Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAI 1978. 25 Ósanngjarn sigur Fram yfir UBK það voru slæm skilyrdi til að lcika knattspyrnu á Kópavogsvellinum á laujíardaK er UBK og Fram áttust þar við í 1. deildar keppninni i knattspyrnu. Fram sigraði i leiknum með tveimur mörkum gegn ensu ok voru það mjöjf ósanngjörn úrslit eftir jfanjfi leiksins. Framarar áttu aðeins eitt umtalsvert marktækifæri í fyrri hálfleik ojf þá tókst þeim að skora. Sama skeði í síðari hálfleik. En það eru mörkin sem úrslitum ráða. Tvö dýrmæt stig tryjfgðu Framarar sér, í hinni hörðu haráttu 1. deildar. Völlurinn í Kópavogi var gler- háll, eftir miklar rigningar er leikið var þar á laugadag, og var mesta furða hve vel leikmönnum gekk að fóta sig á vellinum. Blikarnir léku í fyrri hálfleik undan sterku suðaustanroki og hófu þegar í upphafi leiksins þungar sóknir að marki Fram. Ekki leið á löngu þangað til að fyrsta hættuiega marktækifæri leiksins skapaðist. Strax á 6. mínútu hálfleiksins átti Hinrik Þórhallsson hörkugóðan skalla að marki eftir sendingu bróður síns Einars, en knötturinn fór hárfínt yfir þverslá. Allan fyrri hálfleik- inn sækja Breiðabliksmenn mun meira og leika oft vel saman þrátt fyrir erfið skilyrði. Atti vörn Fram oft í vök að verjast, en tókst oftast að snúa sig út úr vandræðunum eða góður markvörður þeirra greip inn í á réttu augnabliki. Við skulum aðeins líta á gang fyrri hálfleiksins. 22. mínúta. Benedikt Guðmunds- son á hörkuskalla að marki eftir góða fyrirgjöf. Rafn Rafnsson er rétt staðsettur og bjargar fyrir Fram á línu. Þar skall hurð nærri hælum. Mark Breiðabliks liggur í loft- inu. 30. mínúta. Ólafur Friðriksson leikur upp v. kantinn og á vítateigshorninu leggur hann fyrir sig knöttinn og skýtur hörkuskoti í bláhorn marksins en góður markvörður Fram, Guðmundur Baldursson, nær að verja út við stöng. 35. mínúta. Gísli Sigurðsson á hörkuskot, en enn er Guðmundur markvörður vel staðsettur og ver meistaralega. Framarar skora. A sömu mínútu og Gísli átti sitt ágæta tækifæri á að skora ná Framarar ágætu upphlaupi á miðju vallarins. Knötturinn er gefinn á Ásgeir Elíasson sem leikur upp að vítateigslínu, en sendir síðan góðan bolta yfir á Pétur Ormslev, sem er óvaldaður jnni í vítateig. Pétur fer sér engu óðslega, leggur knöttinn vel fyrir sig við markteigshornið fjær, og neglir í netið yfir höfuð Sveins Skúlasonar markmanns UBK. 1—0 fyrir Fram, eina sóknin sem skapaði hættu hafði skilað sér fullkomlega. Þrátt fyrir þetta mótlæti gefast Blikarnir ekki upp og sækja enn stíft en allt kemur fyrir ekki. Staðan í leikhléi er 1-0. Fram lék undan stekum vindi eins og Breiðablik hafði gert í fyrri hálfleik svo að ekki var við öðru að búast en að þeir myndu sækja ákaft eins og UBK hafði gert. Sú varð þó ekki raunin. Fyrstu mínútur síðari hálfleiksins var töluvert þóf á miðju vallarins, en er líða tók á leikinn tók UBK öll völd í sínar hendur og sótti án UBK- Fram 0:2 Textii Þórarinn Ragnarsson Myndi Friðþjólfur Ilelgason afláts. Á 11. mínútu á Valdimar Valdimarsson ekalla að marki rétt yfir þverslá. Fram sækir annað slagið og einstaka upphlaup skapar hættu, Sigurbergur á skot inn í vítateig Blikanna á 17. mínútu en yfir. Hvert marktæki- færið af öðru fer forgörðum hjá UBK og þá mest fyrir það hve Breiðabliksmenn eru seinir og óákveðnir. Seinna mark Fram. Fram sem hafði átt í vök að verjast allan tímann, nær í lok leiksins skyndisókn og það er hinn snjalli miðvallarspilari Ásgeir Elíasson sem þar er á ferðinni. Hann sendir háan stungubolta inn á Kristin Jörundsson sem smeygir sér á milli tveggja varnarmanna og er