Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
85
„Þetta var mikið streð
fyrir mannskapinn”
Rætt við Kristin Guðbrandsson í Björgun
um björgun þýzka skipsins Susanne Reith
Kristbjörn Þórarinsson kafari kemur upp úr köfunarferð
Kristinn Guðbrandsson, for-
stjóri Björgunar h.f., hefur haft
afskipti af mörgum málum um
dagana. Á seinni árum hefur
Kristinn fyrst og fremst verið
þekktur fyrir fiskræktarmál en
austur á Kirkjubæjarklaustri
rekur hann stóra fiskeldisstöð
ásamt fleirum og þar á hann sinn
sumarbústað „Guðbrandsdal“ þar
sem hann dvelur í hvert skipti,
sem færi gefst og nýtur hinnar
fögru náttúru þar. Þá er Kristinn
orðinn kunnur vegna leitar
sinnar að gullskipinu fræga, sem
liggur einhversstaðar undir svört-
um Skeiðarársandinum, og bíður
þess að finnast. Ef það finnst þá
er hætt við að auðæfin verði
mikil, sem upp verða grafin. Gull-
ævintýrið á Skeiðarársandi er
kannski dýrt ævintýri í margra
augum, en Kristinn og féiagar
hans björguðu tveimur skipum
tvö fyrstu sumurin, sem þeir voru
við gullleitina. Sumarið 1971
strandaði vélbáturinn Fjóla
skammt vestan við Ingólfshöfða
og menn Björgunar voru komnir
á staðinn eftir 20 mínútur, svo
skammt voru þeir frá strand-
staðnum. Það var líka heppilegt
að þeir voru þetta nærri, þvi
veður var slæmt og báturinn
grófst strax i gljúpan sandinn.
Þeir höfðu engin vettlingatök,
heldur björguðu skipshöfninni í
land og drógu siðan bátinn lengra
Kristinn Guðbrandsson
upp á sandinn. Um leið og 'ýeður
lægði var bátnum komið á flot og
gekk það mjög vel.
Svo var það árið 1973, sem
Bára, systurskip Fjólu, strandaði
á Núpsstaðamelum. „Við vorum
þá austur á söndum,“ segir Krist-
inn“ og það tók okkur 17 klukku-
stundir að komast á strandstaðinn
á vatnadrekanum en yfir miklar
sandbleytúr var að fara og vatn
var yfir öllu svæðinu. Þetta
hafðist þó allt og daginn eftir
komum við jarðýtu einnig á stað-
inn og gátum gengið vel frá bátn-
um, sem síðar var svo dreginn út
af björgunarskipinu Goðanum."
— En það var ekki ætlun okkar að
ræða við Kristinn um fiskræktar-
mál, gullleit á Skeiðarársandi né
bjarganir þar á sandinum, heldur
ætlum við að ræða við hann um
björgun skipsins Susanne Reith,
sem strandaði við Raufarhöfn og
starfsmenn Björgunar björguðu
síðan með því að skera skipið í
tvennt, sjóða aftur og sigla til
Reykjavikur.
Byrjaói árid 1952
Aður en við hefjum samtalið,
þá fer kannski vel á því að segja
frá hvernig fyrirtækið Björgun
h.f. er tilkomið. Það var stofnað
haustið 1952 til að bjarga því, sem
bjargað varð úr olíuskipinu Clam,
sem strandaði við Reykjanes. Svo
Framhluti Susanne Reith á skerinu.
til allt járn náðist úr skipinu
nema vélin, því tækin sem notuð
voru, voru ekki nógu sterk til að
ná henni. 1 upphafi voru eigendur
fyrirtækisins 4, en á næstu
tveimur árum fækkaði þeim, og
að lokum stóð Kristinn einn eftir
Á næstu árum beindist starfsemi
fyrirtækisins mikið að þvi að rífa
skip og nálgast brotajárn hvar
sem var á landinu, en um leið var
einnig farið að huga að því að
bjarga skipum á strandstað.
Fyrsta skipið, sem Björgun bjarg-
aði var bátur sem sleit upp í
Reykjavikurhöfn og rak inn í
Lauganes. Frá þeim tíma hefur
fyrirtækið bjargað 70—80 skipum
og oft við mjög erfiðar aðstæður.
Vestur-þýzka flutningaskipið
Susanne Reith strandaði við inn-
siglinguna til Raufarhafnar þann
12. desember 1965, en þangað var
skipið að koma tómt til að taka
síldarmjöl. Skipið komst ekki á
flot fyrir eigin vélarafli og síðan
reyndu tvö varðskip að draga í
skipið í vikutíma, en gáfust þá
upp. Þegar varðskipin hurfu frá
höfðu þau dregið skipið upp á
Kotflúðasker skammt frá inn-
siglingunni og við það hafði skip-
ið brotnað um miðjuna.
Skipstjórinn
sífellt ölvaður
— Hver voru svo fyrstu afskipti
AudilOO
Audi 100 er rúmgóður, glæsilegur
f útliti og laus við allt prjál — Þess
i vegna vekur hann traust þeirra,
sem vit hafa á bílum.
Audi 100 er með framhjóladrif.
Öryggisgler — Upphituð afturrúða — Rúllu-
öryggisbelti — Stillanleg framsæti (svefn-
stilling) með háum bökum — Gírskipting í
gólfi — 680 lítra farangursrými —
Audi 100 er mjög lipur í borgar
akstri og rásfastur f langferðum.
Hitunar- og loftræstikerfi er af
fullkomnustu gerð.
Nýja 95 ha. vélin f Audi L og 11 5 ha. vélin í LS er
með yfirliggjandi kambás og því færri hluti á
hreyfingu. Þetta tryggir mýkri gang, hljóðlátari og
endingarbetri vél.
Allar Audi 100 gerðir hafa
bremsubúnað, sem eykur
stöðugleika i stýri og við
stjórnun bifreiðar sé brems-
að við erfiðar aðstæður.
Tvöfalt krosstengt bremsu-
kerfi, sem hindrar misjafna
bremsun við neyðarað-
stæður.
Bremsujafnari í Audi 100
LS tryggir jafna bremsun á
báðum ásum.
Afturhjólabremsur eru með
kælingu.
AudiNSU
v._______
—Tæknilega leiðandi
í Audi 100 vélunum er loft/bensín blönd
unni komið á hverfi hreyfingu, þegar
hún fer um innstreymsiopin inn í
brunaholið í bullunni.
Með þessu blandast
loftið og benzínið
(hleðslan) fullkom-
lega saman og brun-
inn verður mjög full-
kominn. Þetta trygg-
ir fulla notkun hvers
dropa af benzíninu.
Eyðsla 8,9 I 100 km
af venjulegu (regul-
ar) benzíni.
FYRIRLIGGJANDI
Komiö — skoðið og
kynnist Audi 100
HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Slmi 21240