.
Jón Gunnlaugsson.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför,
PÉTURS J. DANÍELSSONAR.
Guörún Pálsdóttir og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jarðarför föður míns, tengdafööur, afa okkar og bróöur,
ARNBJÖRNS SIGURGEIRSSONAR,
Selfossi.
Sigrún Arnbjarnardóttir
Arna V. Kristjánsdóttir
Guörún Sigurgeirsdóttir
Krístján Ásgeirsson
Ásgeir í. Kristjánsson
Bjarni Sigurgeirsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát móöur
okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
HALLFRÍDAR ÁSGEIRSDÓTTUR,
Borgarvegi 15, Ytri Njarövík.
Guörún Skúladóttir
Ellert Skúlason Elín Guönadóttir
Trausti Skúlason Guöríöur Kristjánsdóttir
Svavar Skúlason Guömunda Guöbergsdóttir
Ásgeir Skúlason Sigrún Siguröardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tikk takk tikk takk
tikk takk tikk takk
HUÓMLEIK4R í HÖIIINNI
---- h
Magnús
Þur^afbkkurinn Jófiann Ljósin í bænum
i lohrMi
í II III
inninn
I 04
Aögangur kr. 3500. Forsala aðgöngumiða í hljómplötudeiidum: Karnabæjar, Fálkans, Skífunni og Faco.
V-
Já, tikk, tíminn líöur og nú eru aöeins tveir dagar þar til „Hljómleikarnir í Höllinni“ hefjast og takk kærlega þiö 1500 sem
nú þegar hafiö tryggt ykkur miöa, þaö er von aö þiö séuö hissa á hinum sem enn tvístíga.
En fyrir þá höfum viö góöar fréttir. Já ótrúlegt en satt, þrátt fyrir veröbólgu, vaxtabreytingar, verkföll og mikla eftirspurn
tekst okkur enn aö halda miöaveröinu á aöeins kr. 3500.