skyndilega á auðum sjó. Markvörðurinn hleypur út á móti Kristni er hann kemur inn í vítateiginn miðjan. Kristinn er ekki í vandræðum heldur skýtur nokkuð örugglega yfir markmann- inn og i netið, 2—0. Mark þetta kemur á 87. mínútu leiksins. Hvílík óheppni hjá UBK. En þannig er knattspyrnan óútreikn- anleg. Á lokamínútu leiksins eiga Blikarnir enn eitt tækifærið er Ólafur Friðriksson brennir af í dauðafæri inni í markteig. Var það í samræmi við annað sem forgörð- um fór hjá þeim í leiknum. Mikilvægur leikur. Fyrir UBK var leikur þessi mjög mikilvægur. Eftir að hafa tapað þremur stigum af fjórum í tveimur fyrstu leikjum mótsins í ár var þýðingarmikið að sigra: í rauninni má segja að fyrir hvert lið eru töpuð stig á heimavelli áfall, því þurfa lið að keyra baráttuna í topp, og sýna góða leiki. Ekki verður annað sagt að UBK hafi gert þetta í leiknurn. Þeir sýndu allan tímann betri knattspyrnu og börðust vel, en það er ekki nægjanlegt þegar ekki er hægt að skora mörk. I liði Breiðabliks áttu bestan leik þeir Einar Þórhallsson, og Þór Hreiðarsson, samt var Þór allt of seinn að afgreiða knöttinn frá sér í leiknum, og um of rarur að skjóta á markið af löngu færi, þá átti Bjarni bakvörður Bjarnason ágæt- an leik og stóð vel fyrir sínu. Fram-liðið sýndi lítið í þessum leik, nema helst Ásgeir Elíasson á miðjunni sem skapar ávallt hættu með góðum sendingum, sérlega útsjónarsamur leikmaður. Það var Ásgeir sem átti bæði mörk Fram í leiknum með sendingum sínum. Markvörðurinn, Guðmundur Baldursson, átti góðan leik, sýndi yfirvegun og góðar staðsetningar. Þá er rétt að geta Gunnars Guðmundssonar sem er sívinnandi og gefst aldrei upp þótt á móti blási. ístuttu málii 27. maí, Kópavogs- völlur 1. deild UBK—Fram 0—2 (0-1) Mörk Frami 35. mfnútu Pétur Ormslev og á 88. mínútu Kristinn Jörundsson. Gult spjaldi Rafn Rafnsson. Áhorfenduri 337. • Síðara mark Fram í uppsiglingu. Kristinn Jörundsson afgreiðir knöttinn snyrtilega yfir markvörð UBK. sem er kominn út fyrir markteig í von um að geta bjargað. • Ingi Björn Albertsson skorar síðara mark Vals gegn ÍBK með skoti af vítateig, sem hafnaði í bláhorni Keflavíkurmarksins eins og sjá má, án þess að Þorsteini Bjarnasyni markverði tækist að koma vörnum við. SIGUR HJÁ VAL ÞRÁU FYRIR SLAKAN SEINNI HÁLFLEIK VALSMENN héldu áfram á sigurbrautinni í 1. deild er þeir mættu Keflvíkingum á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Valsmenn sigruðu en sigurinn var mjög naumur, 2il. Eftir mjög góðan fyrri hálfleik hjá Val, þar sem liðið hafði öll völd f leiknum datt leikur liðsins alveg niður í seinni hálflcik og urðu Valsmenn þá virkilega að berjast fyrir sigrinum þvi að Keflvfkingarnir tvfefldust þegar þeir fundu að Valsmönnum þvarr krafturinn. En Valsmenn héldu út áhlaup Keflvfkinganna og höfðu bæði stigin. Veður og aðstæður allar voru heldur óskemmtilegar til knatt- spyrnuiðkunar, rok og rigning og völlurinn flugháll. Aðstæðurnar virtust þó ekki setja Valsmenn út af laginu í fyrri hálfleik því að þeir léku þá oft á tíðum mjög góða knattspyrnu og baráttan í liðinu var til fyrirmyndar. Fyrsta tækifærið kom strax á 5. sekúndu! Valsmenn byrjuðu með boltann og Albert spyrnti strax inn fyrir vörn Keflvíkinga. Ingi Björn hafði tekið sprettinn og hann var skyndilega á auðum sjó og spyrnti að markinu en ágætur markvörður Keflvíkinga, Þor- steinn Ólafsson, varði vel. Áfram héldu Valsmenn sókninni og voru þeir Albert Guðmundsson og Atli Eðvaldsson oftast mennirnir bak við sóknarlotur Vals. Atli átti skot á slá á 6. mínútu og Þorsteinn varði stórvel skallabolta frá Dýra Guðmundssyni á 7. mínútu. Kefl- víkingar