Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979
Sjómannadagurinn í Reykjavík:
Hátíðahöldin
hef jast kl. 8
HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins í Reykjavík verða
með hefðhundnum hætti. Þau hef jast með þvi að um borð
í skipum í höfninni verða skrautfánar að húni klukkan 8
f.h. í dag.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur fyrir dvalargesti á
Hrafnistu kl. 10. Sjómannamessa verður í Dómkirkj-
unni kl. 11 og þar þjónar sr. Hjalti Guðmundsson.
Eftir hádegi verður útihátiðar-
samkoma í Nauthólsvík á vegum
Sjómannadagsráðs í Reykjavík og
verður þar ýmislegt til skemmtun-
ar svo sem kappsigling, kappróður
og koddaslagur.
Þá mun og Tóti trúður (Ketill
Larsen) skemmta ásamt börnum
og unglingum. Er líða tekur á
skemmtunina mun verða skraut-
erjafjörðinn. Eigendur smábáta
munu fylkja liði úti í firðinum og
sigla inn hann þegar líða tekur á
daginn.
A undan skemmtiatriðunum
verða flutt ávörp. Kjartan Jó-
hannsson sjávarútvegsráðherra
mun tala af hálfu ríkisstjórnar-
innar, Sverrir Leósson útgerðar-
maður frá Akureyri af hálfu
útgerðarmanna og Ingólfur Ing-
ólfsson formaður Farmar.na- og
fiskimannasambands íslands af
hálfu sjómanna. Síðan mun Pétur
Sigurðsson formaður Sjómanna-
dagsráðs heiðra aldraða sjómenn
með merki sjómannadagsins.
Jafntefli í biðskák Guðmundar
„ÞESSI viðureign endaði með jaín-
tcfii eftir tæpa 60 leiki. Hann átti
góða möguleika. en honum tókst
ekki að nýta þá til vinnigs,“ sagði
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari er Mbl. spurði hann í gær
um úrslitin í biðskák hans og
Kagans. Griinfeld vann biðskák
sína við Wedberg.
Hiibner og Kagan hafa nú 3,5
vinninga, Guðmundur og Grúnfeld
eru með 2,5, Wedberg er með 2
vinninga, Helmer 1,5, Helgi hálfan
og Karlsson engan.
í gær tefldi Guðmundur við
Hubner og Helgi við Grúnfeld og
Helgi við þá Wedberg og Karlsson.
Svæðamótinu lýkur þann 12. júní og
komast þrír efstu menn áfram á
millisvæðamót, sem fram fer í sept-
ember.
Guðmundur sagði að hann hefði
ákveðið að taka þátt í Esbjerg-mót-
inu í Danmörku í júlí, en á því móti í
fyrra varð Guðmundur í öðru sæti á
eftir Bent Larsen.
í Álftamýrarskóla hefur nú verið komið upp starfsleikvelli, þar sem
krakkar geta fengið útrás fyrir sköpunarþrá sína og unga fólkið
smíðar og neglir. Hér eru tveir ungir „húsbyggjendur“ í óða önn við
smfðar. — Ljósm. Mbl. Kristján.
Sjómanna-
dagurinn í
Hafnarfírði
HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins
í Hafnarfirði hefjast með því að
fánar verða dregnir að húni
klukkan 8.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
við Hrafnistu klukkan 10. Klukkan
11 verður sjómannamessa í kapellu
Hrafnistu, séra Sigurður H. Guð-
mundsson messar. Kl. 13 verður
skemmtisigling með börn út Hafn-
arfjörð og kl. 14 hefjast útihátiða-
,höld við fiskiðjuver Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar. Ræður verða flutt-
ar, sjómenn verða heiðraðir og
ýmislegt verður gert til skemmtun-
ar. Kl. 19.30 hefst sjómannahóf í
gnekkjunni.
Sjómannadagurinn:
Tveggja daga hátíðahöld í Eyjum
MIKIL hátíðahöld verða að venju
í Vestmannaeyjum á sjómanna-
daginn, en þar standa hátíðar-
höldin í tvo daga, hófust f gær og
lýkur aðfararnótt mánudagsins.
