Morgunblaðið - 10.06.1971, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.06.1971, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDA GUR 10. JÚNl 1971 SAMGÖNGUÁÆTLUN AUSTURLANDS: 300 milljónir til vegaframkvæmda á Austurlandi 1971 — 1975 EFNAHAGSSTOFNUNIN Jiefur lagt fram samgöngu- áætlun Austurlands, og er það áætlun um vegafram- kvæmdir árin 1971—’75. Er hún samin að tilhlutan At- vinnujöfnunarsjóðs og í sam- vinnu við yfirvöld samgöngu- mála og aðra hlutaðeigandi aðila svo sem Vegagerð ríkis- ins, Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi og þingmenn kjördæmisins. Ákveðið hefur verið að veita 60 m. kr. lánsfé á þessu ári (1971) til framkvæmda sam- kvæmt Austurlandsáætlun. Gert er ráð fyrir sömu upphæð næstu 4 ár, þannig að á 5 árum (1971 til 1975 verði veitt 300 m. kr. lánsfé til framkvæmda samkv. Austurlandsáætlun. Samkvæmt vegaáætlun 1971 og bráðabirgða vegaáætlun 1972 eru fjárveiting ar til þeirra vega- og brúafram kvæmda, sem teknar eru inn á áætlunina, 36,2 m. kr. Af óskiptu fé á vegaáætlun 1972 mundu koma 6,4 m. kr. i hlut Austur- lands alls (þjóðbrautir og lands brautir), miðað við sömu hlut- failslegu skiptingu vegafjár og fyrir eir í áætluninni, eða með sama hætti 3,5 m. kr. til þeirra vega, sem hér hafa verið tekn- ir til athugunar. Samkvæmt líklegum lánskjör um, verður lántökukostnaður 1971 1,5 m. kr., 1972 vextir og lántökukostn. 6,9 m. kr., 1973 10,8 m. kr., 1974 14,7 m. kr. og 1975 18,6 m. kr. Vextásr og af- borganir fara síðan hækkandi og ná hámarki 1981 og eru þá 46,0 m. kr. Miðað við sömu skiptingu og nú og sömu tekju stofna vegasjóðs er líklegt, að fjárveiting alls til Austurlands verði 65,1 m. kr. Ljóst er því, að greiðslur þessar verða mjög veruleg byrði fyrir Austurland, ef fjárveitingaæ þangað í sama hlutfalli og nú verða látnar standa undir þeim ásamt frek- ari framkvæmdum á Austur- landi. Framkvæmdir samkvæmt Austurlandsáætlun Algengt er, þegar arðsemis- reikningar eru gerðir og úr mik illi framkvæmdaþörf er að velja, að gerð sé krafa um 10% afkastavexti. Aðeins tveir vegir standast þá kröfu, Grímsstaðir — Jökulsá og Reyðarfjörður — Fáskrúðsfjörður. Má aegja, að framkvæmdir þar séu því sjálf sagðar. Auk þess verða fram- kvæmdir á öllum þeim vegum, sem hafa afkastavexti niður í 6%. Undanitekningar eru þó Lónsheiði (6% afkastavextir), en endurmat þarf að fara fram á þeirri framkvæmd og vegin um út með ströndinini í sam- bandi við væntanlegan veg yfir Skeiðarársand; kaflinn Hátún — Neskaupstaður, en fjárveiltling (5,4 m. kr.) er í hanm á vega- áætlun og þyrfti að veita á næstu vegaáætlun fé til lúkn- ingar honum; kafMnn Háhliðar- horn — Hátún, þ.e. Oddsskarð, en arðsemi hans (9%) er miðuð við, að ekki séu gerð jarðgöng, og fellur hann því sjálfkrafa úr við ákvörðun um jarðganga gerð. Undantekningar á hinn KOHT -:2. \ í <.\! ’.Ull V 1 iilllt .'<71 - ! )"" VEGAGERD RÍKISINS AUSTURLANDSÁÆTLIÍN api-íí 'n.gg. <yuROíA, FJÁRVEiTiNGAR : U7S i/'/' ......... 