komust sárasjaldan ná- lægt marki Vals nema hvað á 8. mínútu komst Rúnar Georgsson upp að endamörkum hægra megin og gaf knöttinn inn í markteiginn, þar sem Steinar Jóhannsson var einn og óvaldaður tvo metra frá marklínu fyrir miðju marki. Stein- ar skallaði boltann heldur kæru- leysislega beint til Sigurðar mark- varðar. Bezta tækifæri Keflvík- inga hafði þarna farið forgörðum. Á 16. mínútu kom fyrra mark Vals. Atli átti þá stórkostlegan einleikskafla upp vinstri kantinn, lék á fjóra Keflvíkinga og komst upp að endamörkum, þar sem hann renndi boltanum út í teiginn til Alberts Guðmundssonar, sem skor^ði með þrumuskoti óverjandi fyrir Þorstein. Áfram hélt Vals- sóknin og á 30. mínútu komst Grímur laglega í gegn vinstra megin og sendi siðan boltann fyrir á Inga Björn í dauðafæri en aldrei þessu vant brást honum bogalistin og hann skallaði framhjá. Valur - ÍBK 2:1 Textii Sigtryggur Sigtryggsson. Myndi Friðþjófur Helgason. Seinna mark Vals kom á 36. mínútu. Hilmar Hjálmarsson var þá með knöttinn og hugðist spyrna fram völlinn en spyrnti beint til Inga Björns, sem virtist taka boltann niður með hendinni. En hvorki dómari né línuvörður gerðu athugasemd og Ingi brunaði upp miðjan völlinn og skaut af mark- teig góðu skoti neðst niður í hornið, sem enginn möguleiki var að verja. I upphafi seinni hálfleiks sóttu Valsmenn af krafti og var þá m.a. bjargað á línu hörkuskoti frá Dýra islandsmótlð i. delld Guðmundssyni. En smám saman dró úr sóknarþunga Vals og Keflvíkingarnir fóru að sækja meira en áður. Og á 15. mínútu seinni hálfleiks bar sókn þeirra árangur. Ólafur Júlíusson, sem hafði komið inná sem varamaður seint í f.h. lék þá laglega í gegn vinstra megin og sendi góðan bolta fyrir markið, þar sem Einar Ásbjörn Ólafsson var vel staðsett- ur og skallaði boltann í markið. Einni mínútu síðar munaði minnstu að Ólafi tækist að jafna metin en Sigurður varði skot hans vel. Það sem eftir var hálfleiksins voru Keflvíkingarnir sókndjarfari án þess þeim tækist þó að jafna metin en allur vindur var úr sóknarmönnum Vals og komst Keflavíkurmarkið aldrei í hættu lengi vel í seinni hálfleik. En Valsmenn hrósuðu sigri og þau tvö stig, sem liðið fékk verða vafalaust dýrmæt í keppninni um Islands- meistaratitilinn. Sem fyrr segir skiptist leikur Valsliðsins alveg í tvennt. Mjög góðan fyrri hálfleik en slakan seinni hálfleik. Sóknarlotur Vals- manna voru oft stórglæsilegar í fyrri hálfleik. Þeir voru þar fremstir í flokki Albert og Atli og er óhætt að segja að Atli sé að verða einn okkar albezti knattspyrnumaður. Sumt af því sem hann framkvæmir úti á vellinum gefur ekki eftir tilþrifum, sem atvinnuknattspyrnumenn sýna. Var Atli bezti maður Vals- liðsins í þessum leik ásamt Dýra Guðmundssyni, sem átti stórleik, var klettur í vörninni og oft á tíðum beittastur í framlínunni. Hjá IBK var Þorsteinn Bjarna- son mjög öruggur í markinu og í vörninni voru þeir beztir Gísli Grétarsson og Skúli Rósantsson, ungur en stórefnilegur bakvörður. Á miðju vallarins bar Ólafur Júlíusson af enda þótt hann kæmi inná sem varamaður en framlínan var með slakasta móti svo og Gísli Torfason, sem hefur þó löngum verið kjölfestan í Keflavíkurliðinu. í STUTTU MÁLI. Laugardalsvöllur 1. deild, laug- ardaginn 27. maí, Valur — ÍBK 2,1 (2.0) Mörk Valsi Albert Guðmunds- son á 16. mínútu og Ingi Björn Albertsson á 36. mínútu. Mark ÍBK. Einar Ásbjörn Ólafsson á 60. mínútu. Áminningi Hilmari Hjálmars- syni sýnt gula spjaldið. Áhorfendur. 