í gær voru hátíðarhöld við
höfnina með hefðbundnum hætti,
og auk þess var þar afhjúpaður
minnisvarði, skrúfan af gamla
varðskipinu Þór, sem komið hef-
ur verið upp við höfnina.
í dag hefst hátíðin síðan
klukkan 13 við Samkomuhúsið,
þar sem Lúðrasveitin mun leika og
Hjálmar Guðmundsson setur
hátíðina. Þá verður skrúðganga að
Landakirkju, þar sem séra
Kjartan Örn Sigurbjörnsson
messar við sjómannamessu. Þá
verður minningarathöfn við
minnisvarðann, Einar J. Gíslason
flytur ræðu og Sólrún Bragadóttir
syngur einsöng.
Klukkan 16 í dag mun Lúöra-
sveitin leika á Stakkagerðistún-
inu, Jóhannes Kristinsson flytur
aðalræðu dagsins, aldraðir sjó-
menn verða heiðraðir, helgistund
með ungu fólki úr Landakirkju-
söfnuði, viðurkenning fyrir
björgunarafrek, óvæntur gestur
og verðlaunaafhending fyrir unn-
Höfn, HornafirÖi, 9. júnf.
MEIRI undirbúningur er fyrir
sjómannadaginn hér en oftast
áður. Klukkan 10 á sjómanna-
daginn hefst bátasigling út fyrir
ósinn og taka allir bátar hér þátt
f þeirri siglingu og yngstu
borgurunum er boðið með.
Klukkan 13.40 hefjast hátíðar-
höldin við Hótel Höfn með leik
in afrek daginn áður.
Kvöldskemmtun verður í
íþróttahöllinni klukkan 20.30 og
síðan verður stiginn dans í tveim-
ur sölum í samkomuhúsinu frá
klukkan 23.30 til 04.
Lúðrasveitar Hornafjarðar.
Klukkan 14 verður samkoman sett
og síðan verða sjómenn heiðraðir,
afhent verða aflaverðlaun og verð-
laun fyrir kappróður. Ýmiss konar
boðhlaup fara fram og skemmti-
atriði. Bæði laugardags- og sunnu-
dagskvöld verða dansleikir í
Sindrabæ og Hótel Höfn.
—Jens.
Hornafjörður:
Mikið um að vera
á s jómannadaginn
Ögri og Guðbjörg aflahæstu
togararnir annað árið í röð
Vestfjarða-
togararnir
í sérflokki
af minni
skuttogurum
SKUTTOGARAR gerðir út frá
Vestfjörðum öfluðu langmest
allra skuttogara af minni gerð-
inni árið 1978. Átta vestfirzkir
skuttogarar voru í nfu efstu
sætunum, samkvæmt yfirliti
sem birtist f nýútkomnum Ægi,
aðeins Haraldur Böðvarsson
AK skautzt upp á milli togar-
anna frá Vestfjörðum. Guð-
björg ÍS frá ísafirði varð afla-
hæst minni skuttogaranna f
fyrra með 4.636,4 tonn og er
þetta annað árið í röð sem
Guðbjörgin er aflahæst yfir
landið. Arið 1977 kom hún með
4.641,8 tonn að landi. Skipstjór-
ar eru feðgarnir Ásgeir Guð-
bjartsson og Guðbjartur Ás-
geirsson. Af stærri skuttogur-
unum var ögri RE frá Reykja-
vfk aflahæstur annað árið f röð
með 4.670,1 tonn. Skipstjóri á
Ögra er Brynjólfur
Halldórsson.
Heildarafli togaranna í fyrra
var 219.207,1 tonn og var um að
ræða nokkra aukningu frá árinu
Guðbjörg IS
1977, þegar heildarafli togar-
anna var 206.943,5 tonn. í fyrra
veiddu minni togararnir
163.912,1 tonn á móti 146.176,2
tonnum árið 1977. Stærri togar-
arnir veiddu í fyrra 55.295,0 tonn
á móti 60.767,3 tonnum árið
1977. Aflaaukning er hjá minni
togurunum, enda hafði þeim
fjölgað úr 58 í 64 milli ára en
stóru togurunum hafði fækkað
úr 18 í 14 milli ára. Allir stóru
togararnir eru skuttogarar en
tveir togarar af minni gerðinni
eru síðutogarar, Rán GK og
Ársæll Sigurðsson II.
