Morgunblaðið - 02.10.1964, Page 10

Morgunblaðið - 02.10.1964, Page 10
10 MOHGUNBLAÐIÐ Föstudagur 2. okt. 1964 RÉTTAÐ var í Fljótsdalsrétt 24. september í mjög fögru veðri, sólskini og stillu. Sundurdráttur hófst laust eftir ki. 9 árdegis og gekk mjög vel. Féð er mun vænna en nokkur undanfarin ár. Einkum er margt fullorðið fé viðbrigða fallegt. Réttaö á Fljdts- dalshéraði Fjöldi fólks var í réttum, allt frá ungbörnum til öldunga. Fréttamaður blaðsins á Egilsstöð- um var þar líka mættur með myndavél og sést árangurinn af viðleitni hans til að festa daginn á filmu hér á siðunni. Jörgen á Víðivöllum, gangna- foringi á Vesturöræfum í yfir 30 ár og lengi réttarstjóri í Fljóts dalsrétt (sjá 1 d. mynd hér til vinstri) telur lömbin með vænsta móti. Jörgen fór fyrst í göngur árið 1924 og hefur farið það æ síðan. Smölun gekk yfir- leitt vel að þessu sinni. Að visu var nokkur snjór í innsta hluta afréttarinnar, en þar hefur svæði, sem var komið undan jökli og farið að gróa upp svo tvo menn þurfti til að smala það, hulizt jökli á ný er Brúarjökull Konurnar hafa líka sínu hlut- verki að gegna á réttardaginn. Kvenfélagið rekur kaffihús, er nefnist „Pilsvargur." Á mynd- inni í hægra horni standa kon- urnar sunnan undir vegg og freista manna til að kaupa kaffi. Stóra myndin efst sýnir svo féð rekið heim. Það er fé tilrauna húsins á Skriðuklaustri, sem þarna rennur heim í hagana. hljóp fram sl. vetur, að sögh Jörgens. Á myndum sjáum við aðra gangnamenn. Jónas Pétursson, al þingismaður, aðstoðar við fjár- drátt á myndinni neðst til vinstri. Á eindálka mynd á miðri síðu sést ungur Hafnfirðingur, Gunn- ar Jónsson, sem verið hefur í Fljótsdalsrétt í 3 sumur og er efnilegur fjármaður. Og mynd- in í miðið til hægri sýnir hinn sanna réttarblæ, aldinn bónda, Vigfús Þormar í Geitagerði, og í baksýn fé, hunda á réttarvegg og pela upp úr vasa. mm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.