874. Skagamenn unnu lausan sigur vfir þröngt og Jón varði vel með úthlaupi. Siðan er varla hægt að tala um knattspyrnu þar til á 43. mínútu, er Þorbergur varði meistaralega aukaspyrnu Jóns Alfreðssonar. SKAGAMENN gefa ekkert eftir í því mara- þon-kapphlaupi sem hafið er að íslandsmeistara- titlinum í knattspyrnu. Þeir sigruðu á laugardag- inn lið KA frá Akureyri með marki Kristins Björnssonar á 25 mínútu fyrri hálfleiks. Markið var klaufalegt og leikurinn í heild vafalaust með því slakara sem Skagamenn hafa séð þar upp frá í langan tíma. Leikurinn mótaðist mjög af ytri aðstæðum, allan tímann geisaði hamslaus suðaustanátt með tilheyrandi rigningu og ástand vallarins er slikt, að ef ekki væri leikin þar knattspyrna reglulega, myndi melgresi eflaust spretta þar prýðilega. Var stund- um líkara því að verið væri að keppa í sandspyrnu en ekki knattspyrnu. Það er því ekki eingöngu við leikmennina að sakast þó að leikurinn hafi verið ein samfelld hryggðarmynd. En þó að skort hafi fallega knattspvrnu. vantaði síður en svo baráttuna og þar höfðu gestirnir vinninginn, en því miður fyrir þá vinnast leikir ekki á baráttunni einni saman og til marks um það þá átti lið KA aðeins einu sinni nokkuð sem kallast mátti gott færi. Skagamenn sóttu undan vindi í fyrri hálfleik og Voru þá sem og í siðari hálfleik meira með boltann.án þess þó að gera nokkurn skapaðan hlut við hann og um góð tækifæri er varla hægt að tala fyrr en þeir skoruðu eina mark leiksins á 25. mínútu. Leikmaður KA missti þá frá sér knöttinn á miðjum eigin vallar- helmingi, Kristinn náði honum, lék inn 1 vítateiginn og renndi knettinum fram hjá Þorbergi markverði sem kom hlaupandi út úr markinu, 1-0. Varla var liðin ein mínúta þar til að KA fékk það eina sem kalla mátti færi í leiknum. Elmar Geirsson stakk sér þá inn fyrir vörn Skagamanna, en færið var Texti og myndi Guðmundur Guðjónsson Alfreðsson og Kristinn Björnsson voru slakir. Styrkur KA virðist felast í hve liðið berst vel og allir hjálpa hver öðrum. Þykir manni ólíklegt að liðið verði í alvarlegri fallbaráttu ef liðið berst alltaf svona grimmi- lega. Tveir leikmenn KA skáru sig úr að mati undirritaðs. en það voru þeir Jóhann Jakobsson. sem var sívinnandi og á bak við flest það sem Norðanmenn gerðu jákvætt í sókninni. og Elmar Geirsson sem átti allmarga góða spretti, sem lauk flestum með því að hann var höggvinn niður af varnarmönnum IA. En enginn nema hugsanlega Arni Sveins sýndi neitt líkt því sitt besta. enda yfirbuguðu ytri aðstæður alla tilburði til slíks. í STUTTU MÁLI. Akranesvöllur. 27. maí. 1. deild. ÍA-KA 1-0 (1-0) Áhorfendur. 586 Dómari. Sævar Sigurðsson Áminningari Sigurbjörn Gunn- arsson KA skoðaði gula spjaldið. Síðari hálfleikur var alger leikleysa allt þar til að aðeins 10 mínútur voru til leiksloka. en þá komust bæði Pétur Pétursson og Kristinn Björnsson í góð færi á sömu minútunni, en brenndu báðir af. Undir lokin sótti KA nokkuð, en það kom þeim næstum í koll á 89. mínútu, en þá lék Matthías upp hægra megin og sendi fyrir markið á Pétur sem kastaði sér fram. en skalli hans lenti í hliðarnetinu. Lið ÍA var afar ósannfærandi í leik þessum og var alveg hreint á mörkunum að þeir ættu sigur- inn skilið. Þeir áttu þó besta mann vallarins, en það var Árni Sveinsson sem skilaði bakvarðar- stöðunni sérlega vel. Karl og Matthías voru fjörugir til að byrja með, en dofnuðu er á leið, en menn eins og Pétur, Jón • Kristinn Björnsson skoraði sigurmark Akurnesinga. • Pétur Pétursson skallar hér í fagna. sem og flestir áhorfendur, hliðarnetið skömmu fyrir leikslok. cnda töldu allir í fyrstu að Pétur eftir fyrirgjöf Matthíasar (nr. 10). Kristinn (nr. 3) er byrjaður að hefði skorað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.