Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 45 settu í vasa sinn til seinni nota. Allt áfengi var þrotið hvort sem það var í formi viðurkennds víns úr Ríkinu eða rakspíra, kökudropa eða annarra blandna. Pilturinn sem ég gat um áðan virtist heldur tregur við að leggj- ast á brjóst óraunveruleikans en bað þess í stað um baunadósina sem félagi hans bar meðferðis til þess að fá í sig kraft og hita fyrir veröldina sem beið hans úti og ekki veitti af að brenna einhverju í þessari hryssingsgjólu, ekki betur klæddur en hann var, í slitinni peysu og jakkasnifsi. Aður en heimur þessara vesælu manna bar fyrir augu mín hafði ég fyrir liðlega klukkutíma lokið við dýrlegan hátíðarmat á heimili mínu í gleði og sæld. Og meðan ég stóð og horfði á þessa bágstöddu menn hungraða bæði líkamlega og andlega kom það í huga minn að stíga út og setja tvo putta í kok, vegna ábyrgðar. Að vísu hefði það þjónað litlum tilgangi til hjálpar og auk þess verið óvirðing gagn- vart gjöf Guðs. Það er stærra átak sem þarf, kæru lesendur, kærleik til náung- ans því ef við myndum elska hann eins og sjálf okkur létum við hluti sem þessa ekki koma fyrir. Eftir nokkurra mínútna göngu í bænúm, eftir að ég yfirgaf biðskýl- ið, sté ég upp í strætisvagn til heimilis míns. Sá ég þá tilsýndar þessa þrjá menn er þeir stóðu upp við vegg inni á leigubílaplani BSR austan við Hótel Borg. Ungu mennirnir stóðu við hlið piltsins sem hallaði sér upp að veggnum meðan líkaminn neitaði baunun- um og maginn dróst saman og spýtti þeim út í kalt loftið. Hvað skyldi nóttin bera í skauti sínu? Og þetta átti sér stað á páskadag. Einar Ingvi Magnússon. P.S.: Ef lesendur undrast yfir því hvers vegna ég sneri mér ekki til lögreglunnar í sambandi við dreif- ingu lyfjanna, skal þess getið, að fyrst er ég varð þessa var hafði ég hið skjótast samband við varð- stjóra einn en fékk lítið annað en róleg, hæðin svör og spurningu um það hvernig í ósköpunum ég vissi svo mikið um lyf. • „Blekkingar“ Velvakanda hefur borist eftir- farandi bréf frá Þórarni Björns- syni, Laugarnestanga 9 b: „Eg get nú vart orða bundist í SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákþingi Sovétríkjanna í fyrra kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Romanishins, sem hafði hvítt og átti leik, og Tukmakovs. 22. Hxc4! — bxc4 (Eftir 22... Hxd5, 23. Hxc7 tapar svartur a.m.k manni) 23. Dxc4 — Kí8, 24. Rxc7 - Ha7, 25. Dg8+ - Ke7,26. Rd5+ og svartur gafst upp. Eftir 26... Hxd5, 27. Bxd5 á svartur ekkert svar við hótunum hvíts, 28. Dxg7+ og 28. Hel+ - Kd6, 29. Hdl. sambandi við þær furðulegu að- ferðir yfirvalda til að ná aurum af náunganum. Kemur það harðast niður á þeim eignalitlu, sbr. hið furðulega fasteignamat. Ég á einbýlishús sem metið var fyrir fáum árum á 3—400 þúsund. Svo stökk matið fyrirvaralaust í rúmar 6 milljónir ári seinna, eða sem sagt í ár í 10 milljónir og tæp 300 þúsund. Og þar með tókst þeim, sem fátæka elska í hjarta sínu að þeirra eigin sögn, að koma fasteignagjaldinu í tæp 70 þúsund. Húsið er, að þeirra sögn, lóðarétt- indalaust en þó kom lóðaréttinda- mat á það með síðasta skattseðli. Ég veit um allt að þriggja her- bergja íbúðir hér í gamla bænum sem ná ekki þessu háa gjaldi þótt öll réttindi hafi. Það er sem ég sjái fátækra manna stjórnina, sem nú situr að völdum, borga mér þessa upphæð fyrir húsið. Ef þeir vilja gera svo vel er þeim frjálst að fá húsið keypt á stundinni fyrir þessa matsupphæð, sem sagt rúmar 10 milljónir, út í hönd en ekki á víxlum og skuldabréfum sem aldrei verða greidd. Eftir það er þeim frjálst að meta kofann á 20 eða 30 milljónir. Nei takk, ég sé í gegnum þessar blekkingar. Þetta mat er aðeins til að geta hirt yfir 60 þúsund í fasteignaskatt af öryrkja. Einnig vil ég koma að mestu svívirðu hinnar fullkomnu vinstri stjórnar, og þá á ég við hinar gegndarlausu hækkanir á nauð- synjavörum, og flest allri þjónustu yfirleitt, án þess að kaup þeirra lægst launuðu hækki um svo sem tíu aura. Þetta er stjórnin sem öllu ætlaði að bjarga fyrir þá bág- stöddu. Vörubinding, hærra kaup, nú koma bjartir dagar fyrir þá fátæku á íslandi. En það alversta er að landinn virðist vera orðinr bæði heyrnarlaus og sjónlaus, eða á hverju í ósköpur.um lifir fólkið, spyr sá sem ekki veit.“ (n eg. 50W/15 Þægilegar korktöfflur. Bæöi yfirleöur og klæöning á innleggjum úr ekta skinni. Slitsterkur sóli. Litur: Blár. Stæröir 36—42. Verö kr. 5.535.-. Póstsendum samdægurs. Domus Medica, Sími 18519. VIÐTALSTIMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Alþingsismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæöis- flokksins veröa til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00—16.00. Er þar tekiö á móti hvers konar fyrirsþurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöið aö notfæra sér viötalstíma þessa. Laugardaginn 28. apríi verða til viðtals Davíð Oddsson og Sigurjón Fjeldsted. Davíö er í framkvæmdaráði, fræösluráöi, hús- stjórn Kjarvalsstaða, veiöi og fiskiræktarráöi, vinnuskólanefnd og æskulýösráöi. Sigurjón er í barnaverndarnefnd og umferöar- nefnd. óskar eftir blaðburðarfólki AUSTURBÆR: □ Laugavegur 1—33 VESTURBÆR: □ Túngata □ Lambastaöahverfi ÚTHVERFI: □ Breiöageröi □ Laugarásvegur 38- □ Baröavogur KÓPAVOGUR: □ Hlíöarvegur II. ■77 ________ t \ t jptVovð^ W/(f UPPL. I SIMA 35408

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.