Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1979
31
AÐEINS
i
KR»
nruri?
■JL JnLlji OH.í3>
EflRTH,
WIND&
Bxnnig stendur bér til
alveg einstalct hreinsi
fyrir plötirnar bínar
pm
UUGAVEGI33 - SÍMl 11508-101 REYKJAVÍK- ÍSIAND
Frúarlykill
Primula x pubescens Mrs. J. H. Wilson
Frú Wilson.
í Garðyrkjuritinu 1977
er ítarleg grein eftir ólaf
B. Guðmundsson sem ber
heitið Ættkvíslin Prim-
ula (Lykill-Prímúla). Þar
segir m.a. um frúarlykla:
„P.x pub. Mrs. J. H.
Wilson er líklega fræg-
asta afbrigði frúarlykla
sem er stöðugt hátt á
vinsældalistanum, jafnvel
þótt komið sé til ára
sinna, en það á 75 ára
afmæli í ár (1976). Þetta
afbrigði kom fyrst fram á
sýningu í Englandi árið
1901, sýnt af Mr. J. Wilson
frá Sheffield og hlaut þá
sérstök heiðursverðlaun
(reyndar undir nafninu
prim. viscosa). Árið 1969
hlaut það aftur verðlaun
sem sýnir best hve vel
þessi öndvegisjurt hefur
staðið af sér breytingar
tíma og tízku í meira en
hálfa öld. — Og enn er
engin ellimörk að sjá á
Frú Wilson! Sterk og
mjög blómsæl."
— Og þá er þar til að
aka að fyrir nokkrum ár-
um gaf Herdís garðyrkju-
kona í Fornhaga mer fá-
einar plöntur af áriklu,
sem hún þá kallaði „rauðu
árikluna" og var ekki al-
veg viss um hvert latn-
eska heitið væri. Kvaðst
Herdís hafa fengið plöntu
þessa úr garði einum á
Akureyri fyrir rúmlega
tveim áratugum og alla
tíð síðan hefði hún ræktað
meira og minna af henni
enda hefði plantan reynst
frábærlega vel. Og ekki
brást hún vonum mínum
hér syðra. Næsta vor stóð
hún í fullum blóma löngu
áður en tré höfðu laufgast
og svo sannarlega lífgaði
rauðfjólublár liturinn upp
garðinn sem enn var grár
og gróðurlítill.
Jurtin er ekki stórvax-
in. Blómstöngullinn er
u.þ.b. 15 sm hár og sitja
blómin í allþéttri hvirf-
ingu á stöngulendanum,
liturinn skær og áberandi,
blómbotninn hvítur.
Blöðin — allþykk og
lítið eitt tennt á jöðrum
— eru sígræn eins og á
öðrum áriklum og koma
svo nreinlega undan vetri
að lítið sem ekkert þarf að
snyrta jurtina eða snur-
fusa og er það út af fyrir
sig ekki svo lítill kostur.
Þá verður ekki með ofsög-
um sagt af harðfengi
þessarar jurtar, það er
nánast sama hvar henni
er búinn staður, hún virð-
ist standast nöprustu
næðinga og óvarin láta
blómin lítt á sjá þó frost
fari niður í allt að 5
gráður. En vissulega verð-
ur hún því fegurri og
glæsilegri sem betur er að
henni búið, komið fyrir á
skýldum stað og vel að
hlúð. Ekki þroskar jurt
þessi fræ hér, en hún
stækkar ört og þarf helst
að skipta henni og end-
urgróðursetja þegar hún
hefur staðið 2—3 ár á
sama stað. Hún nýtur sín
afar vel í þyrpingum og
þétt sett í raðir t.d. fram-
antil í trjábeðum. í venju-
legu árferði er blómgun-
artíminn fyrri hlui maí
mánaðar og er hún að því
leyti 2—3 vikum fyrri til
en venjulegar garðaárikl-
ur.
Að lokum mafgeta þess
að nálægt árinu 1950 fékk
sá kunni btómafrömuður
Kristinn Guðsteinsson
nokkrar plöntur af Mrs.
Wilson erlendis frá og frá
honum mun hún hafa
borist víða m.a. í Hafn-
arfjröð. Hvort plöntur
Herdísar eru afkomendur
þeirra skal ósagt látið en
ekkert finnst mér mæla á
móti því að þessi fagra og
harðgera árikla haldi
virðingarheitinu Mrs. H.
J. Wilson nema því aðeins
að annað reynist sannara
í því efni. Ums.
Nú getið þér valið um 12 tegundir
eldhúsinnréttinga og skoðað 9 þeirra í
húsakynnum okkar að Háteigsvegi 3. Við viljum
benda sérstaklega á hina nýju virðulegu
eikarinnréttingu sem er nýupþsett.
Innréttingar við allra hæfi og
möguleikarnir fjölmargir.
Við veitum yður allar ráðleggingar
varðandi innréttingarnar, og gerum
hi'ieiA 1,11 yöur tilboð að kostnaöarlausu
liUSBO og án nokkurra skuldbindinga.
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
Verslun simi 27344
höf um opið um helgina
laugardag 10-18 sunnudagl- 8