Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Fréttir úr bresku popppressunni: — Bob Dylan — David Bowie — Pink Floyd — Abba — Grateful Dead — John Williams — Samkvæmt útreikningum Music Week er hlutur EMI í sölu stórra platna í Bretlandi stærstur fyrstu ' þrjá mánuði ársins 1979 eða 19,8%. Næst kemur CBS með 14.5% og WEA með 12.3%. ★ ★ Seinni hluta maímánaðar kemur út ný stór plata frá David Bowie „Lodger“ sem var að mestu tekin upp í Sviss. Lodger verður fyrsta platan í væntanlegri plötuþrenningu frá Bowie. Á undan er ein slík komin „Station to Station“-„Low“- „Heroes“. Lítil plata átti að koma frá honum.í lok apríl, „Boys Keep Svinging“/„Fantastic Voyage“. ★ ★ í næstu viku gefur CBS loks út hljómieikaplötu Bob Dylans „Live at Budokan“ sem er tvöföld. ★ ★ Pink Floyd eru enn að taka upp væntanlega plötu sina „The Wall“ í Frakklandi. Allar likur eru til að hún verði tvöföld ef ekki þreföld. Er hún væntanleg í haust. Hljómleika- ferðalagið verður svo 1980 og kvikmyndin líklega 1981 og 1982...! ★ ★ CBS hafa tryggt sér útgáfu- og kvikmyndaréttinn á Wood- stock 2 sem halda á 14. —16. ágúst næstkomandi. Verða 300.000 miðar seldir og er miðaverð um 13.000 ísl. kr. ★ ★ Væntanleg er innan tíðar stór plata frá ABBA „Voulez Vous“ og lítil „Does Your Mother Know“. ★ ★ Mike Rutherford, bassagítar- leikari Genesis er um þessar mundir að taka upp sólóplötu í Svíþjóð. Honum til aðstoðar á plötunni er t.d. Anthony Philips, fyrsti gítarleikari Genesis. Vinsœldalistar England 1 (1) BRIGHT EYES.......... Art Garfunkel 2 (3) SMOE GIRLS ............... Racey 3 (2) COOL FOR CATS ............Squeeze 4 (6) SHAKE YOUR BODY........ Jacksons 5 (-) HALLELUJAH .......... Milk & Honey 6 (4) SILLY THING ........... Sex Pistols 7 (-) POP MUSIZ.................... M 8 (8) THE RUNNER ..........Three Degrees 9 (7) HE’S THE GREATEST DANCER .. Sister Sledge 10 (-) GOODNIGHT TONIGHT........ Wings Bandaríkin 1 (4) HEART OF GLASS ........... Blondie 2 (5) REUNITED D......... Peaches & Herb 3 (1) KNOCK ON WOOD........Amii Stewaart 4 (3) WHAT A FOOL BELIEVES .... Doobie Brothers 5 (2) MUSIC BOX DANCER ......Frank Mills 6 (6) STUMBLIN IN .... Suzi Quatro & Chris Norman 7 (9) IN THE NAVY ......... Village People 8 (-) GOODNIGHT TONIGHT......... Wings 9 (-) HE’S THE GREATEST DANCER . Sister Sledge 10 (10) I WANT YOUR LOVE ......... Chic JIIVIIVIY CLIFF ★ ★ GRATEFUL DEAD hefur fækkað um tvö. Keith og Donna Godchaux hafa nýverið fengið uppsagnarbréf. Jerry Garcia er annars að taka upp sólóplötu. ★ ★ „Rhapsodies“ heitir ný plata frá Rick Wakeman, tvöföld. Á henni eru ýmis þekkt verk eins og „Raphsody in Blue“ eftir George Gershwin og „Swan Lade“ eftir Tchaikovsky, .. .í diskóstfl! ★ ★ BOB DYLAN byrjar upptök- ur á næstu stúdíóplötu sinni í byrjun maí. Hann hefur fengið þá Jerry Wexler og Barry Beckett til að stjórna upptök- unum. en þeir stjórnuðu upp- tökunum hjá Dire Straits og svo var Wexler, sem og margir vita einn af stofnendum Atl- antic og þar af leiðandi ekkert unglamb. Dylan hefur valið þá Mark Knopfler og Pick Withers úr Dire Straits til að leika á plötunni ásamt þekkt- ari stúdiómönnum eins og Richard Tee. ★ ★ JOHN WILLIAMS gítarleik- arinn klassíski hefur stofnað popphljómsveit! Ásamt honum eru í flokknum Herbie Flowers, bassi, Francis Monkman, hljómborð, Tristan Frye, trommur, og Kevin Peek, gítar. Hljómsveitin heitir SKY og stór plata kemur út með þvi nafni í byrjun mai. — Samantekt HÍA Fyrir stuttu barst okkur eftir- farandi bréf, en 1 framtíðinni munum við leitast við að svara slíkum fyrirspurnum og bréfum eftir mætti. Kæri Slagf randur! Ég hef tekið eftir því að þið eruð af og til með ýtarlegar kynningar á tónlistarmönnum. Mig langar til að biðja ykkur um að gefa mér (og væntanlega öðrum fesendum Slag- brands) rækilegar upplýsingar um reggae-söngvarann Jimmy Cliff. Ég rekst oft á lög eftir ,hann í meðförum frægra manna s.s. Many Rivers To Cross með Animals, John Lennon og Harry Nilsson, „The Harder They Come“ með Keith Richard (Rolling Stones) og Peter Yarrow (Peter, Paul & Mary), „Come Into My Life“ með Rúnari Júlíussyni. „Rivers Of Babylon" með Herbie Mann, Boney M, I Roy og fleirum sem ég man ekki nöfnin á. Þrátt fyrir að svona margir frægir séu að taka fyir lög hans á sínum plötum virðist enginn vita neitt um hann. Því langar mig að biðja ykkur að upplýsa mig um allt, sem þið vitið um hann. Hvað hann hefur gert margar plötur, með hverjum hann hefur leikið o.s.frv. Jimmy Cliff fæddist í Jamaica 1. apríl 1948, nánar tiltekið í St. Catherine, en hann heitir réttu nafni James Chambers. 1962 hætti hann í skóla og fór til Kingstone í leit að frægð og frama á tónlistar- brautinni og gaf fljótt út plötuna „Daisy Got Me Crazy" en síðar kom að lög hans urðu vinsæl í Jamaica eins og „Hurricane Hattie" og „Miss Jamaica". 1965 fór hann í hljómleikaferð með Byron Lee & The Dragonaries til Bandaríkjanna. í þessari ferð kynntist hann eiganda Island plötuútgáfunnar í Englandi, Chris Blackwell, en Blackwell fékk Cliff til að koma til Bretlands þar sem hann gerði fljótt lukku í klúbbum. Fyrsta platan „Hard Road To Travel" kom út 1967 og ári síðar vann hann í söngvakeppni í Brazi- líu með lagi sínu „Waterfall". Cliff hélt til í Brazilíu í eitt ár en fór þaðan aftur til Jamaica þar sem hann tók upp aðra breiðskífu sína „Jimmy Cliff“ 1969. Á þessari plötu voru t.d. lögin „Wonderful World Beautiful Poeple" sem náði vinsældum víða um heim í lok 1969 og lagið „Vietnam". Á þess- um tíma samdi hann líka fyrir aðra og urðu t.d. lögin „You Can Get It If You Really Want“ með Desmond Dekker og „Let Your Yeah Be Yeah“ með Pioneers vinsælust. Eftir að hafa fært lag Cat Stevens „Wild World" í reggae útsetningu og gert vinsælt í lok 1970, sneri Cliff baki við tónlist ættlands síns, reggae, og hélt til Bandaríkjanna og tók upp þriðju breiðskífu sína með tónlistar- mönnum í Muscle Shoals Studio í Alabama. „Another Cycle“ varð til þess að margir sneru við honum bakinu og þótti hann hafi gert meinlega villu, þó flokka megi tónlist hans allt eins undir „soul“ eins og „reggae". Næsta skrefið var aðalhlutverk í Jamaica mynd sem hét „The Harder They Come“ sem Cliff samdi einnig nokkur lög fyrir sem eru til á samnefndri plötu sem gefin var út um leið. Myndin hlaut góðar kúltúr-viðtökur en ekki meira, enginn varð ríkur, né veru- lega vinsæll en myndin var virt. Flestir eru sammála um að Jimmy Cliff sé einn besti listamaður ásamt Bob Marley og Peter Tosh, sem komið hefur frá Jamaica þó þar sé um marga góða að velja. Lög eins og „Many Rivers To Cross" og „Sitting In Limbo“ eru talin með klassískum lögum í poppinu og hafa margir tekið þessi lög á plötum sínum. Ef til vill á Jimmy Cliff eftir að sýna sitt besta andlit enn þrátt fyrir allt. Hér á eftir fer plötulisti yfir stórar plötur sem hann hefur gefið út. 1) Hard Road ToTravel (Island) 1967. 2) Jimmy Cliff (Trojan) 1969. 3) Another Cycle (Island) 1971. 4) The Harder They Come (Island) 1972. 5) Unlimited (EMI) 1973. 6) Struggling Man (Island) 1973. 7) House Of Exile (EMI) 1974. 8) Brave Warrior (EMI) 1975. 9) Follow My Mind (Reprise) 1976. 10) The Best Of Jimmy Cliff (Island) 1976. 11) Jimmy Cliff (EMI) 1977. 12) In Concert - The Best Of Jimmy Cliff (Reprise) 1976. 13) Goodbye Yesterday (Island) 1975. 14) Wonderful World (Island) 1975. 15) Oh Jamaica (Nut) 1976. 16) Pop Chronik Vol 9 (Island) 1975. 17) Give Thankx (Warner Brothers) 1978. - HÍA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.