Hér fer á eftir yfirlit um afla
einstakra togara og fjöldi veiði-
ferða unnið upp úr Ægi. Þyngd
afla er miðuð við fiskinn slægð-
an með haus nema karfi er
veginn óslægður. Hrogn og lifur
eru meðtalin.
Brynjólfur
Halldórs-
son skip-
stjóri á
Ögra RE.
STÓRU
SKUTTOGARARNIR
1. ögri RE Veiði- Afli ferðlr lestir 21. 4.670,1
2. HarÖbakur EA 25 4.528,8
3. Bjarni Benediktsa. RE 23 4.449,2
4. Kaldbakur EA 25 4.441,2
5. Svalbakur EA 26 4.234,2
6. Snorri Sturluaon RE 25 4.229,4
7. Vigri RE 21 4.102,5
8. Ingólfur Arnaraon RE 22 3.879,9
9. Sléttbakur EA 26 3.828,7
10. Jón Dan GK 24 3.561,6
11. Guftsteinn GK 23 3.445,6
12. Engey RE 22 3.404,5
13. Júní GK 20 3.285,6
14. Karlaefni RE 20 3.233,7
Samtals____________________3g3 296,0
MINNI
TOGARARNIR
Veiði- Afli
ferÖ lestir
Guöbjörg ÍS 42 4.626,4
Besai ÍS 45 4.254,9
Gyllir ÍS 43 4.107,4
Elín Þorbjarnard. ÍS 39 4.038,9
Páll Pálsaon ÍS 44 4.013,7
Haraldur BöÖvarss. AK 35 3.991,2
Júlíus Geirmundss. ÍS 44 3.964,1
Dagrún ÍS 42 3.867,6
GuÖbjartur ÍS 39 3.763,2
Framnes I ÍS 43 3.747,0
Sólberg ÓF 27 3.535,5
Ásgeir RE 30 3.382,5
Björgúlfur EA 32 3.376,9
Erlingur GK 29 3.264,6
Kambaröst SU 39 3.155,9
Leifur RE 27 3.073,1
Arnar HU 25 3.063,2
Ásgeir
Guðbjarts-
son skip-
stjóri á
Í /í/, Guðbjörgu ÍS.
Maí HF 28 2.970,9
Runólfur SH 29 2.880,4
Björgvin EA 30 2.842,7
Krossvík AK 30 2.835,8
Gullberg NS 33 2.822,5
Óskar Magnuás. AK 25 2.822,2
Hoffell SU 33 2.776,1
Skafti SK 32 2.735,4
Ljósafell SU 34 2.687,7
Klakkur VE 27 2.603,4
Drangey SK 26 2.538,7
Ásbjörn RE 21 2.513,3
Bjartur NK 30 2.498,6
Ólafur Jónsson GK 24 2.496,5
Sigluvík SI 26 2.492,8
Birtingur NK 31 2.484,4
Brettingur NK 27 2.461,7
Ólafur Bekkur ÓF 27 2.452,1
Vestmannaey VE 24 2.422,2
Stálvík SI 23 2.411,8
Sindri VE 25 2.403,4
Bjarni Herjólfss. ÁR 25 2.402,8
Dagstjarnan KE 26 2.379,3
Aðalvík KE 23 2.375,3
Hólmanes SU 28 2.353,0
Hegranes SK 29 2.343,9
Jón Vídalín ÁR 26 2.297,9
Guðmundur í Tungu BA 32 2.265,6
Framtíðin KE 24 2.198,1
Otur GK 19 2.192,9
Júlíus Havsteen ÞH 38 2.145,2
Sólbakur EA 23 2.101,6
Gullver NS 31 2.098,7
Lárus Sveinsson SH 25 2.040,1
Rauðinúpur ÞH 19 2.035,1
Snæfell EA 21 2.003,9
Hómatindur SU 35 1.989,7
Barði NK 28 1.842,3
Dagný SI 17 1.784,0
Heiörún ÍS 25 1.562,8
Arinbjörn RE 14 1.454,1
Rán GK 14 1.222,2
Fontur ÞH 17 1.076,7
Ársæll Sigurðss. II HF 10 616,8
Brynjólfur ÁR 12 495,6
Sigurey SI 5 176,8
Ýmir HF 1 79,0