1971 ! Samkvœmt veg- v í 1972 j ócetiun 1969 -’72 SKÝRINGAR : Fullgerbur vegur. Öfuilgerður vegur. ------------Vegur utan ramma Austurlandsóaetlufiar. Fjarveitíngar í millj, kr. til vega og brúa j® m 6?! veginn, þ.e. að fríamkvæmdir séu ákveðnar þrátt fyrir minna en 6% afkastavexti, eru Fjarð- ariheiði, jarðgöng um Odds- skarð og vegur að þeim, og Vopnafjarðarvegur. Við allar þasir framkvæmdir verður opn- un, þ.e. að unnt verður að halda viðkomandi vegi opnum all miklu lengur á ári hverju. í ákvörðun um að taka þær með felst í raun og veru viðurkenn ing á, að af þeim kunni að leiða meira hagræði en unmt hefur verið að taka með í airðsemis- reikningunum hér að framan. Sérstaklega á þetta við um Fjarðarheiði og Oddsskarð, en þar er um að ræða framkvæmd ir til að ná vissum lágmarks- áirangri með tilliti til þróunar landshlutans. Ekki eru fram- kvæmdir samkvæmt Austur- lamdsáætlun alls staðar nægileg ar til að ljúka viðkomamdi veg- arköflum, en nánari lýsiing á ein stökum framkvæmdum fer hér á eftir. Einstakar framkvæmdir Grímsstaðir — Jökulsá. Stefnt er að því að ljúka veginum á Jökulsdalsheiði, sem unnið hef- ur verið við á undanfömum ár um. Síðan er haldið áfram út Jök- uldal með nýjan veg og brýr. Verður þá nýlegur vegur kom- inn út fyrir Hauksstaði. Ástæða er til að byggja upp þessa kafla, þar eð þeir eru að jafm aði lélegri en þeir, er sleppt verður, einnig eru þeir samfelld- ir. Egilsstaðir — Seyðisfjörður. Hér er tekinn fyrir sá kafli, sem að jafnaði er verstur, þ,e. háheiðin. Nauðsynlegt er að taka aðra kafla í framhaldi af þessu, og ekki sízt brú á Ey- vindará. Egilsstaðir — Reyðarfjörður. Hér er gert ráð fyrir að ljúka því nauðsynlegasta, en eftir verður brú á Geithúsaá og veg ur um hana, sem gjarna má bíða. Eskifjörður — Norðfjörður. Gert er ráð fyrir, að göngin verði gerð og þau tengd. Reyðarfjörður — Fáskrúðs- fjörður. Væntanlega tekst að ljúka kaflanum frá og með Götuhjalla og út á Vattarnes- veg. Öðru verður sleppt, svo sem kaflanum, Slétta-Götuhjalli, sem er afleitur. Fáskrúðsfjörður — Stöðvar- fjörður. Verstu kaflarnir verða byggðir upp, en þeir nœst verstu ekki. Vantar því allmikið á, að leiðin verði sæmilega veguð. Stöðvarfjörður — Breiðdals- vík. Ráðgert er að breikka og laga veg í skriðunum og á milli þeirra. Öðrum köflum verð ur sleppt, þótt slæmir séu. Breiðdalslvík — Djúpivogur. Hér ér vaila nokkru sleppt, að vísu vantar fé tíl viðbótar vegna kaflans Runná — Kelduskógur. Djúpivogur — Starmýri. Frá Djúpavogi að Starmýri vantair um 2,9 millj. kr. til að ljúka vegi. Ólokið verður þá kafla ut an Urðarhj alla. Vopnafjarðarvegur. Væntan- lega tekst að ljúka kaflanum frá Langadalsvörðu og niður undir Nykuirvatn, og einnig þeim hluita vegarina, sem er í byggð. Á fyrmefndum kafla er um talsverða styttingu að ræða. Verður þá ólokið kafla um Burstafellsbrekku og efsta Framh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.